NT - 12.07.1985, Blaðsíða 10
Föstudagur 12. júlí 1985 10
Helgin framundan
Live Aid beint í Villta Villa
■ Á meðan bein útsending verður frá Live Aid- hljúmleikunum í
íslenska sjónvarpinu aðfaranótf sunnudags frá kl. 22.30 til 3.00,
verður útsendingin sýnd á þrem stórum sjónvarpsskermum í
Villta tryllta Villa við Skúlagötu.
Aðgangseyrir í liúsið, meðan á hljómleikunum stendur verður
kr. 300 og rennur hann í Eþíópíusöfnunina.
■ Billy Joel.
Önnur tónleikahelgi í
Skálholti - Bach og Hánd-
el - Helga, Camilla og
Ólöf Sesselja.
Á morgun, laugardag, hefst
önnur hátíðarhelgi Sumartón-
leika í Skálholtskirkju.
Kl. 15 leikur Helga lngólfs-
dóttir sembaltónsmíðar sem
J.S. Bach gaf eiginkonu sinni,
Önnu Magdalenu. Hér verða
fluttar þrjár „franskar" svítur
og tvö stutt sálmalög. Helga
lék eina þessara svíta í Krists-
kirkju á listahátíð í fyrra og
kölluðu gagnrýnendur þann
semballeik „uppljómun" og
„stórviðburö" og „glæsilegan
forleik að Bach-ári.“
Kl. 17 hljóma fleiri Bach-
verk í Skálholti ásamt með
tónverkum Hándels. Camilla
Söderberg leikur á altblokk-
flautu, Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir á viola da gamba og
Helga Ingólfsdóttir á sembal
sónötur eftir Bach og Hándel.
Kl. 15 á sunnudag verður
þessi samleikur endurtekinn.
Kl. 17 er síðan messa þar
sem prestur er sr. Kal Sigur-
björnsson.
Áætlunarferðir eru báða
dagana frá Umferðarmiðstöð-
inni tveim tímum fyrir tón-
leika. Fólki er ráðlagt að koma
tímanlega - um síðustu helgi
var húsfylli í Skálholtskirkju.
■ Hall & Oats.
■ Cyndi Lauper.
Upplyfting í Inghóli
í kvöld leikur hljómsveitin
Upplyfting fyrir dansi ílnghóli
á Selfossi. í Inghóli er fram-
reiddur matur og þar eru vín-
veitingar fyrir þá sem vilja.
Sýningar í Norræna
húsinu
í sýningarsölum Norræna
hússins stendur enn yfir sumar-
sýningin „SjávarmyndirGunn-
laugs Scheving" og lýkur henni
ekki fyrr en 25. júlí. Hún er
opin daglega kl. 14-19.
í anddyri hússins var opnuð
sýning á grafíkmyndum norska
listamannsins Guttorm Gutt-
ormsgaard síðastliðinn mánu-
dag. Sú sýning er opin á venju-
legum opnunartíma Norræna
hússins ogstendur til 22. júlí.
Sýningin gefur innsýn í íslenskt
menningarlíf gegnum aldirnar.
Undanfarna tvo mánuði hef-
ur verið unnið að endurnýjun
á mörgum atriðum sýningar-
innar. Má þar nefna nýjar
upptökur á allri tónlist og leik-
hljóðum unnar af Gunnari
Smára Helgasyni. Með nýrri
tækni eru nú sicyggnur og tón-
list samhæfð í umsjá Magnús-
ar S. Halldórssonar. Skyggn-
um hefur verið fjölgað um
helming frá síðustu uppfærslu
og hafa þær flestar verið teknar
af Herði Vilhjálmssyni Ijós-
myndara og Ómari Ragnars-
syni fréttamanni.
Ásamt fjölmörgum lista-
mönnum sem hafa lagt þessari
uppfærslu lið má nefna Jón
Guðmundsson myndlistar-
mann, séra Gunnar Björnsson
sellóleikara og Robert
Berman.
Leikhússtjórar eru Halldór
Snorrason og Kristín G.
Magnús, sem jafnframt er
sögumaður Light Nights.
Light Nights sýningarnar
verða allar helgar í júlí og
ágúst.
Samvinnuskólanemar í
Miðgarði
■ Um helgina koma sam-
vinnuskólanemarsaman íMið-
garði í Skagafirði. Þetta er
árlegur fagnaður, alltaf hald-
inn í Miðgarði. Grábrókarfé-
lagið ntargfræga verður til
staðar, eins og því er einu
lagið, en það er með óvenju-
legri kvennahreyfingum hér-
lendis. Dansleikur verður í
Miðgarði á laugardagskvöldið
og mun hljómsveitin Upplyft-
ing halda uppi fjörinu, en
meðlimir hennar hafa verið í
Samvinnuskólanum. Sætaferðir
verða á dansleikinn frá Sauðár-
króki, Blönduósi, Skagaströnd
og Hofsósi.Tjaldað verður við
Miðgarð.
Light Nights —16. árið
■ Light Nights sýningarnar
eru nú hafnar í Tjarnarbóli við
Tjörnina í Reykjavík. Sýning-
arkvöld eru fjögur í viku, það
er á fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöldum, og hefjast sýningarn-
ar kl..21.00.
Light Nightssýningarnareru
sérstaklega færðar upp til
skemmtunar og fróðleiks fyrir
erlenda ferðamenn. Efnið er
allt íslenskt, en flutt á ensku.
■ Camilla Söderberg, Helga
Ingólfsdóttir og Ólöf Sessclja
Óskarsdóttir (t.f.v.)
■ Það er í Miðgarði í Skagafirði sem samvinnuskólanemar koma saman annað kvöld.
■ Frá sýningu Lights Nights.