NT - 12.11.1984, Page 8
Mánudagur 12. nóvember 1984 8
Stórfiskmarkaður Vörumarkaðarins:
Um 30 fisktegundir og 30
sjávarréttir á boðstólum
■ Það var margt um
manninn í Vörumarkaðn-
um við Eiðistorg í gær þeg-
ar blaðamann NT bar þar
að garði. Þar stóð yfir fisk-
markaður, í boði vom um 30
tilbúnir fiskréttir, sem mat-
argerðarmeistarar fyrir-
tækisins höfðu lagað, og
þar að auki voru þar til sölu
allar fisktegundir sent hægt
er að ná til í borginni um
þessar mundir, alls um 30
fisktegundir að sögn Lárus-
ar Einarssonar kjötiðnað-
armanns. Einnig voru á
boðstólum allir helstu
sjávarréttir, svo sem
rækjur, humar, hörpudisk-
ur, skötuselur, rcyktur áll
og fleira. Þá var sérstök
kynning á karfaréttum en
karfi, áll og fleira, hefur
hingað til ekki verið eftir-
læti íslenskra neytenda, en
erlendis þykir hann herra-
mannsmatur.
„Viðbrögð neytenda við
þessari nýjung voru mjög
góð,“ sagði Lárus, „það
hefur verið örtröð viö af-
greiðsluborðin í allan dag.
„Við höfum hugsað okkur
að halda þessu áfram og
bjóða upp á fisk og fiskrétti
eingöngu suma daga á næst-
unni.“ Þeim sem misstu af
fisksölunni í gær skal bent
á að í dag verður ekkert
kjöt í kæliborðum Vöru-
markaðarins, heldur ein-
ungis fiskur og fiskréttir.
Við fengum Ara Dl. Hu-
ynh matreiðslumann til að
þyija fyrir okkur tvær
uppskriftir, meðan hann
var að laga fiskrétti á
bakka. Hér koma þær, og
við vonum að þær komist
Þröng á þingi við kæliborðin.
NT-myndir Róbert.
■ Lárus Einarsson.
og djúpsteikur. Síðan er
lúðan sett í eldfast mót,
tómatsósa sett á hana og
ostsneið þar yfir. Þetta er
bakað í ofni í um 15 mínút-
ur. Ýsan og skötuselurinn
eru sett á fat með lúðunni
að því búnu. Saxaður
laukur er smjörsteiktur á
pönnu og hörpudiskinum
og rækjunni bætt við og
einnig steinselju ogsítrónu-
safa. Þegar þetta het'ur
verið steikt er það sett ofan
á fiskinn.
Bananasósan er löguð úr
tveim söxuðum banönum,
svolitlu majonesi og rjóma
er blandað saman við.
Hinn rétturinn er meira
til hversdagsbrúks.
Karfarúllur með camen-
bert osti:
1. karfaflak, barið og
kryddað með sítrónupipar.
Niðursneiddur camenbert-
ostur lagður yfir. Flakinu
velt upp úr hveiti og vafið
upp í rúllu og steikt þannig.
Hrærðu eggi með raspi
blandað saman við chanti-
liesósu. Verði ykkur að
góðu.
nokkurn veginn rétt til
skila.
Blandaðir sjávarréttir
með bananasósu:
1 biti stór lúða
1 biti ýsa
1 biti skötuselur
niðursneiddir sveppir
rækja
hörpudiskur
sneiddur ostur
bananasósa
Lúðunni og ýsunni er velt
upp úr hveiti og þær steiktar
upp úr smjöri á pönnu.
Skötuselurinn er raspaður
■ Ari Dl. Huynh.
Með ígerð
í
puttanum
■ Maðurinn, sem vinnur
með mér á skrifstofunni hefur
óbilandi trú á mér til að reikna
út vexti og verðbætur. En að
hann hefði enga trú á mér til
annarra verka, vissi ég ekki
fyrr en daginn sem ég fékk
ígerð í fingur.
Eg sagðist þurfa viku veik-
indafrí, því að þetta var fing-
urgómur löngutangar hægri
handar og sá gómur, sem mest
mæðir á við að pikka á allar
vélar. Eg sýndi honum m.a.s.
fingurinn sem sönnunargagn.
Hann spuröi hluttekningar-
laust, hvað hefði eiginlega
komið fyrir þennan putta. Eg
sagðist hafa stungið mig á nál
og nú væri komin ígerð í hann.
„Hvað ertu að meðhöndla
verkfæri, sern þú kannt ekkert
með að fara?"
Þessi ígerð í fingrinum var
vissulega óþægileg, svo að ég
kom við í lyfjabúð á heimleið
úr vinnu og ætlaði að fá mér
spritt til að sótthreinsa hann.
Stúlkan í lyfjabúðinni leit á
mig eins og ég væri viðundur
og sagði, að það væri hætt að
flytja inn spritt. Það hefðu
verið svo rnikil vandræði með
rónana, sem keyptu það og
drukku. Ætli sprittið heyri
undir sömu reglugerð og
bjórinn? Sjálfsagt verður
bráðuni bannað að selja rak-
spíra og kökudropa. Lím verð-
ur örugglega bannað. því það
er hægt að sniffa það. Þá líst
mér nú á postulínsstytturnar
míníir. Ég sé mig í anda fara
inn í búð og biðja um lím.
„Því miður, það er búið að
banna að flytja inn lím. Ef þú
ert í vandræðum með brotna
postulínsstyttu, þá á ég hérna
ágætis teygjuband."
Stúlkan í lyfjabúðinni var
einstaklega lipur og benti mér
á eitthvað sem heitir probonol
og á að gera sania gagn. Svo
vantaði mig sakkarín og bað
um það líka. Stúlkan sýndi
mér fljótandi sakkarín í lítilli
flösku, en það lá við að ég
fengi hjartaáfall, þegar ég sá
verðið, 173 krónur fyrir smá
skíta flösku! Ég bað hana í
guðanna bænum að benda mér
á eitthvað sem kostaði ekki
hvítuna úr augunum. Ég fékk
lítið box með 500 sakkarín-
töflunr á kr. 28.00 Ég fór út úr
lyfjabúðinni og var hálffúl.
Hins vegar hresstist ég til
muna, þegar heirn kom. Ég
var löglega afsökuð við matar-
tilbúninginn. Þaðerstranglega
bannað að eiga við mat, ef
niaður hefur handarmein. Allt
heimilisfólkið getur fárveikst
af einhverjum stórhættulegum
staf..kokkum.
Þess vegna hringaði ég rnig í
besta hægindastólinn, nældi
mér í bók að lesa og beið þess.
að börnin færðu mér matinn.
þótt ekki væri á silfurbakka.