NT - 30.11.1984, Síða 9
r
Gallerí Borg:
Vatnslita-
myndir
Sigurðar
Thoroddsen
■ Sýning á 50 vatnslitamynd-
um eftir Sigurö Thoroddsen
verkfræðing var opnuð í Gall-
erí Borg fimmtud. 29. nóv.
Sýningin stendur til mánudags-
kvölds 10. desember.
Sigurður Thoroddsen lést í
júh'mánuði 1983 á áttugasta og
öðru aldursári. Hann var sjálf-
menntaður myndlistamaður -
málaði og teiknaði í frístund-
um sínum, en aðalstarf hans
var á sviði verkfræði. Árið
1974 hætti hann öllum verk-
fræðistörfum og helgaði sig
myndlistinni þau ár sem hann
átti ólifuð.
Sigurður hélt fjórar einka-
sýningar og tók þátt í fjórum
samsýningum Félags ísl.
myndlistamanna.
Myndirnar á þessari sýningu
eru flestar málaðar á árunum
1977-1983.
í Gallerí Borg er einnig
hægt að fá keypta ævisögu
Sigurðar, en hún kemur út hjá
Bókaútgáfu Máls og menning-
ar þessa dagana.
Gallerí Borg er opið frá
klukkan 10.00-18.00 virka
■ Dætur Sig. Thoroddsen, Halldóra og Guðbjörg, við uppsetn- daga 0g 14.00-18.00 laugar-
ingu sýningarinnar. daga og sunnudaga.
Listafólk sem á verk á jólasýningunni í Listmunahúsinu.
NT-mynd Árni Bjarn
Jólasýning í Listmunahúsinu
■ Föstudaginn 30. nóvember
kl. 17.00 verður opnuð jóla-
sýning í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2. Á sýningunni
verða leirverk, tauþrykk og
myndverk unnin meö ýmiss
konar tækni eftir 11 listamenn.
Þeir eru:
Aðalheiður Skarphéðins-
dóttir, Ásrún Kristjánsdóttir,
Borghildur Óskarsdóttir, Eyj-
ólfur Einarsson, Helgi Þorgils
Friöjónsson, Herborg Auð-
unsdóttir, Kolbrún Björgólfs-
dóttir, Kolbrún Kjarval, Lís-
bet Sveinsdóttir, Olöf Einars-
dóttir og Sigurður Örlygsson.
Sýningin, sem er sölusýning,
er opin daglega frá kl. 10.00-
18.00, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14.00-18.00. Lok-
að mánudaga. Sýningin stend-
ur til jóla.
■ Þrír sænsku listamannanna
■ í austursal sýna Pétur Stefánsson, Steingrímur Þorvaldsson, sem sýna í vestursal.
Stefán Axel, Óniar Skúlason og Magnús V. Guðlaugsson verk sín. (NT-mvmtir Ámi Bjamai
Snorri Sveinn Friðriksson
sýnir í Norræna húsinu
■ Meðal þeirra listaverka
sem á uppboðinu verða er
málverk eftir Jóhann Briem
frá 1947.
NT-mynd Árni Bjarna
Gallerí Borg heldur
listmunauppboð
■ Olíumálverk eftir Jóhann
Briem, stórt abstraktverk eftir
Þorvald Skúlason, landslags-
mynd eftir Jóhannes Kjarval,
tvær myndir eftir Nínu Tryggva-
dóttur, vatnslitamyndir eftir
Ásgrím Jónsson, Barböru
Árnason og Snorra Arinbjarn-
ar eru meðal þeirra verka sem
verða á fyrsta listmunaupp-
boðinu sem Gallerí Borg held-
ur nú á sunnudaginn kl. 15.30
á Hótel Borg.
Verkin verða sýnd á Hótel
Borg, gyllta-sal. á morgun,
laugardag, kl. 14-18, en áður
en uppboðið sjálft hefst á
sunnudag leika þeir Þorvaldur
Steingrímsson og Guðni
Guðmundsson tónlist fyrir
uppboðsgesti og hefst leikur
þeirra kl. 15.
Opnaðar 3 nýjar sýning-
ar á Kjarvalsstöðum
■ Laugardaginn 1. desember
verða opnaðar 3 sýningar að
Kjarvalsstöðum kl. 14.00.
1) í vestursal sýna 5 lista-
menn frá Gautaborg málverk.
Þeir eru: Tore Ahnoff, Erland
Brand, Lennart Landqvist,
Lars Swan ogJens Mattiasson.
Um þá segir m.a. í sýningar-
skrá: „Þeir eru mjög frá-
brugðnir hver öðrum í list-
rænni tjáningu, en eiga samt
sam áður mjög margt sameig-
inlegt. Þeir eiga allir rætur í
því andrúmslofti, sem ríkt hef-
ur í málaralist í Gautaborg
síðastliðna fjóra áratugi og
þeir lærðu allir í Listaskóla
Valand á fjórða og fimmta tug
aldarinnar."
2) Á vesturgangi sýnir Hörð-
ur Vilhjálmsson 35 Ijósmyndir
í lit.
3) í austursal sýna eftirtaldir
listamenn málverk. Þeir cru
Pétur Stefánsson, Steingrímur
Þorvarldsson, Stefán Axel,
Ómar Skúlason og Magnus V.
Guðlaugsson.
Sýningarnar verða á Kjar-
valsstöðum til 16. desember.
Opiðalladagafrákl. 14 til 22.
■ Snorri Sveinn Friðriksson
opnar sýningu í Norræna hús-
inu 1. desember. Sýningin heit-
ir Þræðir úr ljóðum og er
fjórða einkasýning Snorra
Sveins Friðrikssonar.
A sýningunni eru fimmtíu
myndir unnar nú á þessu ári út
frá ljóðum í nýrri ljóðabók,
Víðáttum eftir Sigvalda Hjálm-
arsson. Ljóðabókin ergefin út
í 300 tölusettum eintökum og
árituð af höfundi. Bókin verð-
ur fyrirliggjandi á sýningunni.
Opnunartími sýningarinnar
er frá kl. 17.00-23.00 virka
daga, en um helgar frá kl.
15.00-23.00. Sýningin stendur
til 9. desember.
■ Snorri Sveinn Friðriksson að störfum.
■ Hörður Vilhjálmsson sýnir
Ijósmyndir,