NT - 14.09.1985, Blaðsíða 28

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 28
Á röltinu Er ekki kominn tími til aö fara í fallegt og rólegt vetrarfrí? Láta rómantíkina hafa öll völd, lifa letilífi á góöu hóteli þar sem stjanað er viö þig og gera ekkert nema nákvæmlega þaö sem þú nennirog langartil hverju sinni. Ekkert stress, enginn ógnarhraöi, ekkert nema góöur matur, heiliandi umhverfi og fallegt fólk. Þannig er Amsterdam. Concertgebouw tónlelkahöllln Alls er boðið upp á 26 tónleika ( september í tónleikahöllinni frægu miðborg Amsterdam. Þar á meðal má nefna: 19. sept. Fílharmónluhljómsveit Amsterdamborgar: Satie/Debussy, Rachman- inow og Van Baaren. 27. sept. Fílharmóníuhljómsveit Rotterdam: Debussy, Crieg og Dvorák. 28. sept. Sveifluhátið: Billy Preston, Toots Tielemans, Erica Norimarog FelixWalroud. Tónlistln í nágrenni Amsterdam 13.-29. sept. Klassísk tónlistarhátið (Utrecht) 13.-29. sept. Bach-listahátíð með tónlist, dansi og myndlistarsýningum (Haag) 4.-13. okt. Albjóðleg tónlistar- hátíð, nútímatónlist (um allt land) 15.okt.-24. nóv. Bach-listahátið (Utrecht) Viljiröu komast í frí þar sem veitingahús, glæsileg söfn, huggulegar gönguferðir eftir steinlögðum strætum og rómantísk kvöldfegurð eru í aðalhlutverki, haföu þá samband viö okkur. Viö skipuleggjum fyrir þig ógleyman- lega Amsterdamferö í vetur. Pað er einstaklega skemmtilegt aö rölta um í rólegheitum í miðborg Amsterdam og láta engar áætlanir trufla sig. Horfa á mannlífið, hlusta á fiðluleik í húsasundi eða rokkhljómsveit á einhverju torginu. Fá sér eitthvað svalandi á næstu krá og virða þaöan fyrir sér furðulega húsgaflana, skreytingarnar og nostrið við smáatriöin. Fara síðan i síkjasiglingu og fá þannig allt annað sjónarhorn á byggingarnar, brýrnar og mannfólkið. Og með þvi að ve|ja síkiasiglingu að kvöldi er rómantíkinni gefinn byr undir báða vængi, upplýstar byggingar og skrautjjós á óliklegustu stöðum slá töfraljóma á allt og alla. Kvöldlifið á Leidseplein og Rembrandtsplein er einnig bráð- skemmtilegt og öruggt að eitthvað óvenjulegt og spennandi er aö gerast þar á hverju kvöldi. Pannig geta letidagarnir liðið í Amsterdam, fullir af lífi og nýjungum - og þú þarft ekkert fyrir þeim að hafa! Söfn # Söfnin og galleríin í Amsterdam eru talin með þeim betri ( Evrópu. Fjölbreytnin er mikil og allir finna eitthvaövið sitthæfi. Nokkurdæmi: Rijksmuseum - eitt stærsta listasafn Evrópu. Vincent van Cogh safnið - glæsilegt safn til heiðurs meistaran- um. Stedelljk Museum - borgarlista- safnið. Myndlist 19. og 20. aldar. Fodor - nútimamyndlist. Rembrandtshús - fyrrum heimili Rembrandts, ætingar, teikningar og verkfæri til sýnis. Hús önnu Frank - felustaöur gyðingastúlkunnar Önnu Frank og fjölskyldu hennar i síðari heimsstyrj- öldinni. Madame Tussaud - vaxmynda- safnið fræga á llka sinn fulltrúa í Amsterdam. Amsterdam Hlstorlsch Museum - sögusafn borgarinnar, sérlega fjölbreytt og fróðlegt. Markaðir Markaðirnir I Amsterdam eru frægir um alla Evrópu. Blómamarkaðurlnn - ilmandi blómahaf í miðborginni. Flóamarkaðurlnn - bar sem öllu ægir saman, notuðu og nýju. Albert Cuyp - hreinræktaöur götumarkaður, sá stærsti i borginni. Það hefur veriö sagt með réttu að í Amsterdam getir þú borðað á öllum tungumálum heims! Fjölbreytnin er með ólikindum. Þú finnurt.d. bresk, karabísk, dönsk, frönsk, hindúlsk, indversk, spönsk, pakistönsk, kínversk-indónesísk, ítölsk, japönsk, Kbönsk, mexíkönsk, marokkönsk, norsk og aö sjálfsögðu hollensk veitingahús á rölti þinu um miðborgina. Verslun Sýnlngar # Nokkur dæmi um þær fjölmörgu vörusýningar sem framundan eru í Amsterdam: 15.-16. sept. 15.-17. sept. 30. sept.- 5.okt. 4.-13. okt. 4.-6. okt. 15. -17. Okt. 16. -20. okt. 21.-23. Okt. 29.-31. Okt. 12.-16. nóv. 26.-28. nóv. Léttogsterkvin Maturog drykkur Tæki til vísinda og iðnaðar Neysluvörur Cæludýr Tölvur Leikföng og tóm- stundavörur Umboðs- og viðskipta- kaupstefna VIDEOTEX Skipog siglingar Tölvuhönnun og -framleiðsla Það er ódýrt og þægilegt að versla ' Amsterdam. Frægastar eru auðvitað demantaverslanirnar, þar sem rómantíkin fær notiö sin til fulls innan um fagra og verðmæta skartgripi. En leiti menn fremur að fatnaði eða gjafavöru þá er af nógu að taka. Sérverslanir skipta hundruðum í verslunargötunum og stórverslanirnar eru margar. Þjónusta er alls staðar lipur og tungumálið er ekkert vandamál. Flestir Amsterdambúar tala ensku og bregðist hún landanum er táknmál, fingramál og jafnvel íslenska oft ótrúlega árangursrík leið til skilnings. Hótelin okkar í Amsterdam: ■Ht ÆÍP Kvikmyndahús Þau skipta tugum í miðborginni. Þar eru myndirnar alltaf sýndar með sinu upprunalegu máli, þannig að flestar eru þær með ensku tali (og hollenskum texta). LOTi íjltflin ' JÖl® Nú gefst farþegum okkar færi á aö ruóta lengri eða skemmri dvalar í Róm I tengslum við Amsterdam- ferðlna. Flogiö er beinttil Rómar og eftir ógleymanleg kynnl er flogiö til Amstc-rdam Þar er tiivalið að bæta viö nokkrum dögum áöur en flogið er helm til fslands. Heimsókn til Rómar er þvlllkt ævintýri að ekki verður með oröum lýst. Þar stendur þú framml fyrlr einhverjum stórbrotnustu minjum mannkynssögunnar, upplifir magnaö andrúmsloft heimslistar- innar og tignarlegt manniíf... Það er sama hversu langt þú leitar, þaö er bara til ein Róm - og henni verður þú að kynnast. verðlð er hagstætt. Dæmi: 3 dagar fra kr. 22.783 5 dagar frá kr. 24.500 7 dagar frá kr. 25.990. Verö miöað viö gistingu í tveggja manna herbergi. innifalið: Fíug Keflavík - Róm og Róm - Amsterdam - Keflavik, hótelglsting og ferðlr að og frá flugvelli eriendis. Hótelin I Róm Þú getur valið um 12 mjög góö hótel. allt frá iátlausum en vönduðum gististöðum til lúxushótela af bestu gerð. ðll eru þau á góöum stað í borginnl. Hestia Victoria Owl Sonesta Jan Luyken Öll eru hótelin i hiarta borgarinnar. Þau eru i mjög mismunandi verð- flokkum, allt frá litlum ódýrum hótelum upp í stór lúxushótel. Þannig geta allir valið gististað í samræmi við sínar óskir. Schlphol • Ár eftir ár hefur þessi glæsilegi flugvöllur verið valinn sá besti af tímaritum um flugmál. Afgreiðsla gengur f|jótt og vel fyrir sig, allt er gert til að auka þægindi farþega og sjálf frihöfnin er ein sú ódýrasta sem völ er á. Verð frá: Helgarferð (lau.-mán.)11 Kr. 13.950 í sept. og okt. Kr. 13.500 eftir 1. nóv. I Löng helgi (fim.-mán.) Kr. 17.700 í sept. og okt. Kr. 17.400 eftir 1. nóv. 6 daga ferð (fim.-þri.) Kr. 18.700 í sept. og okt. Kr. 17.500 eftir 1. nóv. Vikuferð (fim.-fim.) Kr. 20.400 í sept. og okt. Kr. 18.500 eftir 1. nóv. 1) Ath. Flogið út á laugardagsmorgni og heim á mánudagskvöldi. Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SIMAR 21400 & 23727 Auglýsingaþjónustan

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.