NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 16.08.1985, Qupperneq 1

NT - 16.08.1985, Qupperneq 1
■ Nýja íbúðahverfið í Setbergslandi við Hafnarfjörð. Mjög lítil hreyfing hefur verið á lóðum þar. NT-mynd Sverrir Reykt í laumi? ■ Slökkvilið Reykja- víkur þusti í gær að húsi Sparisjóðs Reykjavík- ur, en þcgar þangað kom fannst enginn eldur. Skeleggir menn fundu hinsvegar fljótt ástæðuna fyrir útkall- inu, brunaboði á annarri hæð hússins hafði farið í gang vegna reykinga. Hvernig er það, er ekki bannað samkvæmt lög- um að reykja í bönkum? Heiðmörk: Hafnfirð- Safna fræjum ingar sjá rautt - sé póstkassi sjá bls. 3 annarsvegar List: Fallinn engill - sjá bls. 2 ■ Svo virðist sem Hafnfirðingar sjái rautt þegar þeir berja póst- kassa auguni. Að minnsta kosti hafa slíkir kassar aldrei fengið að vera í friði í Firðinum. Þeir eru annaðhvort sprengdir upp og fyllt- ir af rusli, rifnir af veggnum og fleygt út á götu cða sprengjum laumað inn um rifuna. Afleiðing þcssara skemmdarvcrka er sú að nú er enginn póstkassi utandyra í Hafnarfirði og þeir sem ætla sér að pósta eitt bréf vcrða að standa hálftíma í biðröð á einu póstaf- greiðslu þessa bæjarfélags sem tel- ur á þrettánda þúsund íbúa. Breskur dómstóll: Konurverðaoftar veikar en karlar London-Kcuter. ■ Breskur dómstóll kvað í gær upp þann úrskurð að það væri eðlilegt að tryggingafélög krefðust hærra iðgjalds af kon- um en körlum þar sem konur yrðu oftar veikar en karlmenn. Kona að nafni Jennifer Pinder, sem er tannlæknir, hafði kært tryggingafélögin fyr- ir brot á jafnréttislögum þar sem þau létu hana greiða 50% hærra iðgjald en karlmaður í sömu stöðu. En Denis McDonnel dómari komst að þeirri niðurstöðu að öll gögn bentu til þess að það væri eðlilegt að iðgjald kvenna væri hærra þar sem þær veiktust oftar. Hann sagðist hins vegar ekki kunna neina skýringu á því hvers vegna konur þyrftu oftar að taka sér veikindafrí en karlar. Flest bresk tryggingafélög láta konur greiða hærri iðgjöld en karla fyrir heilbrigðistrygg- ingu en lægri iðgjöld fyrir líf- tryggingu þar sem meðalævi kvenna er lengri en karla. Flugleiðabréfin: Sjá álit ríkislög- manns á bls.2 Fólk þorir ekki að byggja Lítið spurt eftir lóðum og þeim skilað aftur Nýjar íbúðir í fjölbýlishúsum seljast ekki ■ Lítil eftirspurn hefur verið eftir lóðum undir íbúðarhús- næði í sumar á höfuðborgar- svæðinu og margir þeirra sem hafa fengið lóðir hafa skilað þeim aftur; ekki treyst sér til að byggja. Ástandið í Hafnarfirði virðist þó sýnu verst. Þá gengur illa að selja nýjar íbúðir í fjöl- býlishúsum. í Grafarvogi er fólki gefinn kostur á að greiða gatna- gerðargjöldin fyrirfram. Gunn- ar Eydal, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg sagði að þetta fyrirkomulag hefði reynst mjög vel og gert mörgum klcift að ráðast í frantkvæmdir, sem ella hefði orðið að hætta viö. Þrátt fyrir það hefur verið mikill sam- dráttur rniðað við í fyrra, og margir skijað aftur lóðum. Björn Árnason, bæjarverk- fræðingur í Hafnarfirði, staðfesti að eftirspurnin í ár hefði vcrið lítil. Alls hefðu 15 lóðir sclst í sumar. Gatnagerðargjöld eru um bOO.OOO kr. og staðgreiöist þriðjungur þess við afhendingu Íóðarinnar. Eftirstöðvarnar er svo hægt að semja um og verður að greiða þær innan tveggja ára. Sámtímis því sern fólk greiðir gatnagerðargjöldin veröur það svo að ráðast í framkvæmdir, því botnplata hússins verður að vera klár innan 5-9 mánaða. Björn sagðist ekki hafa heyrt neinar raddir um að breyta þessu fyrirkomulagi í átt til þess sem gildir í Reykjavík. Eins og fyrr sagði er lítil eftirspurn í nýjar íbúðir í fjöl- býlishúsum. Jóhann Bergþórs- son, forstjóri Hagvirkis, sagði í samtali við N'F, að fyrirtækið hefði reist fjölbýlishús í Hvömmunum í Hafnarfirði en ekkert gengur að selja íbúðirn- ar. Ástæðan fyrir þessu er að sögn Jóhanns sú, að fólk er orðið svo hrætt viö vísitölu- tryggðu lánin: „Þegar búiöer að kippa úr sambandi tengslum kaupgjalds og lánskjaravísitölu, þorir fólk ekki að kaupa." Fjölmennur fundur trillukarla: Allir færi fómir Markaðsmál: Vöru- kynn- ingar -sjá bls.4 segir Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra ■ Trillukarlar í Reykjavík héldu í gærkvöldi fund með Halldóri Ásgrímssyni sjávarút- vegsráðherra og nokkrum þing- mönnum til að ræða helgar- veiðibönn og aðgerðir stjórn- valda í málefnum trillukarla 1. september n.k. Fundurinn var fjölmennur og mikill hiti í mönnum. Að loknum framsöguerind- um sjávarútvegsráðherra og Jakobs Jakobssonar forstjóra Hafrannsóknarstofnunar rigndi inn fyrirspurnum frá fundar- mönnum auk þess sem þing- mennirnir tóku til máls og sýnd- ist sitt hverjum um ágæti kvóta- kerfisins m.t.t. trillukarla. Halldór Ásgrímsson sagði að menn yrðu að sýna þolinmæði og hjálpa til við að byggja upp góðan fiskistofn fyrir síðari kyn- slóðir. Trillusjómenn yrðu að færa fórnir eins og aðrir sjó- menn annars yrði enginn friður í sjómannastéttinni. Halldór sagðist ekki vera tilbúinn til að skýra frá hvað ráðuneytið myndi aðhafast í málefnum trillusjómanna þar eð umsókn- arfrestur trillumanna um áfram- haldandi útgerð bátanna það sem af lifir ári hefði runnið út í gær og nokkuð erfitt væri að segja til um hvaða menn hefðu trillusjómennsku að aðal- atvinnu og hverjir ekki. 700 umsóknir hefðu borist en alls væru á níunda hundrað trillur í landinu. Komið hefðu fram til- lögur um að setja hámarkskvóta á hvern bát t.d 5-7 tonn á hvern og að sókn yrði takmörkuð í upphafi hvers árs með því að tilkynna strax hvaða daga ársins mætti stunda veiðar. Sömu sögu er að segja um símklefa í Firðinum. Þeir hafa aldrei fengið að vera í friði stund- inni lengur fyrri skemmdarvörg- um. Var íarið fram á það við lögregluna að hún vaktaði kcfana, svo hægt væri að veita Hafnfirðing- um þessa þjónustu sem þykir sjálf- sögð í öllum öðrum bæjarfélögum. Lögrcglan sagðist skyldi vakta klefann ef hann yrði settur upp fyrir framan gluggann á varðstof- unni. Þótti engin ástæða til að setja símklefa þar, því þeir sem þurfa að hringja og eru staddir í nágrenni varðstöðvarinnar geta hæglega skroppið inn fyrir dyrnar og fengið aðgang að síma þar.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.