NT - 19.06.1985, Síða 1
Miðvikudagur 19. júní 1985
Borgarnes
samþykkti
■ Verkalýðsfélag Borgarness
samþykkti á fundi sínum í gær
nýgerðan kjarasamning ASI og
VSÍ. Fundarsókn var allgóð og
var samningurinn samþykktur
með ölium greiddum atkvæð-
um gegn einu.
Datt af þakinu
■ Seint í gærkvöld datt ungur
drengur ofan af þaki verslun-
armiðstöðvarinnar við Lóuhóla
og meiddist á höfði. Er blaðið
fór í prentun var ekki kunnugt
um mciðsli barnsins. Að sögn
lögreglu er töluvert um að börn
séu að príla á þökum bygginga
og beinir lögreglan þeim til-
mælum til foreldra að þeir
fylgist með börnum sínum.
Mótmæla byggingu í landi Alaska:
„Hvað hef ég
eiginlega
gert þessu fólki?“
spyr byggjandinn, Jón H. Björnsson
■ „Hvað hef ég eiginlega gert
þessu fólki? Ég hef átt þetta
land síðan 1960 og alla tíð ætlað
mér að byggja hér. Mér hefur
aldrei dottið í hug að kvarta þó
að hús hafi risið allt í kring. Én
svo þegar ég ætla að fara að
byggja gera nágrannarnir, eða
Sigurður Thoroddsen, allt tii að
stöðva mig. Allt tal um að ég
hyggist byggja á fornminjum er
úr lausu lofti gripið."
Þetta sagði Jón H. Björnsson,
eigandi gróðrarstöðvarinnar Al-
aska í Breiðholti, meðal annars
á opnum fundi sem hann efndi
til vegna deilna sem risið hafa
meðal hans og nágranna hans
vegna húss sem Jón hyggst
byggja á landi sínu. Jón hafði
fengið samþykki byggingar-
nefndar borgarinnar fyrir hús-
byggingunni en borgarstjórn
frestaði nýlega staðfestingu á
samþykkinu „til þess að kynna
sér málið betur vegna tiltekinna
mótmæla“ eins og segir í
bókun.
Á fundinn í gær voru mættir
borgarfulltrúar, þjóðminja-
vörður, nágrannar Jóns auk
nokkurra blaðamanna. í opnum
umræðum um málið kom fram,
að samkvæmt tuttugu ára gömlu
skipulagi á land Alaska að vera
svokallað „grænt svæði“ og
sagði Sigurður Thoroddsen,
arkitekt og forvígismaður ná-
grannanna, að hér væri um
„prinsipmál" að ræða. „Við höf-
um frá upphafi staðið í þeirri trú
að hér yrði grænt svæði og
viljum að svo verði,“ sagði Sig-
urður.
í einu dagblaðanna var um
daginn fullyrt að Jón hyggðist
reisa húsið á fornminjum, í
landi gróðrarstöðvarinnar eru
elstu fornminjar Breiðholts,
kirkja og kirkjugarður frá fjór-
tándu öld og munu mannabein
hafa verið grafin upp úr garðin-
um einhvern tíma. Þór Magnús-
son, þjóðminjavörður, semfrið-
lýsti umrætt svæði árið 1981,
sagði að staður hússins, sem Jón
hyggst byggja, væri utan við
hinn friðlýsta reit.
■ Hér standa þeir andspænis hvor öðrum, Sigurður Thoroddsen
og Jón H. Björnsson í Alaska. BorgarfuUtrúar og þjóðminjavörður
voru einnig á fundinum. NT-mynd: Ámi Bjama.
- í kjölf ar nýrra laga
■ „Það er fullur hugur í
okkur, en við höfum ekkert á-
kveðið ennþá. Við erum búnir
að festa okkur nafnið Frjálst
útvarp og ákveðum endanlega
í haust hvað við gerum,“ sagði
Kjartan Gunnarsson formaður
Félags um frjálsan útvarps-
rekstur, í sambandi við NT í
gær. Kjartan og félagar hans í
Sambandi ungra sjálfstæðis-
manna ráku útvarpsstöð í
BSRB verkfallinu í haust, Val-
haHarútvarpið svonefnda.
íslenska útvarpsfélagið með
þá Jón Ólafsson í Skífunni og
Magnús Axelsson fasteignasala
í broddi fylkingar ætla að hefja
útvarpsútsendingar strax og
nýju útvarpslögin taka gildi.
Væntanlega fylgja í kjölfarið
margar útvarpsstöðvar víðs
vegar um landið. Við höfum
fregnað af stöðvum í Vest-
mannaeyjum og í Keflavík, en
ekki fengið staðfestar fréttir af
útvarpsstöðvum á Norður- og
Austurlandi.
Landsmálablaðið Dagur á
Akureyri rak útvarpsstöð í
BSRB verkfallinu og sögðu
þeir Dagsmenn neistann sem
þá kviknaði enn í fullu fjöri,
en þeir hafa ekki tekið ákvörð-
un um áframhaldandi útvarps-
rekstur.
■ Margt forvitnilegt bar
fyrir augu á 17. júní, m.a.
mátti sjá litla græna kallinn
sem venjulega stendur inni
götuvitanum stíga út til að
sjá betur. NT-mynd Árni Bjarna
Sjómannadeilan leyst:
Sjómenn og útvegsmenn
skrifuðu undir í gær
■ Samingar náðust milli Sjó-
imannafélags Reykjavfkur og
Landsambands íslenskra út-
vegsmanna um klukkan tíu í
gærkveldi. Samningurinn er
háður samþykki félagsfundar
Sjómannafélagsins haldinn nú í
morgun í húsakynnum ríkissátta-
semjara.
Þegar blaðamaður NT hitti
fulltrúa útgerðarmanna, Jakob
Sigurössoiij og fulltrúa Sjó-
mannafélagsins, Guðmund
Hallvarðssonj að máli í gær-
kveldi vildu hvorugir greina frá
efnisatriðum samningsins fyrr
en eftir félagsfund sjómanna í
morgun.
Ríkissáttasemjari Guðlaugur
Þorvaldsson sagði í gærkveldi
að engir formlegir fundir hefðu
verið haldnir fyrr en milli níu og
tíu í gærkveldi - menn hefðu
aðeins rætt óformlega saman.
„En auðvitað slógu báðir af
sínum kröfum.“
Deila sjómanna og útvegs-
manna var komin á hættulegt
stig í gær áður en samningar
tókust.
Vinnuveitendasamband ís-
lands sendi Sjómannafélagi
Reykjavíkur í gær bréf þess
efnis að VSÍ teldi samúðarverk-
fallsboðun Sjómannafélagsins
ólögmæta og myndi grípa til
aðgerða samkv. því ef á reyndi.
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði var viðbúið því að
reyna að stöðva löndun á skip-
inu Keili ef það kæmi til hafnar
í Hafnarfirði því Alþýðusam-
band íslands hafði áður lýst yfir
afgreiðslubanni.
Sjómannafélagið lýsti yfir
samúðarverkfalli allra farskipa
og olíuskipa í gær og hefði sú
verkfallsboðun tekið gildi 25.
júní.
Auglýsingastofa
þriggja stórra
- auglýsingastofur missa mi 11 jónavi ðskipti
8
■ Auglýsingastofur borg-
arinnar munu ef að líkum
lætur missa vænan spón úr
aski sínum á næstu mánuð-
um. Þrjú fyrirtæki, sem sam-
eiginlega auglýsa fyrir mill-
jónir árlega, hafa stofnað
eigin auglýsingastofu, Studío
X. Fyrirtækin eru Vöru-
markaðurinn hf.,Gunnar Ás-
geirsson hLog ferðaskrifstof-
an Atlantik.
Stefán Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Vörumarkað-
arins, sagði í samtali við NT,
að hið nýja fyrirtæki myndi
eingöngu annast auglýsingar
fyrir fyrirtækin þrjú. Hann
sagði að ákvörðun um stofn-
un þess hefði ekki verið tekin
vegna óánægju með þá þjón-
ustu sem auglýsingastofur
veittu. „Við vonumst hins
vegar eftir því að við getum
nýtt það fé sem við notum til
auglýsinga betur með því að
hafa okkar eigið starfsfólk
sem ber hag fyrirtækjanna
fyrir brjósti,“ sagði Stefán.
Bjarni Dagur Jónsson hef-
ur haft auglýsingar Vörumark-
aðarins með höndum en
Gunnar Ásgeirsson og Atl-
antik hafa skipt við nokkrar
auglýsingastofur í gegnum
árin.