NT - 16.08.1985, Page 8

NT - 16.08.1985, Page 8
( a Föstudagur 16. ágúst 1985 8 ! Árnad he ill la „Vegir liggja til allra Óskar Sigurjónsson sérleyfishafi sextugur ■ Óskar Sigurjónsson. ■ Fyrsti fjallabíll Austurleiðamanna, heimasmíðaður að hluta til. Myndin er frá árinu 1964. Svo til allir karlmenn sem þá áttu heima á Hvolsvelli stilla sér upp, en frumbyggjarnir eru í boðsferð með Óskari, komnir í Þórsmörk. Fyrir aldarfjórðungi mátti oft á síðkvöldum sjá handtaka-góð- an mann vera að gera upp gamla og slitna jeppabifreið á litlu verkstæði austur í Hvols- velli. Eftir skamman tíma var farartækið komið í gott lag og glanspússað. Andvirði þessa Willys jeppa mun hafa verið aleiga Óskars Sigurjónssonar, þegar liann árið l%() keypti tvær langferðabif- reiðar af Kaupfélagi Rang- æinga, sem um nokkuð margra ára skeið rak áætlunarferðir um austanverða Rangárvallasýslu. Önnur þessara bifreiða var sextán ára gömul, en hin sjö ára. Báðar orðnar lúalegar eftir langar vegferðir, enda vegir þá yfirleitt slæmir, olíumöl óþekkt orð og varanlegt slitlag ekki til utan höfuðborgarsvæðisins og nokkurra kaupstaða. Óskar rak einn sérleyfi sitt um tveggja ára skeið, en það„ var í upphafi á leiðinni frá Reykjavík að Múlakoti í Fljótshlíð. Farkostirnir voru Chevrolet árgerð 1944, 26 sæta og Volvo af árgerðinni 1953, 34 sæta. Þetta voru ekki ncinir luxus langferðabílar. Það kom fljótt í ljós, að nýi eigandinn var bæði ábyggilegur og harðdug- legur. Sístarfandi og lítið fyrir að eyða tíma sínum í innihalds- lítið hjal. Maður ekki allra eins og títt er um þá, sem vitja vilja sinn, en heill og trygglundaður eins og hann á ætt tii. Einn bar Óskar hita og þunga af rekstrinum fyrstu árin. Skipu- lagði ferðir, skipti um fjaðrir, skrifaði í bækur sínar og beitti handverkfærum af handlagni við viðhald á vögnunum, oftast á kvöld- eða næturlagi. Sigur- sæll er góður vilji, segir gamalt máltæki, og enn er Óskar harð- ur við sjálfan sig og lætur engan bilbug á sér finna. Fyrir aldarfjórðungi voru einkabílar ekki orðnir almenn- ingseign og í ferðum með Ósk- ari sáu margir Rangæingar Bog- rarfjörðinn, Breiðafjörðinn, Vestfirðina og Norðurlandið í fyrsta sinn, en sjálfum mun Óskari hafa þótt alskemmtileg- ast að aka austur í Öræfi, áður en stórvötnin voru beisluð og brúuð. Smíðaði hann raunar sjálfur með Sigurjóni bróður sínum að miklum hluta undir- vagninn á sínum fyrsta fram- hjóladrifna fjallabíl, sem hann notaði síðar í Fjallabaksferðir og Öræfa. Enginn varðóttasleg- inn með Óskari, þótt skolgrátt jökulvatnið rynni eftir gólfinu á gamla trukkinum, enda þekkti hann vel á vötnin. Uppalinn við Þverá, sem á árum áður er síbreytileg. Þegar Óskar hafði rekið áætlunarbíla sína í tvö ár kom Sveinbjörn bróðir hans í lið með honum og keyptu þeir ■ Öllum verður Jökulsárlónið eftirminnilegt. bræður þá nýjan Mercedes Benz fólksflutningabíl, þrjátíu og fjögurra sæta. Á árinu 1963 var Austurleið hf. stofnuð með þeim Helga Ingvarssyni frá Rauðuskriðum og Steinþóri Jóhannssyni frá Kirkjubæjarklaustri, en þeir félagar ráku þá sérleyfi á leið- inni Reykjavík - Kirkjubæjar- klaustur. Eiginkonur allra þess- ara manna urðu þá hluthafar. Síðar eignaðist Óskar og fjöl- skylda hans fyrirtækið. Austur- leið á nú einn tug úrvals farar- tækja enda ekkert til sparað til að þau séu sem alfullkomnust og ökumennirnir hjá Austur- leið eru menn sem sæma vel myndarlegri bílaútgerð. ■ Mcð þessum farartækjum hófst reksturinn. þegar farartækin stóðu föst í forarvilpum eða fönn, eða þegar bílarnir hættu að ganga. Erlend- ur og hans menn þekktu vel inn á leyndardómana undir húddinu og mikið mátti vera að, ef gömlu mótorarnir fóru ekki að mala á ný svo að menn gátu haldið sína leið, en bræður Ösk- ars eru og góðir viðgerðarmenn og greiðasamir. Öskar Sigurjónsson er kvænt- ur ágætri konu, Sigríði Hall- dórsdóttur frá Syðri-Úlfsstöð- um í Austur-Landeyjahreppi, foreldrar hennar voru Guðbjörg Guðmundsdóttir og Halldór Jó- hannsson, sem á sinni tíð var þekktur söngmaður, en Úlfs- staðahjónin voru vinsæl í sinni sveit. Þeim hjónum, Sigríði og Óskari hefur orðið átta efni- legra barna auðið og eru barna- börnin fjórtán talsins. Þótt Óskar Sigurjónsson sé maður sístarfandi af elju á hann til á seinni árum, að bregða sér með sínu fólki yfir Atlantsála og hann kann orðið að hvíla sig stund og stund, þar sem sólin er heitari en í Húsadal. Og svo hefur hann heillast af fluginu, lét sér í fyrra ekkert muna um að ná sér í tilskilin réttindi. Má á góðviðrisdögum sjá flugvél hans bera við ský hátt yfir Fljótshlíðinni með stefnu inn Markarfljótsdalinn. Hvort sem menn aðhyllast einkaframtak, samvinnu eða annað rekstrarform, verður eigi áfram komist án dugandi fram- taksmanna. Athafnamenn eru öllum byggðarlögum bráðnauð- synlegir. Austurleið hefur með árun- um orðið traust og myndarlegt fyrirtæki, sem þjónar vel. Sá sem ráðið hefur ferðinni er sextugur í dag. Megi afmælis- barnið enn og áfram, hyggið og farsælt horfa fram á veginn, - langa leið -. Pálmi Eyjólfsson. Við opnun hringvegarins árið 1974 hófust reglubundnar ferðir frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði árið um kring og í framhaldi af þeim ferðum eru áætlunarferðir um Austfirði allt til Egilsstaða yfir sumartímann. Einnig hefur Áusturleið áætlun- arferðir á sumrin um Fjallabaks- leið til Skaftafells. Fyrirtækið á tvo fallega fjallaskála í mynni Húsadals á Þórsmörk og þangað er hægt að komast daglega á sumrin. í Þórsmörkinni hefur ekki verið hreiðrað um sig í skógarlundi, heidur er verið að græða þar upp hrjóstruga blámalaraura framan við skálana og þar hefur verið byggð upp fyrirmyndar hreinlætisaðstaða, sem sæmd er að, en þeim fjölgar ár frá ári sem leita inn í fjalla- dýrðina, þar sem sífellt má sjá nýja og nýja náttúrufegurð. Óskar Sigurjónsson er fæddur 16. ágúst 1925 að Torfastöðum í Fljótshlíð, foreldrar hans voru hjónin Ólína Sigurðardóttir og Sigurjón Jónsson, sem lengi bjuggu þar. Eins og algengt var á árum áður fór Sigurjón til vers á vetrum og réri á vélbátum í Vestmannaeyjum, en á sumrin var hann flokksstjóri hjá Er- lendi Jónssyni vegaverkstjóra á Hárlaugsstöðum í Ásahreppi. Hjá Erlendi vann og Óskar á yngri árum og bræður hans tveir. Þótti mönnum gott að vinna hjá honum, en hann var þekktur að vaskleika og greiða- semi. Var viðbrugðið hver Er- lendur og menn hans voru fljótir til hjálpar á sumri og vetri Á traustum bílum er Krossá sjaldan farartálmi.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.