NT - 23.03.1985, Blaðsíða 9

NT - 23.03.1985, Blaðsíða 9
i:t Laugardagur 23. mars 1985 9 Er að koma íslandi á bridgelandakortið ■ Hlutur íslendinga var góður á nýafstaðinni Bridgehátíð þrátt fyrir einvalalið erlendra keppenda. ís- lenskur sigur í tvímenningnum og annað sæti í sveitakeppninni sýnir að íslenskir bridgespilarar standa kolleg- um sínum í öðrum löndum fyllilega á sporði og undirstrikar enn einu sinni nauðsyn þess að íslenskir keppnis- spilarar fái fleiri tækifæri til að spila við spilara frá öðrum þjóðum en á Evrópumótum, Norðurlandamótum og Bridgehátíðum. Bridgehátíð 1985 heppnaðist ekki síður vel en aðrar slíkar á undanförn- um árum. Bæði var þátttaka íslend- inganna mjög mikil, sérstaklega í sveitakeppninni þar sem 36 sveitir spiluðu , og eins var Kristalssalur Loftleiða alltaf troðfullur af áhorf- endum. Framkvæmd Bridgehátíðar var öll eins og best var á kosið ef undan eru skildir smá hnökrar á útreikningi í fyrstu umferðum tvímenningsins, og allir spilararnir gengu til spilanna af alvöru allt til loka mótanna. Pað er vonandi að Bridgehátíð verði langlíf því hún er óðfluga að koma íslandi á bridgelandakortið. Að lokum get ég þó ekki stillt mig um að nöldra ofurlítið. Prátt fyrir að um 2000 Islendingar spili reglulega keppnisbridge og nokkur þúsund í viðbót grípi í spilið öðru hvoru og fylgist með öllum helstu viðburðum í íþróttinni, létu ríkisfjölmiðlarnir næstum alveg hjá liggja að segja frá gangi mála á Bridgehátíð. Þar voru þó nokkrir af þekktustu og bestu spilurum heims í sviðsljósinu. Maður hélt að sá tími væri liðinn að forráða- menn bridgehreyfingarinnar þyrftu að betla inn fréttir af slíkum bridge- viðburðum í útvarp og sjónvarp, en það hefur greinilega verið misskiln- ingur. íslandsmótið í sveitakeppni Undankeppni íslandsmótsins verð- ur spiluð um næstu helgi. Þrír riðlanna verða spilaðir á Hótel Loftleiðum og einn á Akureyri. Tvær efstu sveitir úr hverjum riðli komast síðan áfram í úrslitakeppnina sem spiluð verður um páskana. Spilamennskan byrjar á föstudags- kvöld en síðan verða tvær umferðir á laugardag og tvær á sunnudag. Meistarastigaskráin 1985 Meistarastigaskránni hefur nú ver- ið dreift til allra félaga innan Bridge- sambands íslands. Með skránni fylgja ýmsar upplýsingar varðandi bridgelíf í landinu, svo og ýmsar staðlaðar upplýsingar fyrir félögin í landinu. Skrá með nafnnúmerum þeirra félaga sem skráðir eru í viðkomandi félag, o.s.frv. Vakin er athygli á því sem fram kemur í formála fyrir skránni, að næsta útgáfa meistarastiga er fyrir- huguð í lok þessa árs. Það þýðir að ÖLL félög innan Bridgesambands íslands (45 að tölu) verða að skila inn stigum fyrir 1. nóvember í haust, ef þau eiga að fast skráð í næstu meist- arastigaskrá. Þetta er áríðandi, því annars „detta“ þessi stig niður og geta haft neikvæðar afleiðingar fyrir við- komandi spilara. Alla ritvinnslu í sambandi við út- gáfu meistarastiga sáu þeir Ásgeir P. Ásbjörnsson og Vigfús Pálsson um, en umsjón með gerð hennar höfðu þeir Ólafur Lárusson og Jón Baldurs- son, í samráði við stjórn Bridgesam- bands íslands. Skráin er gefin út í 5.000 eintökum. Um prentun annað- ist Prenthúsið h/f. Er þetta annað árið í röð sem þetta form á útgáfu meistat- astiga er viðhaft. íslandsmótið í tvimenning-undanrásir Frestur til að tilkynna þátttöku í íslandsmótinu í tvímenning, undan- rásunum, rennur út mánudaginn 15. apríl. Öllum er frjáls þátttaka en 24 efstu pörin komast í úrslit. Undankeppnin verður spiluð helg- ina 20./21. apríl í Tónabæ. Skráningu annars Ólafur Lárusson hjá Bridge- sambandinu, s: 91-18350. Borgarhúsgögn (Kristján Jóhannsson) Litaver (Anton Guðjónsson) Ingvar Helgason (Helgi Pálsson) Kjörbúð Hraunbæjar (Birgir Sigurðsson) Bridgedeild Rangæinga Úrslit í aðalsveitakeppni félagsins urðu þau að sveit Lilju Halldórsdótt- ur sigraði. Með Lilju spiluðu Páll Vilhjálmsson, Daníel Halldórsson, Viktor Björnsson og Óskar Karlsson. Bridgedeild Breiðholts Að loknum 24 umferðum í Baró- meter er staða efstu para þessi: Gunnar Þórðarson - Jón Berndssen 31 í aðalsveitakeppninni, sem lauk fyrir skömmu sigraði sveit Bjarka Tryggvasonar en með honum spiluðu Halldór Tryggvason, Einar Svansson og Skúli Jónsson. Röð sveitanna var annars þessi: Bjarki Tryggvason 151 Sigurgeir Þórarinsson 141 Stefán Skarphéðinsson 126 Gunnar Pétursson 112 Bridgedeild Skagfirðinga Efstu skorir í 2. umferð Mitchell- tvímenningskeppni félagsins, fengu eftirtalin pör: N/S: Jón Viðar - Sveinbjörn Eyjólfsson Bernódus Kristinsson - Birgir Pálsson 'A/V Hildur Helgadóttir- Karólína Sveinsdóttir Helgi Viborg - Trausti Valsson Eftir 2 umferðir eru eftirtalin pör í efstu sætum: Stig 385 350 347 345 1. Margrét Jensdóttir - Eggert Benónýsson 791 2. Gústaf Björnsson - Rúnar Lárusson 760 3. Arnar lngólfsson - Magnús Eymundsson 756 Tafl- & Bridge klúbburinn Barometer-keppni T.B.K. hófst sl. fimmtudag 21/3 með þátttöku 36 para og komust færri að en vildu. Eftir fyrsta spilakvöldið er 7 umferðum lokiö og er staðan sem hcr segir: stig 1. Ragnar Hermannsson og Guðmundur Jónsson 107 2. Ævar Ármansson og Friðjón Margeirsson 98 3. Sigurjón Helgason og Gunnar Karlsson 89 Keppnin heldur áfram næsta immtudagskvöld 28/3 og hefst <1.19.30 að Domus Medica, eins og /enjulega. Bridgedeild Barðstrendingafélagsins Staðan í Barometerkeppni félags- ins eftir 23 umferðir: ■ MT Zia Mahmood frá Pakistan vakti einna mesta athygli áhorfenda á Bridehátíð. Hér er hann að spila við Þráin Finnbogason og Ragnar Halldórsson en meðal áhorfenda er Davíð Oddsson borgarstjóri sem setti mótið. NT-mynd: Arí 1. Þórarinn Árnason - Ragnar Björnsson 2. Guðmundur Jóhannsson - Jón Magnússon 3. Sigurður Kristjánsson - Halldór Kristinsson stig 209 188 174 Landsliðskeppnin Bridgesamband íslands minnir á, að frestur til að tilkynna þátttöku í landsliðskeppnir á vegum þess, renn- ur út mánudaginn 15. apríl n.k. Þau pör sem hafa í hyggju að taka þátt í þessum keppnum (í opna flokknum, kvennaflokknum og flokki yngri spilara f. 1960/síðar) er bent á að láta skrá sig hið fyrsta til skrifstofu Bridgesambands íslands, Ólafs Lár- ussonar s: 91-18350. Sent verður lið á Evrópumótið í opnum flokki og kvennaflokki og Norðurlandamótið í yngri flokki. Landsliðskeppnin í yngri flokki verður helgina 26.-28. apríl en í hinum flokkunum helgina 12.-14. maí. Spilað verður í Drangey v/ Síðumúla og hefst spilamennska kl. 20 á föstudag, bæði mótin. Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir eina umferð í þriggja sveita hraðsveitakeppni er staða efstu sveita þessi: Elías R. Helgason 688 Óskar Karlsson 658 Alison Dorosh 649 Bridgefélag Hreyfils Firmakeppni félagsins var spiluð sl. mánudagskvöld og tóku 36 fyrir- tæki þátt í keppninni. Úrslit voru þessi: Hekla hf. (BjörnÁrnason) Bifreiðastjórafélagið Frami (Gísli Sigurtryggvason) 1-2 Guðmundur Aronsson Jóhann Jóelsson 277 1-2 Anton Gunnarsson- Friðjón Þórhallsson 277 3 Jakob Kristinsson - Garðar Bjarnason 260 4. Magnús Oddsson - Lilja Guðnadóttir 219 Gunnlaugur Guðjónsson 191 Guðmundur Sv. Hermannsson Næsta þriðjudag lýkur barometern- um, en þriðjudaginn 2. apríl verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega. Röð efstu sveita varð annars þessi: Lilja Halldórsdóttir 229 Gunnar Helgason 226 Sigurleifur Guðjónsson 219 Gunnar Alexandersson 217 Næsta keppni á vegum félagsins verður barometertvímenningur sem hfst á miðvikudagskvöldið, tekið er við skráningu í símum 30481 og 34441 fyrir mánudagskvöld. Bridgedeild Barðstrendinga Þegar tveim umferðum er ólokið í aðalsveitakeppni félagsins er staða efstu sveita þessi: Halldóra Kolka 169 Jón Oddsson 163 Valdemar Jóhannsson 161 Bridgefélag Sauðárkróks Reynir Pálsson og Stefán Bene- diktsson sigruðu í aðaltvímenning félagsins sem lauk fyrir skömmu. Röð efstu para varð þessi: Reynir Pálsson - Stefán Benediktsson 88 Einar Svansson - Skúli Jónsson 32 iÍHOWARD Jarðtætarar ■W“'- - . ____________v Vvíflíri.-í 60” kr. 78.300.- 70” kr. 82.600.- 80” kr. 87.600.- Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita allar nánari upplýsingar G/obusr LÁGMÚLI 5, SlMI 81555

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.