NT - 14.09.1985, Blaðsíða 17

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 17
..... •. Vinsældalistar Rás2 1. (1) Dancing In The Street. Bowie & Jagger 2. (5) Rock Me Amadeus.............Falco 3. (2) Into The Groove.........Madonna 4. (3) Tarzan Boy..............Baltímora 5. (7) Shake The Disease... Depeche Mode 6. (8) Pepping Tom............. Rockwell 7. (5) Money For Nothing......Dire Straits 8. (4) We Don't Need Another Hero Tina Turner 9. (10) In To Deep ....... DeadOrAlive 10. (-) Part Time Lover ...Stevie Wonder Grammið 1. (-) Little Creatures....Talking Heads 2. (-) The Eternal Traveller Niels Henning-Orsted Pedersen 3. (2) Kona...............Bubbi Morthens 4. (1) Low Life...............NewOrder 5. (9) Don’t Forget That Beat... Fats Comet 6. (-) Fables Of The REM ..........REM 7. (3) Skemmtun............. Með Nöktum 8. (4) Theams Two.............Psychic TV 9. (10) The Dream Of The Blue Turtles. Sting 10. (8) First Circle......... Pat Metheny Fálkinn: 12tommur 1. (1) Dancing In The Street. Bowie & Jagger 2. (2) Tarzan Boy...........Baltimora 3. (3) Running Up That Hill..... Kate Bush 4. (7) We Don’t Need Another Hero Tina Turner 5. (8) Live Is Life....................Opus 6. (5) Lavendre...................Marillion 7. (-) Endless Love .........Time Bandits 8. (-) I Know The Bride ........... NickLow 9. (6) Shouldn’t DoThat................Kaja 10. (-)This Is Not America David Bowie & Pat Metheny fílí Laugardagur 14. september 1985 17 Ll W Popp píanisti. Tæknin sem þessi maður býr yfir er með ólíkindum, Úr léttri laglinunni renndi hann sér í flókinn takt og margslungin sóló, en húmor- inn sveif alltaf yfir vötnunum, bæði í leik þeirra félaga og fettum og brettum Tetes við píanóið. Meðan Niels dundaði við sín makalausu og að því er virtist fyrir- hafnarlausu sóló, stappaði Tete taktinn með fótunum, smellti fingr- um og klappaði saman lófunum. Stundum snart hann nótnaborðið, eitt andartak, eins og það væri sjóðandi heitt og Niels brosti að þessu öllu saman. Já, þetta er maður sem kann sitt fag. Niels var sjálfum sér líkur og rólegur að vanda. Hann sat með bassann sinn og töfraði fram tóna sem engin annar nær, þessa löngu drjúpandi bassatóna. Hendurnar þutu um hljóðfærið, en sjálfur sat hann, rétt eins og hann hefði ekkert fyrir þessu. Já, þeir voru frábærir og illt að þeir spiluðu einungis í 40 mínútur. Etta og tríóið Það komhlé, en það var stutt. Við eigum ekki tónlistarhús, en úr því rætist og ógrynni happdrættismiða seldust í hléinu, því enginn vill láta bíómyndir skemmileggja góðan jazzkonsert. Svo kom Etta Cameron. Hún lofaði góðu í sjónvarpinu og ekki var hún síðri á sviðinu. Tríóið sem lék undir með henni var heldur ekki skipað neinum byrjendum. Ole Kock Hansen lék sér að píanóinu, Niels Hennig plokkaði bassann og íslendingurinn Pétur Östlund lamdi trommur. Etta náði tökum á áhorfendum um leið og hún opnaði munninn. Konan kann að syngja og tæknin er mikil. Hún söng jöfnum höndum hefðbundin jazzlög, blues og stund- um mátti greina rokkkennda frasa hjá hljómsveitinni. Áhorfendur klöppuðu táktinn og margir fylgdust sveittir með klukk- unni sem hélt því miður ótrauð áfram og tíu mínútur í ellefu var allt búið. Pessi frábæra söngkona var farin af sviðinu, áhorfendur klöpp- uðu og vanræðalegur benti Ole Kock Hansen á klukkuna, bíóið var að byrja. Áhorfendur létu það ekki aftra sér og Etta kom aftur á sviðið, hún hafði tvær mínutur og þeim var vel varið. Hljómsveitin stóð sig vel. Pað var búið að hækka í bassanum og sándið var annað, en það leyndi sér ekki hver lék á hljóðfærið. Ole Kock Hansen átti góðan leik og fallega spilaði hann þegar þau léku dúett Etta og hann. Pétur okkar Östlund varð sér ekki til skammar, nei, það er langt frá því. Hann bögglaði sig saman í hnút og spilaði eins og engill, hvort sem hann notaði kjuða, eða lét fingurna dansa um settið. Það er vel þess virði að hlusta á þessa menn spila tríó. í dag og á morgun Afmælishátíð Jazzvakningar heldur áfrant. í dag klukkan 14.00 leikur Mezzoforte ásamt Dale Bar- low og Jens Winter í Háskólabíói. Þá um kvöldið verður Jazzklúbbur á Hótel Sögu, þar verða Ófétin og Emphasis on Jazz. Á morgun verður hádegisjazz á Hótel Loftleiðum. Um kvöldið verður Jazzklúbbur á Hótel Sögu. Þar verður Tríó Guðmundar Ing- ólfssonar, Jazzmiðlarar, Léttsveit Ríkisútvarpsins og Emphasis on Jazz. Klúbburinn hefst klukkan 19 og stendur til klukkan 01. ■ Bowie og Jagger skipa toppsæti vinsældalista um víða veröld. Þeir eru í fyrsta sæti á rásarlistanum og 12 tommu listanum. segir Dagbjartur Guðjónsson að Lyngum í Meðallandi sem setti Barkar þakeiningar á fjárhúsið sitt „Við vorum aðeins tvo daga að smella þakeiningunum á og unnum þó bara milli mjalta. Síðan er fjárhúsið allt miklu hlýrra og fyrir vikið get ég vetrarrúið og fengið þannig greiða og fína ull sem flokkast betur og gefur hærra verð. Ég er hæstánægður með að hafa valið Barkar þakeiningar,“ segir Dagbjartur Guðjónsson. Burðarþol Barkar þak- og veggeininga er mikið og uppsetning auðveld og fljótleg. Barkar þak- og veggeiningar henta mjög vel í flestum byggingum, einkum atvinnu- og geymsluhúsnæði, ekki síst þar sem mikils hreinlætis er krafist, s.s. í tengslum við verslun, matvælaiðnað og landbúnað. Barkar hús- einingar tryggja ótvíræðan sparnað í byggingu, viðhaldi og rekstrarkostnaði. Hafið samband og kynnist af eigin raun kostum Barkar þak- og veggeinínga • • BORKUR hf. HJALLAHRAUNI 2 ■ SÍMI 53755 • PÓSTHÖLF 239 • 220 HAFNARFIRÐI

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.