NT

Ulloq

NT - 12.04.1985, Qupperneq 21

NT - 12.04.1985, Qupperneq 21
Útlönd Föstudagur 12. apríl 1985 21 Sameinuðu þjóðirnar: Nýjar reglur um neytendavernd SanieinuOu þjóðirnar-Keulcr. ■ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í fyrradag nýjar alþjóðlegar reglur til verndar neytendum eftir að Bandaríkin höfðu látið af fyrri andstöðu sinni. En Alan Keyes, full- trúi Bandaríkjanna, lét fara frá sér sérálit þar sern segir að sérhvert land verði að tryggja það að reglurnar verði ekki misnotaðar í verndarskyni fyrir ákveðna framleiðslu. Hann sagði að Bandaríkjamenn álitu • hið frjálsa markaðs- kerfi best til þess fallið að standa sjálft vörð um hagsmuni neyt- enda. í hinni nýju reglu- gerð, sem samþykkt var af fulltrúum hinna 159 aðildarríkja, eru ríkis- stjórnir hvattar til þess að leggja áherslu á æðra siðferði í viðskiptalíf- inu en nú tíðkast, efla neytendavernd og þau markaðskilyrði sem sjá neytendum fyrir rneira úrvali og lægra verði. í sérstöku ákvæði urn öryggi segir að ríkis- stjórnir eigi að setja viðeigandi mælikvarða og lög, öryggisreglur, þjóðlega og alþjóðlega stuðla, dagsetningar og vörulýsingar til að tryggja að framleiðslan sé örugglega neysluhæf. FERMINGARGJAFIR I BIBLÍAN OG Sálmabókin Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (f>uÍjbranböóto(u Hallgrimskirkja Reykjavlk simi 17805 opiÖ3-5e.h. Enver Hoxha látinn: Albanir syrgja mikinn stalínista ■ Hin opinbera fréttastofa Albana skýrði frá því í gærmorgun að æðsti leiðtogi landsins Enver Hoxha væri látinn. Enver Hoxha var 76 ára gamall. Hann var valdamesti forystumaður Albana allt frá því að kommúnistar náðu völdum eftir heimsstyrjöldina síðari. Þegar fyrir Iok heimsstyrjaldarinnar var hann Ieiðtogi kommúnískra skæruliða sem börðust gegn hernámsliði fasista. Albanskir kommúnistar bæta lífskjör. hafa undir leiðsögn Hoxha Pótt æðsti leiðtogi Albana fylgt mjög eindreginni þjóð- að Hoxhalátnum, Ramiz Alia, ernisstefnu og þeir hafa ekki þolað nein afskipti erlendra ríkja af innanríkismálum í Al- baníu. Fyrst eftir valdatökuna fylgdu þeir samt Sovétríkjun- um og Stalín mjög eindregið að málum og tóku þátt í því að fordæma Títo og Júgóslavi fyr- ir svik við sósíalismann þegar Títo reis upp gegn forystu Sovétríkjanna í heimshreyf- ingu kommúnista árið 1948. En vinátta Hoxha við sov- éska leiðtoga minnkaði mikið eftir að Stalín féll frá og árið 1961 gerði Hoxha bandalag við Kínverja gegn „sovéskum heimsvaldasinnum" sem hann sagði að hefðu svikið komm- únismann. I meira en einn áratug virtist sem Hoxha væri orðinn mikill maoisti auk þess hann hampaði Stalín mikið sem fyrirmynd en eftir lát Maos 1976 snerist hann einnig gegn Kínverjum og sagði þá engu minni svikara en Sovét- rnenn. Hann sagði að Mao hefði raunverulega aldrei ver- ið sannur kommúnisti og hinir nýju leiðtogar í Kína væru andmarxistar sem væru í bandalagi við bandaríska heimsvaldastefnu. Á valdatíma Hoxha hafa Albanir lagt mikla áherslu á efnahagslegt sjálfstæði auk hreinræktaðrar stjórnmála- stefnu marx-lenínismans. Miklar framfarir hafa orðið á þessum tíma á efnahag lands- ins en erlendir efnahagssér- fræðingar segja að nú sé það nauðsynlegt fyrir Albani að auka efnahagssamskipti sín við önnur lönd, sérstaklega iðnaðarríki ef þeir vilji halda áfram að efla efnahag sinn og sé einnig harðlínustalínisti bú- ast flestir fréttaskýrendur við að Albanir auki viðskipti sín við Vesturlönd og að tengsl þeirra við önnur sósíalistaríki batni einnig nokkuð á næst- unni. Ólíklegt er samt talið að Albanir gangi aftur að fullu ■ Enver Hoxha þegar hann var í blóma lífsins. inn í fylgiríkjahóp Sovét- manna. Framtíðarþróun tengsla Albana við Júgóslavi er talin sérstaklega mikilvæg þar sem áætlað er að um tvær milljónir Albana eigi heima í Júgósla- víu. Nú þegar Enver Hoxha er látinn er ekki ólíklegt að búast megi við hörðum átökum inn- an Flokks vinnunar (þ.e. kommúnistaflokksins í Alban- íu) á næstunni. Barátta innan flokksins hefur oft verið hörð á undanförnum árum og blóð- ug þar sem albanskir kommún- istar hafa fylgt þeirri stalínísku hefð að lífláta þá leiðtoga sem verða undir í valdabaráttunni. Dollarinn snarfellur ■ Dollarinn snarféll í verði á erlendum gjald- eyrismörkuðum í gær er fréttir bárust um minnkandi hagvöxt í Bandaríkjunum. Að sögn þýsks bankamanns er búist við því að dollarinn eigi enn eftir að lækka. Smásala í Bandaríkj- unum minnkaði um 1,9% í marsmánuði einum og er það mesti samdráttur sem orðið hefur síðan 1978. Aðalhagfræðingur viðskiptaráðuneytisins. Robert Ortner, sagði að minnkandi smásala bæri minnkandi hag- vexti í Bandaríkjunum enn frekara vitni, en ýmislegt hafði bent til þess áður en þessar töl- ur komu í ljós. Hagfræðingurinn vildi ekki meina að efnahagsástandið væri mjög alvarlegt en viður- kenndi þó að nú væri komið á daginn að ríkisstjórnin hefði verið einum of bjartsýn er hún áætlaði 4% hag- vaxtaraukningu. ■ Tancredo Neves, sem kjörinn var forseti Brasilíu í janúar síöast liðnum fagnar sigri ásamt eiginkonu sinni. Hann er nú sagöur á batavegi eftir sjötta uppskuröinn á einum mánuði. Brasilíuforseti mun á batavegi SaoPauio-Reuter: inn á einum mánuöi. Ástand gamla forseta var enn of hrað- ■ Tancredo Neves, sern kjor- hans er þó enn a|var,egt_ að ur cn lungu hans voru betri mn var forset' rasi íu í januar því er læknar sögðu í gær. eftir að öndunarleiðslu var siðast hðnum. er nu sagður a komið fyrir í öndunarvegi hans batavegi eftir sjotta uppskurð- Hjartsláttur hins 75 ára vjQ Uppskurðinn í gær. Neves veiktist og var skorinn upp í fyrsta sinn aðeins nokkr- um klukkustundum áður en hann átti að taka við embætt- inu en hann er fyrsti lýðræðis- lega kjörni forsetinn í Brasilíu lengi. Yfir hundrað manns lágu á bæn fyrir utan sjúkrahúsið í fyrri nótt og báðu fyrir forseta sínum. í yfirlýsingu um hcilsufar forsetans frá í gær var skýrt frá því að hann væri vakandi og gerði öndunaræfingar. .......\ Höfum fyrirliggjandi á mjög góðu verði flestar gerðir af öryggjum frá Sipe, Fortúgal. nflTUIXIIM" HÖFÐABAKKA 9 REVKJAVIK SÍMI: 68S656 og 84530

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.