NT - 12.04.1985, Page 5

NT - 12.04.1985, Page 5
Föstudagur 12. apríl 1985 5 Hafnargerð á Bakkafirði: Fjármálaráðuneytið athug- ar fjárkröfur verktakans - fer fram á rúmlega 20 millj. króna viðbótargreiðslu ■ Fjármálaráðuneytið vinnur nú að athugun á fjárkröfum verktakafyrirtækisins Ellerts Skúlasonar hf. í Keflavík á hendur Vita- og hafnarmála- stofnun að upphæð 22,4 milljón- ir króna. Kröfurnar eru vegna seinni hluta framkvæmda við hafnargerö á Bakkafirði. Fyrir- tækið lagði fram reikning upp á 30 milljónir króna, en Vita- og hafnarmálastofnunin samþykkti ■ Frumvarp til laga um vél- stjóranám var samþykkt sem lög frá Alþingi á miðvikudag og hefur verið sent ríkisstjórninni til framkvæmda. íkveikjutilraun í Árbæjarsafni ■ Slökkviliði Reykjavíkur barst tilkynning um eld í Ár- bæjarkirkju laust fyrir miðnætti á þriðjudag. Tveir bílar voru sendir frá slökkviliðinu. Þegar þeir komu á staðinn lagði tals- verðan reyk upp frá bygging- unni. Slökkviliðsmenn brutu upp hurð á kirkjuskipinu og var þá laus eldur á tveimur stöðum. Greinilegt var að um íkveikju var að ræða, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu sem NT hafði tal af. Eldurinn var kveiktur í spýtnarusli á gólfi kirkjunnar. Slökkvistarf gekk vel. aðeins að greiða um 7,5 milljón- ir. Þetta er í annað sinn. sem ágreiningur kemur upp vegna hafnarframkvæmdanna, sem hófust árið 1983. Þegar verkið var hálfnað í ársbyrjun 1984, hljóðaði reikningur fyrirtækis- ins upp á 35 milljónir. Vita- og hafnarmálastofnun vildi ekki greiða meira en 8 milljónir. Gerðardómur verkfræðinga Lögin fela í sér að vélstjóra- nám skal vera í fjórum stigum er verði grundvöllur mismun- andi atvinnuréttinda. 1. stig er ein námsönn, 2. stig er fjórar námsannir, 3. stig er sjö náms- annir og 4. stig er 10 námsannir eða 5 ár. Sá sem lýkur einhverju stigi vélstjóranáms á rétt á at- vinnuheiti í samræmi við nám sitt og sama rétt eiga þeir sem eftir eldri lögum hafí. lokið prófi frá Vélskóla íslands eða mótorfræðinámskeiði Fiski- félags íslands. í hinum nýju lögum er bráða- birgðaákvæði sem fela í sér að vélstjórnarmönnum sem starfað hafa á undanþágu í a.m.k. 2 ár skuli boðið upp á vélstjórnar- námskeið sem haldin verði í öllum landsfjórðungum til öflunar takmarkaðra vélstjórn- arréttinda. Skal menntamála- ráðuneytið, í samvinnu við Vél- skóla íslands, sjá um fram- kvæmd þeirra. gerði stofnuninni síðan að greiða 5 milljónir til viðbótar. Þegar tilboð í hafnargerðina 'voru opnuð sumarið 1983 átti Ellert Skúlason hf. lægsta tilboð- ið, rúmar 12 milljónir króna, sem var verulega undir áætluð- um kostnaði. Skömmu síðar hækkaði taxti vinnuvéla, sem gerði það að verkum, að tilboð- ið hækkaði upp í 15,5 milljónir. Þá var einnig gerður viðauka- samningur upp á 4,5 milljónir vegna vinnu í nýrri grjótnámu. Ellert Skúlason hf. hefur þeg- ar fengið um 25 milljónir fyrir verkið, og að sögn Halldórs S. Kristjánssonar skrifstofustjóra í samgönguráðuneyti verður reynt að leysa ágreininginn án þess að senda málið aftur í gerðardóm. Eigandi liafnar- mannvirkisins- er Skeggjastaða- hreppur og kostar hann 25% framkvæmdanna. ina við nægilegan kulda. AIIs var saltað í 254 þúsund tunnur á síðasta ári sem er meira en nokkru sinni eftir að veiði á Suðurlandssíld hófst, að árinu 1980 undanskildu. Grásleppu- hrognin á 39 kr.kg ■ Verðlagsráð sjávarútvegs- ins hefur ákveðið að 39 krónur skuli borgaðar fyrir kílóið af grásleppuhrognum upp úr sjó á grásleppuvertíð 1985, og mun það vera um 34% hækkun frá síðustu grásleppuvertíð. Verðið miðast við að gert sé að grásleppunni fljótlega eftir að hún er veidd og hrognin ásamt þeim vökva sem inni í henni er sé hellt saman í vatns- helt ílát. Sofnaði út frá potti ■ Húsmóðir á Bræðraborgar- stíg brenndi sig illilega á því að gleyma sér yfir eldamennskunni í fyrrakvöid. Húsmóðirin var að ’elda kvöldmatinn, og hefur lík- lega lagt sig á meðan hún beið eftir því að suðan kænri upp í pottinum. Suðan kom upp svo um munaði, og kölluðu nær- staddir nágrannar til slökkvilið vegna reykjarlyktar sem lagði úr íbúðinni. Slökkvilið kom á vettvang og veitti nauðsynlega aðstoð. Ný lög um vélstjóranám samþykkt á Alþingi: Bráðabirgðar- ákvæði fyrir menn á undanþágu Akureyri: Iþróttamenn halda hátíð Frá fréttaritara NT á Akureyri, Halldóri Inga Ásgeirssyni: ■ íþróttaunnendur á Akur- eyri hafa í nógu að snúast nú um helgina, því íþróttabanda- lag Akureyrar heldur upp á 40 ára afmæli sitt með íþróttahát- íð á laugardag og sunnudag. Hátíðin hefst kl. 10 á laugar- dag með íþróttaþingi en kl. 13:30 hefst sögusýning íþrótta- hreyfingarinnar á Akureyri í íþróttahöllinni. Sýna þar níu aðildarfélög íþróttabandalags- ins ýmsa muni í sýningarbás- Á sunnudag verður síðan íþróttahátíð í fþróttahöllinni, oghefsthún kl. 13:30. Sýnaþar félögin íþróttir sínar og má þar líta leikni norðanmanna í handknattleik, júdó, borðtenn- is og lyftingum auk fjölda ann- arra íþrótta. íþróttafélögin íþróttafélag fatlaðra, íþróttafélagið Eik, KA, Þór, Tennis- og badmint- onfélag Akureyrar, Sundfélag- ið Óðinn, íþróttafélag MA og Knattspyrnufélagið Vaskur taka þátt í hátíðahöldunum. ■ Ljósafossinn lá við höfn í Kópavoginum nú í vikunni þar sem síld sem ekki hefur tekist að selja var flutt í land og komið í góðar kæligeymslur Síldarútvegsnefndar þar í bær. NT-mynd: g.e. Síldin send í geymslu- hús í Kópavogi ■ Síldarútvegsnefnd hefur nú komið um 7000 af þeim 8000 tunnum af Suðurlandssíld sem saltaðar voru umfram gerða sölusamninga, í geymslu í Kópavoginum. Það er að beiðni söltunarstöðvanna að nefndin tekur síldina og færir í kælihús sitt í Kópavoginum og eykur þar með geyntsluþol Vörunnar, en hvergi út á landi hafa síldarsalt- endur færi á að geyma saltsíld- Kaupa Egyptar MS Dettifoss? ■ Eimskipafélag íslands hefur nú gengið frá sölu á MS Detti- fossi til einkaaðila í Egyptalandi sem hyggjast nota skipið til flutninga á Miðjarðarhafinu og þar í grennd. Kaupendur hafa sett þann fyrirvara fyrir kaupun- um að innflutnigsleyfi þar ytra fáist og er ennþá óvíst hvort af sölu verður. Að sögn Þorkels Sigurlaugs- sonar forstöðumanns áætlana- deildar hjá Eimskipafélaginu hefur verið gengið frá kaup- samningnum og sagði hann að verð það sem er í boði, væri viðunandi. Ef af kaupum verður taka Egyptarnir við skipinu á sumri komandi en Eimskipafélagið hefur gefið þeim frest út þennan mánuð til þess að gefa endanlegt svar. Eimskipafélagið hefur nú verið með systurskipin Dettifoss og Mánafóss í sölu hátt á annað ár með það í huga að selja annað þeirra og er tilboð Egypt- anna það hagstæðasta sem komið hefur til þessa. Skipin lesta um 4000 lestir og eru 15 ára gömul. Þá er í ráði hjá Eimskip að kaupa annað skip litlu minna í stað Dettifoss og ennfremur að manna með íslenskri áhöfn Skógarfoss og Reykjafoss sem félagið hefur á kaupleigusamn- ingi en hafa til þessa verið mönnuð erlendum áhöfnum. Því sagði Þorkell að það yrði engin vandræði að koma áhöfn Dettifoss í skipsrúm og þyrfti ekki að grípa til neinna upp- sagna. Kaupi Nílarbúar ekki Detti- foss kvaðst Þorkell ætla að enn tæki nokkra mánuði að selja skipið. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERD VERÐTRVGGÐRA SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) 1.000 KR. SKÍRTEINI 1980-1. fl. 15.04.1985-15.04.1986 Kr. 8.380,35 Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, apríl 1985 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.