NT - 30.11.1984, Síða 28

NT - 30.11.1984, Síða 28
Eldur í Erlingi VE: Málningin sviðnaði og kaplar bráðnuðu - frá veiðum fram að vertíð? ■ Þetta var lítill eldur og litlar skemmdir - málniug sviönaði og þaö bráðnuðu raf- magnskaplar, sagði Stefán Friðriksson skipstjóri og annar eigandi Vestmannaeyjabátsins Erlings en eldur kom upp í bátnum í gærmorgun. Erlingur var rétt kominn út úr höfninni þegar eldsins varð vart niðri í ■ Efamál er að þetta útvarps- viðtæki nái nokkurn tíma aftur sinni fögru ásjónu eða komi Ivrirleitt að nokkru gagni. NT-mynd: GuAm. Sigþúrss. lúkar. Lokuðu þá skipverjar hurðum og kölluðu á slökkvi- liðið. Slökkviliðið var svo til taks þegar Erlingur lagði að bryggju rétt 10 mínútum síðar og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Ekki er talið ólíklegt að eldsupptök hafi verið í eldavél en málið er í rannsókn. Óvíst er hversu lengi þetta óhapp tefur frá veiðum en skipið er 22 tonna og var á línuveiðum. Sagði Stefán að vel gæti farið svo að í kjölfar þessa yrði skipið tekið í við- gerðir og endurbætur fyrir vertíðina sem hefst í jánúar. ■ Það hefur ekki verið kræsileg aðkoma fyrir kokkinn. Þó ekki sé um neinar meiri háttar skemmdir á bátnum að ræða var aðkoma í eldhúsinu Ijót þegar Ijósmyndari NT smellti þessum myndum af í gær. NT mynd: Guöm. Sigþórss. Barnabætur 15. þús. krónur með hverju barni: 85 milljónir í skatt - á næsta ári samkvæmt nýju stjómarfrumvarpi ■ Á næsta ári munu eig- endur skrifstofu- og versl- unarhúsnæðis greiða 85 milljónir króna í skatt af húsnæðinu. Stjórnarfrumvarp þessa efnis var lagt fram á al- þingi í gær. Skrifstofu- og verslunarhúsnæðisskattur var fyrst lagður á árið 1979 og hefur verið endurnýj- aður síðan, eitt ár í senn. Frumvarpið gerir ráð fyrir að skatturinn nemi l. I % af skattstofni scm er i fasteignamatsverð. Þá var lagt fram frum- , varp um barnabótaauka. Þar er gert ráð fyrir að 15.()()() krónur verði grciddar með hverju barni innan 16 ára aldurs, hafi foreldrar innan við 275.000 krónur á árinu 1984 í tekjuskattstofn. Upphæðin skerðist eftir það, uns aukinn fellur al- veg niður fari tckjuskatt- stofn foreldra yfir 462.000 krónur. Þessi barnabótaauki var fyrst greiddur út á þessu ári, í samræmi við tillögur lj, aðila vinnumarkaðarins, ra eftir febrúarsamningana ; síðustu. Helgarveðrið ■ Það verður hæg breytileg átt um allt land og él á víð og dreif um allt land; mest norðanlands. Einhverjar sól- skinsglennur annarsstaðar. Gráður á Celsíus 0 c vaxtareikningur VÖSN GEGN VERÐBÓLGU Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. Betri kjör bjóðast varla. %

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.