NT - 08.05.1985, Qupperneq 14
Sjónvarp, kl. 20.40:
Eyjar í haf inu
■ í kvöld sjáum við 10. þáttinn í heimildamyndaflokknum um
hinn Lifandi heim. í þessum þætti vitjar David Attenborough
eyja um víða veröld, en þó sérstaklega í Suðurhöfum. Par er víða
að finna gróður og dýralíf sem hvergi á sinn líka. Sumar eyjarnar
eru hæli fyrir fornar tegundir en aðrar eru fæðingarstaður nýrra.
Þýðandi og þulur er Óskar Ingimarsson.
Miðvikudagur 8. maí 1985 14
Nýr myndaflokkur:
Allt fram streymir...
■ í kvöld hefur göngu sína
nýr ástralskur myndaflokkur í
átta þáttum. Þátturinn nefnist
Allt fram streymir... (All the
■ Hin 16 ára Philadelphia
i „Allt fram streymir...“.
,Delía“ Gordon er aðalsöguhetjan
Rivers Run) og er gerður eftir
sanmefndri skáldsögu Nancy
Cato.
Árið 1890 bjargast ensk
stúlka, Philadelphia „Delía“
Gordon, úr sjávarháska við
Ástralíu og fer til vistar hjá
frændfólki sínu í Virginíufylki.
Björgunarmaður hennar er
sjómaðurinn Tonr og voru þau
ein urn að komast lífs af úr
fárviörinu.
Delía er dugmikil og lífsglöð
ung stúlka sem vill ekki festast
í gömlum hefðum, en gera
eitthvað nýtt og spennandi.
Því er erfitt fyrir hana að skilja
Hester, frænku sína, sem reyn-
ir að troða hugmyndum um
kvenleika og húsmóðurskyldur
upp á stúlku sem þarfnast að-
eins frelsis til þess að geta lifað
lífinu.
Það á fyrir Delíu að liggja að
eignast fljótabát, giftast fljóta-
bátsmanni og sigla á Murray-
fljóti, þar sem hún lendir í
ýmsum mannraunum og ævin-
týrum á þessurn uppgangstím-
um í álfunni.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
Viltu verða
kennari?
■ Kennarar í Fossvogsskóla
vinna að undirbúningi al-
mennrar kennslu níu og tíu ára
barna.
■ í kvöld kl. 20.20 verður á
dagskrá útvarps starfskynning-
arþátturinn „Hvað viltu
verða?" í umsjá Ernu Arnar-
dóttur og Sigrúnar Halldórs-
dóttur.
„í þessunt þætti verður starf
grunnskólakennara kynnt.
Valgerður Eiríksdóttir, sem
kennt hefur í 13 ár, kentur í
heimsókn og fjallar um hvað
felst í starfi grunnsköla-
kennara og hvernig skólarnir
eru byggðir upp. Hún ræðir
bæði um opna og lokaða skóla.
Rætt verður við Einar Krist-
jánsson, fyrrverandi skóla-
stjóra í Laugaskóla í Dala-
sýslu. Hann hefur kennt og
verið skólastjóri í 35 ár og er
að kenna sín síðustu kennslu-
ár, en hann er nú sérkennari
og bókavörður.
Talað verður við Bjarna
Harðarson, sem kenndi 11 ár í
Reykjavík, en kennir nú í
Nesjaskóla. Hann ætlar að
segja frá reynslu sinni af að
kenna í stórum skóla í Reykja-
vík og svo í litlum skóla úti á
landi" sagði Sigrún Halldórs-
dóttir.
40 ár liðin Irá friðardeginum 8. maí 1945.
Svona minnist Norðmaður-
inn Asbjörn Hildemyhr friðar-
dagsins í Reykjavík þann 8.
maí 1945.
Margrét Oddsdóttir og Ein-
ar Kristjánsson sjá um þátt í
kvöld í tilefni þess að 40 ár eru
liðin frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar í Evrópu, og
nefnist þátturinn „Þegar ljósin
kviknuðu aftur“. Munu þau
rifja upp sitthvað sem tengist
friðardeginum, sigurdegi Evr-
ópu. Rætt verður við Þorstein
Hannesson, söngvara sem var
í Lundúnum á styrjaldarárun-
um og Gunnlaug Þórðarson,
hæstaréttarlögmann, sem segir
frá friðardeginum í Reykjavík.
■ „Aldrei hafði Reykjavík
verið svo nærri algjöru styrj-
aldarástandi eins og þennan
dag, þegar friðurinn skall á.
Allur miðbærinn var ein örvita
ringulreið, sem lögregla og
herlögregla reyndi árangurs-
laust að ná tökum á með
kylfum, slökkvudælum og
táragasi. Allt síðdegið og langt
fram á nótt herjuðu hjarðir af
snarvitlausum, blindfullum
hermönnum og lausingjalýð
um göturnar og lenti saman
við hópa af reiðum borgarbú-
um, sem ekki gátu unað því að
skríllinn hefði alla sína henti-
semi. Þetta var blendingur af
taumlausri gleði, ónotaðri inni-
byrgðri athafnaþrá, sem haldið
hafði verið í skefjum árum
sanian undir grjóthörðum aga
og óhjákvæmilegum ríg milli
hernámsliðsins og almenn-
ings. Nú braust þetta út í
ljósum loga og ollí því að fólk
rauk hvað á annað eins og
grimmir hundar.“
Flutt verður efni úr segul- lög sem tengjast hugblæ styrj-
bandsafni útvarpsins og leikin aldaráranna.
Sjónvarp, kl. 21.50:
■ Mannfjöldi safnaðist að
Alþingishúsinu þar sem Sveinn
Björnsson ávarpaði fólkið á
friðardeginum 8. maí fyrir 40
arum.
kl. 22.35
Þegar Ijósin
kviknuðu aftur
kl. 20.20
Miðvikudagur
8. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A
virkum degi. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Sigurðar G. T ómassonar frá kvöld-
inu áður.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Úlfhildur Grímsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Bláa barnið“ ettir Bente Lohne
Sigrún Björnsdóttir les þýðingu
sína (3).
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 Islenskir einsöngvarar og
kórar syngja
11.15 Úr ævi og starfi islenskra
kvenna Umsjón: Björg Einarsdótt-
ir.
11.45 íslenskt mál Endurtekinn þátt-
ur Ásgeirs Blöndals Magnússonar
frá laugardegi.
12.00 Ðagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Heiðdis
Norðfjörö. (RÚVAK).
13.30 Söngvar um frið í tilefni af
friðardeginum 8. maí 1945
14.00 „Sælir eru syndugir11 eftir
W.D. Valgardson Guðrún Jör-
undsdóttir les þýðingu sína (4).
14.30 Miðdegistónleikar Fritz Kreisl-
er og Franz Rupp leika annan þátt
„Kreutzer" sónötunnar eftir Ludwig
van Beethoven.
14.45 Popphólfið - Bryndis Jóns-
dóttir.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslensk tónlist a. Gunnar
Björnsson og Jónas Ingimundar-
son leika á selló og pianó lög eftir
Eyþór Stefánsson,, Sigvalda
Kaldalóns, Sigfús Einarsson,
Björgvin Guðmundsson, Emil
Thoroddsen og Pál isólfsson. b.
Divertimento fyrir sembal og
strengjasveit eftir Hafliða Hall-
grimsson. Helga Ingólfsdóttir leik-
ur á sembal, Guðný Guðmunds-
dóttir á fiðlu, Graham Tagg á lág-
fiðlu og Pétur Þorvaldsson á selló.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur Sigrún
Helgadóttir formaður orðanefndar
Skýrslutæknifélags íslands flytur
19.50 Horft i strauminn með Úlfi
Ragnarssyni (RÚVAK).
20.00 Útvarpssaga barnanna:
Gunnlaugs saga ormstungu
20.20 Hvað viltu verða? Starfskynn-
ingarþáttur í umsjá Ernu Arnardótt-
ur og Sigrúnar Halldórsdóttur.
21.00 Frá tónlistarhátíð í Ludwigs-
burg sl. haust
21.30 Að tafli Jón Þ. Þór flytur
skákþátt.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Þegar Ijósin kviknuðu aftur
40 ár frá lokum heimsstyrjaldarinn-
ar siðari i Evrópu. Umsjón: Einar
Kristjánsson og Margrét Oddsdótt-
ir.
23.25 Nútimatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
23.55Tf.él1ir. Dagskrárlok.
Sn
Miðvikudagur
8. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjórn-
andi Kristján Sigurjónsson.
14.00-15.00 Eftirtvö. Stjórnandi Jón
Axel Ólafsson.
15.00-16.00 Nú er lag. Gömul og ný
úrvalslög að hætti hússins. Stjórn-
andi Gunnar Salvarsson.
16.00-17.00 Voröldin. Þáttur um
tómstundir og útivist. Stjórnandi
Júlíus Einarsson.
17.00-18.00 Tapað fundið. Sögu-
korn um popptónlist. Stjórnandi
Gunnlaugur Sigfússon.
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11.00, 15,00, 16,00 oq
17.00.
Miðvikudagur
8. maí 1985
19.25 Aftanstund Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni: Sögu-
hornið - Okkar góða kría, þula
eftir Jónas Árnason. Myndir teikn-
aði Atli Már. Kaninan meðköfl-
flóttu eyrun, Dæmisögur og
Högni Hinriks, sögumaður Helga
Thorberg.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Lifandi heimur 10. Eyjar í
hafinu. Breskur heimilda-
myndaflokkur i tólf þáttum. David
Attenborough vitjar eyja um viða
veröld en þó einkum i Suðurhöf-
um. Á þeim er víða að finna
gróöur, dýr og fugla sem hvergi
eiga sinn líka. Þýðandi og þulur
Óskar Ingimarsson.
21.50 Allt fram streymir... (All the
Rivers Run) Nýr flokkur - fyrsti
þáttur Ástralskur
framhaldsmyndaflokkur f átta
þáttum, gerður eftir samnefndri
skáldsögu eftir Nancy Cato. Leik-
stjórn: George Miller og Pino Am-
enta. Leikendur: Sigrid Thornton,
John Waters, Charles Tingwell,
William Upjohn, Diane Craig, Din-
ah Shearing og fleiri. Áriö 1890
bjargast ensk stúlka úr sjávar-
háska við Ástralíu og fer til vistar
hjá frændfólki sínu i Viktoríufylki.
Það á síðan fyrir Delíu þessari að
liggja að sigla skipi á Murrayfljóti
og lenda þar í ýmsum mannraun-
um og ævintýrum á þessum upp-
gangstímum í álfunni. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
22.40 Úr safni sjónvarpsins Sveita-
ball Svipmyndir frá dansleik í Ara-
tungu sumariö 1976. Þarskemmtu
Ragnar Bjarnason og hljómsveit,
Þuríður Sigurðardóttir söngkona,
Bessi Bjarnason og Ómar Ragn-
arsson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.