NT - 17.03.1985, Blaðsíða 11
Sunnudagur 17. mars 1985 11
vart í Scherfede. Það þykir þó
fullvíst að reimleikarnir standa
í einhverju sambandi við „fók-
us persónuna'1 en hvert það
samband er ekki vitað.
Vatnsdraugagangurinn í
Scherfede minnkaði strax eftir
að farið var að rannsaka máiið.
Til að gera stúlkunni ekki erfitt
fyrir og til að hlífa henni og
fjölskyldunni var reynt að
prófa hana án þess að aðrir
M Skammt frá Scherfede
hafði nýlega verið ráðist í mikl-
ar byggingarframkvæmdir þar
sem umferð var leidd þvert yfír
mikla hraðbraut. Til að byrja
með töldu margir að þessi
einkennilegu vatnsfyrirbæri
gætu átt rætur sínar að rekja til
breytinga á jarðvatni vegna
þessara framkvæmda.
yrðu þess varir. Niðurstöður
þeirrar rannsóknar bentu til
þess að hún ætti við sálræna
erfiðleika að stríða en hafði
ekki sjálf með beinum aðgerð-
um komið vatnaganginum af
stað.
Það sem þótti einkar athygl-
isvert í þessu máli var það
hversu langt „fókus persónan"
getur verið frá þeim stað sem
fyrirbærið gerist. í einu tilviki
var stúlkan ásamt fjölda fólks
í þrjú hundruð metra fjarlægð
frá þeim stað þar sem annar
hópur varð vitni að vatnagangi
á sama tíma. Hvaðan vatnið
kom eða hvernig það myndað-
ist, svo að segja upp úr þurru,
er ekki vitað.
Sérfræðingarnir sem rann-
sökuðu málið tóku ýtarlegar
skýrslur af fólki sem á einn eða
annan hátt hafði orðið vitni að
fyrirbærunum. Skemmdir og
önnur verksummerki voru
Ijósmynduð og gengið var enn
frekar úr skugga um að ekki
væri um að ræða galla í pípu-
lögnum húsanna.
{ skýrslu sérfræðinganna
sem send var yfirvöldum að
lokinni rannsókn er komist að
þeirri niðurstöðu að hér hafi
verið á ferðinni hin svokölluðu
PSI fyrirbæri, sem telja verður
sálræn og um leið paranormal
eða yfirskilvitleg. Þeim er
gjarnan skipt niður í tvo flokka
eftir eðli þeirra og er annars
vegar talað um ESP eða yfir-
skilvitlega skynjun af ein-
hverju tagi og svo hins vegar
PK eða paranormal hreyfing-
ar. Orðið PSI er komið úr
grísku og er reyndar aðeins
heitið á fyrsta stafnum í orðinu
„sál".
Pað er því engan veginn víst
lesandi góður, að næst þegar
fer að leka hjá þér, þá finnist á
því viðhlítandi skýringar. Það
að hringja í pípulagningar-
mann eða jafnvel sálfræðing
kann að bera einhvern árangur
en er þó engan veginn öruggt.
Þú getur þó gengið út frá þeirri
staðreynd að sumir lekar eru
dularfyllri en aðrir, svo mikið
er á hreinu. J.Á.Þ.
v
J
f.
HELGAR
REISUR