NT - 17.03.1985, Side 21
- Ég er viss um að ef við öll
lijálpumst að finnum við augn-
linsur flugstjórans fljótlega.
- Þýðir þetta að ég fái ekkert
heiðursmerki?
— Sko til... henni er bara vel
við þig og þú sem ert alveg
nýbyrjaður hér!
Sunnudagur 17. mars 1985 21
■ Meðal Japana þótti það sérstakur hciður aö fórna lífinu í þágu keisarans og ættjarðarinnar. Hér standa fagnandi unglingar ofan
á sjálfsmorðstundurskeyti, sem þeim er ætlaö aö stýra í mark.
Kesselringtekurvið
af von Rundstedt
■ Von Rundstedt þótti ekki
hafa árangur sem erfiði við að
stöðva framsókn bandamanna
á vesturvígstöðvunum og því
gerist það hinn 10. mars fyrir
40 árum að Hitler skipar Kess-
elring staðgengil hans, sem
yfirmann herjanna vestanvert.
Hinn nýi herstjóri gerir að
gamni sínu við starfslið sitt og
segir m.a.: „Ég er nýja V-3
flugskeytið."
Það er hinn 11. mars sem
breski flugherinn gerir loftárás
á járnbrautarleiðir til Essen,
sem verður til þess að öll
framleiðsla stöðvast í Krupp-
verksmiðjunum.frægu. Þúsund
bandarískar flugvélar gera
loftárásir á kafbátalægi í NV
Þýskalandi.
Sama dag fara 24 Ginga
flugvélar Japana með sjálfs-
morðsflugliða innanborðs í á-
rásarferð. Þetta voru hrað-
fleygar tveggja hreyfla vélar.
Þær réðust á Ulithi Atoll og
löskuðu flugvélamóðurskipið
Randolph.
í Bretlandi reyna 70 þýskir
stríðsfangar að flýja úr fanga-
búðum við Bridgeend í Suður-
Wales, en allir eru handteknir
að nýju.
Bretar ráða þýskt dulmáls-
skeyti sem upplýsir að ætlunin
sé að gera eldflaugaárás á Lu-
dendorff-brúna yfir Rín, sem
bandamenn náðu í vikunni á
undan.
Þann 12. mars tekur Zhuk-
ow Kústrin við Oder, en Rok-
ossovsky tekur Tczew sunnan
Gydinia.
Breski flugherinn kastar
4851 tonni af sprengjum yfir
Dortmund.
Austur í Burma tekst Bret-
um að taka Maymyo og þar
með rjúfa þeir járnbrautar-
samband Japana við deildir
þeirra í Mandalay.
Þá er kominn 14. mars.
Rússar taka á þessum degi
bæinn Zvolen í Karpatafjöll-
um norðan Búdapest. Biele-
feld-gjárbrúin er sprengd í loft
upp með 22 þúsund punda
risasprcngju (Grand Slam) og
lokast þar nteð fyrir flutninga
frá Ruhr til Remagen.
8. flugherBandaríkjamanna
gerir loftárásir á aðalstöðvar
þýska hersins (Wehrmacht) í
Zossen sunnan Berlínar.
Suður í Burnta gera Japanir
gagnárás á Meiktila, en verða
a hörfa síðar, hinn 28. ntars.
Ekkert lát er á loftárásunum
á Þýskaland. Bretargeraárásir
á Núrnberg og Wurzburg þann
16. mars. Heiðríkt veður gerir
flugmönnunum léttara fyrir.
30 flugvélar cru skotnar niður.
Þriðji her Tolbukins gerir
harðar gagnárásir gcgn 6.
skriðdrekaflokki SS og 3. ung-
verska hernum og leggja Ung-
verjar niður vopnin.
MiOTH bjírbels