NT - 04.05.1985, Page 24
I
HRINGDU
Við tökum við ábendingum um fréttir alian sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 .
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495_
Fæðist
stjarna?
- spenna í vali Leik-
félags Reykjavíkur
■ Enn vex spennan við lcitina
að stúlku í hlutvcrk í söngleik
þeirra Kjartans Ragnarssonar
og Atla Heiinis Sveinssonar,
„Lands míns föður“ því í gær
voru þær sjö sem komust í úrslit
teknar aftur í prufu en þrátt
fyrir það tókst aðstandendum
verksins ekki að velja eina úr
hópnum. Tvær stúlkur þykja þó
helst koma til greina og verður
gert upp á milli þeirra nú um
helgina.
40 manns munu koma fram í
sýningunni, bæði leikarar og
hljómsveit, en „Lands rníns
föður" er söngleikur sem gerist
á stríðsárunum og spannar tím-
ann frá 9. maí 1940 til 6. maí
1945. Fylgst er með einni fjöl-
skyldu sem lifir við sult og seyru
í upphafi en fitnar á
stríðsgróðanum, við kynnumst
áhrifum styrjaldarinnar jafnt á
þjóðfélagið sem einstaklingana,
■ Hinar sjö útvöldu inni á teppinu hjá dómurunum Stefáni
Baldurssyni og Kjartani Ragnarssyni. F.v. Berglind Einarsdóttir,
Birna Björnsdóttir, Helena Jónsdóttir, Sif Einarsdóttir, Pálína
Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Ylfa Edelstein.
Altaristaflan í Hóladóm-
kirkju liggur undir skemmdum:
Það vantar ekki að ungar
íslenskar stúlkur dreymi um að
slá í gegn og meika það eins og
sagt er, því 130 stúlkur mættu til
leiks í Iðnó á mánudagskvöldið
var og stóðu prófanir fram á
nótt, og þá voru sjö eftir um
hituna. Þær mættu í söng og
leikprufun í Iðnó í gær og þegar
NT menn litu þar inn á sjötta
tímanum varspennan gremileg,
þótt stúlkurnar bæru sig vel og
óskuðu hver annarri góðs
gengis. Andrúmsloftið minnti
lielst á biðstofu tannlæknis eða
skólastofu rétt fyrir próf, þótt
reynt væri að slá á létta strengi.
Innan við dyrnar sátu dómar-
arnir.strangir a svip og höfðu
framadrauma þessara ungu
stúlkna í hendi sér.
Hver verður fyrir valinu er
ekki Ijóst ennþá en hitt er víst
að hennar bíður erfitt og krefj-
andi hlutverk í þessu verki sem
er eitt hið viðamesta, ef ekki
það viðamesta, sem Leikfélag
Reykjavíkur hefur ráðist í. Urn
■ Birna, vinkona hennar (sem greinilega var orðin þreytt á að
á leiðinni í stólinn hjá tannlækninum, eftir svipnum að dæma...
bíða) og Pálína virðast helst vera
NT-myndir: Ari
Samráðið:
Vinnuveitendur vilja
semja til ársloka 1987
■ „Við tjáðum forsvars-
mönnum stjórnarflokkanna
áhuga okkar á því að ná
samningi til lengri tíma, til
ársloka 1987, eða þar um bil.
Við tcljuni að efnahagslegt
jafnvægi sé forsenda þess að
hægt sé að ná kjarabótum,“
sagði Þórarinn V. Þórarins-
son aðstoðarframkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasam-
bands ísiands í samtali við NT
í gær, eftir samráðsfund VSÍ
og Vinnumálasambandsins
með Steingrími Hermanns-
syn og Þorsteini Pálssyni.
Þórarinn sagðist hafa skil-
ið viðbrögð forystumanna
stjórnarflokkanna á þann
veg, að stjórnvöld vildu
greiða fyrir því, að samning-
ar tækjust til lengri tíma.
Kaupmáttartrygging var ekki
rædd sérstaklega á fundinum
en foiystumenn Vinnuveit-
endasambandsins hafa lýst
því yfir, að þeir muni ekki
semja um sjálfvirkt víxl-
hækkunarkerfi.
Þórarinn sagði, að þeir
Steingrímur og Þorsteinn
hefðu kynnt það, sem hefur
verið að gerast í húsnæðis-
málum, og samráð við ASI
þar um. Þá var kynnt efni
t'rumvarpa, sem ríkisstjórnin
hefur boðað um nýskipan í
sjóðamálum, auk þess sem
rætt var um viðhorfin í efna-
hags- og kjaramálum.
Nýr fundur hefur ekki ver-
ið boðaður í samráði stjórn-
arflokkanna við vinnuveit-
endur.
hernáminu, uppganginum,
ástandinu og þeim „sjarma“
sem þessi ár búa yfir í hugum
margra.
Æfingar á „Lands míns
föður“ hefjast um miðjan maí
en frumsýning verður í Iðnó í
haust.
Viðgerð þriggja ára
verk fyrir einn mann
- danskursérfræðingurgerir
úttekt á ástandi hennar
■ „Það er rétt að við höfum
miklar áhyggjur af þessari
töflu, það er Ijóst að hún þarfn-
ast mikillar viðgerðar,“ sagði
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður en NT spurði hann í gær
um ástand altaristöflunnar í
Hóladómkirkju. Danskur sér-
fræðingur í gorvörslu, eða við-
gerðum á gömlum verkum af
þessu tagi er staddur hérlendis
til að gera úttekt á töflunni fyrir
tilstuðlan Þjóðminjasafnsins.
Altaristaflan á Hólum er ein-
stakur dýrgripur og talið víst að
hana hafi gefið til Hóladóm-
kirkju Jón biskup Arason.
Taflan mun vera ættuð frá
Niðurlöndum, Hollandi eða
Belgíu. Hún hefur verið alla tíð í
kirkjum Hólastaðar frá því að
hún var fyrst gefin þangað. Það
mun vera sérstætt við töfluna
að hún hcfur aldrei verið yfir-
máluð, eins og mjög er venju-
legt um svo gamlar töflur.
Þór Magnússon sagði að við-
gerð töflunnar væri orðin mjög
aðkallandi, en það væri geysi-
lega dýrt og mikið verk í
framkvæmd, talið væri að það
tæki einn mann þrjú ár að vinna
verkið. Viðgerð á verki af
þessu tagi er auk þess mjög sér-
hæfð vinna, og einungis á færi
hæfra sérfræðinga.
Því má bæta við að Þjóð-
minjasafnið er ákaflega illa í
stakk búið fjárhagslega til að
sinna vaxandi verkefnum
sínum. Samkvæmt heimildum
NT kostar heimsókn danska
sérfræðingsins hingað 100 þús-
und krónur, en safnið mun ekki
eiga fé til að greiða hana úr eig-
in sjóði. Var ásjár fjármála-
ráðuneytisins lcitað, en erind-
inu hafnað. Mun safnið nú
binda vonir við að mennta-,
málaráðuneytið hlaupi undir
bagga.
Alþýðubankinn:
Býður út ný hlutabréf
upp á 75 milljónir kr.
■ Alþýðubankinn hefur á
kveðið að bjóða út nýtt hlutafé
upp á 75 milljónir króna, sem
gefínn verður kostur á að greiða
á næstu 5 árum.
Ákvörðun þessi var tekin á
aðalfundi bankans, sem haldinn
var fyrir skömmu. Fundurinn
samþykkti ennfremur útgáfu
jöfnunarhlutabréfa upp á 40%
af hlutafé í árslok 1984. Loks
ákvað fundurinn að greiða 5%
arð á innborgaða og uppfærða
hlutafjáreign í árslok 1984.
Halli á rekstrarreikningi
bankans fyrir 1984 var 2.5 mill-
jónir króna, en hagur bankans
var engu að síður góður í árslok.
Eigið fé bankans óx um 31% á
árinu. Innlánsaukning nam
25%, sem er nokkuð fyrir neðan
meðaltal innlánsstofnana í
heild, Útlánsaukningnam43%.
Tveir nýir aðstoðarbanka-
stjórar taka til starfa á þessu ári
og mikill hugurer í stjórnendum
bankans til eflingar hans.