NT - 30.11.1984, Side 23

NT - 30.11.1984, Side 23
 Föstudagur 30. nóvember 1984 23 Útlönd Fjárlagahallinn bandaríski: Formúla Stockmans - niðurskurður til trygginga- og varnarmála Washington-Reuter. ■ Efnahagssérfræðingar Hvíta hússins lögðu í gær fram tiliögur sínar um það hvernig hægt sé að rétta við hinn gífurlega halla sem nú er á bandarískum fjárlögum. Fjárlagahallinn hefur þótt vera helsti hængurinn á fjármálastjórn Reagans forseta, en Reagan hefur þvertek- ið fyrir skattahækkanir til að fylla upp í fjárlagagatið. I tillögum sérfræðinganna með David Stockman í fararbroddi er lagt til að útgjöld ríkisins verði skorin niður um 240 mill- jarða dala á næstu þremur árum eða um 45 milljarða 1986, 85 milljarða 1987 og 110 milljarða dala 1988. Þetta þýðir vitaskuld að ríkið þarf að minnka umsvif sín á ýmsum sviðum, jafnvel í varn- armálum. Heimildir í Washing- ton herma að gert sé ráð fyrir því í tillögunum að útgjöld til hersins verði skorin niður um 58 Bandaríkin: Skorin upp herör gegn barnaklámi Washington-Reuter ■ William von Rabb, tollstjóri í Bandaríkjunum, tjáði í gær þingnefnd, sem rannsakar glæpastarfsemi í Bandaríkjun- um, að bandarísk stjórnvöld hefðu hafíð mikla herferð gegn svokölluðu barnaklámi. Von Rabb sagði að tollverðir rannsökuðu nú í stórum stíl póstsendingar frá Hollandi, Danmörku og Svíþjóð, en það- an berast að hans sögn um 85 prósent af því barnaklámi sem flutt er inn til Bandaríkjanna. Tollvörður bar einnig vitni fyrir nefndinni og sagði að í einu klámritinu væri sýnt hvar fullorðinn maður reyndi að hafa samfarir við barn, sem vart gæti verið meira en átján mánaða gamalt. Von Rabb sagði að yfirvöld hefðu handtekið fjölda manns sem dreifir barnaklámi í Banda- ríkjunum og auk þess hefðu utanáskriftir á klámsendingum gefið vísbendingu um hvar mætti hafa upp á því fólki sem hefur sjúklega tilhneigingu til að misnota börn kynferðislega. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur veitt tollayfirvöldum þar aukið svigrúm til að rannsaka póstsendingar. Fyrir nefndina kom einnig Kenneth Herrmann, fulltrúi al- þjóðlegrar barnaverndarstofn- unar. Hann sagði að um 170 milljón börn í heiminum gætu átt á hættu að lenda í höndunum á vændismeglurum eða fram- leiðendum barnaklámsoghvatti til þess að alþjóðlegt átak yrði gert til að koma á skrá þeim sem slíkt athæfi stunda. Herrmann nefndi mörg dæmi sem stofnun hans hefur safnað um kynferðislega misnotkun barna. Hann ræddi um sérstakar „barnaklámferðir" sem fólki í Evrópu, Japan og Bandaríkjun- um eru boðnar til Thailands, Filippseyja og fleiri staða í Asíu. Hann hélt því fram að börn gengju kaupum og sölum á uppboðum í Amsterdam. f gær neituðu borgaryfirvöld í Amsterdam þeim ásökunum. Herrmann sagði einnig frá því að klámframleiðendur í Ástralíu hefðu fengið að ætt- leiða börn frá Filippseyjum með hjálp alþjóðastofnana. Þau börn hefðu síðan verið notuð við framleiðslu kláms. Drýgstur hluti af því barna- klámi sem framleitt er í heimin- um fer á markað í Bandaríkjun- um að sögn Herrmanns. milljarða dala á þessum þremur árum. Víst er að slíkar fyrirætl- anir geta mætt mikilli andstöðu, til dæmis hjá Weinberger varnar- málaráðherra. í áætlun Stockmans er einnig lagt til að eftirlaun verði skorin niður,svo og fjárframlög til elli- heimila og heilsugæslu fyrir aldraða, stuðningur við bændur verði minnkaður og að Banda- ríkin hætti í bili að safna að sér olíu og bensíni, en nauðsynlegt þykir að þau eigi rnikinn elds: neytisforða í öryggisskyni. í tillögunum er auk þess lagt til að ýmsum verkefnum og fyrirætl- unum Reaganstjórnar verði frestað. Áætlanir Stockmans hafa ver- ið kynntar fyrir leiðtogum úr þinginu og töldu þeir flestir að erfitt yrði að ná þeim markmið- um sem þar eru sett. Að sögn er hljómgrunnurfyrirþví íþinginu að sparað verði á öllum sviðum ríkisfjármálanna, en ekki ráðist með oddi og egg að einstökum útgjaldaliðum. Loks selur Hitler ■ Þessi þekkilega vatnslitamynd var í fyrradag seld á uppboði í London fyrir 4600 pund eða rúmlega 200 þúsund ísl. kr. Það er kannski ekki í frásögur færandi,ef þessi sveitasælumynd frá Bæjaralandi væri ekki cftir sjálfan Adolf Hitler, misheppnaðan málara, sem vegna lánleysis síns í myndlistinni varð síðar skelfír allrar heimsbyggðarinnar. Kaupandinn var breskur safnari. Á uppboðinu voru eingöngu boðnir upp munir frá nasista- tímanum, þar á meðal þrjú önnur málverk eftir Hitler, sem fengu lélegri viðtökur. Símamynd-POLFOTO Yasser Arafat endurkjörinn leiðtogi PLO Amman-Reuter ■ Yasser Arafat var í gær kjörinn formaður nýs fram- kvæmdaráðs Frelsissamtaka Palestínu á þingi samtakanna sem haldið er í Jórdaníu. Arafat, sem hefur verið leið- togi PLO, síðan 1969, sagði af sér í upphafi þingsins, en mun hafa ákveðið að sitja áfram vegna áskorana. Kosningin er talin styrkja stöðu hans, en hann hefur átt mjög í vök að verjast. Helstu anstæðingar Arafats, sem eru studdir af Sýrlendingum sækja ekki þingið. Arafat og ellefu menn í framkvæmdafáðið voru kjörnir mótatkvæðalaust. Þingið hefur einnig gefið Arafat umboð til að halda áfram viðleitni sinni til að bæta sambúð PLO og Jór- daníu og Egyptalands. Harð- línumenn meðal Palestínuar- aba eru þessu mjög mótfalln- ir. Júgóslavar gera kröfu í auðæfi gamals konungs Bern-Reuter ■ Júgóslavíustjórn hefur farið þess á leit við svissnesk yfírvöld að beita sér fyrir því að banka- reikningur Alexanders, fyrrum Júgóslavíukóngs í Sviss verði opnaður. Að sögn munu auðæfí Alexanders í svissneskum bönkum nema milljónum dala í gulli og reiðufé. Alexander var veginn af kró- atískum þjóðernissinnum er hann var í opinberri heimsókn í Frakklandi árið 1934. Samkvæmt svissneskum bankalögum er heimilt að opna einkareikninga fimmtíu árum eftir dauða eigenda þeirra. Júgóslavar munu líklega gera kröfu í auðæfin eða leggja erfðaskatt á einhvern hluta þeirra. Svisslendingar hafa enn ekki svarað þessari málaleitan. ■ Chileher beitti gríöarlegri hörku til að reyna að kæfa í fæðingu mótmælaaðgerðir sem andstæðingar Pinochets einræðisherra boðuðu fyrr í þessari viku. Þeir vildu mótmæla herlögunum sem herforingjastjórnin setti á fyrir skömmu og því hversu seint gengur að endurreisa lýðræðið í landinu. Herbílarog skriðdrekar voru hvarvetna á ferli og komu í veg fyrir að fólk næði að safnast saman. Á myndinni sést viðbúnaður hersins í verkamannahverfinu La Victoria í Santiago. Byssa tilræðismanns ins hljóp í baklás Aþena-Reuter ■ Jórdönskum sendifulltrúa í Aþenu var í gær gert banatil- ræði er hann var á heimleið ásamt tveimur ungum börnum sínum. Dóttir hans, sem var í bílnum, sá mann sem hélt á byssu og gerði ítrekaðar tilraun- ir til að hleypa af. Skotvopn til- ræðismannsins virðist hafa stað- ið á sér. Öfgamenn hafa verið iðnir við að ráðast að jórdönskum erindrekum á erlendri grund. Starfsmaður sendiráðsins í Aþenu var veginn fyrir rúmu ári og um svipað leyti særðust sendiherrar Jórdaníu í Róm og Nýju-Delhi í skotárásum. Undirritað í Páfagarði Páfagarður-Reuter ■ Utanríkisráðherrar Chile og Argentínu komu saman í Páfagarði í gær og undirrituðu samkomulag þjóðanna um svokallað Beagle-sund, sem liggur undan suðurodda Suður- Ameríku. Við lá að grann- þjóðirnar færu í stríð vegna sundsins árið 1978, en Jóhann Páll páfí greip í taumana og miðlaði málum. Utanríkisráðherrarnir luku báðir lofsorði á samn- inginn og sögðu hann lýs- andi dæmi um að þjóðir gætu leyst deilur sínar á friðsaman hátt. Utanríkis- ráðherra Páfagarðs, Cas- aroli kardínáli, var einnig viðstaddur og sagði að páfi gleddist mjög yfir samn- ingnum. Hann áréttaði einnig boð Páfagarðs um að taka að sér hlutverk málamiðlara í deilum þjóða.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.