NT - 12.07.1985, Blaðsíða 24

NT - 12.07.1985, Blaðsíða 24
Föstudagur12,júlí1985 LURIR ÞU A HRINGDU ÞA f SIMA Við tökum við abendingum um fréttir ailan sólarhringinn. NT, Síðumúla 15, Reykjavík, simi: Kvöldsimar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn Fullrarnafnleyndar er < , auglýsingar 18300 og 687695 • ■þrottir 686495 íslensk list í deiglunni: „Menn voru orðnir þreyttir á að sjá bara Gullfoss og Geysi“ ■ „Menn voru orðnir þreyttir og fiskveiðar í kynningarritum að sýna eitthvað meira," sögðu á að sjá bara Gullfoss. og Geysi um ísland. Okkur fannst þörf á aðstandendur Iceland Crucible, Áfengisvarnarnefndir: Meðmæltar 6 nýjum vínveitingaleyfum - nei við 17 umsóknum ■ Dómsmálaráöuneytið hefur gefið út sex vínveit- ingaleyfi síðan ákveðið var nýlega að taka fullt tillit til álits áfengisvarnarnefnda í viðkomandi bæjarfélögum. í tveimur tilvikum voru leyfi veitt eftir að áfengisvarnar- nefndirnar höfðu skipt um skoðun, og orðið fylgjandi leyfisveitingu. Upplýsingar þessar fékk NT hjá Ólafi Walter Stefáns- syni skrifstofustjóra dóms- málaráðuneytisins. Hann upplýsti ennfremur, að á síð- ustu dögum hefði ráðuneytið synjað sautján umsóknum vegna neikvæðrar afstöðu áfengisvarnarnefnda. Auk þess hefði nokkrum umsókn- um verið synjað af öðrum ástæðum. Ellefu umsóknir ■ bíða nú afgreiðslu. Aðspurður um hvort vín- veitingaleyfi yrði veitt, ef áfengisvarnarnefnd tiltekins bæjarfélags væri því meðmælt, en bæjarstjórn á móti, sagði Ólafur Walter, að það væri í lögum, að ekki mætti veita slíkt leyfi gegn vilja bæjarstjórnar. Ef þessu væri hins vegar öfugt farið, réði vilji áfengisvarnarnefnd- arinnar, samkvæmt nýju reglunun. viðamikillar kynningar á ís- lenskum nútímalistum, sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morgun, á fundi með frétta- mönnum. Iceland Crucible, eða ís- lenskri deiglu, er ætlað að kynna íslenska menningu meðal ann- arra þjóða, og á næsta ári er áformað að halda til Bandaríkj- ana og Kanada. Kynning þessi skiptist í þrjá hluta, ljósmynda- sýningu með 330 myndum af um 170 listamönnum úr öllum greinum, kvikmyndum um gróandann í íslensku listalífi og loks bók, þar sem birt er úrval mynda af sýningunni, auk þess sem Sigurður A. Magnússon skrifar um þróun lista hér á landi. Tómas Holton forstjóri Hildu hf. er aðalhvatamaðurinn að kynningu þessari og fjármagn- aði hann gerð kvikmyndarinnar og ljósmyndasýningarinnar. Ólafur Ragnarsson forleggjari í Vöku gefur bókina út. Ljós- myndirnar eru eftir rússneskan landflótta Ijósmyndara Vladim- ir Sichov, sem hefur tekið myndir fyrir tímarit austan hafs og vestan. Kvikmyndin er eftir tvo bandaríska kvikmynda- gerðarmenn, Hal Calbom og Phil Davies, áttfalda Emmy- verðlaunahafa fyrir framúrskar- andi sjónvarpsþætti í heima- landi sínu. Ólafur Ragnarsson sagði að reynt hefði yerið að líta á verk- efnið sem eina heild, þannig að það þyrfti alla þættina þrjá til að segja alla söguna. „Síðan höfum við látið okkur detta í hug, að þegar farið verður að ferðast um með kynninguna, geti fjórði þátturinn verið sá, að lista- mennirnir komi á staðinn og sýni list sína,“ sagði Ólafur. Vladimir Sichov tók 30 þús- und myndir fyrir verkefni þetta, bæði í svart-hvítu og lit, og heimsótti hann um 8 listamenn á dag á meðan á myndatökunum stóð. Hann sagði, að bók eins og Iceland Crucible, A Modern Artistic Renaissance, eins og hún heitir fullu nafni, væri óska- verkefni hvers ljósmyndara, og sagðist hann ekki vita til þess, að sambærileg bók hefði verið gerð annars staðar í heiminum. Hal Calbom sagði, að með gerð kvikmyndarinnar hefði m.a. vakað fyrir honum að draga fram það, sem íslendingar ættu sameiginlegt með öðrum þjóðum, og það sem þeir ættu einir. „Mig langaði líka að koma til skila gífurlegum áhuga ís- lendinga á listum,“ sagði hann. Sýningin á Kjarvalsstöðum verður opin til 28. júlí og á meðan á henni stendur, verður kvikmyndin sýnd tvisvar á dag. Hér verður þó ekki staðar numið, því að á næsta ári kemur væntanlega út bók um gullaldar- bókmenntir íslendinga, skrifuð af Magnúsi Magnússyni sjón- varpsmanni á Bretlandi. ■ Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi, Hal Calbom kvikmynda- gerðarmaður og Sigurður A. Magnússon rithöfundur standa fyrir aftan Tómas Holton forstjóra og upphafsmann tslenskrar deiglu. NT-mynd: Sverrir Ódyrir og nfösterkir PLASTPOKAR á rúllum

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.