NT - 14.09.1985, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. september 1985 15
Málflutningur í lögbannsmáli Rainbow í gær:
Dómarinn tók sér
umhugsunarfrest
Málið snýst um verðlag á flutningum að mati dómara
Frá Árna I*. Jónssyni, fréttamanni NT í
Washington:
■ Kæra Rainbow Navigation
skipafélagsins á hendur banda-
rískum stjórnvöldum fyrir að
bjóða út hernaðarflutninga milli
Bandaríkjanna og íslands var
tekin fyrir í undirrétti í Was-
hington í gær en engin niður-
staða fékkst í málinu.
„Það gerðist ekki annað en
það að málsaðilar lögðu fram
gögn og dómarinn tók sér frest
til að kanna þau frekar" sagði
Hörður H. Bjarnason fulltrúi t
íslenska sendiráðinu í Washing-
ton í samtali við NT eftir réttar-
höldin .
Hörður sagði ómögulegt að
segja hvenær vænta mætti niður-
stöðu. „í>að gæti orðið eftir viku
eða eftir mánuð.“
Hörður sagði að svo virtist
sem dómarinn, Green að nafni,
legði mikla áherslu á að málið
snérist um verðlag, hvort rétt-
lætanlegt væri að bjóða flutning-
ana út þar sem verðið hefði
verið of hátt.
Verjandi hélt því fram að þar
sem ákvörðun flotamálaráð-
herra um útboð væri byggð á
pólitískum grundvelli, væri það
í raun ekki á valdi dómara að
úrskurða í málinu.
Lögmaður Rainbow skipafé-
lagsins ítrekaði að málið snérist
fyrst og fremst urn lagabók-
stafinn. Hvort ákvörðun stjórn-
valda um útboð stangaðist á
við bandarísk lög frá 1904, sem
kveða á um að allir bandarískir
hernaðarflutningar skuli inntir
af hendi af bandarískum fyrir-
tækjum.
Af hálfu stjórnvalda var bent
á að flotamálaráðherra hefði
stuðst við fyrirvara í lögum,
þegar hann tók ákvörðun sína,
sem segir að hægt sé að bjóða
flutninga út ef farmgjöld séu
óhófleg eða ósanngjörn.
Fulltrúar Rainbow vörðu háa
verðlagningu sína á flutningun-
um með þeirn rökum að hún
væri tilkomin vegna samkeppni
tveggja íslenskra skipafélaga
um markaðinn áður en Rain-
bow tók við flutningunum á
síðasta ári.
Verðbólgan um 36%
Um 4% verð-
hækkun á mat
■ Vísitala framfærslukost-
naðar hækkaði um 2,61% frá
ágúst til september. Sú
hækkun jafngildir 36,1%
hækkun á heilu ári, sem er
sama hækkun og í raun hefur
orðið síðustu 12 mánuðina.
Er það mesta hækkun á einu
ári sem orðið hefur frá því í
maí 1984.
Rúmlega þriðjungur
hækkunarinnar s.l. mánuð
varð vegna3,92% hækkunar
á matvörulið vísitölunnar.
Sama hækkun varð á áfengi
og tóbaki og heldur meiri,
eða rúmlega 4% hækkun á
Hafnarfjörður:
Verður Riddar
inn fluttur?
■ Þær sögur ganga nú fjöllum
hærra í Hafnarfirði, að Sjöfn
Gunnarsdóttir, eigandi
veitingahússins Riddarans,
hyggist losa húsið af grunninum
og flytja það í annað hérað, þar
sem skynsamlegri áfengispólitík
ríkir. NT hafði samband við
Sjöfn og bar þetta undir hana.
„Þetta er í sjálfu sér óvitlaus
hugmynd því eitthvað verð ég
að gera við húsið, en ef satt skal
segja þá frétti ég þetta sjálf fyrst
utan af mér.“
Sjöfn sagði að mjög auðvelt
væri að flytja húsið. f>að hefði
ekki verið byggt á grunninum
eins og yfirleitt tíðkast, heldur
fært á hann eftir að það var
fullsmíðað. Að sögn Sjafnar
gengur reksturinn ekki sem
skyldi því veitingahúsið væri
byggt upp með vínveitingar í
huga. Þó sagðist hún ætla að
klóra í bakkann svo lengi sem
hún gæti fjárhagslega, en það
væri erfitt því húsið var mjög
dýrt í byggingu.
( Um næstu mánaðamót opnar
svo enn eitt veitingahúsið í Firð-
inum, en það er Hansensbúð,
sem nú hefur verið gerð upp.
Hafa eigendur hússins fengið
vilyrði bæjarstjórnar um vín-
veitingaleyfi; hvort sem það
nægir eður ei.
„Auðvitað er þetta út í hött
að Hafnfirðingar þurfi að sækja
alla svona þjónustu til Reykja-
víkur,“ sagði Sjöfn að lokum.
fatnaði, húsgögnum og fleiru
til heimilishalds.
Af einstökum tegundum í
matvöruliðnum varð mest
hækkun á kartöflum 12,4%
mjólkurvörum 8,3%, feit-
meti 7,2%, kaffi og súkku-
laðivöruin 6,6% og sykri
5,1%. Brauð hafa hækkað
um 3,2% og kjöt og fiskur.
um 2,3%. Hækkanir þessar
valda því að „vísitölufjöl-
skylda" sem komst af með 3
þús. krónur til helgarinn-
kaupanna f ágústbyrjun
verður nú að bæta um 120
krónum við.
Forseti íslands:
Ekið á konu
■ Kona var flutt á slysadeild í gærdag, eftir að bifreið hafði ekið utan í hana. Meiðsli konunnar voru
óveruleg. Slysið varð í Lækjargötu um klukkan 16. Konan og ökumaðurinn halda þvi bæði fram að
þau hafl farið yfír á grænu. Að sögn lögreglu voru vitni að óhappinu. NT-mynd: Ruiicn
■ Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, heldur á
morgun utan í opinbera
heimsókn. Fyrst mun Vigdís
hafa viökomu á Spáni og
hitta þar helstu ráðamenn
þjóðarinnar. Frá Spáni held-
ur Vigdís áleiðis til Hollands
á miðvikudag.
I Hollandi mun Beatrix
'Hollandsdrottning taka á
móti henni. Dagskráin í
Hollandi samanstendur af
skoðunarferðum og fundar-
höldum.
Forsetinn mun dvelja í
Kaupmannahöfn dagana
21.-25. þ.m. Að þeim tíma
liðnum er ferðinni heitið til
Björgvinjar í Noregi.
Forsetinn kemur heim
sunnudaginn29. september.
Þrjú skip Hafskips
á nauðungaruppboð?
Alger handvömm segir stjórnarformaðurinn
■ Þrjú af skipum Hafskips hf. ingablaðinu í gær. Um er að
eru auglýst á nauðungarupp- ræða skipin: MS Langá, MS
boði þann 10. október næst- Laxá og MS Selá. Krafan er
komandi, að beiðni Trygginga- tæpar 700 þúsund krónur í hvert
stofnunar ríkisins. Auglýsingin skip.
birtist í þriðja sinn í Lögbirt- NT hafði samband við Ragn-
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Enn dregst afhendingin
■ Enn dregst að Landhelg-
isgæslan fái nýju Dolphin
þyrluna afhenta. Nú hafa
þær upplýsingar borist frá
Frakklandi, þar sem verk-
smiðjurnar eru staðsettar, að
líklega verði hún tilbúin til
afhendingar undir lok mán-
aðarins.
Jón Pálsson yfirflugvirki
hjá Landhelgisgæslunni
sagði í samtali við NT í gær
að það væri betra að fá
þyrluna nokkru seinna, og
þá í 100% ásigkomulagi,
heldur en fyrr.
Jón benti hinsvegar á, að
því nær sem liði vetri yrði
meiri hætta samfara flugi
yfir opið haf á leið heim.
Afhending þyrlunnar hef-
ur dregist, fyrst og fremst
vegna tæknilegra vandamála
sem komu upp við ísetningu
radars í þyrluna. Þá hefur
verið leystur smávægilegur
vandi, sem upp kom við
ísetningu innrauðu mynda-
vélarinnar. Sá vandi er nú
þegar yfirstiginn. Þrír menn
á vegum gæslunnar fara utan
til þess að taka við þyrlunni.
Tveir flugmenn og einn flug-
virki. „Við förum ekki fyrr
en við höfum fengið ákveðna ‘
dagsetningu, og getum geng-
ið að þyrlunni tilbúinni,“
sagði Jón.
ar Kjartansson stjórnarformann
hjá Hafskip. Hann sagði að það
væri misskilningur og klúður að
þetta hefði farið í Lögbirtinga-
blaðið. „Þetta er vegna lífeyris-
greiðslna í Lífeyrissjóð sjó-
manna. Það voru alger mistök
og klúður sem urðu þess vald-
andi að auglýsingin datt inn í
Lögbirtingablaðið, vegna van-
skila af okkar hálfu, eða ekki
hafði verið staðið nákvæmlega
við samning. Þetta er alger
handvöntm, en ég veit að nú er
verið að ganga frá þessu,“ sagði
Ragnar.
Arni Gunnarsson lögfræðing-
ur hjáTryggingastofnun ríkisins
sagði í samtali við NT í gær að
ástæðan fyrir því að sama upp-
hæð væri á öllum skipunum væri
að þetta væri gömul skuld fyrir-
tækisins sem hefði veriö deilt
niður á skipin þrjú. „Það er
verið að ganga frá þessu og þeir
eru að nálgast það að verða í
lagi. Þetta verður að hafa sinn
gang í kerfinu. Ég á ekki von á
að þetta fari !engra,“ sagði
Árni.
Hjálparsveitir skáta:
17 sveitir
leita í Vest-
mannaeyjum
■ Sautján hjálparsveitir
víðsvegar af landinu héldu
til Vestmannaeyja í gær.
Um klukkan 21 í gærkvöldi
hófst umfangsmikil leitar-
æfing í Vestmannaeyjum.
Ekki bara Heimaey, heldur
líka öðrum eyjum í grennd-
inni. Bátar, hundar og
mannfjöldi setja svip sinn á
æfingarnar. Þær stóðu í alla
nótt og búist var við því að
leitarlok yrðu í kringum
ellefuleytið nú í morgun.
Alls eru um 250 manns
sem þátt taka í ieitinni.
Magnús Þorsteinsson sveit-
arforingi Hjálparsveitar
skáta í Vestmannaeyjum
vildi ekki tjá sig mikið um
að hverju yrði leitað og
hvar bæri að leita. „Þetta er
enn leyndarmál. Við undir-
búum æfinguna og sveitirn-
ar sem koma leita að fólk-
inu.“ Hann sagði einnig að
eyjaskeggjar spyrðu mikið
en lítið væri gefið upp.
Megnið af sveitunum sem
þátt taka í æfingunni er frá
Hjálparsveitum skáta, en
einnig er Björgunarsveitin
Stakkur frá Vík í Mýrdal
með í leitinni ásamt Flug-
björgunarsveitum frá Ak-
ureyri og Reykjavík. Mikið
var um að vera í Eyjum í
gær. Herjólfur fór aukaferð
og flug var í meira lagi.
í kvöld verður síðan fagn-
aðarhóf í tilefni tuttugu ára
afmælis Hjálparsveitar skáta
í Vestmannaeyjum.