NT - 14.09.1985, Blaðsíða 6

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 6
 fff? Laugardagur 14. september 1985 6 llU Útlönd Spænskur kapteinn: Hótaði að eitra mat með LSD Madrid-Kcutcr: ■ Kapteinn í spænska hernum hefur verið handtek- inn fyrir að reyna að kúga fé út úr tveim matvælafyrir- tækjum með því að hóta að eitra framleiðslu þeirra með ofskynjunarlyfinu LSD. Julio Mula, sem er 41 árs gamall kapteinn í landhern- um, sendi'bréf til fyrirtækj- anna þar sem hann krafðist fimm milljóna peseta (1,2 milljónir ísl. kr.) frá hvoru fyrirtæki. Hann skrifaði bréf- in í nafni stjórnleysingjahóps sem hann kallaði „Kropotkin varðliðið" en að sögn lög- reglunnar er enginn stjórn- málahópur til með því nafni. í bréfunum var því hótað að LSD yrði blandað í vöru' fyrirtækjanna ef þær greiddu ekki kúgunarféð. Fyrirtækin höfðu samband við lögregluna sem tók að sér að „afhenda" féð. Mula var handtekinn þegar hann kom til að taka við peningunum. i; nl ■ Hver þessara manna verður næsti forsætisráðherra Svía? Talið frá vinstri: Forystumenn vinstriflokkanna Lars Werner og Olof Palme. Þrír forystumenn borgaraflokkanna Bengt Westerberg, Thorbjörn Fálldin og Ulf Adelsohn. Kosningarnar í Svíþjóð: Vinstrimönnum spáð naumum meirihluta Óákveðnir kjósendur geta ráðið úrslitum ■ Sovéskar uppskeruvélar. Þar er búist við um 190 milljón tonna uppskeru af korni sem er töluverð aukning frá því í fyrra þótt það sé langt frá því að vera jafn mikil uppskera og Sovétmenn stefndu að. Guðrún Garðarsdóttir skrífar frá Svíþjóð: ■ Mikillar taugaspennu gætir nú hér í Svíþjóð vegna kosning- anna nú á sunnudaginn, en þá munu rúmlega 6 milljónir kjós- enda ganga til kjörklefanna. Hver úrslitin verða er erfitt að spá um en samkvæmt skoðana- könnun sem gerð var milli 8.-10. september meðal 800 kjósenda mun ríkisstjórn jafnaðarmanna halda velli með naumum meiri- hluta eða 1.5%. Niðurstöðurnar eru þær að vinstrimenn fá samtals 49.6% og 177 þingsæti (sósíaldemó- kratar 44.9% og kommúnistar 4.7%). Hægrimenn fá samtals Árið 1985: Mesta kornár í sögu mannsins Róm-Reuter: FAO, er árið sem nú er að liöa ■ Samkvæmt upplýsingum langmesta kornár sögunnar. Matvæla- og landbúnaðarstofn- Samanlögð uppskera hrís- unar Sameinuöu þjóðanna, grjóna, hveitis og annarra korn- ísrael: Stórtap vegna hvíldardagsins Tcl Aviv-Rcutcr: ■ Stjórn hins ísraelska flugfé- lags El Al tilkynnti fyrir skömmu að síðastliðið bók- haldsár hefði fyrirtækiö tapað sem nemur 400 milljónum ísí. kr. Þetta er mikil breyting frá árinu áður er flugfélagið hagn- aðist um næstum 520 milljónir ísl. kr. í tilkynningu stjórnar- innar segir að ein helsta ástæðan fyrir þessari breytingu sé bann er var lagt við flugi El Al á hvíldar- og hátíðisdögum gyð- inga fyrir tveimur árum síðan. Það var ríkisstjórn Begins sem korn á fyrrnefndu banni fyrir tilhlutan strangtrúaðra gyðinga. Það þýðir að fíugvélar El Al rnega ekki fljúga frá miðnætti á föstudegi og fram að miðnætti á laugardegi. Á meðan er hins vegar erlendum flugfé- lögum leyfilegt að halda uppi áætlunarflugi til ísrael. Sérstak- ir 'hátíðisdagar bætast svo við þetta. í tilkynningu stjórnarinnar sagði ennfremur að mikil aukn- ing í flutningi vöru og farþega hefði komið í veg fyrir að tapið yrði enn meira en raun ber vitni. tegunda er áætluð 1.836 milljón tonn á þessu ári sem er 34 milljón tonnum meira en á sein- asta ári. Útlit er fyrir aukna uppskeru í mörgum Afríkulöndum og í So- vétríkjunum og líklega éinnig á norðurslóðum og í Asíu þótt slæm haustveður gætu hugsan- lega dregið úr uppskerunni þar. Uppskeruspá FAO er níu milljón tonnum hærri en fyrir einurh mánuði þar sem veður í ágúst var betra en búist hafði verið við. FAO spáir því nú að bessi góða uppskera leiði til þess að umframbirgðir af korni í heiminum aukist um 35 milljón tonn á þessu ári og verði 340 milljón tonn. Góð kornuppskera í mörgum korninnflutningslöndum mun leiða til minnkandi eftirspurnar eftir korni á heimsmörkuðum. FAO spáir því að heimsvið- skipti með korn á tímabilinu 1. júlí á þessu ári þar til 30. júní árið 1986 verði 202 milljón tonn sem er átta prósent samdráttur frá því á síðastliðnu ári. Gjald- þrota metí Japan Tokyo-Rculcr: ■ ’ Skuldir fyrirtækja, gjaldþrota í mánuði, námu japanskra sem urðu í seinasta samtals 854,38 milljörðum yena (rúmlega sextíu milljarð- ar ísl. kr.). Þetta er mesta skuld gjaldþrotafyrir- tækja í einum mánuði í Japan. Mestu gjaldþrota- skuldirnar stöfuðu af gjaldþroti japanska skipafélagsins Sanko sem skildi eftir sig 520 rnill- jarða yena skuld. Gjald- þrot Sanko-skipafélags- ins var mesta gjaldþrot í sögu Japans. Gjaldþrotaskuldir í júlimánuði námu 585,72 núlljörðum yena sem var met þar til tölur yfir ágústmánuð voru teknar saman. Alls urðu 1.484 fyrirtæki gjaldþrota í ágúst sem er 5,9% fækk- un frá því í júlí og 11,8% fækkun frá því í sama mánuði í fyrra. 48.1% og 172 þingsæti (móder- atarnir 24.3%, Folkpartiet 10.4% S+KDR 13.4%). Skoðanakönnunin sýnir fram á vaxandi fylgi Folkpartiet en þeim er spáð 16 nýjum þingsæt- um. Bengt Westerberg forystu- maður flokksins nýtur mikilla vinsælda og virðist honum hafa tekist að ná aftur þeim atkvæð- um sem flokkurinn missti í síð- ustu kosningum. Kosningabaráttan er nú kom- in á lokastig og lítill tími eftir til atkvæðaveiða. í gærkveldi, þann 13. sept., gátu kjósendur horft og hlustað á forystumenn þingflokkanna og ráðgjafa þeirra í beinni útsendingu sjón- varps og útvarps. Lokaumræð- urnar telja margir eiga þýðing- armikinn þátt í að virkja hóp óákveðinna kjósenda en sá hóp- ur getur ráðið úrslitum. Jafnvel geta úrslit kosninganna því afráðist í þessum umræðum sem fremur snerust um mælsku, útlit og framkomu en málefni. ’^j'Lockheecf ^ (riviai; slup« lo irexcKniioii. ig vtup« lo imngimiíon. The noxl ju'netalion fiiihter uir- i'ríift 'vill bavc feai'soinecapiibilities: far Miporior to tlw fightcrs oitoday. It will silso hávc (o mccl lar bigíicr fcquircrrkmts fbr rdiabiliiy, casc of maintcnancc. aiul cost -dl'cctivvncss. Ncw l.iK'khct'd dcsigns, such as tltc Advanccd Taclital Fichtcr. will a-sult in a tr.«ally now kind of air craft. using cxciting intKivutUms in doinanding exivllcncc in <uch ncw technológics as Unv obstntabics, compmational aerodvnamio. tínifi- cial imclligcncc. and avionicsimc- gration, Ncw conccpis in composite and mctallic structurcs prtKÍuctirm will cnsttrc that L.KkltccTs AIF riiccts stririgcm dcsign-ios'ost goals. Another progrum dcmandtnc thc læsi iii lovbnoloj’.y is lancklwcd's dcsign coneepts for the Trans- ntmosphcricVchíclc Þart suhsome planc. part spacccraft. thc TAV will havc the capabiliiy to lly’ civast toeoast injust 1 ?. fiiinuics Lockhccd is iiow eoridueiing agcrcssiw rcscarch and dcsclopnu-nt in thc tcchnoiogics dcmanded by thcsc ptograms and by olhcr hichly classiiicd prograrns By uuistcrinj! atbanccd lcchnolo- cics, f..i>ekhecd grcatly strcngthcns its capabilúii's to inanagc thc impor- tant long-term contracls vital to our cmmtrys ddcnsc. ■ Auglýsingin sem birtist í The Economist þar sem Lockheedfyr- irtækið kynnir nýjustu tegund fljúgandi drápstækja sem nú er verið að hanna. I yfirsögn auglýsingarinnar segir: Nýjung - orrustuþota sem skýtur niður hugmynd samtímans um það hvernig orrustuþota á að vera. Umsjón Ragnar Baldursson og Sturla Sigurjónsson Stríðsvélar geimaldar auglýstar í tímaritum ■ Það er greinilega farið að styttast í að vígvélar geimaldar æði um himinhvolfið á milli heimsálfanna á örfáum mínút- um og steypi sér yfir löndin vopnaðar tölvustýrðum há- tæknivopnum. Bandarísku flug- vélaverksmiðjurnar Lockheed eru þegar farnar að auglýsa að fyrirtækið muni framleiða slík ægívopn áður en langt um líði. Lockheed birti heilsíðuaug- lýsingu í alþjóðatímaritinu The Economist nú fyrir viku þar sem segir að fyrirtækið sé að undir- búa framleiðslu á geimloftfari sem sé bæði geimfar og hljóðfrá orrustuþota. Geimloftfar þetta mun geta flogið á tólf mínútum milli vestur- og austurstranda Bandaríkjanna sem er litlu styttra en yfir Atlantshafið. í auglýsingunni segir að ný kynslóð orrustuþota hafi ógn- vekjandi hæfileika og að þæi verði margfalt fullkomnari er orrustuþotur nútímans. Þar ei greint frá því að Lockheed vinn að gerð nýrrar tegundar orr- ustuþotu sem sé „algjörlega nj tegund flugvélar sem not spennandi nýjungar í efnivið oj hráefnum."

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.