NT - 27.03.1985, Page 21

NT - 27.03.1985, Page 21
 cw MidvikudagUf 27. mars 1985 21 LlU Útlönd Vinnudeilurnar í Danmörku: Hörð átök f ramundan - haldi ríkisstjórnin launatillögum sínum til streitu ■ Næturlangir lokaðir fundir hafa staðið í forsætisráðuneyt- inu um hvernig stöðva megi vinnudeilurnar í Danmörku. í gær var búist við að fundum yrði haldið áfram í nótt. Þeir sem sitja þessa fundi eru ríkisstjórn og fulltrúar Radik- ala. Ef þessir aðilar komast að samkomulagi um hvernig binda megi enda á vinnudeilurnar eru þeir með meirihluta fyrir því á þingi. Talið var öruggt í gær að samkomulag næðist og verkfalli yrði aflýst frá og með næsta mánudegi. Þær aðgerðir, sem boðaðar eru, ná ekki aðeins til aðila vinnumarkaðarins heldur einnig til skattalöggjafarinnar. Hefur verið talað um að tekju- hærri einstaklingar þ.e. þeir sem hafa yfir Í50.000 Dkr verði þvingaðir til að leggja til hliðar milli 5 og 10% tekna sinna. Þeir verði þannig þvingaðir til sparn- aðar. Gagnvart launakröfum hefur ríkisstjórnin lagt fram tillögu sem myndi leiða til verri samn- inga en tilboð sáttasemjara gerir ráð tyrir. Samkvæmt tillögu ríkisstjórnarinnar yrðu launa- hækkanir tæplega 2% á ári. Ýmis launþegasamtök hafa þeg- ar samið um minnst 3% á ári. Samningaviðræður milli opin- berra starfsmanna og ríkisins standa enn yíir. Um leið og ríkisstjórnin hafði sett opinber- um starfsmönnum lokafrest varð samningafundur þeirra og fulltrúa ríkisins mjög stuttur. Fjármálaráðherra sagði að hann óskaði fyrst og fremst eftir að samningar tækjust á hinum al- menna vinnumarkaði, en tals- maður opinberra starfsmanna taldi að stór hluti þeirra samn- inga væri óháður samningum á hinum almenna vinnumarkaði og nefndi hann m.a. röðun í starfsflokka. Ef lög um samninga verða samþykkt á þingi, sem allt útlit er reyndar fyrir, þá mun það hafa sömu áhrif á opinbera starfsmenn þó svo að þeirra samningafrestur renni út fyrsta apríl. í gærkveldi var talið að ríkis- stjórnin og Radikalir héídu fundi aftur í nótt og var talið að tillögur myndu liggja fyrir nú snemma í morgun. Verði tillög- urnar taldar óhagstæðar má bú- ast við miklu mótmælum og átökum einkum af hálfu þeirra hópa opinberra starfsmanna sem enn eiga í samningum. Verkfallið hefur þegar haft alvarlegar afleiðingar t.d. í Ála- borg. Þar eru um 75000 manns án hita vegna bilunar í hitakerfi sem ekki hefur verið gert við vegna verkfallsins. Verkfallið kemur illa niður á elliheimilum og eldra fólki og er gert ráð fyrir að undanþágur verði innan skamms veittar til að bæta úr neyð þess. ■ Ríkisstjórn Poul Schliiters ræðir tillögur ásamt Radikölum sem gera ráð fyrir tæpum tveggja prósenta kauphækkun- um á ári, en ýmis launþegasam- tök hafa þegar samið um 3% launahækkun á ári. Haldi ríkis- stjórn tillögum sínum til streitu er búist við miklum átökum og mótmælum launafólks. A myndinni ræðir Poul Schluter forsætisráðherra við Erik Ninn- Hansen dómsmálaráðherra. Símutnynd Polfoto Sænska ríkisstjórnin: Bannar kolainn- f lutning frá S-Af ríku Stokkhólmur-Reuter ■ Ríkisstjórn Svíþjóðar sagð- ist í gær ætla að grípa til sér- stakra aðgerða til að koma í veg fyrir innflutning á kolum frá Suður-Afríku, ef fyrirtæki gerðu það ekki af sjálfsdáðum. Orkumálaráðherrann, Birg- itta Dahl, sagði í yfirlýsingu að hún hafi boðað kolainnflytjend- ur á sinn fund í dag til að hvetja þá til að hætta kaupum á kolum frá Suður-Afríku. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar kemur í kjölfarið á upplýsingum frá Verðlags- og auðhringa- stofnuninni en samkvæmt þeim jókst innflutningur á kolum frá Suður-Afríku á árunum 1983 og 1984 úr 2098 tonnum í 28403 tonn. Sænska þingið samþykkti í síðasta mánuði lög sem herða verulega viðskiptabann Svía á Suður-Afríku. Taiwan: Leyniþjónustuforingjar kærðir ■ Þrír háttsettir foringjar í leyniþjónustu hersins á Taiwan hafa verið ákærðir fyrir aðild að morði kínverska rithöfundarins Henry Liu sem var myrtur fyrir utan heimili sitt í San Francisco í Bandaríkjunum 15. október á seinasta ári. Þrír meðlimir í kínverskum glæpasamtökum höfðu áður verið ákærðir fyrir morðið á Henry Liu sem m.a. hafði skrif- að gagnrýna ævisögu Chiang Ching-kuo æðsta leiðtoga þjóð- ernissinna á Taiwan. Við yfir- heyrslur skýrðu þessir glæpa- menn frá því að háttsettir menn í leyniþjónustu hersins hefðu verið í ráðum með þeim. Leyniþjónustumennirnir eru Wang Hsi-ling aðstoðaraðmír- áll, aðstoðarmaður hans Hu Yi- min höfuðsmaður og Chen Hu- men herforingi sem jafnframt er aðstoðardeildarstjóri í leyni- þjónustu hersins. Morðið á Henry Liu vakti mikla reiði í Bandaríkjunum og hafa nokkrir bandarískir þing- menn hótað því að draga úr hergagnasölu til kínverskra þjóðernissinna vegna þessa máls. Eftir morðið á Henry Liu skýrðu bandarísk blöð frá því að hann hefði stundum látið bandarísku alríkislögreglunni í té upplýsingar og að þrátt fyrir gagnrýni hans á þjóðernissinn- um á Taiwan hafi hann verið talinn frekar hægrisinnaður af mörgum samlöndum sínum sem búa í Bandaríkjunum. Bólivía: Mikill ágreiningur í verkalýðshreyfingunni - styrkir hægriöf lin í forsetakosningum í júlí La Paz-Rcutcr ■ Miklar deilur upphófust í bólivísku verkalýðshreyf- ingunni á mánudag eftir 16 daga allsherjarverkfall, en verkalýðshreyfingunni hefur ekki tekist að ná fram kröf- um sínum á hendur ríkis- stjórninni. Embættismenn sögðu að starfsemi opinberra stofnana og fyrirtækja sé aftur komin í eðlilegt horf eftir að Al- þýðusamband landsins (COB) hafði fallist á launa- hækkanir sem eru mun lægri en kröfur Alþýðusambands- ins höfðu hljóðað upp á. Alþýðusambandið krafð- ist þess í fyrstu að gripið yrði til sérstakra aðgerða til að draga úr 3400% verðbólgu sem geisar í landinu. Síðar hvatti leiðtogi Alþýðusam- bandsins, Juan Lechin, verkafólk til vopnaðrar bar- áttu gegn her landsins og krafðist þess að forseti lands- ins Hernan Siles Zuazo, segði tafarlaust af sér. Verkfallið var brotið á bak aftur þegar ríkisstjórnin sendi herinn út á götur La Paz til að berja niður óeirðir en ríkisstjórnin sakaði verka- lýðshreyfinguna um að reyna að koma á alræði verkafólks í landinu. „Markmiðin verða að vera skýrt skilgreind," sagði Fe- lipe Tapia formaður Sam- bands iðnverkafólks og átti við markmiðið með verkfall- inu. í sama streng hefur Sam- band námaverkafólks tekið en það sýndi kröfum Alþýðu- sambandsins stuðning með skipulögðum mótmælum 12000 námamanna á götum La Paz. Heimildarmenn í Alþýðu- sambandinu sögðu að ágrein- ingurinn innan þess eigi eftir að aukast þegar rætt verður innan Alþýðusambandsins um markmið verkfallsins og árangurinn af því. Sömu heimildamenn sögðu að átökin í Alþýðu- sambandinu nú muni styrkja hægri öflin í forsetakosning- unum í júlí n.k. Forseti landsins, sem tók við völdum 1982 eftir að herstjórn hafði ríkt í landinu í 18 ár, hefur boðað til kosninga ári áður en kjörtímabil hans rennur út. Japanska menntamálaráðuneytið: Enga erlenda kennara í grunnskóla ■ Japanska menntamála- ráðuneytið hefur lengi haft þá stefnu að erlendir ríkis- borgarar geti ekki orðið fast- ir kennarar í grunnskólum og menntaskólum. Þessi regla hefur einnig gilt um þá útlendinga sem hafa dvalist langdvölum í Japan og eru jafnvel fæddir þar. Nú hafa samtök kennara í Japan gert harða atlögu gegn mennta- málaráðuneytinu í þessu máli og krefjast þess að mis- rétti gagnvart erlendum íbú- um Japans verði hætt. Bannið við ráðningu er- lendra fíkisborgara í stöður kennara hefur fyrst og fremst bitnað á þeim 670.000 Kór- eumönnum sem eru búsettir í Japan. Flestir þeirra eru fæddir í Japan og eiga jap- önsku að móðurmáli. Jap- önsk stjórnvöld vilja gjarnan að Kóreumennirnir taki upp japanskan ríkisborgararétt en þeir hafa fæstir viljað gera það þar sem þeir benda á að þeim yrði áfram mismunað á ■ Japanska menntamála- ráðuneytið vill ekki láta er- lenda kennara „spilla“ barnaskólanemendum. ýmsum sviðum vegna þess að í íbúaskrá er uppruni þeirra rakinn í þrjá ættliði. Bankar geta því séð fjöl- skylduuppruna þeirra og synjað þeim um lán og sum stórfyrirtæki vilja ekki ráða fólk af kórönskum uppruna. Deilur vegna misréttis gagnvart kóreskum íbúum í Japan blossuðu aftur upp fyrir skömmu þegar mennta- málaráðuneytið neitaði að staðfesta ráðningu Yang Hong Ja, 28 ára gamallar konu með kóranskan ríkis- borgararétt. Yang hefur full kennsluréttindi frá japönsk- um kennaraskóla og síðast- liðin sex ár hefur hún kennt sem forfallakennari í barna- skólum í Naganohéraði í Japan. Forfallakennslan stóð aldrei lengur en sex mánuði í senn, þá varð hún að fara í aðra bekki og kynnast nýjum nemendum. Hún var orðin mjög þreytt á þessum þeyt- ingi svo að hún sótti um fasta stöðu í einum af skólunum þar sem hún hefur kennt. Skólanefndin samþykkti um- sókn hennar en menntamála- ráðuneytið skarst þá í leikinn og bannaði að hún yrði ráðin. Menntamálaráðuneytið byggir andstöðu sína við ráðningu útlendinga ekki á neinum lögum eða reglu- gerðum. Það vitnar í sam- þykkt starfsmannaeftirlits ríkisins frá því 1953 þar sem kveðið var á um að ríkis- starfsmenn skuli vera jap- anskir. Ráðuneytið segir að þetta eigi einnig að gilda um kennara. En árið 1982 voru samþykkt lög þar sem ríkis- reknum háskólum er heimil- að að ráða erlenda kennara og engar hömlur eru á kennslu útlendinga við einkaskóla. Samtök japanskra kenn- ara hafa skipulagt baráttu gegn ákvörðun menntamála- ráðuneytisins sem þau segja að sé í andstöðu við stjórn- arskrána en svo virðist sem menntamálaráðuneytið sé staðráðið í því að kvika hvergi frá stefnu sinni. HUSGOGN OG INNRÉTTINGAR SUÐURLANDSBRAUT18 Cabína rúmsamstæða Tekk dýnustærð 200x90 cm. Beyki dýnustærð 191x92 cm. Verð kr. 15.700.-

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.