NT - 01.03.1985, Blaðsíða 12
Föstudagur 1. mars 1985 12
■ Johnny Weissmuller er frægasti Tarzan allra tíma og öskrii
fékk kait vatn til að renna milli skinns og hörunds á bíógestum.
■ 1981 var gerð fræg mynd um Tarzan, þar sem Miles O’Keefe fór með titilhlu
Þá lék Bo Derek Jane og hlaut lítið lof fyrir. En Miles hélt sig að góðum og gii
uppskriftum að því, hvernig ætti að túlka Tarzan. Nú virðist nýtt sjónvarmið ur
það.
Var Tarzan mildur og
Ijúfur villimadur?
■ Murgar kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir hinni frægu sögu Edgar
Rice Burroughs um Tarzan, kon-
ung frumskóganna, og margir
leikarar hafa spreytt sig á að túlka
hann á hvíta tjaldinu. Flestir hafa
þeir komið og farið án mikillar
eftirtektar, en Johnny Weissmuller
varð einna lífseigastur í hlutverk-
inu, enda vel að manni. Sérstak-
lega er mörgum aðdáendum hans
minnisstætt hið fræga og óeftirlíkj-
anlega öskur hans.
En í nýjústu Tarzun-myndinni
kveður við nýjan tón. Hún heitir
hvorki meira né minna en „Grey-
stoke-þjóðsagan um Tarzan, hús-
bónda apanna“! Christopher Lam--
bert gerir Tarzan þar að ljúfum og
mildum manni, sem aldrei myndi
hvarfla að að gefa frá sér þvílík
óhljóð, sem Johnny Weissmuller
gerði að einkenni Tarzans.
Ástæðuna til þessarar stefnu-
breytingar er að finna í hugarheimi
Hughs Hudson, leikstjóra og pró-
dúsents myndarinnar. Hann segir
að tími sé til kominn að segja
söguna í sinni sönnu og réttu
mynd, þ.e.a.s. einsoghöfundurinn
hafi haft í huga.
Saga Burroughs sagði frá því er
breskur aðalsmaður, greifinn af
Greystoke, verður skipreika við
vesturströnd Afríku ásamt ófrískri
eiginkonu sinni. Skömmu eftir að
konan verður léttari, og hefur alið
son, deyr hún og risastór apaynja,
simpansi, drepur greifann, en hef-
ur son hans á burt með sér.
Aparnir ala drenginn"upp, sýna
honum hvaða ávexti og rætur hon-
um er óhætt að borða og kenna
honum mál sitt.
Drengurinn þroskast og dafnar
vel og sökum gáfna sinna og hæfi-
leika verður hann gerður að „kon-
ungi frumskógarins". Dag nokkurn
finnur vísindamaður á ferð hann,
tekur hann með sér ti! Englands og
þar er tekið á móti honum sem
erfingja greifans af Greystoke. Þar
kynnist hann Jane sinni, og við þau
kynni rennur upp fyrir honum,
hvers hann hefur farið á mis í
frumskóginum í félagsskap ap-
anna.
■
■ Fósturmóðir Tarzans, Kala, heldur hér á ungabarninu.
■ Christopher Lambert sýnir nýja tegund
af Tarzan í nýjustu myndinni um þá frægu
persónu.
■ Glenn Morris var 8.
Tarzaninn. í myndinni
„Hefnd Tarzans“, sem gerð
var 1938, barðist hann ber-
um höndum við Ijón um
hvort þeirra skyldi hljóta
titilinn „Konungur frum-
skógarins“.
■ Lex Barker var Tarzannr. 10. „Tarzan
brýtur hlekkina“ nefnist mynd sem hann lék
í 1953, en þar var Joyce MacKenzie í einu
hlutverkanna.
íM /