NT - 08.05.1985, Síða 1
Fálkaeggjaþjófum
vísað úr landi
tveimur um landvistarleyfi. „Þeir eru
í geymslu hjá okkur og verða sendir
utan með fyrstu flugvél í dag.“ Þá
sagði Kristján að lög um útlendinga-
eftirlit heimiluðu að synja mönnunr
um landvistarleyfi ef þeir koma til
landsins og grunur leikur á að tilgang-
ur þeirra sé í bága við lög.
„Það er mín skoðun að það eigi að
stöðva alla þá aðila sem eru þekktir
fyrir, eða rökstuddur grunur leikur á,
að stundi þjófnað á eggjurn," sagðí
Kristján að lokum.
■ Tveinrur Þjóðverjum var neitað höfðum frá Þýskalandi. Við frekari
um landvistarleyfi í gærdag, þegar athugun kom í Ijós að þessir menn
þeir komu til Keflavíkur með vél frá höfðu vcrið áður hér á ferð. Þeir voru
Luxemborg. Mennirnir sem heita m.a. grunaöir um þjófnað á.fálka-
Weller Wolfgang og Michael Sutra eggjum hér í fyrra," sagði Kristján
Leonaard, voru 'báðir á lista yfir Pétursson, deildarstjóri hjá tollgæslu
eggjaræningja sem fuglaverndarfélög og útlendingaeftirlitinu á Keflavík-
frá Þýskalandi og víðar sendu útlend- urflugvelli í samtali við NT í gær.
ingaeftirlitinu.
„Það var varðstjórinn í vegabréfs- Kristján sagði ennfremur að á þess-
skoðuninni á Keflavíkurflugvelli sem * um forsendum hefði verið tekin
rak augun í tvö nöfn á farþegalista, ákvörðun í samráði við viðkonrandi
sem voru á þeinr listum sem við yfirvöld um að synja mönnunum
Börkur NK-122:
Sigurdagurinn í Evrópu:
Metið á
2,7 millj.!
Fjorutíu ár f rá
stríðslokum
-sjá bls. 21
3 kílómetra
hár bókastafli
- sjá bls. 3
Drangur ber tjónið af
skemmda stofnútsæðinu:
- engin meiðsl á mönnum
■ Fiskiskipið Börkur NK-122 lenti í árekstri við
skoskan fískibát, í kolsvarta myrkri aðfaranótt
mánudags. Áreksturinn varð um þrjátíu sjómílur
norður af bænum Peterheal, en hann er norðarlega
á austurströnd Skotlands.
Börkur sem er 711 brl.
skemmdist lítið, og gat hann
haldið áfram svo til eftir
áætlun. Skoski fiskibáturinn
sem er 112 tonn skemmdist
verulega, og var hann dreg-
inn til hafnar.
Guðjón Smári Agnarsson,
framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar h/f Neskaup-
stað, sem á bátinn, sagði í
samtali við NT í gær að
skemmdirnar á Berki væru
dæld ofarlega á síðunni og
gætu ekki talist verulegar.
„Gat kom á stefnið á skoska
bátnum og hann er verulega
skemmdur,“ Guðjón sagði
að báðir bátarnir hefðu verið
á stími, og hefðu ekki tekið
hvor eftir öðrum fyrr en um
seinan.
„Það urðu engin meiðsli á
mönnum og þeir selja í dag
einsogvarfyrirhugað. Börk-
ur var lagstur að bryggju í
Grimsby í gærdag um há-
degi,“ sagði Guðjón.
Börkur var í söluferð til
Grimsby með um 140 tonn
af þorski. Sjópróf yfir skips-
höfninni á Berki verða hald-
in þegar skipið kemur úr
söluferðinni, en skipið er
væntanlegt um næstu lielgi.
Skipstjórinn á Berki heitir
Magni Kristjánsson, og hef-
ur hann verið á Berki síðan
1976.
Lenti í árekstri
við skoskan bát
■ Á myndinni sést upphaflcga innistæðán -10 krónur, stimpluð efst í bókinni. Það eru níutíu aurar sem liggja á bókinni eða sú upphæð
sem Dagmar fékk. Á innfelldu myndinni er Dagmar með bókina. NT-mynd: s»emr.
Viðskiptavinur varð sjálfur að verðbæta innistæðu:
Tók út af 29 ára bankabók
■■ ..■■■■ i iii *■■ ■■■
- og þurfti að bæta við tíu aurum til þess að ná krónunni
■ Tæpar 100 lestir af
stofnútsæði skemmdust í
flutningum með
flóabátnum Drangi frá
Norðurlandi til Reykja-
víkur í aprílmánuði sl.
og mun það hafa verið
um Vi af því stofnútsæði
sem til var í landinu.
Tjónið af völdum þessa
óhapps er metið á 2,7
milljónir kr. og er það
flóabáturinn Drangur
sem þarf að bera þann
skaða.
Þetta kom fram í svari
landbúnaðarráðherra við
fyrirspurn Kolbrúnar
Jónsdóttur, Bandalagi
jafnaðarmanna, á Al-
þingi í gær og upplýsti
ráðherra jafnframt að
ekki væri þörf frekari
innflutnings á stofnút-
sæði vegna þessa óhapps
því töluverð umfram-
framleiðsla hefði verið á
síðasta ári og minni eftir-
spurn væri eftir stofnút-
sæði af hálfu bænda. Það
kom fram hjá Kolbrúnu
Jónsdóttur að samkvæmt
þeim upplýsingum sem
hún hefði fengið frá
Grænmetisverslun ríkis-
ins væri hér um allt að
helming stofnútsæðis,
sem til var í landinu, að
ræða sem hefði skemmst
í umræddum flutningum.
■ Græddurergeymdureyrir-
eða hvað? Þessari spurningu
velti Dagmar Gunnlaugsdóttir
fyrir sér þegar hún lagði leið
sína í Landsbankann með spari-
sjóðsbók dóttur sinnar.
„Árið 1956 gaf bankinn dótt-
ur minni 10 krónur sem sjálf-
krafa voru lagðar inn á bók.
Tilgangur með gjöfinni var að
kenna 7 ára börnum, sem voru
að hefja skólagöngu, að spara.
í gær þegar ég var að róta í
gömlum bankabókum fann ég
þessa bók, og ákvað að fara
með hana í bankann og leysa út
féð ásamt vöxtum,“ sagði
Dagmar í samtali við NT í gær.
Dagmar sagði að hún hefði
ekki gert sér grein fyrir því
hversu miklir peningar væru
inni á bókinni. „Ég fékk hvorki
meira né minna en 91 aur. Og
til þess að losna við koparinn þá
bætti ég við tíaur, og hafði
krónu upp úr krafsinu.“
Þetta var sem sagt ekki ferð
til fjár fyrir Dagmar. Til viðmið-
unar má benda á, að árið 1956
kostaði tímaritið Satt 10 krónur.
í dag eru tímarit svipuð Satt
verðlögð á 90-100 krónur.