NT - 14.09.1985, Blaðsíða 10
Laugardagur 14. september 1985 10
Evrópumót íslenskra hesta í Svíþjóð:
Umsjón Gylfi Þorkelsson
Misjafnt gengi Islendinganna
sumir komu á óvart - öðrum gekk miður
■ Dagana 15.-18. ágúst síðastliðinn
fór fram í Svíþjóð Evrópumót fyrir
eigendur íslenskra hesta, eins og
flestir hestaáhugamenn eflaust vita.
Pegar hefur verið fjallað nokkuð um
mótið í öðrum fjöhniðlum, en betra
er seint en aldrei. Sjö hestar, og
knapar, tóku þátt í mótinu fyrir
íslands hönd. Hreggviður Eyvindsson
sat Fróða frá Kolkuósi. Kristján
Birgisson sat Hálegg frá Syðra-Dals-
gerði, Eiríkur Guðmundsson sat
Hilding frá Hofstaðaseli, Lárus Sig-
mundsson sat Hörð frá Bjóluhjáleigu,
Sigurbjörn Bárðarson sat Neista frá
Kolkuósi, Aðalsteinn Aðalsteinsson
sat Rúbín frá Stokkhólmi og Bene-
dikt Þorbjörnsson sat Styrmi frá Seli.
Auk þessara sat Sigurbjörn Bárðar-
son hryssuna Hildu frá Ólafsvík á
kynbótasýningu sem nú var í fyrsta
skipti meðal atriða í Evrópumóti.
Hilda var eina hrossið sem íslend-
ingarnir fóru með til að taka þátt í
þessari sýningu. Hún stóð efst af
hryssunum og vakti mikla athygli.
Margir töluðu um hana sem besta
hrossið á þessu Evrópumóti. Við sem
heima sátum munum cftir henni frá
Fjórðungsmóti Sunnlendinga sem
haldið var í Reykjavík í sumar en þar
lenti hún í 2. sæti í flokki einstakra
hryssa 6 vetra og eldri.
Ein önnur hryssa hlaut fyrstu vcrð-
laun á Evrópumótinu. Það var
Hrafnscy frá Syðra-Vallholti, dóttir
Hrafns 802 og Gjóstu 3782.
Stóðhestarnir sem dæmdir voru,
voru 8 talsins, tveimur fleiri cn hryss-
urnar. Tveir af þeim hlutu fyrstu
verðlaun. Gáski frá Gullberastöðum,
sonur Bægifótar 840 og Bliku 5883 frá
Vallanesi fékk 8,25 og Prati frá
Hlöðutúni, sonur Hrannars frá Sel-
fossi og Nætur 3711 frá Hlöðutúni
fékk 8,10. Aðrirvoru nokkuð neðar.
Það er óhætt að segja að frammi-
staða Benedikts Þorbjörnssonar hafi
komið mest á óvart en hann sigraði í
5-gangi á Styrmi frá Seli. Eftir for-
keppnina voru þeir Benedikt og Jó-
hannes Hoyos á Fjölinni frá Kvía-
■ Benedikt Þorbjörnsson á Styrmi
vann flmmganginn.
NT-mynd: Karl Guðlaugsson
bekk hæstir með 58,80 stig en Bene-
dikt tryggði sér öruggan sigur í úr-
slitunum, hlaut þá 65,70 stig. Hoyos
datt hinsvegar niður í fjórða sæti en
Piet Hoyos, bróðir Jóhannesar, varð
annar á Sóta frá Kirkjubæ.
í B-úrslitum sigraði Sigurbjörn
Bárðarson á Neista frá Kolkuósi með
61,70 stig en það er aðeins meira en
neðsti hestur í A-úrslitum fékk. Það
er rétt að taka það fram að fimm efstu
komast í A-úrslit. Aðalsteinn Aðal-
steinsson lenti í 10. sæti á Rúbín.
voru einu íslensku keppendurnir sem
komust á blað í Dressúr, lenti í 10.
sæti og Hreggviður Eyvindsson náði
4. sæti í víðavangshlaupi á Fróða.
Benedikt náði og lengst í gæð-
ingaskeiði, lenti í 6. sæti með 62,5
stig. Þeir Aðalsteinn Aðalsteinsson
og Eiríkur Guðmundsson voru
dæmdir úr leik. Aðalsteinn fyrir að
mæta ekki á réttum tíma er hann var
kallaður upp og Eiríkur fyrir að hafa
ekki hjálm á hausnum. Það dugar
ekkert „elsku mamma" í þessari
keppni. Ef þú ert ekki mættur og
gerir ekki það sem þú átt að gera
þegar þér er sagt að gera það, er alveg
eins hægt að gleyma frekari þátttöku.
Sem dæmi má taka að Walter Feldm-
■ Sigurbjörn Bárðarson komst í
A-úrslit í tölti á Neista frá Kolkuósi.
NT-mynd: Karl Guölaugsson
■ Johannes Hoyos varð Evrópu-
meistari í flmmgangsgreinum á Fjölni
frá Kvíabekk.
NT-mynd: Karl Guðlaugsson
■ í hindrunarstökkinu þurftu hestarnir að stökkva yfir víkingaskip.
NT-mynd: Karl Guðlaugsson
Kristján Birgisson náöi lengst ís-
lendinganna í fjórgangi. Hann sat
Hálegg frá Syðra-Dalsgerði og hlaut
54,40 stig og fimmta sæti. Lárus
Sigmundson náði 8. sæti á Herði og
Hreggviður og Fróði lentu í 14. sæti.
Sigurvegarinn í fjórgangi varð hins-
vegar Þjóðverjinn Daniela Schmitz á
hestinum Seifi frá Kirkjubæ sem er
sonur Glóblesa 700 frá Hindisvík og
Glóðar frá Kirkjubæ.
1 tölti gerðust þau stórmerki að
Sigurbjörn Bárðarson komst í A-úr-
slit á Neista frá Kolkuósi og lenti í 6.
sæti af 7. Hann vareini íslendingurinn
sem komst í úrslit í tölti.
Það voru Þjóðverjarnir sem einok-
uðu töltið, eins og svo oft áður. Þeir
áttu fjóra efstu í A-úrslitum. Sigur-
vegarinn var Wolfgang Berg á Funa
sem er sonur Varðar 615 frá Kýrholti
og Han-Georg Gundlach varð annar
á Skolla.
Benedikt Þorbjörnsson og Styrmir
■ Þesssir kepptu fyrir íslands hönd: Frá vinstri Aðalsteinn á Rúbín, Sigurbjörn á Hildu, Hreggviður á Fróða,
Kristján á Háleggi, Eiríkur á Hildingi, Bcnedikt á Styrmi og Lárus á Herði. NT-mynd: Karl Guðiaugsson
■ Eiríkur Guðmundsson á Hildingi.
NT-mynd: Karl Guðlaugsson
■ Lárus Sigmundsson á Herði
NT-mynd: Karl Guðlaugsson