NT - 12.11.1984, Side 10
Mánudagur 12. nóvember 1984 10
Utlönd
Chile:
Lýðræðislof
orðin grafin
Fátæklingar handteknir fyrir „kommúnisma"
■ Augusto Pinochet hershöfðingi og einræðisherra hefur nú
grafíð loforð undanfarinna ára um væntanlegt lýðræði og þingræði
í Chile. Bvssustingjum hersins er aftur beint að almenningi landsins
eins og þegar herinn tók völdin árið 1973. Þá var valdatakan réttlætt
með því að efnahagur landsins væri í rúst vegna vinstrisinnaðrar
stefnu ríkisstjórnarinnar. Síðan hafa hægrisinnaðir hershöfðingjar
verið einráðir um stjórnarstefnuna. En þvert ofan í loforð þcirra
batnaði efnahagur landsins ekki við það heldur er hann nú verri en
nokkru sinni.
Versnandi efnahagur Chile hans. Hann neyddist því til að
undir stjórn Pinochet hershöfð- lofa stjórnarbót og þróun í átt
ingja hefur orðið til þess að tillýðræðisfyrirnokkrumárum.
margir fyrrverandi stuðnings- En raunveruleg völd voru samt
menn hans hafa gagnrýnt stjórn áfram í höndum hans.
NATO:
Kjarnorku-
pólitík á
undanhaldi?
■ Pað hefur lengi verið
yfirlýst stefna NATO að
beita kjarnavopnum að
fyrra bragði sem svar við
sovéskri árás á Vestur-Evr-
ópu jafnvel þótt Sovétmenn
notuðu aðeins hefðbundin
vopn í slíkri árás.
Þessi stefna hefur mjög
verið gagnrýnd af ýmsum
stjórnmálaöflum og fjölda-
samtökum í Evrópu enda
þýðir hún í reynd að NATO
hótar að breyta Evrópu í
orrustuvöll fyrir kjarnavopn
þegar við upphaf stríðs við
Varsjárríkin. En nú kann
þessari stefnu NATO-ríkj-
íinna að verða breytt lítil-
lega á næstunni. Varnarráð
NATO-ríkjanna samþykkti
í gær á fundi sínum í Brussel
að hefja undirbúning að
nýrri áætlun þar sem gert er
ráð fyrir að háþróaðri tækni
verði beitt til að ráðast á
aðflutningsleiðir óvinarins
og liðssafnað hans á óvina-
svæði með „hefðbundnum
vopnum" við upphaf hern-
aðarátaka áður en gripið
verður til kjarnavopna.
Þessi nýja áætlun, sem
hefur verið kölluð „follow-
on force attack, FOFA",
hefur verið gagnrýnd vegna
mikils kostnaðar og vegna
þess að hún gerir ráð fyrir
notkun háþróaðs og ná-
kvæms tæknibúnaðar sem
enn er
(Byggt á Reuter)
Þegar Pinochet lýsti svo aftur
yfir neyðarástandi í Chile í
síðustu viku var jafnvel nánustu
stuðningsmönnum hans í hópi
hægrimanna nóg boðið. Þjóð-
lega einingarhreyfingin, sem
er ein helstu samtök hægrisinn-
aðra stjórnmálamanna í Chile,
hefur lýst því yfir að neyðar-
ástandslögin séu ónauðsynleg
þar sem herstjórnin hefði meiri
en nóg völd fyrir til að bæla
niður ólgu meðal vinstrisinn-
aðra stjórnarandstæðinga. í á-
lyktun sem hreyfingin sendi frá
sér er krafist fjölmiðla- og
fundafrelsis. Slíkt frelsi var
mjög takmarkað áður en nú
hefur það alveg verið afnumið.
En fasistarnir, sem stjórna
Chile, láta sér fátt um finnast
þótt þeirra eigin stuðnings-
mönnum blöskri ofbeldisstjórn-
in og einræðið. f síðustu viku
byrjaði leynilögreglan fjölda-
handtökur á grunuðum stjórn-
arandstæðingum. Fimmtudag
og föstudag voru a.m.k. 100
manns handteknir af leynilög-
reglunni.
Nú á laugardaginn var raf-
magn tekið af fátækrabúðum í
Santiago þar sem um 22.000
manns búa. Skömmu síðar óku
30 brynvarðir bílar inn í búðirn-
ar og herþyrlur sveimuðu fyrir
ofan þær. Búðir þessar hafa
lengi verið þyrnir í augum
stjórnvalda þar sem fátækling-
arnir, sem búa þar, hallast til
stuðnings við vinstrisinna. Nú
átti að útrýma hinni kommún-
ísku hættu sem fátæklingarnir
báru með sér. Um þrjú þúsund
unglingspiltum og fullorðnum
karlmönnum var smalað saman
og þeir fluttir í burtu.
Stjórnvöld halda því fram að
mun færri hafi verið handteknir
eða aðeins um 323. Þetta stang-
ast samt algjörlega á við frá-
sagnir sjónarvotta sem segja
að hermennirnir hafi smalað
öllum karlmönnum á aldrinum
16-60 ára saman í fátækrabúð-
unum. Síðan hafi verið ekið
með þá burt.
Fallega sólbrún allt árið með
SUN LIFE
SUN LIFE er ný aðferð og örugg til að haida sér brúnum allt árið.
SUN LIFE er náttúruafurð, sem verndar gegn sólbruna á árangursríkan hátt.
Taktu 3 töflur daglega í 2*3 vikur áður en þú ferð í sólariandaferð og þú nýtur sólar
án bruna og óþæginda.
Taktu 1*2 töflur á dag og þú munt öðlast fallegan brúnan húðlit allt árið.
SUN LIFE fæst í lyfjaverslunum, snyrtivöruverslunum, sólbaðstofum og víðar.
■ Herinn í Chile handtók um helgina um 3000 unglingspilta og fullorðna karlmenn í einu af
fátækrahverfum Santiago. Mönnunum var smalað saman og þeir síðan fluttir á brott í vögnum.
v Símamynd-POLFOTO
Bretadrottning
ekki berskjölduð
London-Reuter
■ Breska drottningin var mið-'
punktur umfangsmikilla örygg-
isaðgerða bresku lögreglunnar
í gær. Enginn fékk að koma
nálægt henni án þess að gangast
undir nákvæma vopnaleit og
sérþjálfaðar lögregluskyttur
krupu á húsþökum tilbúrar til
að freta niður hvern þann sem
gerði sig líklegan til að ógna
öryggi hennar hátignar.
Sérstakir lögreglumenn gættu
einnig annarra meðlima kon-
ungsfjölskyldunnar þar sem lög-
reglan taldi sterkar líkur á því
að írski lýðveldisherinn myndi
reyna að drepa drottningu eða
annað konungborið fólk nú um
helgina.
Þrátt fyrir þennan ótta lög-
reglunnar tók drottningin samt
þátt í minningarathöfn um þá
sem féllu í heimsstyrjöldinni
síðari. Milljónir sjónvarps-
áhorfenda horfðu á þegar hún
lagði blómsveig við minnis-
merki fallinna hermanna.
Viðbúnaður lögreglunnar til
verndar drottningu var meiri en
nokkru sinni frá því að hún
komst til valda fyrir 32ánirn.
■ Enginn fékk að koma nálægt Elísabetu Bretadrottningu í gær
eða öðru konungbornu fólki án þess að gangast undir rækilega
VOpnalcít. Síniamynd-POLFOTO
Kína:
Ofsalega öfunda ég þig af
þessum fallega brúna lit.
Hvernig ferðu að þessu?
Ég tek inn SUN LIFE. Þú
verður brún á örskömmum
tíma. Jafnvel án sólar.
14 dögum síðar
Eg fylgdi þínum ráðum. Takk.
Einkaumboð: M. Guðmundsson og Co. Símar 91-19112, 21850
■ Kínverjar voru fyrstir
manna til að taka upp próf til
að mæla hæfni manna til að
gegna ákveðnum störfum.
Um aldir og árþúsundirbeitti
kínverska keisaraveldið
ströngu prófakerfi til að velja
embættismenn sína. Emb-
ættismenn ríkisins urðu að
sýna svart á hvítu að þeir væru
vel að sér í fræðum meistara
Konfúsíusar sem ríkið sótti
heimspeki sína til.
Þessi próf héldust að mestu
óslitið til næstu aldamóta þeg-
ar þau voru lögð niður fyrir
þrýsting frá framfarasinnuð-
um menntamönnum sem
töldu embættismenn ekki
þurfa úrelta heimspeki til
starfa sinna. Miklu nær væri
að þeir lærðu vísindi og tækni
af Vesturlöndum.
En nú virðast Kínverjar
aftur vera að hefja embættis-
mannapróf til fyrri virðingar.
Fyrir skömmu var ákveðið að
forstjórar og aðrir embættis-
menn yrðu að standast sam-
ræmd ríkispróf til að sanna
hæfni sína. Hin fornu fræði
Konfúsíusar eru að vísu ekki
meðal námsefnisins heldur
hafa sósíalísk fræði og fram-
kvæmdastjórn komið í þess
stað.
Nú þegar hafa 9.019 for-
stjórar úr fyrirtækjum í iðn-
aði, verslun, byggingu, utan-
ríkisverslun, flutningum og
póstþjónustu gengist undir
slíkt ríkispróf. Kínverska
vikuritið Beijing Review segir
frá því að meðaltalseinkunn
forstjóranna í grundvallar-
stefnumiðum og stjórnmálum
hafi verið 75,78 af 100 mögu-
legum og í framkvæmdastjórn
og verslunarþekkingu hafi
þeir fengið 74,05 að meðaltali.
Aðeins 0,7% forstjóranna féll
í fyrra prófinu en 5,53% féll á
hinu síðara. Áður hafði verið
ákveðið að fallistarnir skyldu
víkja úr starfi fyrir öðrum
hæfari.
En þessi próf voru aðeins
upphafið því að í Kína eru
mörg hundruð þúsund verk-
smiðjur og önnur fyrirtæki.
Væntanlega munu forstjórar
þeirra einnig verða látnir
gangast undir próf á næstunni.