NT - 12.07.1985, Síða 21
Bandaríkin og Kanada:
Verstu skógar-
eldarí 30 ár
- 400.000 hektarar hafa brunnið
Boise, Idaho-Reuter
■ Um nítján þúsund slökkvi-
liðsmenn berjast nú við verstu
skógarelda sem komið hafa upp
í Bandaríkjunum og Bresku
Kólombíu í Kanada í þrjátíu ár.
Eldarnir hafa þegar eytt um
400.000 hekturum skógiendis og
tvö hundruð byggingar hafa
orðið eldinum að bráð.
Tiltölulega fáir hafa látist í
eldunum sem hófust um sein-
ustu mánaðamót. Aðeins er
vitað til þess að þrír hafi látist
fyrir viku í eldum í Los Angeles
sem talið er að brennuvargar
hafi kveikt. En mörg þúsund
manns hafa orðið að flýja heim-
ili sín vegna eldanna.
Alls hafa eldar kviknað á
meira en þúsund stöðum í 14
bandarískum fylkjum og í
bresku Kólombíu í Kanada hafa
eldar kviknað á sex hundruð
stöðum. Margir af skógareldun-
um eru raktir til íkveikju.
Bandaríska skógræktin hefur
ráðið 15.600 slökkviliðsmenn til
að berjast við eldana og í Kan-
ada berjast 3.500 menn til við-
bótar við skógarelda.
Einna vestir hafa eldarnir í
Kaliforníu verið en miklir
skógareldar hafa einnig komið
upp í Nýju Mexíkó, Arizona,
Utah, Nevada, Colorado, Oreg-
on, Washington, Idaho, Mont-
ana, Norður Dakota, Suður
Dakota, Nebraska og Wyom-
ing.
Chile:
300börn handtekin
- ásökuð um kommúnisma
Sanfiago-Rcuter
■ Rúmlega þrjú hundruð
skólabörn voru handtekin í
Santiago höfuðborg Chile nú á
miðvikudaginn þegar óeirðalög-
regla réðst inn í skólastofur sem
nemendur höfðu lagt undir sig.
Nemendurnir, sem voru átta
til fimmtán ára gamlir, kröfðust
þess að fá ókeypis strætisvagna-
kort og frjálsar kosningar til
nemendaráðs. Þeir lokuðu sig
inni í Alessandri Palma skólan-
um, nálægt miðborg Santiago,
við upphaf kennslu á miðviku-
dag.
Að sögn lögreglunnar slösuð-
ust sex manns lítillega á meðan
á mótmælaaðgerðum nemend-
anna stóð. Nemendurnir hentu
grjóti og bensínsprengjum að
lögreglunni.
Talsmaður lögreglunnar segir
að nemendurnir hafi verið
handteknir mótspyrnulaust en
sjónarvottar segjast hafa heyrt
óp og öskur frá skólanum þegar
lögreglan lagði til atlögu við
nemendurna. Lögreglan hafi
líka barið nemendur með kylf-
um þegar hún rak þá upp í
fangavagna.
Aðalritari herstjórnarinnar í
Chile, Francisco Cuadra, segir
að stjórnvöld líti svo á að
kommúnistar hafi staðið bak
við nemendaóeirðirnar.
■ Pinochet einræðisherra í
Chile heldur þjóð sinni í heljar-
greipum. Hann sér kommún-
isma í hverju horni og ásakar nú
barnaskólanemendur og gagn-
fræðaskólanemendur um að
vera í slagtogi með kommúnist-
um. Kannski ekki nema von þar
sem börnin hafa lært að gera
bensínsprengjur í skólanum.
Föstudagur 12. júlí 1985 25
■ Reagan Bandaríkjaforseti ræðir við ráðgjafa sína um það hvernig bregðast eigi við
hryðjuverkum sem bitna á bandarískum ríkisborgurum.
Bandaríkin:
Sérsveit gegn hryðjuverkum
Washington-Rcuter
■ Bandaríkjamenn vinna
nú skipulega að því að efla
varnir sínar gegn alþjóðleg-
um hryðjuverkamönnum í
framtíðinni. George Bush
varaforseti Bandaríkjanna
skipaði í gær James Hollow-
ay aðmírál yfirmann sérsveit-
ar gegn hryðjuverkum sem
Reagan stofnaði eftir að
bandarískri flugvél var rænt
í 14. júní síðastliðinn.
Holloway er sagður hafa
mikla hernaðarreynslu.
Hann tók þátt í heimsstyrj-
öldinni síðari, Kóreustríðinu
og Víetnamstríðinu. Holl-
oway var yfirmaður sérstakr-
ar rannsóknarnefndar sem
skipuð var til að kanna mis-
heppnaða tilraun Banda-
ríkjamanna til að bjarga 53
bandarískum gíslum úr
sendiráði Bandaríkjanna í
Teheran 1980.
Verkefni sérsveitarinnar
gegn hryðjuverkum verður
að tryggja að Bandaríkja-
menn beiti öllum tiltækum
aðferðum til að berjast gegn
alþjóðlegum hryðjuverkum.
Bandaríska fulltrúadeildin
samþykkti líka í gær aukin
völd fyrir Bandaríkjaforseta
til að bregðast við árásum
hryðjuverkamanna.
Smyglkóngur í Belgíu?
Brussel-Reuter
■ Belgíska blaðið De Morgen
hefur ásakað Baldvin konung
Belga um að smygla fágætum
öpum og fílabeini frá Zaire með
konungsþotunni þegar hann
kom úr opinberri heimsókn
þaðan í seinustu viku.
í grein, sem birtist í De
Morgen í gær, segir meðal ann-
ars að aðalritstjóri blaðsins, sem
var í för með kóngi, hafi séð
fílabeini hlaðið um borð í kon-
ungsvélina í Gemena í Norður-
Zaire á seinasta degi konungs-
heimsóknarinnar til þessarar
fyrrverandi nýlendu Belga.
Blaðið segist einnig hafa ör-
uggar heimildir fyrir því að
farið hafi verið með tvo simp-
ansa úr flugvélinni til dýragarðs
í Antwerpen þar sem þeir séu
nú. Ónefndurstarfsmaðurdýra-
garðsins segir það opinbert
leyndarmál að aparnir og fíla-
beinið hafi verið gjöf frá Mo-
butu forseta Zaire til konungs-
ins.
Landbúnaðarráðuneyti
Belga, sem m.a. sér um að
framfylgja alþjóðasáttmála um
viðskipti með sjaldgæfar dýra-
tegundir, mun nú hafa fengið
mál þetta til rannsóknar. Sam-
kvæmt sáttmálanum verður að
sækja um innflutningsheimild
fyrir öllum sjaldgæfum dýrum
en ráðuneytið segist ekki hafa
fengið neina slíka umsókn frá
kóngi.
HKX 620 4ra hjóla lyftutengd.
Allir bændur þekkja VICON Acrobat-vélina.
Hún er einföld í gerð og lipur í notkun.
Vinnslugæði frábær og rakar þar að auki frá
girðingum og skurðköntum. Vinnslubr. 2,25 m.
Verð kr. 24.200.- (Gengi 15/5 ’85)
H 820 5 hjóla, einnig Iyftu-
tengd. Vinnslubr. 2,50 m.
Verð kr. 31.000.- (Gengi 15/5 '85)
Afkastamikil dragtengd rakstrarvél. Vinnuafköst
allt að 6 ha. pr. klst. Vinnslubreidd 3 m.
Mismunandi vinnslustillingar. Vökvahífír á
rakstrarhjólum.
Verð kr. 57.000.- (Gengi 15/5 85) Mest selda vélin.
Gtobuse
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
BÆNDURNIR ÞEKKJA
Acrobat
wan
Atleet
H EYVIN N U VELARN AR
Sprintmaster H 1020