NT - 19.06.1985, Qupperneq 23
■ Þróttarar höluðu inn þrjú
dýrmæt stig í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á sunnu-
dag, er þeir lögðu Kellvíkinga
að velli 1-0 á Laugardalsvellin-
um. Atli Helgason skoraði
sigurmarkið á 34. mínútu. Kefl-
vfkingar geta nagað sig í handar-
bökin yfír því að hafa ekki tekið
með sér annað stigið heim því
þeir fengu gnægð tækifæra og
hefðu vel átt jafntefli skilið.
Þegar á 10. mínútu kom for-
smekkurinn að því er koma
skyldi er Keflvíkingar brenndu
af í upplögðufæri. Ragnarskaut
föstu skoti úr aukaspyrnu, sem
Guðmundur Erlingsson náði
ekki að halda. Knötturinn
hrökk fyrir fætur Valþórs Sig-
þórssonar sem sópaði honum
yfir markið af tveggja metra
færi.
Síðan gerðist harla lítt þar til
Þróttur skoraði. Kristján Jóns-
son sendi góða sendingu yfir frá
vinstri og í miðjum teignum
stökk Atli upp og skallaði knött-
inn snyrtilega í markhornið.
Ólafur Gottskálksson kom eng-
um vörnum við, en varnarmenn
Keflvíkinga gáfu Atla þarna
alltof mikið pláss og næði.
HNOT-
SKURN
Allþokkalegur leikur. Leikid
við frekar erfiðar adstæður,
hvassa austanátt. Mikið um færi
og klaufalegt hjá Keflvíkingum
að skora ekki. Atli Helgason
gerði sigurmarkið á 34. mínútu.
Þrír fengu gul spjöld. Arnar
Friðriksson hjá Þrótti og Ragnar
Margeirsson og Sigurjón Sveins-
son hjá ÍBK. Dómari var Baldur
Scheving og var stundum ósam-
kvæmur sjálfum sér. Áhorfendur
voru um 500.
Það sem eftir lifði hálfleiksins
fengu Keflvíkingar þrjú færi til
að jafna. Fyrst renndi Ragnar
knettinum inn á Helga
Bentsson, en Guðmundur
bjargaði skoti hans í horn. Á
38. mínútu gerði Guðmundur
vel að slá skalla Ragnars aftur
fyrir endamörk og upp úr því
horni skoruðu svo sunnan-
menn. Markið var hins vegar
dæmt af þar sem brotið hafði
verið á Guðmundi markverði í
öllum djöfulganginum.
Eftir hlé var það sama uppi á
teningnum, sóun á marktæki-
færum. Ragnar byrjaði á 48.
mínútu er hann virtist ekki geta
annað en skorað : En Loftur
Ólafsson bjargaði kærulausu
skoti hans á línu. Þá skallaði
Gunnár Oddsson vel að mark-
ina en beint á Guðmund.
Þróttur byrjaði svo að herma
eftir Keflvíkingum er leið á hálf-
leikinn. Ólafur varði frá Atla á
64. mínútu, skoti frá Sverri
Péturssyni var bjargað á mark-
línu mínútu síðar og Sigurður
Hallvarðsson komst í gegn en
Ólafur varði í horn.
Og hinum megin hélt leikur-
inn áfram. Óli Þór Magnússon í
gegn-framhjá. Ragnarbrenndi
af á 78. mín. og Björgvin
Björgvinsson, sem var nýkom-
inn inn á sem varamaður, lét
Guðmund verja frá sér. Undir
lokin skoraði svo Ragnar en
markið var dæmt af á forsendum
rangstæðu. Dulítið hæpinn
dómur að margra mati, en orð
dómarans eru lög.
Liðin:
Þróttur: Guðmundur Erlingsson, Arnar
Friðriksson, Kristján Jónsson, Loftur
Ólafsson, Ársæll Kristjánsson, Pétur
Arnþórsson, Daði Harðarson, Theodór
Jóhannsson, Sigurður Hallvarðsson (Sig-
urjón Kristinsson 79. mín), Atli Helgason
og Sverrir Pétursson. IBK: Ólafur Gott-
skálksson, Einar Kristjánsson, Valþór
Sigþórsson, Freyr Sverrisson, Sigurður
Midvikudagur 19. júní 1985 23
- sigruðu ÍBK í leik þar sem jafntefli hefði verið sanngjarnara
„Vináttuleikur":
Ruddalegur leikur
hjá Cosmos og Lazio
Halldór Halldórsson, FH (2)
Jósteinn Einarsson, KR
Siguróli Kristjánsson, Þór (4) Kristján Jónsson, Þrótti
Sigurður Lárusson, ÍA (2)
Ómar Torfason, Fram (3)
Andri Marteinsson, Víkingi (2)
Sæbjörn Guðmundsson, KR (2) Karl ÞfadaiBon, ÍA (2)
Vilberg Þorvaldsson, Víði Guðmundur Torfason, Fram (3)
Björgvinsson, Gunnar Oddsson, Ingvar
Guðmundsson, Ragnar Margeirsson,
Helgi Bentsson (Björgvin Björgvinsson
67. mín), Óli Þór Magnússon (Freyr
Bragason 67. mín) og Sigurjón Sveinsson.
Sag
firnafast langskot Danans
Michael Laudrup. Vincenzo
D’Amico skoraði úr víti fyrir
Cosmos á 85. mín.
Tveir menn voru reknir út af
í leiknum. Andranik Eskanari-
an hjá Cosmos í fyrri hálfleik og
ítalinn Gabriele Padavini í þeim
síðari.
■ Lazio frá Ítalíu sigraði
bandaríska liðið Cosmos 2-1 í
grófum og ruddalegum vináttu-
leik í knattspyrnu um helgina.
Bruno Giordíjno skoraði
fyrsta markið á 15. mínútu og
Lionello Manfredonia kom Laz-
io í 2-0 á 43. míriútu. Hann ýtti
knettinum í netið eftir að mark-
vörðurinn hafði misst frá sér
NT
Boltinn
Liðin voru frekar jöfn að getu og
fáir stóðu upp úr. Markverðir áttu
báðir ágætan dag, og Kristján Jdns-
son var góður í vörn Þróttar. Á miðj-
unni var allan tímann mikill atgang-
ur. Af sóknarmönnunum var Ragnar
Margeirsson góður og besti maður-
inn á vellinum. Hann hefði þó mátt
skora.
Mikið kraðak í leik Þróttar og ÍBK en Pétur Arnþórsson virðist ætla að ná að skríða að knettinum.
NT-mynd Ámi Bjarna
Undankeppni HM:
Argentínumenn og
Brassar á góðri leið
■ Argentínumenn og Brassar virðast ætla að
halda velli í sínum riðli í undankeppni HM þrátt
fyrir að ýmislegt hafí gengið á hjá þessum
þjóðum að undanförnu. Báðar þjóðirnar unnu
góða sigra um helgina.
Brasilía-Paraguay .................. 2-0
Leikur þessi byrjaði rólega en fyrsta markið
kom á 26. mínútu þá skoraði Casagrande með
skalla eftir fallega sendingu frá Renato. Para-
guaymenn létu þetta mark ekkert á sig fá og
reyndu að sækja eftir megni. Þrátt fyrir að vera
nokkuð í sókn það sem eftir var fyrri hálileiks
þá fengu Paraguaymenn ckkert færi.
I síðari hálfleik tókst Brössunum að bæta
við marki eftir að Leandro hafði komist inní
sendingu og rennt boltanum á Zico sem hljóp
vörn Paraguay af sér og skoraði. Eftir þetta
mark var leikurinn eign Brasilíu.
Lið Brasilíu var þannig skipað:
Carlos, Leandro, Oscar, Edinho, Junior, Cerezo, Socrates,
Zico, Renato Gaucho (Alemao), Casagrande, Eder.
Argentína-Kólumbía ................. 1-0
Það var stórleikur Maradona sem skóp þenn-
an sigur hjá Argentínumönnum. Hann sýndi
heimsklassa hæfíleika hvað eftir annað og átti
til að leika á hóp af mönnum og renna síðan
boltanum á einhvern í dauðafæri. Argentínu-
menn fóru illa með færin í þessum leik og hefðu
getað unnið stærri sigur. Það var Valdano sem
skoraði cina mark leiksins á 26. mínútu.
Perú-Venezuela ..................... 4-1
Með þessum sigri þá halda Perúmenn enn í
þá von að þeir geti sigrað í riðlinum sínum.
Argentínumenn eru þar efstir. Mörk Perú skor-
uðu Navarro, Barbadillo, Hirano og Cero en
Mandaz gerði mark Kólumbíumanna. Sigur
Perú var aldrei í hættu. Staðan í riðlunum
tveimur er nú þessi:
A-riðill:
Argentína.................... 4 4 0 0 10- 3 8
Perú......................... 4 2 11 5-2 5
Kólumbía..................... 4 1 1 2 2- 4 3
Venezúela.................... 4 0 0 4 3-11 0
C-ridill:
Brasilía .................... 2 2 0 0 4-0 4
Paraguay......................3 1 1 1 4-3 3
Bólivía...................... 3 0 12 1-6 1
Knattspyrnumolar
...West Ham varð Luton yfirsterkara í barátt-
unni við að ná í skoska leikmanninn Frank
McAviennie sem leikur í landsliði Skota U-21
árs. West Ham verslaði sem sagt með
kappann...
... Saarbrucken tryggði sér sæti í 1. deild
v-þýsku knattspyrnunnar með því að gera 1-1
jafntefíi við Bielefeld í seinni leik liðanna um
sæti í deildinni. Saarbrucken varð í þriðja sæti í
2. dcild en Bielefeld í 3ja neðsta í 1. deild...
...Fyrrum landsliðsmaður hjá V-Þjóðverjum,
Uwe Reinders, gerði um helgina samning við
Bordeaux til tveggja ára. Hann mun koma í
stað samlanda síns hjá franska liðinu Dieter
Múller...
HAGSTÆTT
VIERÐ f
Viðskiptavinir Heklu.
Við bendum á hagstætt
verð á stýrisendum
og spindilkúlum.
Komið og gerið góð kaup.
Stýrisendar í: Verð kr.:
Golf->’84 .............580
Jetta -> ’84 ...........580
RangeRover...............690
Land Rover...............295
Allegro ...............195
AAini ................. 195
Spindilkúlur í: Verðkr.:
VW 1200,1300 .......460
VW Fastback ...... 330
VW Transporter —> ’80 .. 880
VIÐURKENND VARA [W]
MEÐÁBYRGÐ 1 '
SAMA VERÐ
UM LANDALLT!
RAIMGE ROVER
IHEKLA
| Laugavegi 170 -172 Sír
HF
ími 21240
íslandsmótið í knattspyrnuLdeild: __
Dýrmætt fffil
stig til Þróttara