NT - 30.11.1984, Blaðsíða 11

NT - 30.11.1984, Blaðsíða 11
 Föstudagur 30. nóvember 1984 11 og farseðlarnir sem ekki fengust endurgreiddir ■ Árni Blandon. ■ Árni Blandon hefur undanfarnar vikur kynnt okk- ur nokkra söngleiki. Mttur hans á miðnætti í nótt (24.00) heitir „Söngleikir í Lundún- um“ - og er áttundi þáttur hans um söngleiki. í þessum þætti kynnir Árni „Bugsy Malone“ eftir Paul Williams, eins og hann er á sviði í London. Flestir hér á landi kannast við kvikmyndaútgáfuna af Bugsy Malone, þar sem krakk- ar voru í aðalhlutverkum. Það er ekki langt síðan sú mynd var sýnd hér í sjónvarpi meðJodie- Foster íeinuaðalhlutverkinu. Krakkarnir léku og sungu eins og þaulvanir leikarar og söng- varar, og var hin besta skemmtun að horfa á myndina. Árni Blandon mun halda eitthvað áfram með söngleikjakynningar sínar, en ekki fengust ákveðnar upplýs- ingar hjá útvarpinu um hversu margir þættir hans yrðu. áróðri fyrir ferðum vestur um haf, reyndust því margir hafa áhuga á að færa sig um set í von um betra líf í nýju landi. Jón segir okkur smávegis frá þætti sínum í kvöld. Þetta er upprifjun á þeim áhuga sem upp kom í Þing- eyjarsýslu fyrir um hundrað árum á vesturförum og þá í sambandi við Brasilíu. Þessi áhugi var sérlega áberandi í kom skipið. Fólkið hafði þar með misst aleiguna sína, því að ekki fengust farseðlarnir endurgreiddir þó að eftir því væri leitað og jafnvel til dóm- stólanna. Einar Ásmundsson, stórbóndi í Nesi og alþingis- maður, hafði haft milligöngu um að selja fólkinu farseðlana, en þegar málið var rekið fyrir dómstólum, var hann ekki sek- ur fundinn og þurfti ekki að ábyrgjast endurgreiðslu far- seðlanna. En hver er Baldvin Bárðdal? „Baldvin Bárðdal kemur þannig við þessa sögu, að það er stuðst við hans frásögn af þessu. Sjálfur var hann aðeins barn að aldri, þegar þessir atburðir gerðust, og í fylgd með foreldrum sínum. Hann var Bergvinsson én uppalinn í Bárðardal og hefur trúlega tek- ið sér Bárðdalsnafnið, þegar hann dvaldist eitthvað í Ame- ■ Árið 1980 tilkynntu kín- versk stjórnvöld, að „vegna yfirvofandi hættu á offjölgun þjóðarinnar leyfðist kínver- skum hjónum, þaðan í frá, aðeins að eignast eitt barn í hjónabandinu“. Sýnd verður nú í sjónvarpinu bresk heim- ildamynd um viðleitni stjórn- valda í Kína til að takmarka barneignir. Hjónaefnum er t.d. ekki leyft að giftast fyrr en þau eru í það minnsta 24 ára, og þau verða að fá heimild frá vinnu- stað eða sveitarstjórnum áður en þau geta hugsað til þess að eignast barn. Fjölskyldur með einbirni fá uppbót á laun og aukafrídaga, og þeim er lofað að barnið fái pláss íháskóla, ef það hefur áhuga á að læra. Foreldrar með fleiri en eitt barn tapa 5% af launum og verða fyrir útgjöldum í sam- bandi við læknishjálp og menntun barna sinna. Þetta þykir ýmsum hart, en Kínverj- um er þó ljóst að án strangra reglna væri fyrirsjáanleg of- fjölgun þjóðarinnar og hætta á hungursneyð innan fárra ára. Myndin sýnir okkur hvernig þessar ströngu reglur hafa náð fram að ganga í iðnaðarborg- inni Chanzhou í grennd við Shanghai, þar sem íbúar eru um hálf milljón. Þarna er lýst ■ Líklega eru þeir ekki bræður, kínversku drengirnir á myndinni. gangi mála á tveimur vikum í mars 1983, og fylgst með starfi Madam Chen sem erháttsettur embættismaður og vinnur af öllum mætti að takmörkun barneigna. ríku. Hann giftist hér síðar á ævinni og var hér búsettur. Hann átti hér eina dóttur, nokkru áður en hann giftist. Hún hét Valrós Baldvinsdóttir og var gift Pétri Jónassyni, sem var verksmiðjustjóri í síldar- verksmiðjunni á Hjalteyri, og átti afkomendur. Það er sem sagt gömul frásögn eftir Bald- vin sem er uppistaðan í þættin- um, en svo leitaði ég mér víðar heimilda um þetta út frá því,“ segir Jón frá Pálmholti. f Kína verða hjón að sækja um leyfi til að geta barn! Bárðardal, Fnjóskadal og sveitum þar í kring. Nokkrir fóru þangað, en í þættinum er sagt frá fólki sem aldrei komst svo langt. Þar er sagt frá fólki, sem hafði selt aleiguna, bú, jörð og búsmala og keypt sér farseðil til Brasilíu. Fólkið hélt síðan til Akureyrar, þar sem því hafði verið sagt að skip myndi koma og sækja það! Fólkið beið og beið en aldrei ■ Fyrsti liður Kvöldvöku í kvöld, sem hefst kl. 20.40, er frásöguþáttur sem Jón frá Pálmholti hefur tekið saman og flytur. Hann ber nafnið Baldvin Bárðdal og Brasilíu- fararnir. í þættinum segir Jón frá atburði, sem gerðist fyrir rúm- lega einni öld. Þá var hart í ári hér á landi, ekki síst norðan- lands. Þegar fór að bóla á ■ Jodie Foster ásamt tveim meðleikendum sínum í kvikmynd- inni Bugsy Malone. ■ Nú á dögum er unnið að því að höggva niður skóga á Amazonsvæðinu í Brasilíu og þurrka upp fenin þar til að auka nýtanlegt landrými, og hafa margir áhyggjur af þessari miklu röskun náttúrunnar þar. Fyrir rúmum 100 árum var hér öðru vísi um að litast, en þá álitu margir íslendingar Brasilíu fyrirheitna landið og vildu gjarna setjast þar að. Utvarp föstudag kl. 20.40: Brasilíuferðin sem brást Sjónvarp föstudag kl. 21.40: Útvarp föstudag kl. 24. Árni Blandon kynn ir Bugsy Malone Föstudagur 30. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25. Leikfimi. 7.55. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur Sigurðar G. Tómassonar frá kvöld- inu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð Jón Ó. Bjarna- son talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Dularfullir atburðir í Fínuvík" eftir Turid Balke. Matthías Krist- iansen les þýðingu sína. (4). 9.20 Leikfimi. 9.30 ' Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbi. (útdr.). 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli sér um þáttinn. (RÚVAK) 11.15 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Á bókamarkaðinum Andrés Björnsson sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir Dóra Ingvadóttir 14.30 Á léttu nótunum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. a Horn- konsert nr. 1. I D-dúr eftir Joseph Haydn. Franz Tarjáni og Liszt- kammersveitin í Prag leika; Frig- yes Sándor stj. b. Fiðlukonsert nr. 5 I A-dúr K. 219 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Steven Staryk og „National Arts Centre“ - hljóm- sveitin leika; Mario Bernardi stj. 17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a. Baldvin Bárð- dal og Brasilíufararnir Jón frá Pálmholti tekur seman frásöguþátt og flytur b. I túnfætinum - Böðvar Guðlaugsson les frumort Ijóð c. Meinleg örlög æskumanns Tómas Helgason flytur frásögn eftir Ját- varð J. Júlíusson (fyrri hluti) Umsjón: Helga Ágústsdóttir 21.30 Korriró. Tónlistarþáttur í umsjá ívars Aðalsteinssonar og Ríkharðs H. Firðrikssonar 22.15 Veóurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Traðir Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sigfússon. 23.15 Á sveitalínunni Umsjbn: Hilda Torfadóttir (RÚVAK). 24.00 Söngleikir í Lundúnum 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. Föstudagur 30. nóvember 10:00-12:00 Morgunþáttur Fjörug danstónlist. Viðtal, gullaldarlög, ný lög og vinsældalisti. Stjórnend- ur: Jón Ólafsson og Sigurður Sverrisson. 14:00-16:00 Pósthólfið Lesin bréf frá hlustendum og spiluð óskalög þeirra ásamt annarri léttri tónlist. Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16:00-17:00 Bylgjur Framsækir rokktónlist. Stjórnandi: Ásmundur Jónsson 17:00-18:00 í föstudagsskapi Þægi- legur músikþáttur I lok vikunnar. Stjómandi: Hplgi Már Barðason. 23:15-03:00 Næturvakt á Rás 2 Stjórnendur: Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson. (Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá Rásar 1.) Föstudagur 30. nóvember 19.15 Ádöfinni UmsjónarmaðurKarl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 19.25 Veröld Busters Fjórði þáttur. Danskur framhaldsmyndaflokkur f sex þáttum, þýðandi Olafur Haukur Símonarson. (Nordvision Danska sjónvarpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.45 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Ólafur Sigurðsson. 21.15 Grínmyndasafnið Bræðra- byltur Skopmynd frá árum þöglu myndanna. 21.40Aðeins eitt barn (China’s Child) Bresk heimildamynd um veiðleitni stjórnvalda I Kína til að takmarka barneignir. Þótt ýmsum þyki hart að sæta ströngum reglum, sem settar hafa verið I þessu skyni, er Kinverjum Ijóst að án þeirra væri fyrirsjáanleg offjölg- | un þjóðarinnar og hungursneyð I innan fárra ára. Þýöandi Helgi Skúli Kjartansson. 22.40 í iðrum Apaplánetunnar (Be- neath the Planet of the .oes) Bandarísk bíómynd í á 1969, framhald „Apaplánetunnar" sem sýnd var í Sjónvarp.u i apríl síðastliðnum. Leikstjóri T: J Post. Aðalhlutverk: James Fran :iscus, Charlton Heston, Linda Har ison og Kim Hunter. Nokkrir gelmfarar hafa lent eftir langa forc : , "and- legri plánetu þar sem mmnapar ráða ríkjum en menn eru ánauðug- ir. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 00.10 Fréttir i dagskrárlok.-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.