NT

Ulloq

NT - 12.04.1985, Qupperneq 1

NT - 12.04.1985, Qupperneq 1
T alað á Ijóshrada! síminn hyggst taka glerþræði í notkun í stað símastrengja ■ Undirbúningur er þegar haf- inn hjá Pósti og síma fyrir lagn- ingu svokallaðra glerþráða fyrir símakerfi Reykjavíkur, og hefur tilboða verið leitað í þræðina og annan tilheyrandi búnað. Gler- þræðir þessir hafa verið að ryðja sér til rúms erlendis á undanförn- um árum og er flutningsgeta þeirra miklu meiri en hefðbund- inna símaþráða. Bergþór Halldórsson verk- fræðingur hjá sambandadeild Pósts og síma sagði í samtali við NT, að vonir stæðu til, að hægt yrði að leggja fyrstu leiðslurnar á þessu ári, en nýi búnaðurinn myndi þó ekki komast í notkun fyrren seint á árinu 1986, þarsem afgreiðslutími fyrir ljósgjafa og ljósmóttakara væri alít að eitt og hálft ár. Fyrst í stað verður glerþráður aðeins lagður á stærstu leiðunum, sem eru úr gamla Landsímahús- inu að símstöðinni í Múla, og í beinu framhaldi í símstöðina í Breiðholti. Pá verður glerþráður jafnvel lagður upp á Vatnsenda fyrir stafrænu stöðina til Keflavík- ur. Kerfið verður síðan stækkað, eftir því sem flutningsþörfin kallar. Ekki þarf að grafa alls staðar fyrir nýju þráðunum, þar sem starfsmenn Pósts og síma hafa lagt þar til gerð rör víða í götur og bíða þau bara eftir því að í þau verði dregið. Bergþór Halldórsson sagði, að notendur myndu ekki verða varir við það, þegar nýju glerþræðirnir verða teknir í notkun. Gæði staf- ræna kerfisins, sem nú er verið að innleiða, væru slík, að ekki væri hægt að bæta þau. Koma í vég fyrir gjald- þrot bænda ■ Undirbúningsfélag að stofnun Landssamtaka sauðfjárbænda var stofnað af fulltrúum bænda úr öllum landsfjórðungum, á Hótel Sögu í gær. Formaður var kjörinn Jóhannes Kristjánsson bóndi í Höfðabrekku, Mýrdal. „Það verður kannski einhver annar en maðurinn með ljáinn sem mun sjá um breytingar í bændaforystunni i framtíðinni," sagði Jóhannes í viðtali við NT en þar gagnrýnir hann harkalega for- ystumenn bændasamtakanna. Meginmarkmið félagsins verður hagsmunabarátta og þá einkum að bæta hag þeirra bænda sem byggt hafa upp eftir verðtryggingu lána Qg riða nú á barmi gjaldþrots. Stúdentaráð: Samstarf aftur! ■ Félag umbótasinnaðra stúd- enta við Háskóla íslands sam- þykkti á fámennum félagsfundi í gærkvöld að ganga aftur til sam- starfs við Vöku, félag lýðræðis- sinnaðra stúdenta, í Stúdentaráði. Stöðuskipting þetta árið er um- bótasinnum heldur óhagstæðari en var á síðasta ári og vildu ákveðin öfl í félaginu ganga til samstarfs við vinstri menn sem buðu betur. Formaður Stúdentaráðs verður sem fyrr Vökumaður og þá fá Vökumenn fulltrúann í stjórn LÍN og einn mann í stjórn Félagsstofn- unar, en þessum embættum gegndu umbótasinnar. Að öðru leyti voru stöðuskipt- ingar óbreyttar nema hvað um- bótasinnar fengu stöðu ritstjóra Stúdentablaðsins. Áburðurinn: 100 millj. úr ríkiS' kassa ■ Áburðarverð til bænda mun hækka um 40% en formleg ákvörðun um verð- hækkunina verður tekin á stjórnarfundi í verksmiðj- unni. Ríkisstjórnin ákvað í gær að veita fé til verksmiðj- unnar þannig að hún geti selt áburðinn á þessu verði og hafa 100 milljónir króna heyrst nefndar í því sam- bandi. Ekki hefur enn verið reiknað út hvernig að aðstoð við verksmiðjuna verður staðið en í ályktun stjórnar- innar er kveðið á um að hún skuli duga til að hagur verk- smiðjunnar versni ekki á ár- inu. sjá frásögn og myndir af blóðugum átökum bls. 2 NT-mynd: Sverrir

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.