NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 17.03.1985, Qupperneq 14

NT - 17.03.1985, Qupperneq 14
Myrkur minnisleysisins I Fyrr í vikunni voru stofnuð Samtök aðstandenda og áhugamanna um sjúkdóminn Alzheimer eða heilabilun. Sjúklingar sem þjást af þessum sjúkdómi hafa orðið útundan í heilbrigðiskerfinu og er brýnt að þeir og aðstandendur þeirra fái úrlausn mála sinna. Alzheimer sjúkdómurinn leggst cinkum á eldra fólk, fólk komið á eftirlaunaaldurinn, þó svo að fjölmörg dæmi séu til um það að mun yngra fólk verði fyrir barðinu’á honum. Til að byrja með lýsir sjúkdómurinn sér með minnis- tapi, sem síðan ágerist þangað til jafnvel kærustu minningar einstaklingsins og vitneskjan um ástvini ogættingja hverfur í myrkuróminnis- ins. Srnám saman er manneskjan rænd mennsku sinni og virðingu og deyr félagslegum dauða. En ógæfa Alzheimer sjúklinga ríður ekki við ein- teyming. Eftir að hafa sorfið að félagslegri tilvist sjúklinganna leiðir sjúkdómurinn til enn frekari líkamshrörnunar, sem lýkur í svefndái og loks dauða. Minnið brestur Það var árið 1006 að Alois Alzheimer upp- götvaði óeðlilega hnoðra af samtvinnuðum taugafrunrutrefjum í heila rúmlega fimmtugrar konu, en hún hafði látist af völdum heilabilunar. Lengi vel var þó talið að þessir hnoðrar taugatrefja væri óalgeng undantekningartil- felli, sern lítið væri hægt að byggja á. Fyrirbærið var því meira og minna afgreitt sem ótímabær ellihrörnun. Það cr liins vegar ekki fyrr en á sjöunda áratugnum, þegar rafeindasmásjár komu til sögunnar, að vísindanrenn gerðu sér grein fyrir því að hér var um sjúkdóm að ræða ■ sem hvorki var fágætur né einskorðaður við elli. Eitt aðaleinkenni Alzheimer sjúkdómsins er minnisleysi. Það merkir samt ekki, að allir sem komnir eru á efri ár og farnir aö missa minnið að einhverju lcyti þjáist af honum. Vel er hugsanlegt að aðrar ástæður séu fyrir slíkum einkennum, sem þá jafnvel er hægt að lækna. Þrátt fyrir það, að Alzheimer valdi að einhverju eða öllu leyti um 50-70% þeirra tilfella þar sern alvarleg kölkun á sér stað, er mikilvægt að fá kvillann greindan fljótlega eftir að einkenna verður vart. Margrét Gústafsdóttir, hjúkrunar- forstjóri á öldrunarlækningadeild Borgarspítal-, ans, sagði í samtali við blaðamann að þetta væri einmitt mjög mikilvægt atriði: „Þegar fulloröið fólk ruglast í ríminu eða virðist hafa misst tengslin við umhverfi sitt, þá verður alltaf fyrst og fremst að útiloka að það séu ekki einhverjar læknanlegar ástæður fyrir því. Það er ýmislegt sem getur verið að og margt er hægt að meðhöndla, því eldra fólk er að öllu jöfnu mjög viðkvæmt fyrir álagi og jafnvel lungnabólga eða eitthvað því um líkt getur framkallað þessi einkenni.“ Ennfremur getur verið erfitt að greina milli þess sem kalla mætti eðlilegt minnistap samfara elli og svo þess þegar Alzheimer sjúkdómurinn er á byrjunarstigum. Segja má að þá fyrst fari fólk að gera sér grein fyrir því að um alvarlegt mál sé að ræða þegar minnisleysið er farið að há fólki annað hvort í starfi þess eða leik. „Ég marg les sömu bókina, en man ekki stundinni lengur um hvað hún fjallar," segir einn sjúklingur með Alzheimer sjúkdóminn á frumstigi. Mjög algengt er að þegar sjúklingurinn er á þessu stigi forðist hann að horfast í augu við vandann og geri eins lítið úr honum og unnt er. í sjálfu sér verður það að teljast eðlileg viðleitni fólks, sem ekki vill detta út úr þeim félagslegu hlutverkum sem það hefur sinnt. Oft og tíðum tekst því merkilega vel að breiða yfir minnisleysi sitt. En slíkum felulei'k fylgja oft ýmsar aukaverkanir eins og Margrét Gústafsdóttir bendir á: „Fólki líður mjög illa þegar það finnur að minnisleysið er að ágerast verulega og því fylgir þessu kvíði, vanlíðan og depurð, og stundum er talið erfitt að greina milli heilabilunar og þunglyndis." Dómgreindin brestur Þó minnisleysið sem slíkt sé aðal byrjunar- einkennið á Alzheimersjúkdóminum getur verið um fleiri einkenni að ræða. Erfiðleikar í sam- bandi við rnál og breytingar á persónuleika og atferli manna geta einnig komið fram á fyrstu stigum sjúkdómsins. Sumt af þessu má að einhverju leyti rekja til þess að menn eru að reyna að takast á við verkefni hversdagsins með skertu minni. Annað getur stafað af erfiðleikum við samræmingu hugar og hreyfinga, eins og til dæmis ef fólk á erfitt með að greiða sér, reima skóna sína og þess háttar. Sjúkdómseinkennin fara þó fyrst að gera vart við sig fyrir alvöru á öðru stigi sjúkdómsins, en þá fer sjúklingurinn að missa dómgreindina. Á þessu stigi er hann iðulega ekki dómbær á umhverfi sitt og getur gleymt hvar hann býr, hverjir eru hans nánustu og hvar viðeigandi á að örna sér. Enn hefur sjúkdómurinn þó ekki skert líkanrlega getu þessa fólks svo mikið að það sé ekki rólfært og líti að mörgu leyti eðlilega út. Því er sú hætta sífellt yfirvofandi að það fari sjálfu sér eða öðrum að voða. Þegar hér er komið sögu þurfa sjúkling- arnir á gæslu og umhyggju að halda allan sólarhringinn og eins og við munum víkja að nánar hér á eftir, hefur þessi umönnun að mestu lent á aðstandendum sjúklinganna. Heilbrigðiskerfið brugðist Það má til sanns vegar færa að útbreiðsla sjúkdómsins sé skelfandi, en þó segja þær tölur sem að ofan hafa verið nefndar ekki alla söguna um fjölda þeirra sem beint eða óbeint verða fyrirbarðinu á sjúkdómnum. Álagið ergífurlegt á aðstandendur og ættingja hins sjúka, en yfirleitt þurfa þeir að sinna gæslu- og umhyggju- hlutverkinu að mestu eða öllu leyti. Það virðist vera sammerkt með heilbrigðiskerfum fjöl- margra Vesturlanda að hafa ekki tekist á við þau vandamál, sem koma upp í sambandi við Jón Jónsson, Reykvíkingur með I Hér á eftir fer ágrip af harmsogu reykvísks borgara, sem um 11-12 ára skeid hefur þjáðst af Alzheimer sjúkdómnum. Á þessum líma hefur maðurinn, Jón Jónsson (sem ekki er hans rétta nafn), og aðstandendur hans gengið í gegnum erfiðleika, sársauka og kvíða. Þegar sagan hófst, snemma á áttunda áratugn- um, var Jón í erilsömu starfi hjá opinberri stofnun í Reykjavík, en þar hafði hann starfað í u.þ.b. 40 ár. Honum hefur verið lýst sem orðheppnum, víðlesnum, greindum, spaugsöm- um, og unglcgum í útliti ntiðað við það sem gerist um menn á hans aldri. Þegar enn voru tvö ár í aö Jón þurfti að láta af störfum fyrir aldurs sakir, ákvað hann að hætta. Ástæðan sem hann gaf fyrir þessari ákvörðun sinni var sú, að það væri eitthvað farið að gefa sig í kollinum á honum og hann ætti erfitt með að rnuna sunia hluti stundinni lengur. „Minnisleysið, senr snráni saman fór að ágerast, for í taugarnar á Jóni og bölvaði hann því iöulega og velti fyrir sér hvort ekki væri hægt að fá eitthvað við þessu," segir dóttir hans. Um svipað leyti og Jón hættir störfum, varð hann fyrir ástvinamissi sem reynd- ist honum þungbær. Því fór það svo, að næstu fjögur árin bjó Jón einn, og átti í vaxandi erfiðleikunr með minnið. Þó var það honuni til láns, að dóttir hans og fjölskylda hennar bjó í næsta nágrenni og voru mikil samskipti þarna á milli. Dóttirin gaf fylgst grannt með föður sínum. Hver ert þú? Urn ástand Jóns á þessum árum segir dóttirin: „Ég sá að þetta varalltafað versna. Égfann litla miða út um allt hús þar sem hann hafði skrifað hvað klukkan var á mismunandi tímunr dagsins: Klukkan er ellefu; klukkan er tólf á hádegi; o.s.frv. Með þessu var hann að reyna að minna sjálfan sig á hvað klukkan væri, því hann var hættur að geta fylgst með því hvaða tími dagsins var. Hann var hættur að gera greinarmun á nóttu og degi.Þegar þetta var á byrjunarstigi vorum við aðstandendurnir, og þá sérstaklega unga fólkiö, ekki alveg viss um hvort hann var að grínast viö okkur og athuga hvernig við myndum bregðast við uppátækjum sínunt. Hann var alltaf skýrmæltur og oft hnittinn í orðum og leit út, líkamlega, alvegeinsog liann átti að sér. Gleymsku-köstin urðu þó fljótlega tíöari, þó enn ætti hann stundum „bctri" daga inn á milli, eins og dóttirin orðaöi það. í þessum köstum þekkti hann ekki sína nánustu. Til dæmis þegar ég stóð hér inni og var eitthvað að tala við hann, þá sagði hann kannski allt í einu: „Heyrðu góða, hver ert þú?“ „Nú, ég er hún dóttir þín, þekkirðu mig ekki?" „Nei," sagði hann þá, en skömmu seinna áttaði hann sig og var leiður yfir atvikinu. Einhverntíma líkti hann þessum köst- um við martröð sem hann lokaðist inni í og kænrist ekki út úr. Þetta var meða’n hann enn skynjaði heiminn í kringum sig, á köflum í það minnsta, á þokkalega raunhæfan hátt." í eigin hugarheimi Þegar dóttir Jóns lítur yfir síðastliðin 12 ár og athugar hnignunarferliö í sinni heild, segir hún að það hafi farið hægt af stað og hægfara fyrstu 8-9 árin, en síðustu þrjú árin hafi hnignunin hins vegar verið jöfn og hröð. Það var á þessu seinna tímabili að ástandið varð svo alvarlegt, að ekki mátti sleppa augum af Jóni eina einustu stund. Hann hættir að geta soíiö almennilega, var órólegur og vildi fara út eða vera á stjái, en lifði samt í sínunt eigin heimi, sem var ekki í neinu röklegu samhengi við hið raunverulega um- hverfi hans. Þannig átti hann það til að rjúka út í búð um miðja nótt , til að kaupa mjólk, berja svo búðina að utan vegna þess að hún var lokuð. Einhverntíma var komið að honum þar sem hann var að vökva garðinn í mikilli rigningu. Eina nóttina hafði hann pakkað niður öllum myndum af veggjunr ásamt fleira dóti og sat heima hjá sér og beið eftir að verða sóttur. Hvert ætlaði hann að fara? „Nú, heirn!" Mörg fleiri dæmi mætti telja til, en í fáunt orðum sagt þá var hegðun hans og hugarheimur orðinn gjörsamlega óútreiknanlegur. Vitaskuld olli þetta vandræðum og kvíðafullum uppákom- um:“ „Nú eins og gengur á heimilum þá var í ýmis horn að líta, maður þurfti út í búö eða eitthvað annað, og þá gat kornið fyrir að við misstum hann út. Slíkt var vitanlega óþolandi ástand, vegna þess að hann gat orðið fyrir bíl, lagt sig á víðavangi eða farið sér á einhvern hátt að voða. Þá greip mann sektarkenndin - fannst maður ekki hafa staðið undir ábyrgðinni. Oft voru þetta erfiðar stundir og það kom einu sinni fyrir að við urðum að fá lögregluna til þess að hjálpa okkur við leitina. í raun var þetta mun verra en þegar krakkar týnast, því hann var orðinn óútreiknanlegur." Svefnleysi og reiðiköst Oft vill það verða svo, að fólk trúir því sem það vill trúa og þannig var það líka með dóttur Jóns að í lengstu lög hélt hún í þá trú að föður hennar rnyndi batna. „Þannig var, að ég vissi mjög lítið um þennan sjúkdóm eða hvernig hann ntyndi þróast. Ég var því eiginlega sann- færð um að jöetta hlyti að lagast. Fyrst vildi ég að hann svæfi hjá okkur þó svo að hann væri eitthvað heima hjá sér á daginn. Kannski myndi hann finna til meira öryggis ef slík skipan væri á hlutununr. En ég sá þó fljótlega að það gekk ekki og trúlega myndi það bara rugla hann enn meira. Þess vegna varð það úr að við fluttum öll yfir til hans, en sjálf var ég nú reyndar þegar farin að búa þar öllum stundum, bæði dag og nótt. Þegar við vorum svo flutt inn, þá vissi hann ekki liver við vorunr og þetta reyndist nrjög erfitt því hann var hættur að halda þvagi og þurfti mikla hjúkrun. Sarnt hélt ég alltaf í barnaskap mínum að þetta myndi lagast, en það var hinn mestir misskilningur því honum versn- aði alltaf." Þrátt fyrir allt virtist ólga einhver spenna eða óróleiki í Jóni, og ef eitthvað blés á nróti skapi hans, fékk hann reiðiköst sem hann réði ekkert við. Fyrir kom að leita þurfti næturlæknis vegna þessara kasta, en besta lausnin var þó að reyna að gera honum til hæfis ef hægt var og andmæla honum ekki. „Ástandið var orðið þannig í fyrrasumar, að í marga mánuði var ekki hægt að ná eðlilegum

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.