NT


NT - 16.08.1985, Side 19

NT - 16.08.1985, Side 19
Föstudagur 16. ágúst 1985 19 atvinna í boði Staða starfsmanns í handritadeild Landsbókasafns íslands er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 1986 að telja. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist Menntamálaráðuneytinu fyrir 15. október næst- komandi. Menntamalaráðuneytið 12. ágúst 1985. Nokkrar stöður lögreglumanna og ein staða tollvarðar á Keflavíkurflugvelli, eru lausar til umsóknar. Stöðurnar veitast frá 1. október n.k. Umsóknir um stöðurnar skulu hafa borist mérfyrir 12. september n.k. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu minni. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli 13. ágúst 1985. Reyðarfiörður Lausar stöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 96-4247 eða 96-4140. Skólanefnd. tilkynningar Almennur bændafundur verður haldinn í Fólksvangi Kjalarnesi, mánudaginn 19. ágúst kl. 20.30. Á dagskrá verða nýsett lög um framleiðslu verðlagningu og sölu á búvörum og tillögur til breytinga á samþykktum Stéttarsambands bænda. Frummælendur verða: Jón Helgason landbúnaðarráðherra og Hák- on Sigurgrímssonframkvæmdastjóri Stéttar- sambands bænda. Búnaðarsamband Kjalarnesþings. þjónusta Kjarnaborun Steinsögun Malbikssögun Raufarsögun Sími 37461 til sölu Til sölu Til sölu 5 feimer kvígur. Upplýsingar í síma 93-3003. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlál og jarðarför, Sigurðar S. Haukdal, fyrrverandi prófasts. Benedikta E. Haukdal börn, tengdabörn og barnabörn Argentína: Vitnaleiðslum lokið í máli herforingjanna Buenos Aires-Reuter, ■ Síðasta vitnið í máli argent- ínska ákæruvaldsins gegn níu fyrrverandi herforingjum kom fyrir rétt á miðvikudag. I>ar með lauk þriggja mánaða vitna- leiðslum í málinu og verður nú gert réttarhlé til 2. september. Farið hefur verið fram á lífstíð- arfangelsi fyrir fjóra af hinum níu, þar á meðal tvo fyrrverandi forseta, Jorge Videla og Ro- berto Viola. Gladys Evarista Cuervo, sem var hjúkrunarkona við sjúkra- hús, sem herforingjastjórnin notaði fyrir pyntinga- og fanga- búðir steig í vitnastúkuna í gær. Hún sagði að sér hefði veri rænt seint á árinu 1976 og orðið að dúsa í skáp í læknamiðstöð Buenos Aires. Cuervo skýrði frá því að hún hefði verið pyntuð á hinn hroða- legasta hátt, skapahár hennar voru brennd, rifbein brotin og hún sviðin á líkamanurn með kveikjara. Hún kvaðst hafa séð lækni liggjandi í blóð- og hland- polli eftir að pyntingameistarar höfðu rekið prik upp í enda- þarm hans. Læknir sá er einn 9000 manna sem týndust á árunum 1976-83 þegar herforingjarnir fóru með völd. Um þúsund manns báru vitni í réttarhöldunum og höfðu margir svipaða sögu að segja og hjúkrunarkonan. Raul Alfonsin, forseti Arg- entínu, skipaði fyrir um réttar- höldin skömmu eftir að hann var kjörinn í embætti árið 1983. Alfonsin sagði að herforingja- stjórnin hefði beitt ólöglegum aðferðum í baráttu sinni við vinstri sinnaða skæruliða í land- inu. Lögmaður Emilio Massera, aðmíráls, sem er einn fjór- menninganna sem eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi, sagði að Massera hefði borið að her- foringjastjórnin hefði ekkert skipt sér af baráttunni gegn skæruliðum. Eegar hann var spurður að því hvort rétt væri að öryggis- iögreglan hefði staðið fyrir pynt- ingum, svaraði lögmaðurinn: „Augljóslega ekki. Baráttan byggðist á vestrænum, mannleg- um og kristilegum hugmynd- um.“ Bretland: Lausn Verkamannaflokks ins á efnahagsvandanum London-Reuter ■ Breski Verkamannaflokk- urinn kunngerði nýlega efna- hagsáætlun þá, sem hann ætlar að hrinda í framkvæmd, nái ■ Neil Kinnock, formaður breska Verkamannaflokksins, er brosmildur en róttæklingum í flokknum líst ekki eins vel á efnahagsáætlunina í tösku hans. Danmörk: Skaðabætur fyrir skot á sumarbústaði Kaupmannahöfn-Reuter ■ Bandaríska fyrirtækið McDonnell Douglas hefur ákveðið að greiða danska ríkinu jafnvirði nálega 16 milljón>kr. í skaðabætur fyrir j tjón, sem flugskeyti danskai hersins olli á sumarbústöð- um. Fyrirtækið neitar þó allri ábyrgð og segja forráðamenn þess að skaðabæturnar hafi verið greiddar af góð- mennsku einni saman. í>á hefur fyrirtækið neitað að borga flugskeytið, sem danski herinn keypti af því á jafnvirði 41 milljón kr. Slys þetta varð í september 1982. Pá stóðu yfir heræfing- ar undan strönd Jótlands og fyrir mistök var flugskeytinu skotið af stað. Yfirvöld í Danmörku segja að skip- stjóri freigátunnar, sem skaut skeytinu, hafi verið hafður að blóraböggli, því að um galla í skeytinu hafi verið að ræða. hann meirihluta á þingi í næstu kosningum í Bretlandi. Þær verða annað hvort 1987 eða 1988. Samkvæmt skoðana- könnunum nýtur Verkamanna- flokkurinn númesta fylgis flokk- anna þriggja í Bretlandi. Atvinnuleysi í Bretlandi er nú 13,1 prósent og beinast til- lögur Verkamannaflokksins aðallega að því að skapa ný störf. I’annig er gert ráð fyrir að ein milljón manns af þeim 3,2 milljónum, sem ganga atvinnu- lausar, fái vinnu fyrstu tvö árin sem flokkurinn væri við völd. Verkamannaflokkurinn ætlar einnig að auka skattheimtu af fyrirtækjum sem fjárfest hafa erlendis. Nemi fjárfestingar þeirra meira en fimm prósentu- stigum af heildareign munu fyrirtækin ekki fá neinar skatt- ívilnanir. Með þessu hyggst Verkamannaflokkurinn stemma stigu við fjármagns- streymi út úr Bretlandi. Að auki er gert ráð fyrir að skatt- tekjur ríkisins muni á þennan hátt aukast um 5,4 milljarða dollara. Stofnun fjárfestingabanka er einnig á stefnuskrá Verka- mannaflokksins. Bankinn myndi bjóða sömu kjör og ger- ast erlendis, en tilgangurinn með stofnun hans væri tvíþætt- ur. Annars vegar að auka sparn- að í landinu og hins vegar að draga úr fjárfestingum erlendis. Efnahagsáætlunin er unnin í samvinnu við verkalýðsfélög Bretlands, en róttæklingar inn- an Verkamannaflokksins eru sáróánægðir með hana. t>eir telja hana ekki í anda þeirrar sósíalísku hefðar sem flokkur- inn byggir á og saka forystu- menn flokksins um að hafa beygt allt of langt til hægri. Olía geymd í olíuskipum Osló-Reuter ■ Nú mun orðið algengt að risaolíuskip séu notuð til að geyma olíu fremur en að flytja hana þar sem olíuflutn- ingar á hafi hafa ekki aukist jafn mikið og búist hafði verið við. Þetta kemur fram í upplýsingum sem alþjóðasamtök sjálf- stæðra eigenda olíuskipa sendu frá sér nú í vik- unni. Samkvæmt upplýs- ingum þessara samtaka, sem hafa aðsetur í Osló, voru 92 olíuskip, sem samtals eru næstum því 19 milljón tonn, notuð sem fljótandi olíutankar í júlímánuði. Þetta mun vera tíu prósent aukning frá því í næstu mánuði á undan. NýrforsetiíTansaníu Dar Es Salam-Reuter ■ Ali Hassan Mwinyi, vara- forseti Tansaníu, var í gær kjörinn næsti forseti landsins. Hann tekur við völdum í októ- ber þegar núverandi forseti, Julius Nyerere, lætur af völdum. Mwinyi er múslimi og forseti Zanzibar-eyju. Hann er sex- tugur að aldri. Val Mwinyi kom nokkuð á óvart því að hann er andvígur sósíalisma Nyereres. Súrt regn rann- sakað á Bretlandi London-Reuter ■ Bresku náttúruverndar- samtökin „Vinir jarðarinnar" hafa fengið þrjá þekkta náttúru- fræðinga til að kanna áhrif súrs regns á gróður víðs vegar á Bretlandi. Mikil loftmengun vegna iðn- aðar og útblásturs bíla hefur leitt til þess að rigning er oft súr sem aftur hækkar sýrustig í jarðvegi og í vötnum. Áhrif þessa súra regns hafa mikið verið rannsökuð á meginlandi Evrópu en frekar lítið á Bret- landi þar sem stjórnvöld hafa lagst gegn því að reglur um loftmengun frá iðnaði verði hertar. Vestur-Pjóðverjar segja að skógarskemmdir af völdum súra regnsins hafi aukist úr um 8% fyrir þremur árum í rúmlega 50% nú. Að undanförnu hafa borist fréttir af svipuðum skógarskemmdum í Wales og fleiri stöðum á Bretlandi.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.