NT


NT - 27.03.1985, Síða 20

NT - 27.03.1985, Síða 20
Miðvikudagur 27. mars 1985 20 Útlönd Bandaríkin: Aftökur með kvalafullum lyfjum lögum samkvæmar Washington-Reuter ■ Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað í seinustu viku upp þann dóm að leyfilegt sé að nota banvæn lyf við aftökur á dauða- dæmdum glæpamönnum án til- lits til þess hvort þau séu sein- virk og kvalafull eða fljótvirk. Aftökur með því að sprauta eitri í æð tíðkast í þrettán ríkj- um Bandaríkjanna. Atta Mengele margra milljóna virði Washington-Reuter ■ Stöðugt fleiri bjóða nú fé fyrir upplýsingar sem gætu leitt til hand- töku þýska stríðsglæpamannsins Mengele sem sendi þúsundir manna í gasklefana í Auschwitz- fangabúðum nasista og stóð fyrir þjáningarfullum tilraunum með Íifandi fólk í seinni heimstyrjöld- inni. Bandaríska blaðið The Was- hington Times bættist í gær í hóp þeirra aðila sem hafa sett fé til höfuðs Mengele. Blaðið, sem er í eigu fylgjenda kóreska trúar- leiðtogans Sun Myung Moon, bauð í gær eina milljón dollara fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku Mengele. Eigcndur blaðsins segjast bjóða féð vegna „trúar á og sterks stuðnings við mannréttindi". Moon er sjálfur í fangelsi í Bandaríkjunum um þessar mundir fyrir skattsvik. Simon Wiesenthal-miðstöðin í Los Angeles hafði áður boðið milljón dollara fyrir sömu upplýs- ingar og vesturþýsk stjórnvöld í Hesse hafa boðið milljón mörk fyrir þær. Sumir telja að Mengelc, sem gekk undir viðurncfninu „Engill dauðans" búi nú einhvers staðar í Paraguay þótt yfirvöld þar neiti því alfarið. dauðadæmdir fangar í Okla- homa og Texas höfðu beðið hæstarétt um að staðfesta bann undirrétts á notkun eiturefna við aftökur nema þau dræpu hratt og sársaukalaust. í dómi undirrétts sagði m.a. að mat- væla og lyfjaeftirlit ríkisins ætti að hafa eftirlit með því að eiturefnin uppfylltu þessar kröfur. New York-Rcutcr ■ Sovétmenn munu hafa „hlerað" ritvélar í bandaríska sendiráðinu í Moskvu þar til á síðasta ári þannig að Sovétmenn fengu afrit af skjölum frá sendi- ráðinu jafnvel áður en þau voru send til Bandaríkjanna. Bandaríska CBS-sjónvarps- stöðin skýrði frá þessu í sjón- varpsfréttum í fyrrakvöld. Sam- kvæmt heimildum sjónvarps- stöðvarinnar höfðu Sovétmenn komið mjög nákvæmum hlerun- artækjum í að minnsta kosti tíu ritvélar í sendiráðinu. Sendi- tæki í veggjum sendiráðsins tóku við upplýsingum frá þess- um hlerunartækjum og sendu Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það gæti ekki talist innan verkahrings lyfjaeftirlitsins að tryggja öryggi og áhrifamátt aftökulyfja. Sak- sóknári ríkisins lagðist gegn slíku eftirliti þar sem það gæti leitt til þess að ríkin neyddust til að taka upp eldri og sársauka- fyllri aðferðir við aftöku. þau áfram til sovéskra móttöku- stöðva. Bandaríkjamenn uppgötv- uðu hlerunartækin ekki fyrr en „vinsamleg þjóð" gaf þeim vís- bendingu um þau eftir að hafa fundið svipuð tæki hjá sér á seinasta ári. Að sögn CBS höfðu tækin að minnsta kosti verið í sendiráðinu í eitt ár og jafnvel allt frá árinu 1978 þegar Banda- ríkjamenn fundu hlerunartæki í veggjum sendiráðs síns í Moskvu eftir eldsvoða. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins hefur ekki viljað tjá sig um málið. Ekki er heldur vitað á hvern hátt hlerun- artækin gátu greint á milli ein- stakra stafa á ritvélunum. Hagvaxtarsamdrátt- ur á Vesturlöndum senta á seinasta ári. Nefndin segir að meginástæða minnk- andi hagvaxtar sé hagvaxtar- samdráttur í Bandaríkjun- um. Samkvæmt spánni verður hagvöxtur ríkja í Vestur- Evrópu aðeins 2,5-3% þar sem eftirspurn eftir útflutn- ingsvörum þeirra mun ekki aukast eins mikið og í fyrra. Sovétmenn hleruðu vélritun bandarískra sendiráðsmanna Genf-Rcutcr ■ Efnahagsnefnd Samein- uðu þjóðanna fyrir Evrópu spáir minni hagvexti í Evr- ópu á þessu ári en í fyrra. í spá nefndarinnar um heildarhagvöxt vestrænna ríkja er því spáð að hagvöxt- ur á þessu. ári verði um þrjú prósent í stað fjögurra pró- Sally Field og F. Murrey Abraham. Símamynd UPI Óskarsverðlaunin ■ Við afhendingu Óskar$verðlaunanna í Bandaríkjunum í fyrrinótt varð kvikmynd leikstjórans Milos Forman hlutskörpust. Mynd hans Amadeus hlaut átta Óskarsverð- laun m.a. hlaut hann verðlaun fyrir leikstjórn og aðalleikari myndarinnar, F. Murrey Abraham hlaut útnefninguna besti karlleikarinn. Sally Field var útnefnd besta leikkonan fyrir leik sinn í kvikmyndinni „Places in the heart“ en sú mynd hlaut einnig verðlaun fyrir besta frumsamda handritið. 77 ára bresk leikkona, Peggy Ashcroft, hlaut útnefninguna besta leikkonan í aukahlutverki fyrir leik sinn í „A passage to India“. Ashcroft hcfur lengst af verið sviðsleikkona og eru þetta fyrstu Óskarsverðlaun sem hún hefur hlotið á löngum starfsferli. Á Óskarsverðlaunahátíðinni í fyrrinótt voru einnig veitt verðlaun fyrir teiknimyndir og var teiknimyndin Charade verðlaunuð að þessu sinni. Tónlistarmaðurinn Prince hlaut verðlaun fyrir útsetningu sína á laginu Purple Rain. Bandarískir bankar: Skuldir rómönsku Ameríku eru enn mikið áhyggjuefni FERMINGARGIAFIR BIBLIAN OG Sálmabókin Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐÍSL. BIBLÍUFÉLAG (fjubbranÍJöötofu Hallgrimskirkja Reykjavlk simi 17805 opi0 3-5e.h. ■ Stjórnendur bandarískra banka og embættismenn hafa enn miklar áhyggjur vegna skuldakreppu ríkja róm- önsku Ameríku, en þeir telja að þau hafi ekki gripið af nægilegri festu til aðgerða sem tryggja efnahagslegan stöðug- leika. Bankamenn óttast af- leiðingar þess að skuldaríkin hafa ekki gripið til efnahags- aðgerða eins og þau höfðu þó samið um við bandarísk stjórnvöld og Alþjóðgjaldeyr- issjóðinn árið 1982, en þeir samningar voru forsenda lána sem áttu að aðstoða skuldarík- in í efnahagsþrengingum þeirra. Á sama tíma og bankarnir krefjast meira aðhalds í fjár- málum skuldaríkjanna og Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn dregur að veita skuldaríkjun- um lán, fullyrða framámenn skuldaríkjanna að þær ströngu efnahagsaðgerðir sem Alþjóða- gjaldeyríssjóðurinn krefst muni valda miklum félagsleg- um og stjórnmálalegum óróa í skuldaríkjunum Þjóðartekjur hafa minnkað Bankastjóri Þórunarbanka Ameríkuríkja (IADB), Ant- onio Ortiz Mena mælti að öllum líkindum fyrir munn margra stjórnmálamanna og verkalýðsleiðtoga í rómönsku Ameríku, þegar hann sagði á ársfundi bankans í Vín í vik- unni: „f mörgum ríkja okkar (rómönsku-Ameríku) eru þjóðartekjur á mann svipaðar því sem var fyrir áratug síðan, í sumum hafa þær minnkað og eru nú minni en þær voru fyrir tveim til þrem áratugum síðan.“ Hann benti á að þær ströngu efnahagsaðgerðir sem gripið hefði verið til hafi leitt til niðurskurðar á félagslegri þjónustu en takmörkuðum þjóðarauð hefur verið eytt í aðgerðir sem auka útflutning og framleiðslu. Áætlunin sem gerð var 1982 virtist hafa komið í veg fyrir efnahagslegt hrun ríkjanna og hrun bandarískra banka. Þessi áætlun virtist tryggja að skulda- ríkin gætu endurgreitt skuldir sínar en þau skulda um 360 milljarða Bandaríkjadala. En Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn frestaði nýlega greiðslu á aðstoðarlánum til Argentínu og krafðist þess að gripið yrði tii sérstakra efnahagsaðgerða gegn 800% verðbólgu sem geisar i landinu. Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn stöðvaði einnig lánagreiðslur til Brasil- íu, þar sem stjórn landsins hafði ekki gripið til efnahags- aðgerða samkvæmt tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Brasilíumenn skulda um 100 milljarða dollara. Kröíur Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins um efnahagsaðgerðir gera m.a. ráð fyrir gengisfell- ingum, samdrætti í opinberri þjónustu, aðhaldi í útlánum banka og innflutningshöftum. Þessar aðgerðir hafa aukið útflutningstekjur verulega þar sem þeim hefur verið komið á og hafa orðið til þess m.a. að útflutningur frá skuldaríkjum rómönsku Ameríku jókst um 10% á síðasta ári. Þessi stefna kemur harkalega niður á efna- minna fólki og lágstéttum. Embættismenn í Washing- ton segja að efnahagsbati í heiminum hafi komið skulda- ríkjunum til góða og aukið útflutning þeirra og gjaldeyris- tekjur. Lægri vextir í Banda- ríkjunum hafa einnig haft já- kvæð áhrif og dregið úr skulda- byrðinni, en ef staða dollar- ans versnar og hann heldur áfram að falla í verði mun það bæta stöðu skuldaríkjanna enn frekar. Rculcr o.fl. Fyrsti gervi- hnötturSvía ■ Fyrsti gervihnöttur Svía, Víkingur, verður sendur út í geiminn 3. október á þessu ári með evrópskri Áriane-1 geim- flaug. Hnettinum er ætlað að rannsaka segulsvið og agn- ir umhverfis jörðina sem vísindamenn telja að eigi þátt í að mynda norðurljós yfir norðlægum löndum. Þeir álíta að norðurljósin myndist þegar sólaragnir rekast á sameindir í loft- hjúpi jarðar. Víkingur verður sendur á loft frá frönsku geim- stöðinni í Kourou í frönsku Guiana í Kyrra- hafi. Honum verður stjórnað frá Esrange ná- lægt Kiruna í Norður-Sví- þjóð en þangað mun hann senda 7000 upplýsingabita á sekúndu sem verður unnið úr í tölvum. Gervihnötturinn var smíðaður af sérstöku geimfyrirtæki í eigu Saab- Scania.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.