NT - 31.03.1985, Síða 2
Hitt fór í verra að míkró-
fónar blaðamanna fengust
ekki til að virka svo við uröum
aö láta okkur nægja að hlusta
og þegja. Gerði raunar ekki
mikið til, gestgjafarokkarvoru
duglegir við að fræða okkur
um fararskjótann og það sem
fyrir augu bar. Spurningum
komum við á framfæri með
handapali og miðum.
Þá var hugsað fyrir því að
Ijósmyndarinn hefði gott pláss
til að Ijósmynda úr vélinni
beggja vegna. í þyrlunni eru
þrjár sætaraðir. Fremst fyrir
tvo flugmenn sem skiptst á um
stjórnina. Þá fyrir aftan situr
Sigurður Steinar og fylgist með
skipunum og blaðamaður sett-
ur við hlið hans. Aftast var svo
sett niður eitt sæti fyrir mynd-
ara sem gat þannig fært sig til
í vélinni og mundað linsuopið
í allar áttir.
Ef ekki eru öll þessi sæti
getur þyrlan svo flutt fjórar
sjúkrabörur sem til eru víðs
vegar um landið. Þannig að ef
eitthvað kcmur uppá tekur ör-
skammastund að breyta TF
SIF í sjúkraþyrlu.
TF SIF kom hingað til lands
síðastliðið haust í stað TF
■ Lóndmngar undir JóklL
þeir hali tilskilin veiðileyfi. Sá
sem þessu sinnir heitir Sigurð-
ur Steinar Ketilsson og býr yfir
þeim hæfileikum að þekkja
hvern kopp sem við fljúgum
hjá í mörg hundruð metra
fjarlægð.
Ferðinni er heitið frá Reykja-
víkurflugvelli, yfir Faxa-
flóasvæðið, vestur yfir Snæ-
fcllsnesið og aðeins inní mynni
Breiðafjarðar. Þaðan er stefn-
an tekin í vestur og flogið yfir
Kolluál, Jökulbanka og Jökul-
djúp og stefnan tekin á Reykja-
nesið. Farið suður fyrir það og
að Selvogsbánka. Siðan eins
og bílveginn frá Krísuvík,
framhjá Kleifarvatni og heim í
hana Reykjavík. 180 sjómílur
og tveggja tíma flug.
Þegar búið var að planta
blaðamönnum niöur í sæti og
setja á hausa þeirra hausfón
(head-fón) færðist þyrlan hægt
og hægt inn á flugbrautina.
Hávaðinn inni ergífurleguren
til þess hafa áhafnarmeðlimir
og aðrir hausfón og míkrafón
að geta haldið uppi samræðum
inní hávaðann. Öll samtöl
fara fram í gegnunt þessi tæki
og eyrun eru vel varin fyrir
hávaða hrcyflanna.
-l a
■ Skyggnst eftir lögbrjótum. Lögreglu hafsins er kíkirinn ekki síður mikilvægur en kylfan umferðarlöggunni hér niðri. Sigurður
Steinar Ketiisson um borð í TF SIF.
NT-myndir: Árni Bjama
■ Lögregla á hafi úti. Tvo
tíma í loftinu í TF SIF, boðið
af Landhelgisgæslunni að fylgj-
ast með eftirlitsstörfum og ná
góðum myndum enda skyggni
og veðurblíða með eindæmum
góð. Blaðamaður og ljósmynd-
ari slógu til, voru færðir í stóra
björgunargalla, íklæddir
björgunarvestum og drifnir
upp í loftfarið.
Tveir flugmenn eru um
borð, þeir Páll Halldórsson og
Benoný Ásgrímsson en sá
þriðji í áhöfninni sér um að
fylgjast með kortum hvort ein-
hverjir þeir bátar sem við fljúg-
um yfir séu á bannsvæði, hvaða
bátar eru á veiðum og hvort
- NT á ferð
með þyrlu
Land-
helgis-
gæslunnar
RÁN sem fórst í Jökulfjórð-
um. Þyrlan er hingað komin frá
franska fyrirtækinu AEROS-
PATIALE sem leigir liana
hingað meðan samskonargrip-
ur búinn fullkomnari tækjum
er í smíðum. Er búist við að
gripurinn sem gæslan kaupir
verði tilbúinn um mitt þetta ár
og hverfur TF SIF þá til síns
heima. Þyrlur þessar eru með-
alstórar tveggja hreyfla vélar.
Fyrstu mánuðina var þyrlan
einungis í loftinu til þjálfunar
og æfinga fyrir flugmennina en
er nú í auknum mæli notuð til
eftirlits og gæslu.
En hversu oft eru lögbrjótar
nappaðir? í þessarri ferð var
■ Þyrlan sveimaði yfir
Skaganum þar sem sements-
verksmiðjan pústaði upp í him-
intær háloftin.
enginn þó tveir bátar vektu
grundsemdir. Þeir reyndust
báðir við nánari athugun vera
í fullum rétti við sín störf. En
í næstu ferð á undan voru tveir
ekki með alveg hreinan
skjöld. Loðnubáturinn Jón
Kjartansson SU-111 sást vera
á veiðum yfir vatns-og raf-
lögnunum rnilli lands og Eyja
þar sem stranglega er bannað
að veiða vegna mannvirkj-
anna. Þá hafði netabáturinn
Vöttur SU-3 farið út án þess að
hafa til þess tilskilin veiðileyfi
en fékk þau daginn eftir hjá
ráðuneyti.
Núna sá Sigurður Steinar
einn bát sem hann kannaðist
ekki við að hefði neitt leyfi.
Málið var símað heim í stjórn-
stöð sem í fyrstu kannaðist
ekki við neitt leyfi. En jú, við
nánari athugun þá kom úr
kafinu að skeyti hafði borist
fyrr um daginn þannig að bát-
urinn fékk að halda sínum
veiðum áfram í friði. Við von-
um bara að vel hafi fiskast hjá
þeim eins og öðrum sem við
horfðum á ofan úr hálfotunum
þennan sólbjarta dag í mars-
mánuði.
Og þakkir til Landhelgis-
gæslunnar.
-b
Umsjónarmenn Helgar-
blaðs:
Atli Magnússon,
Birgir Guðmundsson
og
Jón Arsæll Þórðarson
■ Suður-Afrika hefur stundum verið
kölluð land misréttisins vegna aðskiln-
aðarstefnu stjórnvalda og kúgunarinnar
á þeldökka meirihlutanum þar. Þessi
nafngift er fyllilega réttlætanleg, eins og
kemur fram í viðtali við Jacqueline
Williams æskulýðsfulltrúa Samkirkju-
ráðs Suður-Afríku á bls. 4-5.
■ Skólamál hafa verið mikið í deigl-
unni að undanförnu og sýnist sitt
hverjum. Skólamaðurinn Hörður
Bergmann talar tæpitungulaust í viðtali
á bls. 6-9.
■ Másarar eða tóldónar eru þeir, sem
fá „kikk“ út úr því að hringja í konur og
klæmast í símann. Hvað kemur þessum
mönnum til? Hvernig bregst fólk viö
þegar það tekur upp tólið og heyrir að
það er andað í símann? Allt um málið í
Helgarblaðinu bls. 10-12.
Forsíðumynd: Tóldóni við iðju sína.
NT-mynd Ari.
■ „Á aftasta bekk“, kvikmyndaþáttur
Helgarblaðsins, fjallar að þessu sinni
um gamla kvikmynd með snillingnum
Erick von Stoheim og Gloriu Swanson.
Kvikmyndin er 60 ára gömul og hefur
nýlega verið enduruppgötvuð bls. 14-