NT - 14.09.1985, Side 5

NT - 14.09.1985, Side 5
Laugardagur 14. september 1985 5 Bíræfnir þjófar á Akureyri: Stálu hjóli lögregluþjóns ■ Brúnu reiðhjóli af Raleigh gerð var stolið frá lögregluþjóni á Akureyri um síðustu helgi. Hjólið var fyrir utan heimili hans á Akureyri - Skarðshlíð 26. Porsteinn Hjaltason lögregluþjónn á Akureyri eigandi hjólsins sagði í samtali við NT að sér fyndist sem þjófar á Akureyri væru orðnir ansi bíræfnir að stela frá lögregluþjónum. „Petta var að vísu ekki merkt lögreglunni, en það er aldrei að vita hvar þessir menn láta staðar numið.“ Þorsteinn sagði ennfremur að þetta væri um tilfinnanlegt fjárhagslegt tjón fyrir sig og vonaðist hann til þess að sá sem tók hjólið sjái sóma sinn í því að skila því aftur. Grunnskólinn á Hvammstanga enn í gamla skólahúsinu: Engir smiðir fengust til að byggja það nýja ■ Skortur á smiðum í sumar varð til þess að ekki reyndist unnt að flytja í nýtt grunnskólahús á Hvammstanga í haust. „Þar sem allir smiðirnir hérna voru uppteknir í öðru verkefni á staðnum. ákvað verktakinn sem séð hefur um grunnskólahúsið að auglýsa eftir smiðum í sumar," sagði Kristján Björnsson oddviti í samtali við NT. „Síðan var auglýst fram eftir sumri, en enginn fékkst í verkið, það virtist hvergi vera hægt að fá smiði. Það var ekki fyrr en seinni part sumars að við fengum menn, en þá var fyrirsjáan- legt að ekki yrði af flutningi grunn- skólans í nýja húsið fyrir haustönn." Það er því greinilegt af ummælum Kristjáns að smiðir virðast hafa haft nóg að gera í sumar a.m.k. á Norð- vesturlandi, en hvort verkefnin verða næg á komandi vetri var spurning sem beint var til Guðlaugs Stefánssonar hagfræðings Landssambands iðnað- armanna, en liann hefur undanfarið kannað atvinnuhorfur smiða á land- inu fyrir veturinn. „Ég tel að atvinnuhorfur smiða í vetur séu óvenju slæmar, en það er þó breytilegt eftir landshlutum," sagði Guðlaugur. „Þannig her minna á atvinnuleysi í þessari grein á Norður- landi vestra heidur en þegar austar dregur, og getur það skýrt þann skort á smiðum sem varð til þess að ekki var hægt að taka í notkun nýja grunnskólann á Hvammstanga í haust. Einnig hefur verið mikil bygg- ingarvinna á Suðurnesjum, en lítið um að vera á Norðvesturlandi, jafnvel í Reykjavík, enda hefur fasteigna- markaðurinn dregist saman hér síð- asta ár.“ Guðlaugur sagði að lokum, að í sjálfu sér væru nóg verkefni t.d. á Reykjavíkursvæðinu. hins vegar eru byggingarmeistarar farnir að finna fyrir því að fjármagn er ekki fyrir hendi til að leggja út í byggingafram- kvæmdir, það setur stólinn fyrir dyrnar. Nýlistasafnið: Átta erlend- ir lista- menn -og allir tengjast „Nýja málverkinu“ ■ Átta listamenn opna sýningu í Nýlistasafninu í kvöld. Þeir eiga það sameiginlegt að tengjast því sem hér ■ Mynd unnin með blandaðrí tækni eftir Stefan Szczesny. hefur verið kallað „Nýja málverkið". Listamennirnir heita Gerwald Rockenschaub, Jan Mladowsky, Jan Knab, John van't Slot, Juliao Saram- ento, Peter Angermann, Stefan Szczesny og Tomas Stimm og þeir hafa sýnt út um allan heim. Gerwald sýnir þrjú olíumálverk sem mynda eina heild. Jan Knab sýnir fjórar teikningar af trúarlegum toga, Jan Mladowsky er með fjórar myndir, málaðar með akrýllit á pappír. John van't Slot sýnir fimm gouache myndir og Juliao Saramento sýnir þrjár akrýlmyndir. Peter An- germann sýnir hins vegar átta filt- pennateikningar, Stefan Szczesny sýnir tvær myndir með blandaðri tækni og Tomas Stimm tólf gouache myndir sem sýna eðlilegt og frjálslegt bað- strandalíf. Sýningin stendur til sunnudagsins 22. september og er opin daglega frá kl. 16-20. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 Nýr eða notaður? Alla sem reynslu hafa af bdavið- skiptum langar að eignast nýjan b(l. Hvers vegna? Ekki endilega vegna slæmrar reynslu af notuðum bílum. Notaðir bílar geta verið nánast eins góðir og nýir. Þú getur verið mjög heppinn og fengið vel með farinn bíl á verði sem er í litlu samræmi við aldur og útlit. En þú getur líka verið óheppinn. Þú veist aldrei fullkomlega hvort btllinn er í þv( ástandi sem hann lítur útfyrirað vera. Þú ert ekki öruggur. Og það er kjarni málsins. Þú tekur áhættu. % Með nýjum bíl kaupirðu öryggi. Auk þess fylgir því sérstök án^egja að setjast undir stýri í bíl sem kemur „beint úr kassanum". B(l sem þú kynnist betur en nokkur annar. Við bjóðum greiðslukjör sem jafnast fyllilega á við það besta sem gerist á markaði notaðra bíla - og tökum notaða bílinn þinn upp í. Láttu okkur um að taka áhættuna!

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.