NT - 17.03.1985, Qupperneq 9
:
' •• : : : ■ :
M Rúmrí öld
eflir dauða
Bachs málaði
listamaðurínn
Toby Edward
RosenthaI þessa
mynd af ham-
ingjuríku
heimilislífi
Bachs, sem hér
situr við sem-
balið, meðan
börnin safnast
syngjandi um
hann. Með fyrri
konu sinni átti
hann sjö börn,
en þrettán með
þeirri síðari.
Sunnudagur 17. mars 1985 9
haldið konsert." Synirnir Wil-
helm Friedmann, Carl Philipp
Emanuel, Johann Christian og
Johann Cristoph Friedrich urðu
allir þekkt tónskáld, þótt þeir
stæðu föður sínum óralangt að
baki.
Þegar vegur sonanna var hvað
mestur við hinar ýmsu hirðir í
Þýskalandi voru verk ganila
mannsins samt löngu gleymd.
Meðan verið var að flytja „Messí-
as“ jafnaldra Bachs, Hándels, í
Ameríku og F.nglandi með 5000
rnanna kórum þekkti ekki nokkur
maður „Matteusar-passíuna".
Það var loks er hinn tvítugi Mend-
elsohn Bartholdy gekkst fyrir
flutningi'hennar í Berlín 1829 að
frægðarferill Bachs hófst.
Allsherjarandi
„Þetta er enginn stakur andi,
þetta er allsherjarandi," skrifaöi
Albert Schweitzer, hinn mikli
Bachtúlkandi. En þrátt fyrir það
samdi „allsherjarandinn" nota-
lega tónlist til heimilisnota. ef svo
má segja, sem lagið um' tóbaks-
pípuna, svo ekki sé minnst á
„kaffi-kantötuna".
Þrátt fvrir rýr kjör var Bach
samt ætíð kóngur í sínu eigin
ríki - ríki tónlistarinnar. Aðeins
einu sinni, tveimur árum fyrir
dauða sinn, yfirgaf hann Leipzig
á þeim langa tíma sem hann bjó
þar. Hnn fór þá í fáeina daga til
Potsdam, þar sem sonur hans,
Carl Philipp, var semballeikari
við hirðina. „Drottinn minn dýri,
hann Bach gamli er kominn,"
sagði Friðrik mikli og lagði frá
sér flautuna. Hann sleit strax
hinum venjubundna kvöldkon-
sert og bauð gamla manninum til
hallarinnar Sanssouci.
Bach gekk inn í höllina í ferða-
fötunum, sveittur og rykugur,
„Hann stóð þarna eins og bergrisi
eitthvert furðudýr út úr liðinni
tíð,“ segir tónlistarsögufræð'-
ingurinn Alfred Einstein. Kóng-
urinn neyddi hann til þess að
prófa öll sembölin senr í höllinni
voru, teymdi hann úr einum
salnum í annan. Loks spilaði
Friðrik mikli lag eftir sjálfan sig
á flautuna og skipaði Bach að
semja upp úr því sex radda fúgu.
En Bach varð að afþakka. Hann
gat þegar í stað leikið scx radda
fugu við eigið lag, en ekki við lag
fúskarans konungboma. En þegar
að ferðinni lokinni tók hann sig
til og samdi verk upp úr lagslúf
kóngsins og sendi honum með
tileinkun. Verkið kallaði hann
„Fórnarlamb tónlistarinnar". Þar
gerði hann lævíslegt grín að hin-
um mikla manni.
Sjóndepra sótti á Bach með
aldrinum. Hann var cnn á lífi
þegar farið var að svipast um
eftir nýjum kantor við kirkjuna,
scm ber ekki vott um mikla
tillitssemi. En Bach lct sig hvergi
og gckkst meira að segja undir
tvo augnauppskurði; ckki síst til
þcss að halda stöðunni. Sjónin
batnaði um hríð, cn hann bjó
ckki lengi að þeim bata, því liann
lést úr slagi hinn 28. júlí 1750.
Á næstu döguni mun færi gef-
ast á að hlýða á verk Bach á
ýmsum vettvangi, jafnt í útvarpi
scm hljómleikasölum. Þarerfæri
fyrir þá scm ekki liafa kynnst
manninum sem nefndur hefur
verið upphaf og endir alls sem
máli skiptir í tónlist að bæta ráð
sitt en hina að votta meistaranum
lotning á 300 ára afmæli hans.
á bílasýningu í Lágmúla5 um helgina.
Vor og sumartískan 1985 er
komin frá Frakklandi. Við sýn-
um fjóra stórglæsilega Citroén
bíla á bíiasýningu laugardag
og sunnudag frá ki. 13—17.
Það eru engar stórbyltingar í
sniðum og stærðum, enda
breytir Citroén aldrei breyting-
anna vegna.
Citroen
1985
Hvernig væri að iíta við og máta
einn góðan um helgina.
Opið frá kl. 13-17 laugardag
og sunnudag.
BX16 TRS sportfrakki, sem reynst hefur
frábærlega við íslenskar aðstæður.
CX 20 Pallas, sannkallaður útgerðar-
mannsfrakki með öllu.
GSA Pallas, traustur klassískur frakki
sem hentar jafn vel öllum árstíðum.
CX 25 Familiale, 8 manna fjölskyldu-
frakki, óskadraumur leigubílstjórans.
£
G/obusf
LÁGMÚLI5,
SÍMI81555
CITROEN A