NT - 16.08.1985, Page 23

NT - 16.08.1985, Page 23
íslandsmótið 1. deild: Víðirúrfalisæti íþróttir Föstudagur 16. ágúst 1985 23 - sigraði Víking 3*0 í Garðinum NT-mynd Svem'r. ■ Ágúst Már og Ásbjörn KR-ingar komast hér á undan Óla Þór Keflavíking í knöttinn. íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild: Glæsimark Sigurjóns - færði Keflvíkingum dýrmætan sigur á KR í gærkvöldi ■ „Ég er virkilega ánægður með markið og leikinn reyndar líka. Við sýndum mjög góðan „karakter“ í þessuin leik og allir börðust að einu marki - að vinna leikinn,“ sagði Sigurjón Kristjánsson ÍBK sem skoraði annað mark síns liðs gegn KR- ingum í gærkvöldi á KR-velli. Þetta var afar glæsilegt mark í leik sem var í léttu meðallagi. Keflvíkingar börðust betur og virtust vera mjög samtaka í þeirri baráttu. Nær engin veikur hlekkur var í liðinu. Skemmti- legt var að sjá til Sigurjóns og Helga Bentssonar á köflum en þá virtust vera að rifjast upp hjá þeim gamlir taktar síðan þeir spiluðu saman með Blikunum fyrir nokkrum árum. Sigurinn var sanngjarn. KR-ingar voru ekki með á nótunum á köflum og mestu skipti að Ágúst átti dapran leik á miðjunni og Björn var tekinn mjög stíft í sókninni og bar ekkert á honum. Marktækifæri voru afar fá í þessum leik og KR-ingar fengu nánast ekkert færi. Fyrri hálfleikur var enn lok- aðri en sá seinni og það eina verulega færi sem gafst var er Sigurjón skoraði glæsilegt mark. Boltinn gekk þá vel í sókninni hjá ÍBK og er að vítateig kom sendi Helgi Bentss. á Ólaf Gífurlegur baráttuleikur. Lítið um marktækifæri. Slagurinn var allan tímann á miðjunni og þar höfðu Keflvíkingar betur. ÍBK sýndi mjög góða baráttu í þess- um leik. Allir voru með á nótun- um um hvað þyrfti að gera. Mark- ið gerði Sigurjón Kristjánsson á 26. mínútu með fallegu skoti. Dómari var Þóroddur Hjaltalín og gerði sínu hlutverki þokkaleg skil. Leikurinn hélt vel áfram. Þór sem renndi boltanum út á Sigurjón sem staddur var á víta- teig. Þrumuskot hans söng í þaknetinu án þess að Stefán fengi rönd við reist- fallegt, 0-1. Síðari hálfleikur var helgaður baráttu og aftur baráttu. KR- ingar voru ívið meira með bolt- ann og sóttu stíft undir lok leiksins. Þeir sköpuðu sér þó ekki nein teljandi færi utan tvo skalla frá Ásbirni er fóru himin- hátt yfir. Keflvfkingar brutust gjarnan út úr pressunni og opn- aðist þá vörn KR-mikið. Sigur- jón var allt í öllu í sókninni hjá ÍBK og hann átti nokkur hálf færi eftir rispur sínar. Það var síðan á síðustu sekúndu leiksins sem Keflvíkingar gulltryggðu sigurinn. BjörgvinBjörgvinsson sem komið hafði inná sem vara- maður fyrir Helga skömmu áður skoraði eftir að vörn KR'hafði opnast illa. Björgvin fékk bolt- ann einn og óvaldaður á mark- teig og gat ekki annað en skorað, 0-2. Eins og fyrr segir þá var það baráttan sem skóp þennan sigur Keflvíkinga. Hvort KR-ingar hafi talið þennan leik unninn eftir góða frammistöðu á Skaganum skal ósagt látið en þeir voru í það minnsta ekki á spariskónum í leiknum. þb Islandsmótið 1. deild: ■ „Þetta var geysilega mikil- vægur sigur, en Víkingar voru betri í fyrri hálfleik. Það var einhver taugaspenna í mínum mönnuni og það virtist taka 45 mínútur að losa um hana. í seinni hálfleiknum vorum við svo mun betri,“ sagði Marteinn Geirsson, þjálfari Víðis, eftir 3-0 sigur liðs hans á Víkingi í 1. deild í Garðinum í gærkvöldi. Víkingar hófu leikinn ákveðnir í að vinna sinn fyrsta sigur í 12 leikjum og áttu alveg fyrri hálfleikinn. Þeir fengu t.d. fimm horn á meðan heimamenn fengu ekki eitt einasta. En þótt pressan væri þung voru tækifær- in engin og Gísli Heiðarsson átti náðuga daga í markinu. Hann greip vel inn í leikinn en þurfti aldrei að taka á honurn stóra sínum. í síðari hálfleik tóku Víðis- menn loks við sér og fljótlega skoruðu þeir sitt fyrsta mark. Víkingar voru í sókn en misstu knöttinn og Einar Ásbjörn Ólafsson stakk boltanum fram á Guðmund Knútsson. Guð- mundur var einn á móti Ög- mundi markverði og skoraði snyrtilega fram hjá honum. Víkingar reyndu að klóra í bakkann en sem fyrr gekk þeim NT Boltinn Vídir-Víkingur Guömundur Knútsson var maður leiksins og fær boltann. Aðrir hjá Víði sem voru góðir voru Grétar Einarsson, Sigurður Magnússon og Rúnar Georgsson. Ámundi Sig- mundsson var bestur Víkinga. KR-ÍBK Ekki spurning um að Sigurjón Kristjánsson var maður leiksins og hreppir boltann. Sigurður Björg- vinsson, Gunnar Oddsson og Jón Kr. Magnússon voru líka góðir en hjá KR voru flestum mislagðir fætur. Þór-Fram Halldór Áskelsson var besti mað- ur vallarins og hlýtur boltann. Aðr- ir góðir Þórsarar voru Óskar Gunn- arsson og Baldvin Guðmundsson i markinu. Framarar voru allir jafnir. erfiðlega að eiga við varnar- menn Víðis. Víðir nýtti hins vegar færi sín vel. Er stundar- fjórðungur var eftir af leiknum fengu þeir aðra skyndisókn og HNOT- SKURN ■ Mikilvægur sigur hjá Víði en staða Víkings orðin nær vonlaus. öll mörkin komu í síðari hálfleik og gerði Guðmundur Knútsson tvö fyrstu og Einar Ásbjörn Ólafsson hið þriðja. Eysteinn Guðmundsson gaf þremur leikmönnum áminn- ingu, Grétari Einarssyni hjá Víði og Ámunda Sigmundssyni og Andra Marteinssyni í Víkingi. Eysteinn dæmdi allvel. Einar Ásbjörn óð upp í horniö. Þangað kominn sendi hann knöttinn út á Guðmund sem skoraði með góðu skoti rétt innan við vítateiginn. Víkingar lögðu nú allt í sókn- ina og gloppurnar í vörn þeirra urðu enn stærri. Er fimm mínút- ur voru eftir af leiknum lyfti Guðmundur knettinum inn fyrir vörnina og Einar Ásbjörn skor- aði. Víkingar vildu meina að Einar Ásbjörn hefði verið rang- stæður en Eysteinn dómari ans- aði þeim engu. í blálokin fékk svo Guð- mundur gullið tækifæri til að ná þrennunni en þá skaut hann rétt framhiá markinu, aftur einn á móti Ögmundi. Segja má að sól Víkings sé nú hnigin til viðar og ævi þeirra í 1. deild verður vart lengri að sinni. Víðir gæti liins vegar bjargað sér ef liðinu tekst að hala inn fleiri stig á heimavelli. „Langsamlega sætasti Holland: GeretstilPSV Skrifaði undir þriggja ára samning sigurinn í sumar“ - sagði Jóhannes Atlason eftir að Þór hafði sigrað Fram 2-0 Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri ■ Eric Gerets, fyrrum fyrirliði belgíska knattspyrnulandsliðs- ins, skrifaði í gær undir þriggja ára samning hjá hollenska 1. deildarliðinu PSV Eindhoven. Gerets var dæmdur í eins árs knattspyrnubann í fyrra af Al- þjóða knattspyrnusa'mbandinu, FIFA, fyrir að játa að hafa verið viðriðinn mútumálið mikla í belgísku knattspyrnunni 1982. Leikmönnum Waterschei var þá mútað til að tapa leik svo að Unglingamót FRÍ ■ Um helgina fer fram ung- lingamót FRÍ á Laugardalsvelli. Keppnin hefst kl. 13.00 á laug- ardaginn en kl. 10.45 á sunnu- dag. Allt efnilegasta frjáls- íþróttafólk landsins mun taka þátt í þessu móti. Standard Liege myndi vinna meistaratitilinn. Upphaflega hljóðaði bann Gerets upp á þrjú ár, en það var síðan mildað um tvö ár. Belgíska knattspyrnusamband- ið dæmdi hann einnig í bann og lauk því í vor. Gerets, sem er 31 árs gamall bakvörður, var fyrirliði lands- liðsins í HM á Spáni fyrir þrem- ur árum. Hann lék áður með Maastricht í Belgíu. Staðan í l.deild: ÍA........... 13 8 2 3 28-13 26 Fram ........ 13 8 2 3 26-19 26 Valur....... 13 7 4 2 19-10 25 Þór.......... 13 8 1 4 22-16 25 ÍBK......... 13 7 1 5 22-14 22 KR .......... 13 6 3 4 23-20 21 Þróttur..... 13 4 1 8 14-22 13 FH .......... 13 4 1 8 15-24 13 Víðir....... 13 3 3 7 15-28 12 Víkingur ... 13 1 0 12 12-30 3 ■ „Nei, sigurtilFinningin er sko ekkert blendin. Þetta er sætasti sigurinn í sumar af mörg- um sætum, sá langsamlega sæt- asti,“ sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs, eftir að Þór hafði unnið Fram, gamla félagið hans Jóhanncsar, á Akureyri í gær- kvöldi 2-0. Þórsarar hafa með þessum sigri sett allt á annan endann á toppi 1. deildar og eru nú Akranes, Fram, Valur og Þór öll í einni bendu þar. Og Þórsar- ar eru enn taplausir á heima- velli, hafa tapaö einu stigi þar til Víðis. „Þeir nýttu færin sín betur," sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram eftir lcikinn. „Við höfum lokið erfiðum útileikum á Akur- eyri, Akranesi og Keflavík og við töpuðum öllum þessum leikjum og nú gírum við okkur upp og vinnum það sem eftir er,“ bætti Ásgeir við. Leikur liðanna í gærkvöldi bar merki mikilvægi hans fyrir bæði liðin. Framarartóku völd- in á miðjunni strax í sínar hendur og segja má að þeir hafi ráðið gangi mála allan fyrri hálflcikinn, nema fimm síðustu mínútur hans. Ekki voru marktækifæri þeirra þó mörg. Guðmundur Torfason á skot yfir á 5. mín. og Baldvin Guðmundsson, mark- vörður Þórs varði vel frá Kristni I HNOT- SKURN Spennuleikur en Þórssigur verðskuldaður. Mörkin skoruðu Halldór Áskelsson og Sigurður Pálsson. Dómari var Magnús Theódórsson og gaf hann tveim- ur leikmönnum Þórs gula spjaldið, Sigurbirni Viðarssyni og Óskari Gunnarssyni. Jónssyni fimm mínútum síðar. Rétt fyrir markhlé skallaði Halldór Áskelsson í stöng Frammarksins og var það besta marktækifæri Þórs í hálfleikn- um. Þórsarar komu hins vegar tví- efldir til leiks í síðari hálfleik. Kristján Kristjánsson skaut í þverslá strax á 3. rnínútu og tveimur mínútum síðar kom fyrra markið. Jónas Róbertsson gaf fyrir utan af kantinum, Siguróli Kris- tjánsson, einn minnsti maður vallarins en einn sá sterkasti í skallaboltunum, skallaði fyrir fætur Halldórs Áskelssonar sem skoraði með þrumuskoti. Gott mark og vel að því staðið. Framarar fengu tækifæri á 60. mínútu er Guðmundur Steins- son komst inn á markteigshorn- ið en Baldvin varði stórglæsilega skot hans. Eru þá upptalin tnarktækifæri Framara en Þórs- arar fengu fleiri. Halldór átti þrunruskot yfir og Óskar Gunnarsson dúndur- skot í stöngina úr þröngu færi. Síðara markið kom svo rétt fyrir leikslok. Sigurður Pálsson, þá nýkominn inn á, fékk bolt- ann á miðjunni og gaf út á vinstri kantinn á Kristján Kris- tjánsson. Hann lék uppaðenda- mörkum, gaf fyrir og þar var Sigurður kotninn og skoraði með þrumuskoti. Glæsilegt mark og sigur Þórs í höfn. Liðin: Fram: Friðrik Friðriksson, Þor- steinn Þorsteinsson, Ormarr Örlygsson, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Krist- inn Jónsson, Sverrir Einarsson, Guð- mundur Steinsson, ómar Torfason, Guð- mundur Torfason og Ásgeir Eliasson. Þór: Baldvin Guðmundsson, Sigurbjörn Viðarsson, Árni Stefánsson, Óskar Gunn- arsson, Jónas Róbertsson, Júlíus Tryggvason, Siguróli Kristjánsson, Nói Björnsson, Kristján Kristjánsson, Halldór Áskelsson og Hlynur Birgisson (Sigurður Pálsson).

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.