NT - 14.09.1985, Side 7

NT - 14.09.1985, Side 7
LlL Laugardagur 14. september 1985 Utlönd Spánn: 120.000 sækja um 2.093 störf Mudrid-Reuter ■ Rúmlega 120.000 manns sóttu um stöður 2.093 póstþjóna á Spáni að sögn talsmanns spænsku póstþjónustunn- ar. Atvinnuleysið á Spáni er meira en í nokkru öðru Evrópulandi. Að sögn yfirvalda eru nú 19,3 prós- ent vinnufærra manna at- vinnulaus þarílandi. Gordievski: Var um árabil gagnnjósnari Starfaði fyrir dönsku leyniþjónustuna Kuupmannahöfn-Reuter. ■ f fyrradag sagði danski dómsmálaráðherrann, Erik Ninn-Hansen, að sovéski KGB- foringinn Oleg Gordievski hefði um langt skeið verið gagnnjósn- ari í þágu dönsku leyniþjónust- unnar. Gordievski starfaði við sovéska sendiráðið í Kaup- mannahöfn árin 1966-70 og ■ Mitterrand Frakklandsforseti Þeir segja að kjarnorkutilraunir vopnaherafla. Mitterrand á Kyrrahafi: og Hernu varnamálaráðherra hafa í nógu að snúast þessa dagana. i Kyrrahafi séu forsenda þess að Frakkar geti viðhaldið kjarnorku- 1972-78. Þessi uppljóstrun ráðherrans kom fram í viðtali við danska sjónvarpið. Hann staðfesti að Gordievski hefði komið ómetanlegum upplýsingum áleiðis til dönsku leyniþjónust- unnar og að Bretar hefðu jafn- framt haft not af honum. Erik Ninn-Hansen var harðlega gagnrýndur í gær fyrir að vera svo opinskár. Til dæmis krafðist jafnaðarmaðurinn Ole Espers- en, sem var sjálfur eitt sinn dómsmálaráðherra, þess að málgefni ráðherrans yrði tekin fyrir af þinginu. Getgátur stangast á um það hvort flótti Gordievskis tengist á einhvern liátt Tiedge-málinu í V-Þýskalandi. Hvað sem því líður er talið að KGB-foringinn hljóti að hafa verið einn mikil- vægasti njósnari Vesturlanda innan sovésku leyniþjónustunn- ar í lengri tíma. f tilefni af því hefur verið rifjað upp að árið 1962 var KGB-foringinn Penk- owsky handtekinn í Sovétríkj- unum ásamt breska leyniþjón- ustumanninum Greville Wynne. Áður en til handtöku kom hafði Penkowsky beðið um að fá hæli á Vesturlöndum vegna gruns um að njósnir hans hefðu komist upp. Breska leyni- þjónustan ráðlagði honum að bt'ða. Svo fór að Penkowsky þessi var handtekinn ásamt tengilið sínum Wynne. Fyrr- nefndur var tekinn af lífi og síðarnefndur fangelsaður. Talið er að breska leyniþjónustan hafi hugsanlega viljað forðast endur- tekningu. Nú bíða Gordievskis 6 mán- aða yfirheyrslur á ókunnum stað i Bretlandi og koma þar líklega fleiri við sögu en Bretar einir. Algengt er að fyrrverandi njósn- arar fari svo í felur með nýtt nafn og jafnvel nýtt útlit vegna ótta við hefndir. Ólánsför hjá forseta Stolt Frakka sprakk í lofti Kourou-Reuter: ■ Óvænt ferð Mitterrand Frakklandsforseta til Frönsku Guíneu og Frönsku Polynesíu hófst fremur bagalega. Tækni- leg óhöpp geta hugsanlega orðið til þess að gera tilgang ferðar- innar að engu. Er sérstök Concord þota for- setans átti að hefja sig til flugs frá París komu í ljós bilanir sem töfðu brottför. Loks er Mitter- rand var kominn til Kourou í Frönsku Guíneu til þess að fylgjast með því er Ariane-eld- fíaug væri skotið upp í himin- geiminn með gervitungl inn- byrðis þá brást tæknin þar einn- ig. Vegna bilunar neyddust stjórnendur flaugarinnar til þess að sprengja hana í lofti. Ferð forsetans sem er heitið til tilraunasvæðis Frakka á Mur- uroa-rifi í Frönsku Polynesíu er líklega ætluð til þess að treysta orðstír Frakka í um- ræddum heimshluta en fyrr nefn óhöpp eru ekki beinlínis til þess fallin að vekja traust Kyrrahafs- þjóða á öryggi kjarnorkutil- rauna. Er tilkynnt var í París að Mitterrand hygðist fara til Kyrrahafsins til þess að skoða franska tilraunasvæðið bárust áköf mótmæli bæði frá Nýja Sjálandi og Ástralíu. Ferðin er talin vera mjög ögrandi fyrir þær sakir að nú beinast mörg spjót gegn frönsku stjórninni vegna tilræðisins við skip Græn- friðunga og tilraunanna á Mur- uroa-rifi. Ekki er ljóst hvort kjarnorku- tilraun fer fram meðan Mitter- rand erstaddurá tilraunasvæð- inu þar sem það hefur verið venja varnarmálaráðuneytisins að tilkynna aldrei fyrirfram hve- nær sprengt er. Síðast var franskur forseti viðstaddur slíka tilraun er De Gaulle fylgdist með frá frönsku beitiskipi árið 1966. Þá var sprengt í andrúms- loftinu en nú er um neðanjarð- arsprengingar að ræða. ■ David Owen er einn af for- ystumönnum sósíaldemókrata. Hann var eitt sinn utanríkisráð- herra Breta. Er hugsanlegt að hann setjist aftur í ráðherrastól? Bandarískir unglingar: Aukin tíðni sjálfsmorða Washington-Reuter ■ John Carswell, talsmað- ur Barnaverndarsamtaka Bandaríkjanna, tjáði þing- nefnd fyrir skömmu að sjálfs- morð væru orðin þriðja al- gengasta dánarorsök ung- linga þarlendis. Hann áætl- aði að milli 250.000-500.000 einstaklingar á aldrinum 15- 24 ára myndu reyna að fremja sjálfsmorð á þessu ári og að um 6000 myndi takast ætlunarverk sitt. Hann sagði að ýmsar ástæður lægju að baki slíku örþrifaráði t.d. ofbeldi for- eldra, brotthlaup að heiman, skilnaður foreldra, óvænt þungun stúlkna og vandamál er tengjast eiturlyfjum og áfengi. Carswell bætti því við að helmingi meiri líkur væru á því að hvítir unglingar fremdu sjálfsmorð en svartir og að stúlkur gerðu tilraun til þess fjórum til átta sinnum oftar en piltar. Reyndar tekst piltunum oftar betur til. Bresk skoðanakönnun: Miðjuflokkarnir að síga fram úr hægri og vinstri London-Reuter ■ Samkvæmt Marplan- skoðanakönnun sem birtist í breska dagblaðinu Guardian í gær myndi bandalag sós- íaldemókrata og Frjálslynda flokksins hljóta mest fylgi í þingkosningum ef þær færu fram nú. Alls voru 1500 einstakling- ar spurðir og svöruðu 35% á þá leið að þeir styddu banda- lag miðjuflokkanna, 34% aðspurðra kváðust styðja Verkamannaflokkinn og 30% íhaldsflokkinn. Þetta er í fyrsta sinn sem sósíal- demókratar og Frjálslyndi flokkurinn ná fyrsta sætinu í skoðanakönnun. Þó svo að fyrrnefndar töl- ur yrðu sannreyndar í þing- kosningum, þá er ekki þar með sagt að þingsætafjöldi yrði samsvarandi. Eins og er hefur bandalag miðjuflokk- anna einungis 25 þingmenn og þeir yrðu ekki nema 157 þó svo að skoðanakönnunin yrði að veruleika. Ástæðan að baki þessu er kerfi ein- menningskjördæma. Þó svo að íhaldsflokkur- inn fái heldur slæma útreið í nefndri könnun, þá kemur jafnframt í ljós að Margaret Thatcher nýtur þess að vera sá breskur stjórnmálamaður sem svarendur höfðu mest traust á. 'NEWS IN BRIEF September 13 Reuter. JOHANNESBURG - So- uth Africa banned a church conference to have been addressed by Nobel Peace Prize winner Bis- k hop Desmond Tutu, barr- Qí ing Hve religious leaders ^ from entering the country. ^ LUSAKA - A group of (/) prominent South African S businessmen met leaders 5 of the African National Congress guerrilla group at a remote holiday resort in Zambia to discuss the situation in South Africa. • WASHINGTON - U.S. retail sales rose 1.9 per cent in August, a strong gain suggesting the eco- nomy was ending a span of sluggishness but dollar fell as investors said the rise was lower than ex- pected. # WASHINGTON - Sixty U.S. legislators and 90 political, military and rel- igious groups launched a coalition for the strategic "** defence initiativc in sup- g port of President Reag- j~ an’s „Star wars“ project. • PARIS - President Mitt- errand arricved at France’s Mururoa Atoll nuclear test site in the Pacific. He flew in from French Guiana, where he watched an Ariane rocket fail to put two satellites into orbit. • LONDON - Oleg Gordi- evsky, the Soviet KGB man who defected to Britain bringing with him a list of Russian agents JJj and western contacts, had worked secretlyu for Gq Britainfornearly 20years, British sources said. b s WASHINGTON S Egypt’s President Hosni ^ Mubarak and Jordan’s King Hussein will have talks with President Reag- an this month, the White House announced, in a renewed effort to promote the peace process in the Middle East. • ROME - Austrian Chanc- ellor Fred Sinowatz urged Italy to speed up plans to put German on an equal footing with Italian in the border region og Alto Adige or South Tyrol. b S BRUSSELS - The Eur- opean Community warn- ed of the danger of a „wine war“ if the United States met demands by American grape growers for protection under anti- dumping laws against ex- ^ portsofWestern Europe’s U| wine. • ^ LONDON - Britain’s annual rate of inflation fell from 6.9 to 6.2 per cent last month, its shar- pest fall in two years. • STOCKHOLM - The last opinion poll to be publis- hed before Sunday’s Swe- dish general election put Prime Minister Olof Palme narrowly ahead of I the centre-right opposit- ion. • I MOSCOW - Titleholder Anatoly Karpov regained the initiative by defeating ' challenger Garry Kaspar- | ov in 63 moves in the fourth game of the world I chess championship. The i score is now 2-2. NEWSIN BRIEFA

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.