NT - 20.06.1985, Síða 22
Ólafs Gísla-
sonar bikarinn
■ Þann 16. júní s.l. var
leikið um Ólafs Gíslason-
ar bikarinn hjá Golf-
klúbbnum Keili og réðust
úrslit ekki fyrr en eftir 3
manna bráðabana, þar
sem Þorbjörn Kærbo
varð hlutskarpastur. En
úrslit urðu þannig:
Án forgjafar:
1. Þorbjörn Kærbo GS. 83 högg
2. Jóhann Benediktsson GS . 83 högg
3. Knútur Björnsson GK ... 83 högg
Með forgjöf:
1. Ástraður Þórdarson GR. 66 högg netto
2. GunnarStefánssonNK. 71 högg netto
3. Guðm. ófeigsson GR .. 71 högg netto
Gefandi verðlauna var
Ólafur Gíslason og Co.
G.K.
Dunlop-
drengjamót
■ Dunlop drengjamót
verður haldið hjá Golf-
klúbbnum Keili helgina
22.-23. júní. Aldurstak-
mark er 16 ára og yngri.
Leiknar verða 36 holur
með og án forgjafar.
Þátttaka tilkynnist í síma
53360 fyrir kl. 20.00
föstudaginn 21. júní.
Ræst verður út frá kl.
10.00. Æfingadagur cr
föstudagurinn 21. júní.
Verðlaun til mótsins gef-
ur Dunlop-umboðið
Austurbakki Borgartúni
20.
G.K.
Engin plastkort
■ í gærslitnaði uppúrvið-
ræðum breskra yfirvalda
og knattspyrnufor-
sprakka þar í landi um
svokölluð nafnspjöld eða
nafnskírteini til notkunar
fyrir stuðingsmenn félag-
anna. Þessi kort áttu að
vera liður í baráttunni við
skrílslæti á knattspyrnu-
völlum. Það virðist sem
samkomulag um þessi
mál muni ekki nást og
það þar með detta út af
lista mála sem til umræðu
eru í baráttunni við ólæt-
in.
Það sem aðallega
strandaði á er að knatt-
spyrnufélögin eru hrædd
um að missa fjöldann all-
an af áhorfendum og þá
sérstaklega fjölskyldu-
fólk.
Fimmtudagur 20. júní 1985 22
Iþróttir
Álafosshlaup FRÍ:
Sigurðursigraði
- nokkuð örugglega í karlaflokki
■ Á sunnudaginn fór fram 2. Svandís Sigurðard. KR 65:37.1 Jóhann H.Jóhannsson ÍR 49:32.0
Álafosshlaup FRÍ 1985. 3. ÞórunnUnnarsdóttirFH 67:10.8 41-50 ára
Hlaupnir voru 13,5 kílómetrar 4. Guðbjörg Haraldsdóttir 67:42.6 Sigurjón Andrésson ÍR 52:27.1
og urðu úrslitin sem hér segir: 5. Lilja Þorleifsdóttir 70:12.8 51 árs og eldri
Karlar: Sigurvegarar í aldursflokkum Haukur Hergeirsson 62:47.0
mín. Karlar: Konur:
1. Sigurður Pétur 16 ára og yngri 16 ára og yngri
Sigmundsson FH 42:49.2 Ásmundur Edvardss. FH 53:08.5 Helen Ómarsdóttir FH 63:01.0
2. Jón Diðriksson FH 44:44.2 17-20 ára 21-30 ára
3. Jóhann Ingibergss. FH 48:37.6 Sigurður Atli Jónsson KR 52:18.2 Sigrún Harpa Hafsteinsd. 71:36.2
4. Magnús Haraldss. FH 49:18.1 21-30 ára 31-40 ára
5. Jóhann H. Jóhannss. ÍR 49:32.0 Sigurður Pétur Svandís Sigurðardóttir KR 65:37.1
Konur: Sigmundsson FH 42:49.2 41-50 ára
1. Helen Ómarsdóttir FH 63:01.0 31-40 ára Lilja Þorleifsdóttir 70:12.8
Körfubolti:
■ Sigurður P. Sigmundsson varð hinn öruggi sigurvegari
Álafosshlaupinu.
NT-mynd Sverrir
Stjama í bann
.Khoren Oganesian,
leikmaður ineð sovéska lið-
inu Ararat, var góður
leikmaður. En hann lét
frægðina stíga sér til höfuðs
og eftir að hann var farinn að
aka um á nýjum Mercedes
Benz og haga sér eins og
stórstjarna, greip sovéska
knattspyrnusambandið inn í
og bannaði honum að leika
knattspyrnu það sem hann á
eftir ólifað.
Oganesian var tengiliður
og hafði leikið 25 landsleiki
fyrir þjóð sína. Enginn efað-
ist um snilli hans, en er hann
fór að haga sér eins og prima-
donna fór gamanið að kárna.
Oganesian hætti að nenna
að mæta á æfingar, og að
sögn sovéska blaðsins Trud,
varð leikur hans sífellt lé-
legri. í eitt sinn kýldi hann
samherja sinn á kjaftinn inn
á vellinum.
Öðru sinni nennti hann
ekki að bíða eftir sömu flug-
vél og aðrir liðsmenn, og tók
sér far með vél sem fór fyrr.
Þegar hann kom aftur til
Armeníu tók hann rútu liðs-
ins traustataki og ók heim,
en skildi alla aðra eftir í
reiðileysi á flugvellinum.
Þá var sovéska knatt-
spyrnusambandið búið að fá
nóg og nú er Oganesian því
hættur að leika knattspyrnu.
Hann er sjálfsagt einnig
hættur að aka um á Benzin-
um með númerinu 08, sama
númeri og Oganesian lék
með á bakinu inni á vellin-
Tvö unglingalið
kepptu I Svíþjóð
- og stóðu sig mjög vel - Tveir íslenskir leikmenn valdir í úrvalslið mótsins
■ Á vegum unglinganefndar
KKÍ hafa tvö úrvalslið nýlokið
þátttöku á alþjóðlegu körfu-
knattleiksmóti í Stokkhólmi.
Þetta mót sem heitir „Stock-
holm Basket Cup“ var nú haldið
Herbert í „All-Star“ liðið.
. > '••-.w.- .......
5?! ~~#ir ?
■?**&#*'** X V •í" ' t ' > -v \m1-^ V-
^T-.v'
Ólæti á krikketleik
■ Bretar eiga við mikið
vandamál að stríða þar sem eru
skrílslæti á knattspyrnuvöllum.
Vandamálið hefur nú breiðst
út. í fyrradag ruddist óður
múgurinn inná krikketleikvöll-
inn í Hedingley í Leeds þar sem
Englendingar og Ástralir voru
að spila. Þegar þetta gerðist þá
var staðan jöfn en ólætin trufl-
uðu einn leikmanna Ástrala
þannig að Englendingar unnu
leikinn.
Fyrirliði enska liðsins David
Gower var mjög reiður eftir
leikinn og sagði að þrátt fyrir að
þessi læti hefðu ekki haft veru-
leg áhrif á úrslit leiksins þá „var
þetta eins og að sjá óða hunda
ráðast að manni".
Bæjarkeppni Selfoss og Keflavíkur:
Ingibjörg með HSK-met
Stökk 5,70 m í langstökki
■ Ingibjörg ívarsdóttir í langstökki á Vormóti HSK fyrir stuttu.
Þar sigraði hún. Hún bætti um betur í bæjarkeppninni og setti
HSK-met. Hún keppti sem gestur. Stökk 5,70 m. Selfyssingar
sigruðu í keppninni en bærinn hefur ávallt átt að skipa góðu
frjálsíþróttafólki. NT-inynd I>órmundur
■ Á sunnudaginn var haldin
bæjakeppni í frjálsum íþróttum
á milli Selfoss og Keflavíkur.
Selfyssingar sigruðu í stiga-
keppninni, hlutu 79stig en Kefl-
víkingar 61. Ágætur árangur
náðist í nokkrum greinum og
ber þar fyrst að nefna langstökk
Ingibjargar ívarsdóttur sem
keppti sem gestur á móti þessu.
Ingibjörg er alltaf að bæta sig og
stökk á laugardaginn 5,70 metra
sem er næst besti árangurinn á
árinu. Aðeins Bryndís Hólm
hefur stokkið lengra, 5,76.
Þá vakti athygli að Ásgrímur
Kristófersson sigraði Þráin Haf-
steinsson íslandsmethafa í tug-
þraut, í kringlukasti. Ásgrímur
kastaði 47,62 metra en Þráinn
46,72 metra.
Keppandi mótsins var tví-
mælalaust Birgitta Guðjóns-
dóttir frá Selfossi en hún sigraði
í fimm greinum, 100 metra
hlaupi, langstökki, kúluvarpi,
spjótkasti og hún var í sigursveit
Selfoss í 4x100 metra boð-
hlaupi.
Keflvíska íþróttafólkið setti
mörg Keflavíkurmet og er
greinilegt að það er á mikilli
uppleið.
sjötta árið í röð. Á mótinu leika
lið frá mörgum löndum, bæði
félagslið og úrvalslið. I ár tóku
lið frá fjórum heimsálfum þátt í
mótinu. Lið íslands á mótinu
voru skipuð leikmönnum fædd-
um 1967 og 1968, sem kepptu í
fiokki liða 1966 og lið sem
skipað var leikmönnum fædd-
um 1970, sem kepptu við jafn-
aldra sína.
Eldra liðið lék eftirfarandi leiki:
1. Gegn úrvalsliði frá Iowa í
USA og vann 61-48. Stigahæstir
voru þeir Guðjón Skúlason með
13 stig og Teitur Örlygsson með
12 stig.
2. Gegn Sundsvall, sem er geysi-
lega sterkt félagslið í þessum
aldursflokki og tapaði 48-51.
Stigahæstir voru Kristinn Ein-
arsson með 33 stig og Magnús
Matthíasson með 12 stig.
Sundsvall liðið sigraði á mótinu.
3. Gegn öðru úrvalsliði frá
Iowa. Islenska liðið vann 62-53.
Stigahæstir voru Teitur og Jón
Örn Guðmundsson með 14 stig
hvor. Þetta lið lék úrslitaleikinn
í mótinu gegn Sundsvall.
4. Gegn Duvbo, sænsku félags-
liði. Island vann 79-45. Stiga-
hæstir voru Guðjón (18) og
Magnús M. (12).
5. Gegn Team Sweden, sænska
drengjalandsliðinu (fæddir ’68)
Þeir eru að æfa sig fyrir úrslit í
Evrópukeppni drengjalandsliða
í sumar. íslensku strákarnir
unnu þann leik 53-48. Stiga-
hæstir voru Magnús M., Guðjón
og Magnús Guðfinnsson allir
með 11 stig. Þessi sigur var
nokkuð dýrkeyptur því að í
leiknum varð Teitur fyrir því
óhappi að missa framtönn í
baráttunni.
Sjötti leikurinn var í átta liða
úrslitum mótsins, gegn Alvik
(en það lið heldur þetta mót).
Er skemmst frá því að segja að
íslenska liðið náði sér aldrei á
strik en Alvikurmenn léku á als
oddi og unnu mjög óvænt 51-45.
Með þessu tapi féll liðið úr
mótinu. Stigahæstir voru Guð-
jón og Magnús M. með tólf stig
hvor.
í lok mótsins voru valdir 5
bestu leikmenn í hverjum flokki
og var Magnús Matthíasson
einn þeirra.
Yngra liðið lék einnig sex
leiki í mótinu:
1. Gegn Ta Tong frá Taiwan.
Island vann 58-51. Þetta var í
fyrsta skipti sem Ta Tong tapar
leik á þessu móti, þeir hafa
unnið í þessum flokki mörg
undanfarin ár. Stigahæstir voru
Herbert Arnarson með 33 stig
og Gauti Gunnarsson með 12.
2. Gegn Akersberga 78-18. Her-
bert 22, Gauti 17.
3. Gegn Jarva 74-17. Herbert
18, Gunnar Sverrisson 10.
4. Gegn Sundsvall 86-11. Gauti
16, Herbert 14. (16 liða úrslit).
5. Gegn Söder 74-34. Steinar
Adólfsson 22, Herbert 18. Þessi
leikur var í átta liða úrslitum.
Þessi fjögur framangreind lið
eru félagslið frá Svíþjóð.
6. Gegn liði, sem kallaði sig
Junior Olympics og var úrvalslið
frá Memphis í Tennessee í
USA. Leikurinn fór 56-50 fyrir
Memphis liðið og var af flestum
talinn úrslitaleikur mótsins þrátt
fyrir að hann væri í fjögurra liða
úrslitum. Enda vann Memphis
Ta Tong í úrslitaleiknum með
20 stiga mun. Þessi leikur ís-
lenska liðsins var alveg sérstak-
lega góður. Stigahæstir voru
Herbert (25) og Steinar (12). í
þessum flokki var einnig valið
svokallað „All Star“ lið og í það
var Herbert Arnarson valinn,
enda hafði hann skorað yfir 20
stig að meðaltali í mótinu og
flest stigin þegar mest lá við.
Nú eru íslensku liðin í Dan-
mörku og dveljast þar við æfing-
ar og keppni fram á föstudag 21.
júní.
Þjálfarar liðanna eru Björn
Leósson og Torfi Magnússon.
„Jónsmálið“
■ Dómstóll Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur
hafnaði áfrýjun KR-inga
í svokölluðu „Jónsmáli“
sem til er komið vegna
kæru Þróttar til aga-
nefndar KSÍ vegna nota
KR-inga á Jóni G.
Bjarnasyni í leik liðanna
í 1. deild. Dómstóllinn
komst að þeirri niður-
stöðu að hann hefði ekki
lögsögu í þessu máli. KR-
ingar hafa því tapað
leiknum.