NT - 19.06.1985, Blaðsíða 12
01
Miðvikudagur 19. júní 1985 12
Utlönd
Austurríkismenn
og Tékkar:
Samvinna
um um-
hverfismál
Vín-Rcuter.
■ Austurríkisnienn og
Tékkar munu síðar á þessu
ári undirrita samkomulag
um samvinnu á sviði um-
hverfismála.
í samkomulaginu sem
undirritað verður í Prag
verður meðal annars að
fínna ákvæði um sameig-
inleg rannsóknarverkefni
og sameiginlegar mcngun-
arvarnir.
Fulltrúar ríkjanna
ræddust við í 4 daga í Vín,
og sýndu Tékkar meðal
annars áhuga á aó kaupa
austurrískar reyksíur í raf-
orkuver sín sem brenna
lélegum brúnkolum með
miklu brennisteinsmagni.
Raforkuver Tékka eru
flest í Norður-Bóhemíu og
spúa um 3.100.000 tonn-
um af brennisteindíoxíði
út í andrúmsloftið. Mikill
hluti skóga í Norður-
Tékkóslóvakíu hefureyði-
lagst vegna þessarar
mengunar og Austurríkis-
menn kennt Tékkum um
milljón dollara tjón á
skógum sínum vcgna þess
að súrt regn hefur fallið
þar niður.
Tékkar lofuðu á fundi
ríkjanna að vera búnir að
lækka brennisteinsmeng-
un sína niður um 30% árið
1993.
Franskur iiðsforingi:
Samviska hans
sagði nei takk
- fær 6 mánaða fangelsi fyrir að yfirgefa kjarnorkustöð
Nimes, Frakklandi-Reuter.
■ Liðsforingi sem yfirgaf
kjarnorkuvopnastöð í Suðaust-
ur-Frakklandi vegna þess að
hann gat ekki lengur afborið þá
liugsun að hann myndi síðar ef
til vill eiga þátt í að kjarnorku-
flaug yrði send á loft og valda
dauða hundruða þúsunda var í
gær dæmdur í sex mánaða fang-
elsi fyrir athæfí sitt.
Taismenn í franska réttar-
kerfínu sögðu að liðsforinginn
Jean-Louis Cahu hefði þegar
tekið út mánaðarrcfsingu í
gæsluvarðhaldi en hinir fimm
mánuðirnir væru skilorðs-
bundnir.
Jean-Louis Cahu bar ábyrgð
á öðrum tveggja lykla að skot-
kerfi 18 S-3 kjarnaflauga þegar
hann hvarf í nóvember síðast-
liðnum. Hann sagði einkaréttin-
um sem fór með mál hans að
hann hefði falið sig í neðanjarð-
arbyrgi sínu, 400 metrum undir
kjarnorkustöðinni og orðið að
fá næði til að hugsa því að
honum hefði verið óbærilegt að
sinna störfum sínum lengur.
Hann hefði tekið ákvörðun sína
einn og sér með samvisku sinni
og það væri alls ekki ætlun sín
að ljóstra upp hernaðarleyndar-
málum.
Hámarksrefsing í Frakklandi
fyrir að gerast liðhlaupi á friðar-
tímum er fjögurra ára fangelsi.
Fyrir þremur árum var dóm-
gæsla í slíkum málum færð úr
höndum herdómstóla til borg-
aralegra dómstóla.
Mál Jean-Louis Cahu varð
opinbert þegar hann skýrði
dagblaði frá ákvörðun sinni
áður en hann gaf sig fram við
lögregluna.
Ríkissaksóknarinn Monique
Guemann fór fram á lágmarks-
refsingu í málinu þar eð lofa
bæri heiðarleika og hugrekki
liðsforingjans í að breyta sam-
kvæmt samvisku sinni.
Cahu hefur verið leystur frá
störfum og berst nú gegn kjarn-
orkuvopnum. Hann segist óska
þess eins að kjarnorkuvopna-
kapphlaupið verði stöðvað því
að vopnunum verði beitt fyrr
eða síðar.
London:
Herferð gegn
klámi í Soho
- klámhundar fái sér aðra vinnu
London-Reuler.
■ Lundúnalögreglan lét um
helgina til skarar skríða í her-
ferð sinni gegn ósiðlegu líferni
og réðst inn í hverfí hinna rauðu
Ijósa í Soho til að athuga hversu
ólöglegum krambúðum sem
seija alls kyns klámtól og tæki í
þeim tilgangi að fjörga kynlífs-
athafnir hefði vaxið fískur um
hrygg.
Lögreglan gerði innrás inn í á
annan tug klámblaðaverslana,
gægjugatasýningahúsa og ann-
arra álíka fyrirtækja og var það
þáttur í áætlun lögregluyfir-
valda að hreinsa til í Sohohverf-
inu sem nýtur nokkurra vin-
sælda meðal ferðamanna í borg-
inni.
Ólöglegar klámbúðir hafa
sprottið upp eins og gorkúlur í
Sohohverfinu þótt leyfisgjaldið
sem borgað er árlega hafi verið
hækkað í 11.000 pund eða um
560.000 íslenskar krónur.
Talsmaður Scotland Yard
sagði að aðgerðirnar um síðustu
helgi væru liður í áætlun um að
uppræta starfsemi klámhunda í
Sohohverfinu svo að hverfið
öðlaðist nýjan virðuleika og að
aðgerðirnar myndu standa yfir í
nokkra daga.
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
--------------- DREGIÐ 17. JÚNÍ 1985 ------
SAAB 900i SPECIAL: 104159
OPEL KADETT GL: 66911 98736
BIFREIÐAR AÐ EIGIN VALI, 300.000 KR.: 29343 157969
HÚSBÚNAÐARVINNINGAR, 100.000 KR.: 14355 14367
19149 20790 27807 50458 69300 119601 134263 151506
HEIMILISTÆKJAVINNINGAR, 50.000 KR.: 8177 10015
10707 13848 15129 16523 20593 24112 30341 39104
60280 62175 65151 79964 93670 106913 121843 136038
144209 145486 147338 155284 163716 169019 179188
Handhafar vinningsmióa framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
aö Skógarhlið 8, sími 62 14 14.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuðning
é
KrabbameinsfélagiÖ
■ Klámhundurinn á þessari mynd verður sjálf-
sagt heldur óhress með það að þurfa að leita sér
að annarri vinnu en lögreglan í London hefur
hafíð herferð gegn ósiðlegum atvinnurekstri í
Sohohverfi og ætlar sér að útrýma klámbúllum
svo hverfið öðlist meiri virðuleika.
Gandhi hress
með för sína
Nýja Delhi-Reuter
■ Rajiv Gandhi forsætisráð-
herra Indlands var glaður í
bragði er hann kom heim úr
heimsóknum sínum til 5 ríkja
þeirra á meðal Bandaríkjanna.
Gandhi sagði blaðamönnum
að hann væri mjög ánægður
með ferðir sínar til Egypta-
lands, Alsír, Frakklands, Sviss
og Bandaríkjanna og sagði að
heimsóknirnar myndu auka vin-
skap milli ríkjanna þótt líklega
kæmu sérstakir ávinningar
þeirra ekki í ljós fyrr en síðar.
Hann væri mjög ánægður með
viðræður sínar við forystumenn
ríkjanna þótt það þýddi ekki að
komist hefði verið að niðurstöð-
um um sérhvert mál sem borið
hefði á góma í viðræðunum.
Gandhi var mjög spurður um
viðræður hans við Bandaríkja-
stjórn og hvernig Bandaríkja-
menn hefðu brugðist við beiðni
hans um að reyna að hafa áhrif
á kjarnavopnatilburði Pakist-
ana. Gandhi sagðist vera nokk-
uð viss um að Bandaríkjastjórn
myndi gera allt sem í hennar
valdi stæði til að koma í veg
fyrir kjarnavopnavæðingu Pak-
istana en það þýddi hins vegar
ekki að Pakistanar yrðu sér ekki
úti um kjarnorkuvopn. Sala
Bandaríkjamanna á vopnum og
vopnabirgðum til Pakistana
væri ekki ógnun við öryggi Ind-
lands en hún neyddi Indverja til
að reyna að jafna metin.
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og
dísillyftara, ennfremur snúninga og hliðarfærslur.
Tökum iyftara upp i uppgerðan, leigjum lyftara.
Flytjum lyftara, varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð
Tökum lyftara i umboðssölu
LYFTARASALAN HF.,
Vitastíg 3, símar 26455 og 12452 J
Frjálst framtak í heilbrigðismálum:
Einkaaðilar stofna
læknamiðstöð í Osló
- eykur misrétti segja sósíaldemokratar
■ Einkaaðilar hafa nú hasl-
að sér völl í norska heilbrigð-
iskerfínu með stofnun lækna-
miðstöðvar í Osló utan hins
opinbera heilbrigðiskerfís.
Læknamiðstöðin, sem
heitir Ring Medisinskc
Senter, hefur fengið 18
lækna og sérfræðinga til
starfa, og hún er búin nýjum
og fullkomnum tækjum.
Læknarnir bjóða upp á
læknaþjónustu allan sólar-
hringinn fyrir þá sem hafa
efni á að greiða það sem upp
er sett.
Hægt er að gerast aðili að
þjónustu læknamiðstöðvar-
innar með því að greiða
1.600 n.kr. (7.500 ísl.kr.)
fyrir einstakling eða 3.500
n.kr. (15.500 ísl.kr.) fyrir
fjölskyldu sem upphafsgjald
auk 700 n.kr. (3.300 ísl.kr.)
ársgjalds fyrir einstaklinga
og 1.400 n.kr. (6.500
ísl. kr.). Fyrir þetta gjald öðl-
ast einstaklingar rétt á sex
ókeypis læknisskoðunum yfir
árið og fjölskyldur fá rétt á
tólf læknisskoðunum. Fólk
fær líka rétt á hjartaaðgerð
erlendis svo fremi sem það
var heilbrigt þegar það gerð-
ist aðili að þjónustunni.
Einstaklingar sem ekki eru
aðilar að þjónustu miðstöðv-
arinnar þurfa að greiða 150-
200 n.kr. (700-1000 ísl.kr.)
fyrir hverja skoðun.
Stjórnarformaður og yfir-
læknis læknamiðstöðvarinn-
ar, Jens Moe, segir miðstöð-
ina ekki í samkeppni við
heilhrigðiskerfið, heldur sé
henni ætlað að veita fólki
valkost. Hann segir að það
þurfi 8.300 áskrifendur að
þjónustu miðstöðvarinnar til
þess að hún skili hagnaði. Nú
þegar hefðu 5.500 manns
gerst aðilar og vandalítið yrði
að fá þá 2.800 sem upp á
vantaði.
Leiðtogar Verkamanna-
flokksins í Noregi hafa lýst
því yfir að þeir séu mjög á
móti því að opinbert fé verði
notað til að fjármagna lækna-
miðstöðvar í eigu einkaaðila.
Slíkar miðstöðvar græfu und-
an jafnrétti í heilsugæslu og
ieiddu til tvískiptingar
heilsukerfisins þar sem fólki
væri mismunað eftir efnahag.
Verkamannaflokkurinn
segist stefna að því að gera
hið opinbera heilsukerfi svo
gott að læknamiðstöðvar
einkaaðilar verði óþarfar.