NT - 14.09.1985, Blaðsíða 25
EE
Laugardagur 14. september 1985 25
Myndi
DENNI DÆMALAUSI
„Ég vissi ekkert um hvað ég var að tala, en mamma vissi
það."
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal-
inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
• Félagsráðgjafi eða starfsmaður með
sambærilega menntun við Ellimáladeild
Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar.
Staðan er afleysingarstaða í 9 mánuði og
er laus frá 1. okt. n.k. 50% staða.
Upplýsingar gefur deildarstjóri Ellimála-
deildar í síma 621595.
• Bókasafnsfræðingur (deildarstjóri) við
Borgarbókasafn Reykjavíkur.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Borg-
arbókasafns í síma 27155.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem
þar fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 23.
september 1985.
■ Peir sem fylgdust með
bridge fyrir um 10 árum muna
sjálfsagt eftir heimsókn sviss-
neska landsliðsins hingað. Sviss-
lendingarnir voru þá heldur
'‘farnir að dala en áratuginn á
undan áttu þeir eitt sterkasta lið
í Evrópu, alitaf skipað sömu
mönnunum.
Einn þessara svissnesku
landsliðsmanna var Pietro
Bernasconi. Hann átti
„afturkomu" nú í sumar á Evr-
ópumótinu í Ítalíu, eftir nokkra
hvíld, og þótti standa sig ágæt-
lega þó Sviss sýndi enga meist-
aratakta.
Þetta spil vakti talsverða at-
hygli, ekki vegna þess að Berna-
sconi sýndi neina snilldartakta
heldur vegna þess að hann sýndi
mikinn heiðarleika - og tapaði
auðvitað stórt á því.
Norður
4 AD1073
4 KD5
♦ 73
4 985
Vestur
♦ G
4 A62
4 AK10986
4 62
Austur
4 9642
4 8
4 D2
4 KD10743
Suður
4 K85
4 G109743
4 G5
4 AG
Bernasconi sat í vestur og NS
voru Svíarnir Göthe og
Gullberg.
Vestur Norður Austur Suður
14 14 pass 2 4
3 4 psss pass 3 4
pass 4 4
Svíarnir keyrðu þarna í held-
ur hart geim, en rétt er að taka
það fram að 2ja hjarta sögn
suður sýndi ekki hjarta heldur
lofaði spaðastuðning. Þegar
suður síðan sagði frá hjartalit
með 3 hjörtum hækkaði norður.
Bernasconi spilaði út tígulás
og skipti síðan í spaðagosa, í
þeirri von að austur ætti inn-
komu á annaðhvort tíguldrottn-
ingu eða laufás. Suður tók slag-
inn með ás í borði, austur lét
tvistinn, og spilaði hjartakóng.
Og Bernasconi gaf slaginn, til
að gefa félaga sínum tækifæri til
að kalla í næsta slag ef hann ætti
aðeins 1 hjarta.
Og þetta gekk eftir. í næsta
hjarta lét austur laufatíuna,
kallaði þar með í laufi, og
Bernasconi tók með ásnum,
spilaði laufi og suður átti af-
ganginn. 11 slagiroggeimsveifla
tii Svía.
En hvað koni þetta heiðar-
leika við. Jú, í fyrsta slag hafði
austur hikað dálítið áður en
hann lét tígultvistinn, svo
Bernasconi vissi að austur átti
tíguldrottninguna. Hann lagði
sig því í líma við að láta austur
kalla í tígli, án árangurs, og
vissi, þegar hann spilaði laufinu
að það var ekki vegurinn til
vinnings.
4679.
Lárétt
1) Gosefni. 6) Lukka. S)
Tal. 10) Þæg. 12) Hasar.
13) Drykkur. 14) Aría. 16)
Venju. 17) Kveða við. 19)
Hrópi.
Lóðrétt
2) Afleit. 3) Bókstafur. 4) ,
Sár. 5) Fjárhirðir. 7) Kæti.
9) Svif.'ll) Matur. 15)
Mánuður. 16) Vcrslun. 18)
1050.
Ráðning á gátu No. 4678
Lárétt
1) Aldin. 6) JÓI. 8) Slá. 10) Löt. 12) Ká. 13) ÖÖ. 14)Ata. 16) Lök.
17) Kró. 19) Skúma.
Lóðrétt
2) Ljá. 3) Dó. 4) III. 5) Æskun. 7) Stökk. 9) Lát. 11) ÖÖÖ. 15)
Akk. 16) Lóm. 18) Rú.
__^ SJL’KRAHES
VV/ SKAGFIRÐINGA
SAUÐÁRKRÓKI
Hjúkrunar-
fræðingar
Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki óskar
að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa nú
þegar eða eftir nánara samkomulagi. Einnig
óskast hjúkrunarfræðingur með reynslu
eða sérnám í skurðhjúkrun.
Allar nánari upplýsingar um launakjör, hús-
næði o.fl. veitir hjúkrunarforstjóri í síma
95-5270.
Meinatæknir
Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki óskar
að ráða meinatækni til starfa nú þegar eða
eftir nánara samkomulagi.
Mjög góð vinnuaðstaða.
Allar nánari upplýsingar um launakjör, hús-
næði o.fl. veitir hjúkrunarforstjóri í síma
95-5270.