NT - 12.04.1985, Side 23

NT - 12.04.1985, Side 23
mj Föstudagur 12. apríl 1985 23 Iþróttir Sigurður Jónsson í samtali við NT: MSI tefnum á Evrópusæti íí Frá Heimi Bergssyni fréttaritara NT í Eng- landi: ■ Tíðindamaður NT í Eng- landi hafði samband við Sigurð Jónsson cftir sigurleik Sheffield Wednesday við Manchester Un- ited nú í vikunni. Siggi var varamaður í leiknum en kom inná fyrir Brian Marwood síð- asta korterið. „Ég hef æft vel að undanförnu og sloppið við öll meiriháttar meiðsl," sagði Sigurður. Og þó hann hafi ekki spilað mikið í l. deildinni nú síðustu vikur er ljóst að hann er alveg við liðið. Verður gaman að fylgjast með hvernig Siggi kemur til með að falla inn í liðið á næsta keppnis- tímabili. Næsta tímabil gæti ein- mitt orðið uppskeruríkt hjá þessu fornfræga félagi. Liðið hefur nú stóra mögu- leika á að krækja sér í Evrópu- sæti og sagði Siggi að „það væri nú það takmark sem stefnt væri að á Hillsborough". Einnig virð- ist Howard Wilkinson, fram- kvæmdastjóri „Uglanna", en það er viðurnefni liðsins hér í Englandi, vera staðráðinn í að koma upp sterkum hópi leik- manna sem ætti eftir að skreyta meir bikarsafn félagsins. Þetta sanna kaupiná Sigga og Sirnon Stainrod, sem reyndar spilaði sinn fyrsta leik á móti United. „Ég hef spilað með varaliðinu nú að undanförnu en gengi þess hefur verið upp og ofan. Okkur hefur reyndar tekist að vinna tvo síðustu leiki," sagði Sigurð- ur Jónsson hjá Sheffield Wedn- esday. ■ Þessa mynd tók tíðindamaður NT í Englandi af Sigurði er hann var að koma af æfíngu. Piltarnir með honum eru Gústaf Baldvinsson, þjálfari KA, og Bjarni Jóhannesson, þjálfari Þróttar Nes.,en þeir voru að fylgjast með æfíngum hjá Sheffield. Einar Bollason þjálfari landsliðsins I körfu: „Náum 25-30 leikjum“ - fram að Evrópumóti hér á landi ■ „Það er ekki óraunhæft að áætla að við náum 25-30 lands- leikjum fram að Evrópukeppn- inni, sem verður haldin hér vorið 1986, sagði Einar Bolla- son landsliðsþjálfari í körfu- knattleik í samtali við NT í vikunni. „Landsliðið er nú á leið á Norðurlandamót í Finn- landi, en strax að því loknu og liðið kemur heim verða leiknir fjórir landsleikir við Lúxemborg hér á landi. Liðið fer síðan á mót í sumar og landslið koma væntanlega hingað heim.“ Landsleikirnir gegn Lúxem- borg verða strax að loknu Norðurlandamóti. Liðið keppir á NM 18.-21. apríl, kemurheim 22. apríl, æfir 23. og 24. apríl, og síðan eru leikir 25., 26., 27. og 28. apríl. Þá munu þeir sex leikmenn sem æfa með lands- liðshópnum en voru ekki valdir Macari ráðinn ■ Lou Macari, sem áður spilaði með Manchester Uni- ted og skoska landsliðinu hefur verið ráðinn til Swindon. Það skondna við þessa ráðningu er það að hasn var rekinn frá félaginu fyrir tæpri viku. Sá brottrekstur var sagður stafa af því að hann gæti ekki unnið með Harry Gregg, sem var aðstoðarmaður hans. Leikmenn og áhang- endur vildu ekki missa Mac- ari svo hann var ráðinn aftur. el er efst Einn leikur var í v-þýska ídknattleiknum á miðviku- jskvöld. Kiel sigraði ndewitt 14-12 og skaust • með í efsta sætið í deild- til ferðarinnar til Finnlands koma inn í liðið, og munu því alls 16 leikmenn verða með í þessum fjórum leikjum. Verið getur að frska landslið- ið komi hingað til lands í byrjun maí, og leiki hér þrjá leiki 3., 4., og 5. maí. írarnir hafa þó ekki enn staðfest komu sína, en unn- ið hefur verið að málinu lengi. Landsliðið mun síðan leika á fjögurra landa móti í Austurríki í lok maí og byrjun júní. Þar verða landslið Austurrfkis, Ungverjalands og Tyrklands auk íslands. Næsta vetur verða allmörg verkefni. Landsliðið fer til Bandaríkjanna í boði Luther College, og leikur þar sjö leiki gegn háskólaliðum. Sú heim- sókn verður endurgoldin í janú- ar 1986, og verður þá væntan- lega slegið upp móti með ís- lenska landsliðinu, liði Luther College og tveimur landsliðum til. „Hópurinn sem undirbýr sig fyrir EM, verður bundinn við þessa 16 leikmenn, en að sjálf- sögðu geta fleiri bæst inn í hann, ef upp koma stórefnilegir leikmenn á næsta keppnistíma- bili, og eins ef mál Péturs Guðmundssonar fer að óskum," sagði Einar Bollason. Þessir 16 leikmenn eru (fyrst þeir tíu sem eru í landsliðinu): Torfi Magnússon Val, Valur Ingimundarson UMFN, Pálmar Sigurðsson Haukum, ívar Web- ster Haukum, Jón Kr. Gíslason ÍBK, Tómas Holton Val, Guðni Guðnason KR, Birgir Mikaels- son KR, Hreinn Þorkelsson ÍR og Gylfi Þorkelsson ÍR. Hreiðar Hreiðarsson UMFN, Jón Steingrímsson Val, ísak Tómas- son UMFN, Árni Lárusson UMFN, Björn Steffensen ÍR, Olafur Rafnsson Haukum. ■ Guðjón Árnason átti ágætan leik gegn Víkingum. Hér fer hann inn af línunni. Úrslitakeppnin í handknattleik: FH-ingar skrefi nær - meistaratign eftir sigur á Víkingum í gær ■ FH-ingar stigu stóru skrefí í átt að íslandsmeistaratign er þeir unnu Víkinga í gær í úrslita- keppninni í handknattleik. Leikurinn endaði 28-23 fyrir FH og var sá sigur mjög Forest vann ■ Einn leikur var í ensku 1. deildinni í knattspyrnu á miðvikudagskvöldið. Nott- ingham Forest sigraði Chels- ea á City Ground í Notting- ham með mörkum frá Gary Birtles og Johnny Metgod. sanngjarn. Á undan þessum leik spiluðu Valur og KR og er skenunst frá því að segja að Valsarar voru iniklu betri og sigruðu nijög léttilega 24-17. Leikur FH og Víkings byggð- ist rnest á slökum leik Víkinga, þeir náðu sér aldrei á strik og því var sigurinn auðveldur hjá FH. FH-ingar höfðu undirtökin allan leikinn og staðan í hléi var 14-9 þeim í hag. í uppahafi seinni hálfleiks hélst þetta bil á milli liðanna og þrátt fyrir tilraunir Víkinga til að minnka muninn þá varð engu haggað. Lokatölur 28-23 og íslandsmeistaratitillinn í scil- ingarfjarlægð frá FH-ingum. Mörkin, FH: Kristján 7, Þorgils og Hans 6, Jón Erling og Guðjón Árna 3, Valgarð 2 og Guðjón 1. Víkingur: Viggó 7, Hilmar 6, Þorbergur 5, Steinar 3 og Einar 2. Leikur Vals og KR var ekki fyrir augáð. Yfirburðir Valsara voru miklirog staðan í hléi segir allt um það, 12-4 og KR-ingar sem börn. í síðari hálfleik var leikurinn jafnari en sigurinn aldrei íhættu. Lokatölur24-l7. Mörkin, Valur: Geir 5, Þorbjörn G. 5, Jakob og Júlíus 4, Þorbjörn Jens 3, Theódór, Ingvar og Þórður 1 hver. KR: Óli Lór 5, Haukur Ott. 3, Jóhannes, Hörður og Haukur G. 2 hver, Páll, Jakob og Friðrik 1 hver. Pressuleikur ■ í kvöld klukkan 20 hefst í Keflavík pressu- leikur í körfuknattleik. Leikurinn er liður í undir- búningi landsliðsins í körfuknattleik sein er að fara til keppni á Norður- landamótinu sem verður í Finnlandi 18.-21. apríl. í liði pressunnar verða m.a. ýmsir kappar, sem ekki hafa gefíð kost á sér í landsliðið, eða mega ekki keppa með því eins og Pétur Guðmundsson. Pétur verður líklega aðal- vopn pressuliðsins, og spurning hvernig cinvíg- inu á milli hans og hins hávaxna miðherja lands- liðsins, ívars Websters, lyktar. Pressuliðið verður væntanlega skipað eftir- töldum leikmönnum: Pétur Guðmundsson Sunderland, Jónas Jó- hannesson Njarðvík, Þorsteinn Gunnarsson KR, Jón Steingrímsson Val, ísak Tómasson Njarðvík, Árni Lárusson Njarðvík, Kristján Ág- ústsson Val, Hreiðar Hreiðarsson Njarðvík, Leifur Gústafsson Val, Hálfdán Markússon Haukum. Til vara fyrir miðherjana Jónas og Pét- ur er Björn Steffensen 1R, og aðrir varamenn eru Olafur Rafnsson Haukum, Jón Sigurðsson KR og Henning Henn- ingsson Haukuiii. Stjórnendur prcssu- liðsins verða blaða- mennimir Stefán Krist- jánsson af DV og Ágúst Ásgeirsson Mbl. en tæknilegur ráðgjafí þeirra verður væntanlega Kristinn Jörundsson. Áfram pressan. íslandsmót í karate ■ Fyrsta íslandsmótið í karate á vegum KAÍ, nýstofnaðs karatesambands innan ÍSÍ, verður haldið n.k. laugardag 13. apríl. Mótið fer fram í íþróttahúsi Garðbæinga, Ásgarði og hefst kl. 13.(10. Keppt verður í KATA og KUMITE. Öll félög innan KAÍ taka þátt í keppninni - en þau eru núna tólf talsins. Allir áhugamenn um karate eru hvattir til að mæta og fylgjast með íslenskum karateiðkendum. Úrslit hefjast kl. 15.00 og opnar húsið þá fyrir áhorfendum. Aðgangseyrir er kr. 150.- f. fullorðna, og kr. 80,- f. börn yngri en 14 ára. NM í bogfimi fatlaðra ■ Laugardaginn 13. apríl, fer fram í íþrótta- húsi Seljaskóla Norðurlandameistaramót í bog- fimi fatlaðra. Þetta er í fyrsta sinn er ísland heldur Norðurlandamót í bogfími, en þátttak- endur á því verða frá öllum Norðurlöndunum, nema Færcyjum,alls um 30 talsins. Þátttakendur af íslands hálfu verða 6, en þeir eru: Rúnar Björnsson Í.F.A., Pálmi Þ. Jónsson Í.F.A., Einar Helgason Í.F.R., Jón Eiríksson Í.F.R., Óskar Konráðsson Í.F.R. og Elísabet Vilhjálmsson Í.F.R. sem í dag er ein besta bogskytta á Norðurlöndum. Er það von Í.F. að mót þetta verði til að auka veg þessarar íþróttar hér á landi og hvetur fólk til þess að koma og fylgjast með spennandi keppni. Mótið hefst eins og áður segir laugardaginn 13. apríl kl. 10.00. Sveitaglíma íslands ■ Sveitaglíma íslands verður haldin á morgun í íþróttahúsi Melskóla. Keppnin hefst kl. 14:00. Tvær sveitir eru skráðar til leiks, þ.e, sveit frá HSÞ og frá KR. HSÞ sigraði í keppninni í fyrra. Meistaramót í badminton ■ Komandi helgi, þ.e. 13.-14. apríl fer fram Meistaramót íslands í badminton. Mótið verður að þessu sinni haldið á Akranesi og hefst keppni kl. 11.30 bæði laugardag og sunnudag. Skólakeppni FRÍ ■ Skólakeppni Frjálsíþróttasambands íslands, verður haldin á morgun laugardaginn 13. apríl 1985. Keppnin fer fram í Ármannsheimilinu og hefst kl. 11.30 og Baldurshaga kl. 2.30. ARGUS<€> þjóðarinnar Markmiðið með sölu á rauðu fjöðrinni er söfnun fyrir LÍNUHRAÐLI, tæki sem bjargar mannslífum. Sameinumst öll í þessu þjóðarátaki. 12.-14. APRÍL1985 IANDSSÖFNUN UONS

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.