NT - 27.03.1985, Page 6

NT - 27.03.1985, Page 6
hf Miðvikudagur 27. mars 1985 6 Biederman og ratsjárstöðvarnar eftir Ólaf Kristjánsson ■ Til er alþekkt leikrit, sem heitir „Biederman og brennu- vargarnir". Hefur leikrit þetta, sem er eftir svissneska höfund- inn Max Frizch, notið mikilla vinsælda hér á landi og munu flestir hafa af því kynni, annað hvort úr leikhúsi eða sjón- varpi. Mig langar til að byrja þetta greinarkorn á því, að rifja lauslega upp söguþráðinn, því oft er það svo, að skáldskapur- inn er áhrifaríkasta tækið til að athuga mannlífið og atburði líðandi stundar. í byrjun leiksins kynnumst við herra Biedermann, traust- um heimilisföður og betri borgara. Hann rekur fyrirtæki sem framleiðir hárvatn eða skallameðal og er í góðum efnum. En ekki er allt með felldu í heimaborg herra Bied- ermanns, þorparar og brennu- vargar leika lausum hala. Hvert húsið á fætur öðru hefur orðið eldi að bráð. í leikritinu skynja áhorfendur þessa ógn í dularfullum einræðum slökkvi- liðsmanna, sem höfundur not- ar sem eins konar grískan kór. Eykur kórlestur þessi mjög á spennu leiksins, þar sem kór- inn túlkar óttalegan veruleik- ann á meðan Biedermann hrekst frá einni óskhyggjunni í aðra uns hann að leikslokum verður eldinum að bráð. Á meistaralegan hátt lýsir höf- undur hvernig tveir þorparar, Seppi og Eisenring, smjaðra sig inn á hinn tortryggna heim- ilisföður og fá hann til að skjóta yfir sig skjólshúsi. Brátt fer Biedermann að gruna að kumpánar þessir muni ekki hafa sem hreinast mjöl í poka- horninu, en sú staðreynd, að þorpararnir vita fullmikið um viðskiptahætti Biedermanns, kemur í veg fyrir að hann geti einfaldlega kastað þeim á dyr. Sannleikurinn er nefnilega sá, að hið fræga hármeðal herra Biedermanns er vita gagns- laust og tómt svindl, auk þess sem Biedermann hefur beitt samstarfsmann sinn „uppfind- ingamanninn", fantatökum. Nú fer að kárna gamanið, því að Seppi og Eisenring taka að viða að sér vægast sagt vafasöm- um varningi, svo sem stoppi og kveikiþræði og koma þessu fyrir í húsi Biedermanns. Vegna íkveikjufaraldursins sem geisar í borginni er geymsla á hvers kyns eldfimu efni stranglega bönnuð og er grátbroslegt á að hlýða þegar Biedermann fer í óðagoti að hylma yfir lögbrotið með þorp- urunum. Fyrst kastar þó tólfunum þegar Eisenring fer að hlaða bensíntunnum upp í risið hjá Biedermann og fær síðan Bied- ermann sjálfan til að rekja kveikiþráð um húsið. í hræðslu sinni og óðagoti neitar hinn hrelldi húsbóndi að trúa stað- reyndum, en Eisenring segir sallarólegur: „Þó skrítið sé, þá er hægast að rugla'menn í ríminu með hreinum og klárum sann- leikanum. Honum getur eng- inn trúað.“ Efti þetta leitast hinn ótta- slegní Biedermann við að blíðka þorparana og koma þannig í veg fyrir að þeir brenni hús hans. Hann ákveð- ur að halda þeim veislu og vinna hugi þeirra og hjörtu. Þetta veisluatriði er örugglega sá þáttur leiksins sem áhorf- endum er minnisstæðastur. Annars vegar eru sýnd fleðu- læti og angist Biedermanns, en hins vegar leikaraskapur og kæti þorparanna sem hafa allt í hendi sér. Að síðustu biðja þeir Bied- ermann að lána sér eldspýtur, sem Biedermann fellst glaður á, því hann telur sér trú um að raunverulegir brennuvargar muni aldrei sýna húseiganda slíka ósvífni, að biðja hann um eldspýtur til að brenna hans eigið hús. Síðan fellur tjaldið, en sír- enuvæl, óp, köll og snark í brennandi röftum fyllir leikhúsið með ærandi hávaða. Datt ykkur eitthvað kunnug- legt í hug, lesendur góðir, þegar þessi söguþráður er rifj- aður upp? Við komum að því síðar. Við lifum nú tíma og ástand sem á sér enga hliðstæðu í mannkynssögunni. Tæknibylt- ing sfðustu áratuga hefur fætt af sér þann möguleika að út- rýma öllu lífi á jörðinni. Því miður hafa stjórnmál og sam- skipti þjóða ekki tekið neinum verulegum breytingum og ein- kennast þau sem fyrr af taum- lausri hagsmunagæslu, stór- yrðum og ófriði. Á blygðunarlausan hátt stilla stórveldin hinum tortím- andi vítisvopnum upp í skot- stöðu sem víðast um heims- byggðina. Er nú svo komið, að enginn jarðarbúi getur óhultur verið fyrir hinni skelfilegu ógn kjarnorkustyrjaldar. Ekki þarf annað en ómerkileg mistök eða bilun í hinum flókna tækja- búnaði og andartakið sem ræð- ur lífi eða dauða á þessari jarðarkringlu verður ekki aftur tekið. Hverjir geta axlað ábyrgðina sem fylgir þessu gífurlega valdi? Hvernig er hægt að réttlæta þessa ógn með því, að verið sé að gæta jafnvægis milli ríkja sem vilja verja ólík hag- kerfi? Eftir síðari heimsstyrjöld var efnt til réttarhalda í Nurn- berg í Þýskalandi þar sem helstu forvígismenn nasista' voru dregnir fyrir dóm vegna stríðsglæpa. Fengu þeir með réttu þyngstu dóma og fyrir- litningu allra ærlegra manna. En hvað verður sagt um þá menn sem nú á tímum beina hinni hræðilegu ógn kjarn- orkustyrjaldar og útrýmingar að meðbræðrum sínum og hinni lífgefandi náttúru. Eru ekki sakborningafnir frá Núrn- berg sem fermingardrengir við hlið þeirra? Nú kynni einhver að fara að tala um „varnar- og öryggis- mál“. Ég er þeirrar skoðunar að kjarnorkuvígbúnaður stór- veldanna sé glæpur sem lítið eigi skylt við svokölluð örygg- ismál. Herbúnaður hvers kon- ar verður víst lengi við lýði í þessum heimska heimi, en hvað sem menn vilja álíta er það mín skoðun, að aðallega sé hernaðarbröltið til þess ætl- að af valdhöfum að halda í skefjum sínum eigin þegnum. Hin raunverulegu öryggismál eru hins vegar að halda uppi almennri og góðri menntun í hverju landi. Álhliða menntun sem eyðir fordómum og hatri einstaklinganna á sjálfum sér og öðrum. Öryggismál er það einnig öðru fremur, að uppeld- ismál séu í góðu lagi. Strangt og ofbeldisfullt uppeldi fyllir börn vansælu og hatri, sem blundað getur í fólki og risið síðan upp við sérstakar að- stæður. A ofbeldistímum er auðvelt að fá slíka einstaklinga til voðaverka. En víkjum nú aftur sögunni að herra Biedermann. Á haustmánuðum í fyrra var ekki annað að sjá en að enn væru sýndir á landi voru kaflar úr þessu gamalkunna leikriti. í þetta sinn var í hlutverki Bied- ermanns maður, sem gerþekk- ir hlutverkið og hefur leikið það áður, utanríkisráðherrann okkar. Þorpararnir tveir með í- kveikjuæðið voru enn að draga eldfimt efni að húsi hans. Skyldi nú reisa tvær ratsjár- stöðvar, eina fyrir vestan aðra fyrir austan. Öaði þá marga við og skyldu menn illa nauð- syn þess að þessi fámenna friðsemdarþjóð þyrfti enn að auka hlut sinn í því að byggja upp hið vitfirrta gereyðingar- kerfi stórveldanna. Eins og grískur kór stigu andófsmenn fram á sviðið með erlendan vígbúnaðarsérfræðing William Arkin í fararbroddi og mæltu varnarorð. En Biedermann okkar var fastur í netinu. Ef til vill var samviskan ekki nógu hrein. Líklegast á þessi þjóð okkar of mikið undir brennuvörgum heimsins. Tökum sem dæmi fiskútflutninginn. Er ekki fisk- urinn sem sjómenn okkar veiða með erfiði og áhættu seldur á yfirfullum matvæla- mörkuðum ofgnóttarþjóða vegna sérsamninga sem byggj- ast á brothættum velvilja þeirra? Er ekki ofneyslu og flottræfilshætti þessarar þjóðar haldið uppi með erlendum lánum? Og Biedermann bægir frá sér áhyggjunum. í stað þess að setja hnefann í borðið gegn frekari hernaðaruppbyggingu á íslandi reynir hann að sann- færa þjóðina um að umræddar ratsjárstöðvar séu aðallega vegna „öryggis“ íslendinga. Látið er að því liggja, að þetta séu góðar græjur til að fylgjast með fiskibátunum á Vestfjörð- um þegar þeir koma úr róðrum. Talað er um að í framtíðinni eigi landhelgis- gæslan að stunda hernaðar- störf. Sem sagt, við eigum að fara að rekja kveikiþráðinn sjálf. Fyrrnefndur útlendingur, William Arkin, sýndi utanrík- isráðherra skjal úr fórum ráðamanna vestra, þar sem minnst var á ísland og að hingað skyldi flytja kjarnorku- sprengjur ef mikið þætti við •iggja- Það fór hrollur um íslensku þjóðina Og utanríkisráðherra kvaðst skyldu setja ofan í við þessa sprengjumenn. En þeir Pentagonmenn gerðu lítið úr þessu skjali, enda var það laukrétt hjá Eisenring, að „þótt skrítið sé þá er best að rugla menn í ríminu með hreinum og klárum sann- leikanum. Honum getur eng- inn trúað.“ Utanríkisráðherra hafði heldur ekki trú á að neitt væri að marka þetta skjal. Hins vegar varð honum tíðrætt um að hann hefði útvegað undan- þágur þar vestra fyrir hávaða- samar íslenskar þotur. Einnig hefði hann mótmælt þvf að íslensk skip fengju ekki að flytja vistir til hersins í Kefla- vík. Eiga þetta að vera dúsurn- ar fyrir ratsjárstöðvarnar? Strangt og ofbeldisfullt uppeldi fyllir börn vansælu og hatri, sem blundað getur í fólki og risið síðan upp við sérstakar aðstæður. Á ofbeldistím- um er auðvelt að fá slíka einstak- linga til voðaverka. Með það í huga, að á islandi er enginn settur á hæli fyrir vondar skoðanir, getur utanríkisráðherrann okkar borið höfuðið hærra en flestir erlendir starfsbræður hans og beitt sér fyrir því á alþjóðavettvangi að kjarnorkuvopn verði afnumin. „Við þurfum að vera vel á verði til þess að missa ekki þjóðfélagið út um allar koppagrundir ólíkra hagsmuna og aðstöðu“ ■ Átakakenningar (Conflict theories) í stjórnmálum ganga út frá því aö stjórnmálin séu hagsmunaátök stétta og starfs- hópa í þjóðfélaginu. Slíkar kenningar líta á stjórnmálin fyrst og fremst sem valdabar- áttu andstæðra hagsmunahópa t.d. þeirra sem ráða yfir fjár- magni og hinna, atvinnurek- enda og verkalýðsstéttar, borgarbúa og dreifbýlisbúa og þannig mætti áfram telja þess- ar kenningar, líta á stjórnmálin sem átök þar sem hver reynir að koma hagsmunum sínum að, hvort sem um er að ræða starf í flokki, kosningaátök, samstarf innan stjórnar, átök stjórnar og stjórnarandstöðu. Brautagengi hinna ýmsu stétta eða hagsmunahópa ráðist síð- an af því hvernig fulltrúar þeirra standa sig og hvaða .kjörfylgis þeir afla þegar barist er í kosningum. Hagsmunastjórnmál Auðvitað varpa kenningar sem þessar skýru ljósi á stjórn- málin og enginn efast í sjálfu sér um það, þau er að hluta til a.m.k. barátta ólíkra hags- muna. Það þarf ekki annað en að líta á íslenska flokkaskipan til þess að sannfærast um það. Framsóknarflokkurinn er stofnaður fyrst og fremst til að vera málsvari bænda, Alþýðu- flokkurinn verkamanna, eink- um við sjávarsíðuna og Sjálf- stæðisflokkurinn til þess að verja hagsmuni betur megandi borgara og kaupmanna. Ekki eingöngu átök Hitt er svo annað mál að íslensk stjórnmálasaga er ekki eingöngu átök milli þessara þjóðfélagshópa. Allir flokk-' arnir hafa þegar tímar líða fram, innan sinna vébandafólk úr öllum þessum stéttum, þó einkum Sjálfstæðisflokkurinn sem einnig varð mikill bænda- flokkur og hafði innan sinna raða nokkuð öfluga verkalýðs- deild, og Framsóknarflokkur sem snemma náði nokkurri fótfestu í borgum og bæjum í kjölfar vaxandi þéttbýlis. í húsi mínu rúmast... Þær forsendur sem flokka- kerfið byggir á hafa hins vegar breyst gífurlega eftir því sem liðið hefur á öldina og stjórn- málamenn og flokkar gert sér meira far um það að tala til allra stétta og hópa m.ö.o. að telja kjósendum trú um að þeir gæti hagsmuna þjóðarinnar allrar. Fræg eru orð Jóhanns Hafsteins 1970 er hann vitnaði í Bibílu og sagði: t húsi mínu rúmast allir, allir... Þá hefur Framsóknarflokkurinn einnig leikið þetta stef og því meir sem árin líða. Flokkur sem allir geta treyst. Flokkur sem er treystandi til að laða til samvinnu ólík þjóðfélagsöfl. Flokkur sem tekur jafnt tillit til hagsmuna borgarbúa og þéttbýlisbúans. Alþýðubandalagið (hinn byltingarsinnaði hluti verka- mannastéttarinnar) hefur einnig reynt að jafna ágreining borgar og dreifbýlis, en lítur þó fyrst og fremst á sig sem baráttuflokk ákveðinnar stéttar. Alþýðuflokkurinn (liinn lýðræðissinnaði hluti verkamannastéttarinnar) er hins vegar búinn að tapa jarð. - samband sínu og höfðar til allra hópa jafnt, hvaða nöfnum sem þeir nefnast, sama má segja um Bandalag jafnaðarmanna (nútíma klofningur úr hinum ■ Þá missum við þjóðfélagið út í fljúgandi átök...

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.