NT - 14.09.1985, Blaðsíða 4
Laugardagur 14. september 1985 4
Þörungavinnslan:
Borgar hálfa milljón
fyrir að slá þang
■ Þó Þörungavinnslan sé rekin með
bullandi tapi njóta bændur, sem eiga
land að sjó þar sem þangið er slegið,
Bæjarfógetaembættið
á Akranesi:
Átta
sóttu um
samt góðs af framleiðslunni. Þarf
Þörungavinnslan að borga bændum
um 30 krónur á hvert tonn af þangi
áður en það er slegið. í sumar voru
samtals slegin 12.000 tonn af þangi og
hafa bændur því fengið rúma hálfa
milljón í sinn hlut. Það vcrður að
teljast dágóður aukapeningur fyrir
hráefni sem engum datt í hug að hægt
væri að nýta fyrir nokkrum árum.
Þörungavinnslan skuldar um þessar
mundir 109 milljónir en eignir fyrir-
tækisins eru metnar á 47 milljónir.
Erlendir aðilar hafa nú sýnt því
mikinn áhuga að gerast eignaraðilar í
verksmiðjunni, jafnvel þó hallinn á
henni sé svona mikill og hefur einn
fulltrúi frá sænska fyrirtækinu Polar
Viking komið vestur til viðræðna og
kannað aðstæður.
Kristján Þór Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Þörungavinnslunnar,
sagði við NT, að Polar Viking ásamt
innflutningsfyrirtækinu Inntak sf,
hefðu áhuga á eignaraðild í fyrirtæk-
inu, en jafnframt hefðu þeir áhuga á
að markaðssetja vöru fyrirtækisins.
Sagði hann þann ljóð á, að sænsku
aðilarnir hefðu áhuga á að eiga 51%
í fyrirtækinu en heimamenn væru lítt
hrifnir af því. Að sögn Kristjáns
hefur heimamönnum verið lofað
meirihluta í fyrirtækinu. Sagði hann
samt ekki útilokað að Svíarnirsættust
á að eiga innan við 50%.
Kristján kvaðst ekki vita til hvers
Svíarnir ætluðu að nota afurðina, en
þangmjöl er hægt að nota á ýmsan
hátt. Sagðist hann þó gruna að það
yrði notað við hormónaframleiðslu.
Fleiri útlendingar munu hafa sýnt
Þörungavinnslunni áhuga.
Vélskóli ÍS'
lands settur
■ Vélskóli íslands var settur
2. september sl. af Andrési
Guðjónssyni skólameistara.
Nú á haustönn munu um 250
nemendur stunda vélstjóra-
nám, þar af 216 í áfangakerfi
skólans, en 30-35 réttindanám
vélstjóra, en það eru þeir vél-
stjórar sem siglt hafa á undan-
þágu.
95 nemendur munu stunda
vélstjóranám á haustönn fyrir
vélstjóra sem ekki fullnægja
ákvæðum laga um menntun.
Alls hafa 195 útskrifast úr
þessu námi á fyrri árum. Þetta
er í fjórða skipti sem boðið er
upp á þetta nám en það verður
ísíðasta skipti á vorönn 1986.
Austurbæjarbíó:
■ Umsóknarfresturtilþessaðsækja
um stöðu bæjarfógeta á Akranesi
rann út í fyrrakvöld. Átta umsækj-
endur sóttu um stöðuna, sem veitt
verður frá og með I. nóvember, en þá
lætur Björgvin Bjarnason, núverandi
bæjarfógeti af cmbættinu fyrir aldurs-
sakir.
Þessir hafa sótt um:
Barði Þórhallsson bæjarfógeti á
Ólafsfirði, Halldór Kristinsson bæjar-
fógeti í Bolungarvík, Jón Sveinsson
héraðsdómslögmaður á Akranesi,
Pétur Þorsteinsson sýslumaður í
Dalasýslu, Sigurður Gissurarson
bæjarfógeti á Húsavík og sýslumaður
í Þingeyjarsýslum, Þorsteinn Skúla-
son bæjarfógeti í Neskaupstað.
Til viðbótar þessum eru tveir um-
sækjendur sem óska nafnleyndar. Jón
Helgason dómsmálaráðherra tekur
ákvörðun um hver hlýtur embættið,
en það er forseti íslands sem veitir
embættið að fengnum tillögum ráð-
herra.
Aðventistar
safna fyrir
bágstaðda
■ Aðventistar eru nú um þessar
mundir að hefja hina árlegu fjársöfn-
un sína í Reykjavík og nágrenni.
Þessi söfnun er um hálfrar aldar
gömul og síðasta ár söfnuðust tæpar
tvær milljónir og færa aðventistar
kærar þakkir fyrir það framlag.
Það fé sem safnast, verður notað til
hjálparstarfs í Afríku segir í fréttatil-
kynningu og nú þegar hafa verið reist
sjúkrahús, sjúkarstöðvar, skólar o.fl.
Aðventistar munu ganga í hús á
næstunni og vænta þess að fólk taki
þeim jafn vel og undanfarin ár.
Söfnuninni lýkur í lok september.
Skíðaskálinn fimmtugur
■ Skíðaskálinn í Hveradölum er fímmtugur í dag. í tilefni þess verður afmælisfagnaður um helgina;
boðið verður upp á hlaðborð með 50 réttum, heitum og köldum í hádegi og á kvöldin bæði laugardag
og sunnudag. Þá verður kaffihlaðborð milli kl. 2 og 6.
Húsið sem er stokkhús var upphaflega flutt inn í einingum frá Noregi og reist hér undir yfirumsjón
L.H. Möller, sem þá var formaður Skíðafélags Reykjavíkur.
Fyrir tveimur árum síðan tók nýr eigandi við húsinu, Carl Jónas Johansen, og hefur hann gert
margvíslegar endurbætur á því.
Söngur
í kvöld
Páll Jóhannesson tenór
■ Páll Jóhannesson tenórsöngvari
heldur tónleika í dag kl. 14.30 í
Austurbæjarbíói. Á efnisskránni
verða lög eftir Inga T. Lárusson,
Sigvalda Kaldalóns, Karl Ó. Runólfs-
son, P. Tosti, Verdi, Puccini ogfleiri.
Páll hefur stundað nám á Ítalíu
undanfarin 4 ár. Hann tók þátt í
alþjóðlegri söngkeppni í Novara á
Ítalíu í júní síðastliðnum og var einn
af 5 efstu í þeirri keppni og vegna
þessarar framúrskarandi frammi-
stöðu stóð honum til boða tónleika-
ferðalag um Ítalíu.
Tónlistarunnendur eru hvattir til
að láta ekki þessa tónleika fram hjá
sér fara. 10% af seldum aðgöngumið-
um munu renna til styrktar byggingar
hins nýja tónlistarhúss.
■ Páll Jóhannesson tenórsöngvari.
Kennslugreinar:
• píanó
• harmóníka,
• rafmagnsorgel
• gítar
• munnharpa
• blokkflauta
• hóptímar og einkatímar.
Allir aldurshópar.
Innritun daglega,
Símar 16239 og 666909,
Brautarholti 4.
DAGSKRÁ
Sunnudagur
15 Q Hótel Loftleiðir kl. 12:
Friðrik Theódórsson og hljómsveit ásamt gestum.
Átthagasalur Hótel Sögu kl. 19:
Tríó Guðmundar Ingólfsson - Jazzmiðlar - Emphasis on jazz -
Stórsveit. Bein útsending frá 20 til 24.
Djúpið
Sýning Gorm Valentin og Tryggva Ólafssonar.
Forsala aðgöngumiða í Karnabæ
Austurstræti og við innganginn.