NT - 12.11.1984, Page 23
hæstu ávöxtun?
Sparifjáreigendum standa ýmsir kostir til boða þessa dagana.
Bankar, sparisjóðir og verðbréfasalar bjóða hver í kapp við annan
„hæstu” ávöxtun sparifjár.
Enginn dómur verður lagður hér á þessi tilboð, heldur aðeins vakin athygli
á því að rétt er fyrir sparifjáreigendur að kynna sér vel allar hliðar mála.
Ríkissjóður hefur í tvo áratugi tekið lán innanlands hjá sparifjáreigendum
í formi spariskírteina, og hyggst halda því áfram.
Kjör spariskírteina ríkissjóðs hafa á hverjum tíma verið einhver þau
hagkvæmustu sem völ hefur verið á og eru það enn.
Nú býður Ríkissjóður til sölu spariskírteini
í 3. flokki 1984.
Með fullri verðtryggingu og 8% föstum vöxtum
ta viðbótar.
Binditími er 3 ár, en vakin er athygli á því að spariskírteini ganga kaupum
og sölum á frjálsum markaði, ef losa þarf fé.
Ríkissjóður býður betri ávöxtun en flestir aðrir á markaðinum— sérstaklega
þegar haft er í huga að fjárfestingin er fyrirhafnarlítil og algerlega áhættulaus.
Það borgar sig að kynna sér kjörin á spariskírteinunum.
Útboðsskilmálar liggja frammi hjá söluaðilum sem eru Seðlabanki íslands, bankar,
sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS