NT - 01.03.1985, Blaðsíða 11

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 11
Föstudagur 1. mars 1985 11 naumast hægt að hugsa sér. Þær ferðir urðu færri, þegar hann varð forstjóri stofnunarinnar, því að þá tóku önnur vandamál og viðfangsefni við. Eðli sínu trúr lagði hann mikla vinnu. í það starf og oft langt umfram það, sem góðu hófi gegndi. Það voru farin að sjást á honum þreytumerki og ég veit, að hann var farinn að hlakka til að snúa sér aftur að rannsóknarstörfum. Upp á síðkastið ræddum við oft um, að það færi að verða tíma- bært að hefja ferðir saman að nýju, en nú er það um seinan. Ég trega fráfall Gunnars Ólafssonar, því að með honum er genginn einn ágætasti maður, sem ég hef þekkt og starfað með. Hann var viðkvæmur í lund.hreinskiptinn og grandvar til orðs og æðis og afburða samviskusamur vísindamaður. Sem yfirmaður stofnunarinnar naut hann óskoraðs trausts og vináttu starfsfólks síns. Það er mikil harmsaga, þegar góður drengur og mikilhæfur maður hverfur fyrir aldur fram frá ást- vinum og frá ótal viðfangsefn- um, sem hugur hans stóð til að fást við. Við vottum Unnu Maju, börnum þeirra Gunnars og aldr- aðri móður hans, dýpstu samúð okkar og biðjum Guð að blessa minningu góðs drengs. Ingvi Þorsteinsson. Andlátsfregn Gunnars Ólafs- sonar kom sem reiðarslag. Þó að við vissum að hann væri ekki heilsusterkur og hefði oftar en einu sinni verið lagður inn á sjúkrahús í stuttan tíma í senn þá var sú hugsun víðs fjarri að hann ætti stutt eftir ólifað. Við vissum hvor af öðrum á menntaskólaárum okkar en það var ekki fyrr en ég hóf nám á Ási í Noregi að ég kynntist þeim Gunnari og Unnu Mæju en hann var þá þar við nám. Heimili þeirra var aðalathvarf okkar íslenskra námsmanna á staðnum og ég var jafnvel stað- inn að því hjá þeim að gera mér ekki grein fyrir að ég væri í Noregi en ekki heima á fslandi. Síðan hef ég og mitt fólk átt það ríkidæmi að eiga heimili þeirra að og það er enginn lítill kapituli í lífi okkar. Gunnar Ólafsson var hógvær maður og laus við að trana sér fram. Þó varð það hiutskipti hans að stjórna stórri stofnun, Rannsóknastofnun landbúnað- arins, auk þess að sitja í ótal stjórnum og ráðum. Það gerð- ist þannig að hann var kallaður til starfa og eftir honum var leitað enda kom í ljós að öllum störfum sínum sinnti hann af sömu trúmennskunni. Með hlýrri framkomu og velvild leysti hann þau mál sem í valdi hans var að leysa og var þó ekki auðvelt að stjórna stofnun sem búið hefur við sífellt þrengri fjárhag á undanförnum árum. En það er Gunnar sjálfur,. fjöskylda hans og heimili, sem er mér þó ofar í huga en em- bættisferill hans á þessari stundu. Þekking Gunnars á mönnum og málefnum var óvenjumikil enda átti hann það ekki langt að sækja, sonur Ólafs Hanssonar. Heimili hans var sannkallað menningarheimili þar sem engin yfirborðs- mennska þreifst. Hvar heyrði maður skarpari og hnyttnari umsagriir um samtíðarviðburði? Hvar fundu þeir sem áttu um sárt að binda meiri hughreyst- ingu? Hvar voru bókmenntir og listir betur krufnar? Um sumt er komist þannig að orði að það sé auðveldara sagt en gjört. Hér á við hið gagnstæða. Það er erfið tilhugsun að eiga ekki Gunnar Ólafsson lengur að en það er á hinn bóginn fjársjóður sem aldrei verður frá manni tekinn að hafa átt hann að, vináttu hans og drenglyndi. Ég og fjölskylda mín sendum fjölskyldu Gunnars og aðstand- endum innilegustu samúðar- kveðjur. Matthías Eggertsson. Minningi Marteinn Skaftfells Fæddur 14. ágúst 1903 Dáinn 20. febrúar 1985 Kveðja frá Heilsuhringnum. Marteinn Skaftfells, vinur okkar og félagi átti frumkvæðið að stofnun Heilsuhringsins árið 1977 og var fyrsti formaður félagsins. Með honum hverfur af sjónarsviðinu litríkur, sterkur og heillandi persðnuleiki, sem verður öllum ógleymanlegur sem kynntust honum. Hann var flestum fróðari um allt er sneFti holla lifnaðarhætti og fagnrt mannlíf og var óspar á að miðla öðrum af þekkingu sinni, sem hann stöðugt bætti við og endur- nýjaði. Hann var mikill höfðingi heim að sækja og verða okkur ógleymanlegar margar stundir á heimili hans og Astrid, sem hvatti mann sinn til allra góðra verka. Hann fræddi og leiðbeindi án þess að prédika og dæma eða skipa fyrir. Hann var örlátur og gaf af sjálfum sér og var ákfalega næmur á tilfinningar og líðan annarra, ekki einungis manna heldur einnig málleys- ingja. Hann lét því ekkert tæki- færi ónotað ef hann taldi sig geta orðið þeim að liði, sem voru hjálparþurfi og minni máttar. Marteinn var fullhugi og bar- áttumaður allt til hinstu stundar og hopaði hvergi, þótt stundum sýndist við ofurefli að etja. Hann lét aldrei sinn hlut ef honum þótti gengið á rétt al- mennings til greiðari aðgangs að heilsubætandi fæðuefnum. Við þökkum Marteini sam- fylgdina og alit það góða, sem hann gaf af örlæti hjarta síns. Astrid,eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Stjórn Heilsuhringsins Vinur minn Marteinn Skaft- fells er látinn. Mikll baráttumaður hefur lokið ævistarfi sínu. Maður, sem þorði að standa við skoðanir sínar hvar og hvenær sem var. Eldhugi, sem aldrei þreyttist á því að vekja skilning manna á þeim einfalda sannleika að góð heilsa er dýrmætasta eign hvers manns, að við getum aflað okk- ur vitneskju um hvað er líkama okkar til uppbyggingar og hvað við verðum að forðast ef við óskum eftir því að lifa góðu lífi lengi. Marteinn Skaftfells missti heilsuna á besta aldri og barðist við sjúkdóminn af siíkri karl- mennsku og einurð að með eindæmum var. Árangurinn lét ekki á sér standa. Arin urðu áttatíu og eitt og þrekið síst minna en almennt gerist. Mar- teinn var aðalhvatamaður að stofnun Heilsuhringsins árið 1977. Byrjað var að gefa út tímarit félagsins Hollefni og heilsurækt árið 1978. Fyrstu árin var Marteinn formaður félags- ins og átti alltaf glæsta drauma um framtíð þess. Sumir þeirra hafa ræst, aðrir eru enn í deigl- unni, en árangur starfs hans og annarra innanlands sem utan, er vinna að því að glæða áhuga manna á heilbrigðu lífi lýsir sér í því, sem glöggt má sjá hvar- vetna í dag: áhugi fólks og skilningur á þessum efnum hef- ur stóraukist og fer stöðugt vaxandi. Digur sjóður er enginn til í eigu félagsmanna og vinna við blaðið er öll unnin í sjálf- boðavinnu, en samvinna er góð. Við óskum þess af alhug að draumur vinar okkar Marteins Skaftfells megi rætast - að mað- urinn læri að varðveita líkam- lega heilsu sína og vinni gegn mengun og niðurrífandi efnum í umhverfinu. Móðir mín og ég þökkum Marteini ráð á síðast liðnum áratug og óskum honum far- sældar á nýjum leiðum. Astrid konu hans vottum við innilega samúð. Hún hefur með huga og höndum hjálpað svo mörgum, að hún hlýtur að fá ríkuleg laun. Elfa Björk Gunnarsdóttir { dag kveðjum við hugsjóna- og baráttumanninn Martein Skaftfells. Marteinn var fæddur að Auðnum, Meðallandi 14. ágúst 1903, en ólst að mestu upp á Álftanesi. Hann tók kennarapróf árið 1933 og bætti síðar við menntun sína í Askov, Kennaraháskóla Kaupmannahafnar og Háskóla Islands auk ýmissa námskeiða bæði utanlands og innan. Kennslu stundaði hann þar til hann fór á eftirlaun. Hann hóf sambúð með Þór- unni Björnsdóttir árið 1931, en þau slitu samvistum að sex árum liðnum. Þau áttu tvö börn saman, Heiðar kvikmyndagerð- armann í Vestmannaeyjum og Venný Keyth, gift og búsett í Vesturheimi. Eftirlifandi kona hans er As- trid fædd Vik, hjúkrunarkona ættuð frá Noregi. Þeirra sonur er Hákon sem nú er fram- kvæmdastjóri heildverslunar- innar Elmaro. Marteinn lagði á sinni löngu ævi gjörva hönd á margt fleira en kennslustörf. Hann sat allra manna lengst í stjórn Náttúru- lækingafélags fslands og var einn aðalhvatamaður að stofn- un Heilsuhælis NLFI í Hvera- gerði og NLFI búðarinnar. Hann var lengi formaður Dýra- verndarfélags Reykjavíkur, vann að málefnum Sólskríkju- sjóðsins og ýmsum öðrum dýraverndunarmálum. Þá þýddi hann eða frumsamdi fjölda barnabóka auk annarra rita um ýmis málefni. Þekktast- ur var Marteinn þó sennilega fyrir ótölulegan fjölda greina um heilsufræðileg efni, sem birst hafa í dagblöðum og tímaritum um heilbrigðismál, sérstaklega Heilsuvernd og Hollefni og heilsurækt, sem Heilsuhringur- inn gefur út, en Marteinn var fyrsti formaður hans. Marteinn var hugsjóna- og baráttumaður. Eigin reynsla ásamt skarpri greind og opnum hug fékk hann til þess að endur- skoða hefðbundnar hugmyndir um sjúkdóma og heilbrigði. Hann veiktist mjög alvarlega árið 1946 og var þá ekki hugað líf. Hinn þekkti frumkvöðull og baráttumaður Jónas Kristjáns- son, læknir, kom honum þá til aðstoðar og óbilandi viljaþrek Marteins og lækniskunnátta og hæfileikar Jónasar unnu það kraftaverk að koma honum til heilsu, þó að líkamsþrek Mar- teins hafi þó líklega aldrei náð sér að fullu. Þetta opnaði augu hans fyrir því að læknisfræðin væri að mörgu leyti á villgötum. Orsök ýmissa sjúkdóma mætti rekja til rangra lífsvenja og alveg sér- staklega til rangrar og ófull- nægjandi næringar, sem fylgir efnaskertri matvöru í nútíma þjóðfélögum. Þetta leiddi til þess að hann fór að kynna sér gagnsemi bæti- efna og hvernig skortur þeirra leiðir til sjúkdóma og vanheilsu. í milli þrjátíu og fjörtíu ár las hann allt sem hann náði í um vísindalegar rannsóknir um þessi éfni og var áskrifandi að fjölda erlendra tímarita um slíka rannsóknir og éinnig um það sem á nágrannamálunum er nefnt „alternativ medicin", þ.e.a.s. óhcfðbundnar lækn- ingaaðferðir, sem sannanlega geta oft athyglisverðan árangur. Þekking hans á næringarfræði og fæðubótarefnum var því orð- in mjög yfirgripsmikil og hefðu margir, einnig háskblagengnir í þeim fræðum, getað ýmislegt af honum lært. Hann stofnaði innflutnings- fyrirtækið Elmaro árið 1946 til að bæta úr tilfinnanlegum skorti fæðubótaefna hér á landi. Mar- teinn notaði þekkingu sína á þessum vörum til að velja til innflutnings það sem hann taldi best og nauðsynlegast að fólk hefði aðgang að hér á landi. Fljótlega fóru þó vissir sterkir aðilar, sem ætla má að hags- muna hafi átt að gæta í sam- bandi við innflutning lyfja, að reyna að hindra innflutning þessara efna. Beittu þeir til þess aðferðum sem Marteinn taldi brjóta í bága við lög og reglu- gerðir auk þess að vera ögrun við heilbrigða skynsemi og rannsóknir þekktra erlendra vísindamanna. Þá benti hann á það með réttu, að túlkun hlið- • stæðra laga í nágrannalöndun- um væri öll önnur en hér á landi og flest þau heilsubótarefni sem hér hefur verið reynt að banna sölu á væru seld hindrunarlaust þar. Vel má vera að einhverjum En hvað það er skrýtið að hún Hulda mágkona mín skuli vera að verða sjötug. Hún sem er svo ungleg, hress og glöð. En það fer víst ekki á milli mála að þetta er gangur lífsins. Hulda er fædd á Ösi í Breiðdal 1. mars 1915. Móðir hennar var Rósa Jónsdóttir og faðir Emil Guðmundsson frá Felli í Breiðdal. Emil dó ungur. Hulda ólst upp hjá móður sinni og stjúpa, Sigurpáli Þorsteinssyni frá Flögu í Breiðdal. Þau Rósa og Sigurpáll bjuggu nokkur ár á Ósi, en fluttu árið 1937 að Hóli í sömu sveit og bjuggu þar til 1954. En þá brugðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur. Voru þá börn þeirra uppkomin og flest farin að heiman. Eftir að fjöl- skyldan flutti að Hóli var Hulda lítið heima, var var farin að vinna utan heimils. Meðal ann- ars var hún eitt sumar kaupa- kona á Víðilæk í Skriðdal. Auk venjulegrar barna- fræðslu fyrir fermingu, sótti Hulda námskeið í Kvennaskólann á sem les þessar línur finnist ósmekklegt í minningargrein að rifja upp þessi mál. Um það verður vitanlega hver og einn að hafa sína skoðun, en það er hreinlega ekki hægt að skrifa um Martein Skaftfells án þess að þetta sé rætt. Ég er þess fullviss að hvar sem andi Mar- teins dvelur nú, þá ætlast hann beinlínis til þess að ég minni á baráttumál hans í meira en þrjátíu ár í þessari grein. Hann barðist lengi vel, að mestu einn, við ofureflið og í fjölda greina í dagblöðum sést, að á stundum var sú barátta óvægin á báða bóga. Andstæðingar hans skreyttu nöfn sín oft með alls- konar lærdómstitlum, en hann varð að láta sér kennaranafn- bótina nægja. Þekking hans var þó svo yfirgripsmikil, að í fræði- legum efnum máttu „sér- fræðingarnir14 vara sig. Marteinn hafði hvassan stíl og var ófeiminn að segja það sem hann taldi sannast og réttast. Sumt af því var þessi eðlis, að hefðu andstæðingar hans verið með algerlega hrein- an skjöld málefnalega séð, þá hefðu þeir auðveldlega átt að geta höfðað mál á hendur hon- um og fengið orð hans dæmd ómerk. Enginn hafði þó kjark til þess og sýnir það e.t.v. betur en flest annað hver hafði rétt fyrir sér. Sumt af hugsjónum Marteins er nú orðið að veru- leika og hugmyndir hans hafa smátt og smátt síast út í þjóðfé- lagið, og einnig læknar hafa tileinkað sér þær. Annað bíður framtíðarinnar. Hallormsstað. Hefur það nám vafalaust komið henni til góða á lífsleiðinni. Árið 1940 giftist hún Birni Bjarnasyni á Borg. Hófu þau búskap þar en höfðu fremur lítið bú. Björn vann mikið við húsabyggingar og margskonar smíðar. Svo er það árið 1947 að Birkihlíð losnar úr ábúð og flytja þau Björn og Hulda þangað. Var þar brátt tekið til hendi við byggingar. Byggt var við íbúðarhúsið sem var lítið, því fjölskyldan stækkaði ört. Þau Hulda og Björn eignuðust átta mannvænleg börn, sem öll eru gift og hafa komið sér vel fyrir. Banrabörnin eru nú 21. Birkihlíðarheimilið hefur jafnan verið mannmargt og gestagangur mikill. Hefur vinnu- dagur Huldu vafalaust oft ver- ið langur. Eftir að börnin stálp- uðust fór Hulda að vinna utan heimilis. Vann hún mörg haust í sláturhúsinu á Egilsstöðum. Á síldarárunum fór hún með krakka með sér til Seyðisfjarðar t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og útför Ólafs Björnssonar fyrrverandi bónda Jósefina Pálmadóttir Pálmi Ólafsson Aðalbjörg Þorgrímsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Jón T ryggvason Skafti Kristófersson Sigríður Skaftadóttir Þorbjörn Sigurðsson og barnabörn 70 ára Hulda Emilsdóttir Birkihlíð, Skriðdal Marteinn leitaði ávallt sann- leikans í hverju máli og þó að hann væri oft óvæginn í skrifum um andstæðinga sína, fyndist honum réttu máli hallað, var hann mikill mannþekkjari og fljótur til sátta ef hann taldi að einhver hefði af fljótfærni eða fávisku fremur en af illvilja veist að honum eða sagt eitthvað sem hann taldi rangt. Hann hafði andstyggð á undirferli og flærð, enda voru þeir þættir skapgerð- ar einna fjarst eðli hans. Einnig var hroki í öllum myndum hon- um lítt að skapi. Sjálfur var hann allra mann ljúfastur, þrátt fyrir heita skapgerð, og allra vanda reyndi hann að leysa, væri það á færi hans. í blaðadeilum var oft reynt að láta líta svo út að hagsmunir Elmaro væru það eina sem skipti máli fyrir Martein og fyrir hann væru hagnaðarsjónarmið aðalatriðið. Slík skrif verkuðu þó sem argasta öfugmæli á þá sem þekktu hann eitthvað. Fáa veit ég sem peningagræðgi hefur minna þjáð en Martein. Allt hans starf var unnið af hreinni hugsjón, en vitanlega getur eng- inn látið leggja ævistarf sitt í rúst án þess að bera hönd yfir höfuð sér. Hversu margir hafa ekki heimsótt heimili þessara hjóna á liðnum árum og verið leystir út með gjöfum í formi bætiefna og hollra ráðlegginga? Kynni okkar Marteins hófust í Heilsuhringnum árið 1978 og hef ég síðan verið tíður gestur á heimili þeirra hjóna. Það er ávallt mikið lán að kynnast góðu fólki. Marteinn varóvana- legur og sérstæður persónulciki, sem öllum sem kynntust hlaut að þykja vænt um og verður ógleymanlegur í minningunni. Um þátt Astrid konu hans í lífsstarfi hans mætti skrifa langa grein en hún hefur alltaf staðið sem klettur við hlið hans í blíðu og stríðu, auk þess að búa honum fallegt heimili. Missir hennar er því sárastur, en ég veit þó, að hún býr ýfir þeirri trúarvissu að skilnaðurinn sé aðeins tímabundinn. Nú kveðjum við hugsjóna- manninn, baráttumanninn og mannvininn Martein Skaftfells. Ég og fjölskylda mín biðjum þess að sá er öllu ræður veiti ástvinum hans styrk og óska þess um leið að við ættum fleiri menn sem líktust Marteini Skaftfells. Ævar Jóhannesson og saltaði sfld. Mörg ár var hún matráðskona við barnaskólann á Hallomsstöðum. Fleira mætti telja. í félagsmálum hefur Hulda verið vel liðtæk. Hefur um áratuga skeið verið í Kvenfé- lagi Skriðdalshrepps, og í stjórn þess uns hún gaf ekki kost á sér lengur. Þá hefur hún lengi verið í kirkjukór Þingmúlakirkju. Síðast og ekki síst nrá geta þess að Hulda hefur þó nokkr- um sinnum gegnt ljósmóður- störfum þegar þannig hefur staðið á. Margt fleira mætti nefna, en læt ég hér staðar numið. Við hjónin óskum þér Hulda mín til hamingju með sjötugs afmælið og framtíðina. Stefán Bjarnason Flögu

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.