NT - 14.09.1985, Page 23

NT - 14.09.1985, Page 23
Helgar- sportið Knattspyrna: ■ íslandsmótinu í knattspyrnu lýkur um þessa helgi og þó Vals- menn séu þegar íslands- meistarar á enn eftir að útkljá málin hvað varðar þriðja Evrópusætið. Fram leikur við ÍA á Laugardalsvelli í dag kl. 14.00 og verða Skaga- menn helst að sigra eigi Evrópusætið að vera þeirra. Á Akureyri eigast við í dag Þór og F.H. og hefst sá leikur kl. 14.00 Akureyringar verða að vinna til að eiga mögu- leika á Evrópuferð á næsta ári. Þriðji leikurinn í dag er ekki síður mikilvægur en þar eigast við Víðir og Þróttur og verður sá leik- ur í Garðinum kl. 14.00. Það lið sent tapar fellur í aðra deild. Á morgun eigast síðan við Víkingur og Keflavík á Laugardalsvelli - þessi leikur hefur verið færður frarn og aftur síðustu daga en verður sem sagt á morgun og hefst viður- eignin kl. 14.00. í dag er einnig heil umferð í 2. deild. Skalla- grímur og Í.B.Í. leika í Borgarnesi kl. 14.00. Fylkir og Leiftur leika á Laugardalsvelli kl. 17.00. Í.B.V. ogNjarðvíkeigast við í Eyjum kl. 14.00 K.S. og K.A. spila á Siglufirði ki. 14.00 og Völsungur og Breiðablik leika á Húsavík kl. 14.00. Síðasta umferðin mun skera úr um það hverjir leika í 1. deiid að ári. Þá munu Selfoss og Einherji leika síðari úr- slitaleikinn í 3. deild á Selfossi kl. 14.00. Handknattleikur: Reykjanesmótinu lýk- ur um helgina og á morg- un munu úrslitaleikirnir fara fram. Leikið verður í Hafnarfirði og hefst keppnin kl. 20.00 um þriðja sætið og úrslita- leikur verður strax á eftir. Körfuknattleikur: Reykjanesmótið hófst í gær og verður framhald- ið á morgun í íþrótta- húsinu Digranesi í Kópa- vogi. Keppni hefst kl. 13.00. Keila: Parakeppni í keilu fer fram nú um helgina í keilusalnum, Öskjuhlíð. Laugardagur 14. september 1985 23 ÍA gegn Aberdeen Skagamenn mæta skosku meisturunum Aberdeen í Ev- rópukeppni meistaraliða á Laugardalsveilinum, miðviku- daginn 18. sept. kl 18.00. Þar sem búast má við mikilli aðsókn hefur verið ákveðið að hafa forsölu á miðum á Akranesi frá n.k. mánudagi, í Versluninni Óðni og hjá Bókaverslun And- résar Níelssonar og á Laugar- dalsvelli frá hádegi daginn sem leikurinn fer fram. Það má búast við hörkuleik því eins og menn sjálfsagt rekur minni til voru Skagamenn nærri búnir að slá út Aberdeen í Evrópukeppni bikarmeistara haustið 1983. Tæplega 6 þúsund manns komu á Laugardalsvöllinn til að sjá fyrri viðureign félag- anna en þar sýndu Akurnesing- ar stórleik og voru óheppnir að tapa 1:2 Sigurður Halldórsson skoraði mark Skagamanna með glæsilegum skalla eftir horn- spyrnu. í síðari leiknum út í Skotlandi gerðu Skagamenn betur er þeir gerðu jafntefli 1:1. Sá frægi kappi Gordon Strachan náði forystunni fyrir Aberdeen með marki úr vítaspyrnu en Jón Áskelsson jafnaði, einnig úr vítaspyrnu. Skagamenn hafa til þessa leikið 22 Evrópuleiki og hafa margir þeirra verið mjög eftir- minnilegir. Má þar nefna sigur yfir Omonia frá Kýpur 4:0 árið 1975, naumt tap 2:0 gegn Dy- namo Kiev sama ár, jafntefli við Köln 1978 og naumt tap 1:0 gegn hinu heimsfræga félagi Barcelona 1979. Síðast í fyrra- haust voru Skagamenn í eldlín- unni er þeir náðu að vinna upp tveggja marka forystu gegn Be- veren á Laugardalsvellinum. Karl Þórðarson og Sveinbjörn Hákonarson skoruðu fyrir Skagamenn fyrra. Það er því óhætt að búast við hörkuviðureign á miðvikudag- inn er Skagamenn taka á móti Aberdeen og vel er hægt að taka undir þau orð Jóns Gunn- laugssonar,eins besta leikmanns Skagamanna gegnum árin, að „eftir því sem Akurnesingar fá stærri verkefni að glíma við því betur virðast þeir standa sig“. ■ Guðjón Þórðar er reyndar í Evrópukeppnum. Hér sést hann eiga við John Hewitt frá Aberdeen er liðin mættust 1983 út í Skotlandi. íþróttamaður vikunnar ■ Sá er varð fyrir valinu þessa vikuna er Guðmundur Þorbjörnsson knattspyrnumað- ur úr Val. Guðmundur vann það afrek að skora markið sem tryggði Valsmönnum ís- landsmeistaratitilinn í knattspyrnu á fimmtu- dagskvöldið. Guðmundur skoraði markið eftir að Stefán markvörður KR hafði náð að verja skot hans fyrst í stöngina. Þaðan datt boltinn fyrir fætur Guðmundar sem renndi honum inn. „Við náðum að vinna upp forskot Fram í mótinu og sigur okkar var sanngjarn" sagði Guðmundur eftir leikinn gegn KR og Is- landsmeistaratitilinn sem vannst við þann sigur. Guðmundur er jafnframt markahæsti leikmaður íslandsmótsins í dag ásamt Ómari Torfasyni úr Fram. Hárgreióslusveinn óskast í hluta eða fullt starf. Upplýsingar í síma 13010 kvöldsími 71669 HARGREIÐSLUSTOFAN KIAPPARSTIG -2 Framleiðsluráð landbúnaðarins auglýsir: Sláturtíðin fer í hönd. Þau heimili, sem hafa frystikistur geta gert hagkvæm innkaup. Gerið ódýr innkaup Kaupið dilkakjötið í heilum skrokkum, þið fáið meira fyrir peningana og kjötið sagað að ósk ykkar. Kaupið heil slátur. Ur dilkakjöti er hægt að útbúa ýmsa góða rétti. Allt kjötið nýtist. Ótal rétti er hægt að laga úr hverjum hluta skrokksins fyrir sig. 1. og 11. Hækill Brúnað og notað í kjötsoð 2. Súpukjöt Ótal pottréttir 3. Lærisneiðar Pönnusteikt eða glóðað 2a og 3. Læri Ofnsteikt, glóðað o.fl. Hakkeða kjötsoð Ofnsteikt, glóðað, kótelettur. Rúllupylsa eða glóðað 7. Framhryggur Glóðað í sneiðum, pottréttir. 8. Háls Kjötsoð, hakk 9. Banakringla Kjötsoð eða kjötrétti 10. Bringa Hakk H.Framhækill Kjötsoð Ath. Innmatur er mjög ódýr og holl fæða og er lifrin þar efst á blaði. Gamla kjötið er ennþá til á hagstæðu verði. FRAMLEIÐSLURÁÐ LANDBÚNAÐARINS 4. Huppar 5. Hryggur 6.Slög SANDBLASTUR OG MALMHUÐUN Sandblástur og málmhúðun ástórum og smáum hlutum. Mjög hagstætt verð. Gerum einnig tilboð. Sækjum og sendum innanbæjar og út á land. Erum einnig með flytjanleg tæki til sandblásturs á húsum hvar sem er á landinu. STÁLTAK Borgartúni 25, vélsmiðja ■ verktaki 105 Reykjavík sími 28933.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.