NT - 20.06.1985, Blaðsíða 7

NT - 20.06.1985, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 20. júní 1985 7 Guðmundur P. Valgeirsson: Hvað er að gerast? ■ Frumvarp til laga uni fram- leiðslu, verðíagningu og sölu á búvörum, sem nú liggur fyrir Alþingi var sent mér og öðrum bændum fyrir skömmu. Undanfarna daga hefi ég verið að stafa mig framúr því. Heldur gengur lesturinn seint og mér illa að skilja þá lesn- ingu. Svipaða sögu er að segja af öðrum sem ég hefi spurnir af og hafa verið að reyna það sama og ég. - Við það létti mér nokkuð, því ég hélt að einungis væri um að kenna sljóum skiln- ingi mínum hvernig til gekk. Við þennan lestur minn hefi ég helst komist að þeirri niður- stöðu, að þeir sem setið hafa við að semja þessa lagasmíði, hafi af ráðnum hug gert þau svo úr garði að enginn vissi upp né niður um hvað væri að gerast með þessum laga- bálki og þeir sem ættu að vinna eftir honum gætu gert það á ýmsa vegu eftir því sem sýndist og þeir hefðu vilja til. Þó eru nokkur atriði, sem verða manni skiljanleg. Aug- ljóst er að bændur og aðrir framleiðendur eiga ekki að fara með málefni sín á sama hátt og verið hefur. Það félags- kerfi, sem þeir hafa byggt upp um málefni sín og framleiðslu með félagslegum hætti, er rifið til grunna. - Þar stendur ekki steinn yfir steini. - f fljótu bragði er ekki annað séð en heimaslátrun verði tekin upp að nýju og hver fari með sinn skrokk á neytendamarkað og bjóði hann falan fyrir það verð, sem um semst í það og það skiptið, líkt og sumir kartöflu- bændur hafi farið að með sína framleiðslu, og þykir til fyrir- myndar og í frjálsræðisátt. Og í raun og veru virðist verslun og viðskipti með landbúnaðar- vörur færð í vargakjafta mark- aðshyggjunnar. Verði þetta frumvarp að lögum, sem fyllilega má gera ráð fyrir þar sem það er byggt á samningum stjórnarflokk- anna, má segja að allt vald sem verið hefur í höndum kjörinna fulltrúa bændasamtakanna sé tekið úr þeirra höndum og fært undir landbúnaðarráðherra. Varla er að finna þá lagagrein eða lagakafla, að þar blasi ekki við aftur og aftur: „Ráðherra er heimilr og „ráðherra skal“, þannig að allt frumkvæði og vald skal vera hjá ráðherra í smáu og stóru. Aðrir eru og verða eins og peð, sem hann getur skákað fram og aftur og kvatt til þessa og hins ef honum sýnist svo. Það fer ekki hjá því að sá grunur vakni hjá manni, að allt sé þetta með ráðum gert og með því sé verið að búa í haginn og í hendur á lærisvein- um Jónasar Kristjánssonar, Jóns Hannibalssonar, Eiðs Guðnasonar eða einhverra annarra álíka vinveitta bænd- um og íslenskum landbúnaði, þegar þeir setjast í stól land- búnaðarráðherra. Þeirrar stundar er ekki langt að bíða. Þegar manni verður hugsað til sumra þeirra manna, sem að þessari lagagerð standa, þá koma fram í hugann þessi orð: „Og þú? barnið mitt Brútus" - en því allar þessar umbúðir utanum þennan tilgang? Því ekki að stytta þetta margorða frumvarp til stórra muna og láta það hljóða svo, í einni stuttri málsgrein: - Landbún- aðarráðherra er falið alræðis- vald um öll mál er íslenskan landbúnað varðar. Hann skal skipa fyrir um dreifingu og sölu landbúnaðarvara, að svo miklu leyti sem þau eru ekki í höndum kaupsýslu- og mark- aðshyggjumanna. Með þeirri einföldun ynnist margt. Bændur væru þá ekki til trafala með þvarg sitt. Það kæmi líka í veg fyrir óþarfa nefndir og ráð. Það kæmi í veg fyrir að kalla þyrfti saman hópa málfræðinga, lögfræð- inga og annarra sérfræðinga til að skera úr um hvernig bæri að skiljaþessa og hina máls- og lagagreinina, sem annars kynni að vefjast fvrir mörgum, þó lærð- ir væru. Og ólíkt hefði verið fyrir fulltrúa Stéttasambands bænda að átta sig á frumvarpinu í því formi á þeirri dagstund, sem þeim var gefin til að setja sigl inn í það og áttu að skila að kvöldi rökstuddri álitsgerð um það sem fyrir þá var lagt. Því ekki nutu allir þeirra forrétt- inda að hafa fengið að kynna sér það fyrir Landsfund Sjálf- stæðisflokksins, og komu því, sumir, eins og af fjöllum. - Sá aðstöðumunur skýrir vel þær fréttir, sem borist hafa af fundum, sem haldnir hafa ver- ið úti um land, um þetta laga- frumvarp. Þær fregnir herma, að margir sjálfstæðismenn, sem framarlega standa í flokki sínum, hafi setið hljóðir undir þeim umræðum og leitt hjá sér að greiða atkvæði um þær tillögur sem þar voru bornar fram, enda ástæðulaust fyrir þá, suma hverja, að greiða aftur atkvæði um málið. - Þó gæti hugsast, að einhverjir fleiri úr þeim flokki en Kristinn á Skarði kynnu að hafa ruglast eitthvað í ríminu og fatast um hugsjón sjálfstæðisstefnunnar, í þessu máli, og ástæða væri' fyrir fréttamann Sjónvarpsins að veita föðurlegar áminningar og leiðréttingu skoðana sinna, til að koma í veg fyrir misstigin spor. Mér sýnist, að með þessu frumvarpi, einsogþaðer, þásé ekki einungis verið að staðfesta þann dóm Jónasar Kristjáns- sonar, að bændur séu annars- flokks fólk og skuli meðhöndl- ast samkvæmt því mati, heldur engu síður hitt: Að bændur séu dauðadæmd hjörð á „blóð- velli þjóðfélagsins" og þeim hafi verið kveðinn upp sá dómur að leggja snöruna að eigin hálsi. Það eina, sem kann að rétt- læta samþykkt þessa frum- varps nú, er óttinn við næstu ríkisstjórn, samstjórn íhalds og krata. Þá er eins víst og að nótt fylgir degi, að í enn ríkara mæli verður níðst á kjörum bænda og félagsstarfsemi þeirra en þó er gert með þessu frumvarpi. Undir þeim þrýst- ingi mun það líka hafa verið samið. Bæ, 7. júní 1985 Guðmundur P. Valgeirsson ■ í morgun var ég áheyrandi að því að ritstjóri Dagblaðsins hefði fengið slæmt kast og vanlíðan hans væri mikil. - Mikil hörmung er hvað sjúk- dómur hans er þrálátur. - Skyldi ekkert ráð finnast á þessu meini hans? - Bændur landsins samhryggjast og votta honum samúð sína. - Þeir mundu margt vilja gera til að bæta heilsufar hans, ef það stæði í þeirra valdi. Fyrir nokkrum árum fór fram könnun á framferði skólabarna. Sú könnun leiddi í ljós, að þau börn sem fengu litla næringu og komu svöng í skóla á morgnana voru ergileg, skapill og höfðu allt á hornum sér. Með góðri morgunhress- ingu barnanna dró mjög úr þessu. Skyldi einhver svipuð orsök liggja til þessa „morgun- ergelsis" ritstjórans og þetta áberandi garnagaul hans gæti átt rætur að rekja til þess að hann mæti til vinnu sinnar með tóman maga? - Ef svo væri þá ættu að vera til úrræði til að bæta úr því. Svo mikið fellur til af matvörum frá íslenskum landbúnaði, sem erfitt er að koma í verð, að kostnaðarlítið væri að kanna hvort heilsa hans skánaði ekki ef honum væri færður staðgóður morg- unverður úr íslenskum mat, s.s. kjöti, skyri og mjólk, eða öðru sem gæfi iðrafylli. Jafn- framt yrði að sjá til þess að maturinn færi ofan í hann, annars kynnu að verða einhver mistök á þeirri tilraun. Vilja nú ekki einhverjir góð- gjarnir menn, eða konur, leggja lið sitt til að prófa þetta? - Það skaðaði ekki að reyna það. Varla gæti manninum versnað. Með kveðju frá bændum á gjörgæsludeild Bæ, 8. júní 1985, Guðmundur P. Valgeirsson Ætla hrakspámar um útvarpið að rætast? Samfélagið allt miðar að því að toga menn til Reykjavíkur- svæðisins. Þar eru allir alvöru fjölmiðlar á landinu og þeir hugsa þaðan. Þar er útgangs- punktur alls, upphaf alls, endir alls. Þegar ákveðnu stigi er náð ná efnahagslögmálin yfir- höndinni og ekkert vit er í að fjárfesta annarsstaðar. Þegar þú kaupirþéríbúðertunefni- lega ekki bara að fá þér afdrep. íbúðin er um leið líftrygging þín - þú þarft að geta selt hana. Þessari þéttbýlissækni breytum við ekki nema með markvissu átaki sem ekki síst felst í því að fjölmiðlar dreifi útgangspunkti sínum um land- ið svona svipað og Ríkisút- varpið hefur gert með Útvarp Akureyri en sú litla deild hefur strax fært Akureyri og Norður- land betur inn í þjóðarvitund- ina en áður var (lesandinn íhugi það). Af hverju er hluti ■ Líf í borg er sennilega vanabindandi líkt og kaffi- arykkja. frétta sjónvarps ekki sendur út frá Akureyri? Hvers vegna er ekki alvörufrétta- og dag- skrárgerðarmaður fra sjón- varpinu á Austfjörðum, eða á Selfossi? Reyndar rekur hugs- unin sig á það þegar hér er komið að öll framþróun virðist vera stöðvuð hjá Ríkisútvarp- inu, en hún tók dálítinn fjör- kipp í kringum útvarpsstjóra- skiptin. Það hefur ekkert nýtt gerst þar í háa herrans tíð og dagskráin með lélegra móti. Ætla þær hrakspár að rætast að nýi útvarpsstjórinn sé bara dúkka sem hafi það hlutverk að tryggja það að nýjar út- varpsstöðvar hafi sem mest svigrúm? Því verður reyndar ekki að öreyndu trúað. Markús Örn hlýtur að bera meiri virð- ingu fyrir sálfum sér en svo. Lýst eftir líffræðingi Vinur minn leitar að líf- fræðingi. Það er víða leitað að hæfu fólki í alls konar störf um þvert og endilangt landið og áfram verður barist við að halda uppi pottþéttu mannlífi í kringum fiskverkunarhúsin á ströndinni því að án þeirra komumst við ekki af. Baldur Krístjánsson. Málsvari frjalslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson. Framkvstj.: Guömundur Karlsson Markaðsstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Taeknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. . Kvöldsimar: 686387 og 686306 Verð f lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. Er nýr sendi- herra velkominn? ■ Þetta er orðið vandræðalegt fyrir Banda- ríkjamenn. Þegar Shultz, utanríkisráðherra þeirra eyðir mörgum klukkustundum af sínum tíma til þess að spjalla við Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra íslendinga,um flutninga Rain- bow Navigation fyrir varnarliðið, þá liggur mikið við. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ver í það mesta tíu mínútum í kurteisissnakk af og til á „minni háttar“ embættismenn og stjórn- málamenn og öllum má því vera ljóst, að þegar hann er farinn að tala við utanríkisráðherra íslendinga klukkustundunum saman, er vanda- mál á ferðinni. Og þetta er hið versta mál, séð frá Washing- ton. Flutningarnir heyra ekki undir utanríkis- ráðuneytið, heldur varnarmálaráðuneytið, og ef þeir herramenn fengju að ráða væri trúlega búið að setja skip Rainbow Navigation í banana- flutninga í kringum hnöttinn um ókomna framtíð. Það er dagskipun í vissum deildum bandaríska varnarmálaráðuneytisins að styggja ekki íslend- ingana og þar eru án efa nagaðar neglur þessa dagana. I utanríkisráðuneytinu er þetta hins vegar púra innanríkismál og pólitískt viðkvæmt. Lög eru lög í landinu eins og víðast hvar annars staðar og þar er að finna þá heimild, sem forráðamenn Rainbow Navigation notfærðu sér. Þeir hafa, í skjóli gamalla einokunarákvæða, kippt til sín öllum flutningum fyrir varnarliðið og sem meira er, seilst inn á markað fyrir annan flutning. íslensku skipafélögin hafa misst flutn- inga frá Bandaríkjunum og tapa nú öll meira eða minna á þessum siglingum. Það tap síast smátt og smátt ofan í íslenskar buddur, því vöruverð hækkar með hækkandi faimgjöldum. Sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Marsh- all Brement hefur áunnið sér traust og virðingu þann tíma, sem hann hefur starfað hér. Hann er nú á förum. Allir vita, að varnarmálaráðuneytið banda- ríska hefur yfirleitt sitt fram í deilumálum við utanríkisráðuneytið þar í landi. íslendingar hafa fallist á beiðni um að fjölga radarstöðvum hér á landi og endurbætur á Keflavíkurflugvelli af mörgu tagi. íslendingar hafa velt þessum málum mun meira fyrir sér undanfarið en oft áður og treysta því, að hagsmunir þeirra séu bornir fyrir brjósti í viðskiptum við aðrar þjóðir. Islendingar vilja því eiga viðskipti við þá menn, sem bera hag þeirra fyrir brjósti. Banda- ríska utanríkisráðuneytið hefur þvælst fyrir í þessu máli. Rétt er að senda því þau boð, sem það skilur. Þeirra maður er nýr sendiherra, sem hingað á að koma í stað Marshall Brements. Það er ekkert sjálfgefið, að sá maður verði velkominn hingað, fyrr en Rainbow Navigation- málið verður leyst.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.