NT - 12.11.1984, Síða 21
■ Sigurður Sveinsson
Mánudagur 12. nóvember 1984 21
Knattspyman í V-Þýskalandi:
Schalke lagði Stuttgart
Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni NT í
V-Þýskalandi:
■ Búndeslíga 12. leikdagur:
153 þúsund áhorfendur sáu 26
mörk. Nítján gul spjöld, þrír í
banni í næsta leik, eftir fjórða
gula spjaldið, og fjórtán leik-
menn hafa fengið þrjú gul og
verða að passa sig. Leik Bay-
ern Múnchen og Borussia
Mönchengladbach varð að
fresta þar sem leikmenn Glad-
bach sátu fastir í Póllandi
vegna þoku eftir leikinn gegn
Widzew Lodz á miðvikudag.
Schalke-Stuttgart........ 4-3
Fjögur mörk á 32 mínútum,
Stuttgart varð fyrir Schalkeeld-
ingunni. Meistararnir sýndu
aðeins síðasta stundarfjórð-
unginn að þeir geta spilað
fótbolta. 23 þúsund áhorfend-
ur trúðu ekki eigin augum, 4-0
eftir 32 mínútur. Taúber skor-
aði á 4. mínútu með skalla eftir
fyrirgjöf Kleppinger, 1-0.
Taúber var aftur á ferð á 8.
mínútu, lék á tvo og negldi af
13 metra færi, óverjandi, 2-0.
17. mínúta: Schatzschneider á
skot, Niedermayer ætlaði að
bjarga, en skoraði í eigið net,
3-0 og Benthaus stóð brjáiað-
ur á línunni. 32. mínúta:
Kleppinger skorar í annarri
tilraun eftir sendingu Schatzsc-
hneiders. Svo mikið hristu
leikmenn Stuttgart hausinn á
leið inn í klefann að annað eins
hefur ekki sést.
Meistararnir komu betur inn
í leikinn í síðari hálfleik. Ail-
göwer skoraði í fjórða 30
metra skoti sínu, og þá voru
aðeins 15 mínútur eftir. Síðan
sóttu meistararnir látlaust. As-
geir gaf á Múller sem skoraði
2-4 með skalla á 80. mínútu,
og Claesen skoraði af stuttu
færi á 88. mínútu, 3-4. Á
síðustu mínútu heimtuðu svo
leikmenn Stuttgart víti, er
Schatzschneider hékk á Karl-
heinz Förster og reif utan af
honum peysuna innan víta-
teigs. En eins og Förster sagði
eftir leikinn þorði dómarinn
ekki að dæma víti og úrslitin
urðu 4-3, og voru nokkuð
sanngjörn.
Ásgeir átti sæmilegan leik,
fékk 4 í einkunn. Allt lið
Stuttgart var með 4 og 5 í
einkunn í Bild.
HSV-Köln............... 3-1
HSV aftur sterkir, en Jimmy
Hartwig, fyrrum leikmaður
HSV skoraði fyrst gegn gangi
leiksins fyrir Köln, en Weh-
mayer jafnaði tveimur mínút-
um síðar, 1-1 í hálfleik.
Wuttke skoraði viðstöðulaust
eftir fyrirgjöf Kaltz í byrjun
síðari hálfleiks, og lokaorðið
átti hann á 60. mínútu, eftir
stungu frá Rolff.
Dússeldorf-Dortmund . 0-0
Afspyrnulélegur leikur, Atli
aftur í vörn og lék sæmilega.
Hver getur leikið betur en það
í slíkum leik? Bæði liðin þurfa
miklar breytingar til að komast
af botninum. Dússeldorf átti
ífærin og sigur skilinn. En það
verður að skora...
Bochum-Úrdingen .... 1-0
Lárus byrjaði inn á, en náði
lítið að sýna gegn sterku Boch-
umliði. Honum var skipt útaf
á 70. mín. Schultz skoraði
mark Bochum.
Frankfurt-
Waldhof Mannheim ... 7-2
Skemmtilegasti leikur helg-
arinnar. Mannheim gafst aldrei
upp, og hið unga lið Frankfurt
sýndi frábæran leik. Eftir 15
mínútur var staðan 3-0, í hálf-
leik 4-1. 2-4 á 59. mín,en síðan
komu þrjú mörk Frankfurt.
Mörk Frankfurt skoruðu
Kremer 3, Krot og Múller 2
hvor.
Önnur úrslit:
Karlsruher-Bielefeld ... 4-0
Leverkusen-Bremen ... 0-0
Kaisersl.-Braunschweig . 1-0
Bayern Múnchen hefur enn
, yfirburðaforystu.
Siggi
skoraði
9 mörk
----“"“--i-------
■■ g#gn numnDvrg
—cr mki markahæstur
Frá Gudmundi Kartssyw, fréttamanni NT í V-Þýska-
landi:
■ Sigurður Sveinsson átti stórleik með
liði sínu Lemgo gegn Húttenberg í
v-þýsku 1. deildinni í handbolta á
laugardag. Lemgo tapaði leiknum
naumlega 24-25, og Sigurður skoraði 9
mörk, var óstöðvandi í síðari hálfleik.
Sigurður er enn markahæstur leikmanna
í Búndeslígunni, hefur skorað 30 mörk
í 6 leikjum.
Húttenberg var yfir 13-8 í hálfleik,
eftir mjög slakan fyrri hálfleik Lemgo.
í síðari hálfleik fór liðið í gang og
Sigurður skoraði stöðugt. Naumt í lokin
og óheppni að tapa.
Úrslit um helgina:
Gummersbach-Grosswallstadt . 20-21
Lemgo-Húttenberg ......24-25
Marsenheim-Schwabing ..17-13
Rein. Fuchse-Dankersen.18-18
Handewitt-Hofweier ....25-22
Essen-Kiel.............22-17
Leikur Essen og Kiel þótti mjög
góður, en honum var flýtt fram á
miðvikudag í síðustu viku. Alfreð var
besti maður vallarins ásamt markverðin-
um Hacker. Alfreð skoraði 8 mörk, 3
víti. Essen er nú efst í deildinni með 10
stig eftir 6 leiki, en Kiel er í öðru sæti
með 8 stig eftir 5 leiki.
Úrslit í NBA:
■ Nokkrir leikir fóru fram í NBA-dcildinni,
bandarisku atvinnumanna körfuboltanum á laug-
ardaginn.
Úrslit voru þessi:
Chicago Bulls-Indiana Pacers 118-116
NY-Knicks-Kansas City Kings 113-100
Washington Bullets-Boston Celtics 112-95
Detroit Pistons-MUwakee Bucks 104-100
San Antonio Spurs-Cleveland C aval. 127-103
Houston Rockets-San Diego Clippers 117-92
Dallas Maverics-Seattle Superson. 106-102
Denver Nuggets-Utha Jazz 147-135
Atlanta Nawks-Phoenix Suns 114-107
Blak í Japan:
■ Úrslit í 8-landa keppninni í blaki
sem fram fer í Japan: Á sunnudag unnu
Sovétmenn Kínverja 3-0, USA vann
Japan 3-0, Pólland vann Búlgaríu 3-1,
Kórea vann Mexíkó 3-0.
Sovétmenn eru efstir, hafa ekki tapað
leik á mótinu.
iiSSSií
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Heiðraði viðskiptavinur.
Nýja bókin okkar heitir á einföldu íslenzku máli
SPARIBÓK
meðsérvöxtum
Hún á að fulinægja þörfum þeirra, sem vilja hafa
vaðið fyrir neðan sig. Þetta er bók sem hentar
þeim, sem ætla að spara til langs tíma, en vilja
þó hafa aðgang að fé sínu fyrirvaralaust.
Þessi bók gefur hærri ávöxtun því lengur sem
innstæðan er óhreyfð eða allt að 28?ó á ári.
í bókina er skráð innstæða og vextir, hér barf
ekki stofnskírteini eða vfirlit. Hún kemur
samt ekki í stað gömlu góðu almennu sparisjóðs-
bókarinnar, en sameinar ýmsa kosti hennar
annars vegar og bundinna reikninga hins vegar.
Þetta er einfalt kerfi og vel skiljanlegt og
þarfnast ekki upphrópana.
l/erið velkomin í afgreiðslustaði bankans til
að kynna ykkur þessa nýju sparibók og aðrar
sparnaðarleiðir Búnaðarbankans. \lið teljum,
að bankinn geti nú sinnt hinum margvíslegu
þörfum viðskiptamanna með beztu ávöxtun
sparifjár.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS