NT - 17.03.1985, Side 10
rffull fyrirbæri
Sunnudagur 17. mars 1985 10
V Atburðirnir áttu sér fyrst
stað i húsinu til hægri á mynd-
inni en eftir því sem leið á
veturinn kom „leki“ fram í
fleiri húsum við götuna þangað
til kvartanir íbúanna urðu það
háværar að bæjaryfírvöld fóru
fram á aðstoð við rannsókn
þessa dularfulla máls.
ftbe<«tV cét báit
* 4 en*
s v.'"'' v,>.!><"" 4 V.,of<•<"
ut- . «,..eíbtt _.„a«nV»e% ,
?';Sé\tttít5eðl” ^tt^ «3 cí ttttt
tatttt'
í»» e‘ * tíe>e‘® ” h* te«»»
1>«" V»“ 'Vallið “»'» ' s.»»
«“ " > seW peit 4,t“ th»*»4
s6V>tt»(V ,taeí>ttttta*: • l9-72 oft it
■ vettð ^;oVvuv. ' vaWa
óst\*val ettttt
iVesttt*
ett^tt
bátt tanttSO;A t ^
\tt*dU? _;,v.aU't at V.VA settt ^nfa\d\e?,a
settt
tiotaí
bet W'tslV””"'1-"4'
VeVtta Utt tttá\s'n
tattttso^
otðtð-
Vatnsdrauga-
gangur
Þýska orðið „Poltergeist" er
það nafn sem oftast er notað í
fræðilegri unifjöllun uni ýmiss
hreyfifyrirbæri sem á kjarn-
yrtri íslenskunni eru nefnd
draugagangur. Bæði þýska og
íslenska orðið hafa þó þann
agnúa að þau gera því skóna
að einhverskonar andar séu að
verki. Svo þarf þó ekki að vera
eða hvað?
Beiðni um
rannsókn
Skammt fyrir vestan borgina
Kassel í Vestur Þýskalandi er
smábærinn Scherfede. Þar búa
rúmlega þrjú þúsund manns
og bærinn sker sig að engu úr
fjöldamörgum svipuðum bæj-
um í kringum Rínarhéruðin.
í desembermánuði árið 1972
barst beiðnifrá bæjar yfirvöld-
um í Scherfede til „The Frei-
burg Institute" um rannsókn á
dularfullum atburðum, sem átt
höfðu sér stað í bænum. „The
Freiburg Institute" er stofnun
í Þýskalandi, sem mikið hefur
fengist við dularsálarfræðileg-
ar rannsóknir og getið sér gott
orð fyrir áreiöanleik og vís-
indaleg vinnubrögð. Stofnunin
hafði töluvert komið við sögu
í sambandi við rannsókn á
undarlegum fyrirbærum er átt
höfðu sér stað í bænum Rosen-
heim árið 1967 og mikið var
fjallað um í fjölmiðlum á sín-
um tíma. Sú umfjöllun hefur
vafalítið ýtt undir að haft var
samband við stofnunina nú
fimm árum seinna. Sérfræðing-
ar voru strax sendir á vettvang
og hófu rannsókn á atburðúni
sem eiga sér fáa líka.
Undarlegur
,,leki“
Nokkruni mánuðum áður
eða í september árið 1972
hafði lítil fjölskylda í bænum
orðið fyrir óþægindum hvað
eftir annað af völdum vatns-
leka að því að menn töldu.
Þótt undarlegt megi virðast þá
leiddi rannsókn pípulagningar-
manns ekkert það í ljós sem
skýrt gæti þennan leka. Það
fannst með öðrum orðum ekk-
ert að pípulögninni en samt
sem áður kom fjölskyldan
hvað eftir annað að vatnspoll-
um á hinum ýmsu stöðum í
húsinu. Til að byrja með hafði
fyrst orðið vart við þennan
ófögnuð á baðherbeiginu en
síðar fannst vatn bæði í stofu
og eldhúsi og íbúarnir, sem
voru hjón ásamt fjórtán ára
gamalli dóttur sinni, vissu ekki
sitt rjúkandi ráð.
Vatnsgangurinn jókst eftir
því sem nær leið jólum og í
nóvember höfðu veggir í hús-
inu skemmst vegna leka og
ekki nóg með það heldur urðu
hjónin vör við að húsið var
rennandi blautt að utan þó svo
að þurrt væri í veðri.
Vatnsveitunni í Scherfede
var gert viðvart en þrátt fyrir
ýtarlega rannsókn kom ekkert
í Ijós sem skýrt gæti út þennan
dularfulla vatnsgang. Menn
voru fengnir til að vakta húsið
til að reyna að koma upp um
hrekkjalóma, sem hér væru
hugsanlega að verki, en allt
kom fyrir ekki.
Reimleikarnir
breiðast út
Þann 10. desember keyrði
fyrst um þverbak. Með 20 til
30 mínútna millibili mynduð-
ust stórir vatnspollar á hinum
ýmsu stöðum í húsinu og ekki
nóg með það heldur komu
nágrannarnir og kvörtuðu und-
an sams konar leka hjá sér.
fólk dreif að úr öðrum húsum
í götunni og menn reyndu eftir
fremsta megni að hjálpa til við
að þurrka upp vatnið til að það
ylli ekki meiri skemmdum en
orðið var.
Að sjálfsögðu komust alls
kyns sögur á kreik. Einhverjir
bentu á að svæði þetta hefði
verið í eigu kirkjunnar og hér
væri því um einhvers konar
hefndaraðgerðir að ræða
vegna ágangs yfirvalda eða
jafnvel tákn af himnurn ofan.
■ Svo virtist sem vatn mynd-
aðist svo að segja úr engu.
Þegar farið var að rannsaka
málið beindist athygli vísinda-
mannanna að ungri stúlku sem
gat verið það sem kallað er
„fókus persóna“.
NT-mynd: Sverrír
Aðrir bentu á að vatns-
gangurinn stæði í einhverju
sambandi við byggingu mikill-
ar brúar yfir hraðbraut skammt
. frá þessum stað og þá helst að
mannvirkin væru það þung að
þau breyttu rennsli jarðvatns á
þessu svæði.
Vatnsveita bæjarinsskrúfaði
fyrir vatnsæð götunnar en það
virtist engin áhrif hafa. Fleiri
og fleiri íbúar í götunni leituðu
aðstoðar vegna „vatnsleka" í
húsum sínum.
Opinber
rannsókn
Þegar hér var komið sögu
fóru bæjaryfirvöld þess á leit
við „The Freiburg Institute"
að stofnunin skærist í málið.
í stuttu máli leiddi sú rann-
sókn ekkert í Ijós, sem að fullu
gæti skýrt það sem hér hafði
átt sér stað. Athygli sér-
fræðinganna beindist sérstak-
lega að dóttur hjónanna sem
fyrst höfðu orðið vör við þessa
einkennilegu reimleika.
í flestum þeirra tilfella, þar
sem sambærileg fyrirbæri hafa
verið rannsökuð hefur komið í
ljós að þau virðast standa í
einhvers konar sambandi við
svo kallaða „fókus persónu."
Mjög oft virðast þessar persón-
ur vera unglingar og oftar
stúlkur en drengir. Fræðimenn
hafa bent á að „fókus persón-
an“ ætti gjarnan við sálræna
erfiðleika að stríða.
Kkki sökudólg-
ar í venjulegri
merkingu
Það þykir þó sannað að
„fókus persónur", eins og unga
dóttirin í þessu tilviki, séu ekki
sökudólgarnir að því leytinu til
að þeir komi ekki fyrirbærun-
um af stað með beinum
hrekkjum. Þannig gat stúlkan
ekki sicrúfað frá vatni eða kom-
ið af stað leka með öðru móti
í tilvikunum þar sem þess var