NT - 16.10.1985, Side 18
Fimleikar
■ Fyrirstuttu varhaldið
alþjóðlegt fimleikamót í
Antwerpen í Belgíu,
þangað fóru á vegum
Fimleikasambands ís-
lands 2 stúlkur, Hanna
Lóa Friðjónsdóttir og
Hlín Bjarnadóttir, ásamt
þjálfara sínum Valdimar
Karlssyni og Birnu
Björnsdóttur dómara
sem jafnframt var farar-
stjóri. Stúlkurnar stóðu
sig vel í keppninni og var
Hlín í 14. sæti og Hanna
Lóa í 17. sæti. Alls kepptu
25 stúlkur í áhalda-
fímleikunum.
Dæmt var eftir reglum
FIG í keppni 2 og keppni
3 sem er það erfíðasta
sem keppt er eftir. Birna
Björnsdóttir var sett sem
yfírdómari í gólfæfíngum
fyrri dag, og í úrslita-
kcppni sem yfírdómari
nr. 1 ásamt yfírdómara
nr. 2 sem var frá Lúxem-
borg, 6 dómarar dæmdu
á hverju áhaldi í úrslitum.
Keppni í nútímafim-
leikum var haldin á sama
stað og voru þátttakend-
ur m.a. frá Búlgaríu,
Póllandi, Finnlandi,
Sviss, Þýskalandi og
Belgíu. Alls tóku um 60
þátttakendur þátt í mót-
um þessum, þar af 13
piltar.
Ársþing FSÍ
■ Ársþing fímleika- I
sambands Islands verður ]
haldið dagana 15.-16.
nóv. 1985, í hinum nýju
og glæsilcgu húsakynnum
íþróttasambands íslands,
í íþróttamiðstöð í Laug-
ardal. Dagskrá sam-
kvæmt lögum.
■ Magnús Jónatansson.
Spámaður
vikunnar
■ Spámaður vikunnar að
þessu sinni er Magnús Jónatans-
son, hinn þekkti knattspyrnu-
þjálfari. Magnús er einn reynd-
asti og besti knattspyrnuþjálfari
landsins og hefur náð mjög
góðum árangri með lið eins og
K.R., ísafjörð, og nú síðast
Selfoss sem hann stýrði til sigurs
í 3. deildinni.
Magnús hefur kynnt sér þjálf-
un í Englandi, bæði hjá Arsenal
og Ipswich en þau leika einmitt
saman næsta laugardag.
Spá Magnúsar er þessi:
Arienal-Ipiwich.....................2
Everton-Watford ....................1
Leiceiter-Sheff. Wed................X
Luton-Southampton...................2
Man. Utd-Liverpool..................X
Newcaitle-Nott. For ................1
Q.P.R.-Man. City ...................1
W.B.A.-Birminflham .................1
Weit Ham-Aiton Villa ...............1
Blackburn-Oldham .................. 1
Brighton-Charlton...................X
Hull-Hudderifield ..................2
Undankeppni HM í knattspyrnu:
Shilton slær met
22
Hann mun leika sinn 75. landsleik og slá met Gordon Banks - Rúmenar
geta tryggt sér farseðil - Rússar stíga væntanlega skrefi nær - Schuster
verður jafnvel með í Mexíkó
Miðvikudagur 16. október 1985
UEFA sektar vegna óláta
Tvö grísk lið fá þungar sektir og formaður annars þeirra
■ Knattspyrnusamhand Evr-
ópu (UEFA) hefur að undan-
förnu hamast við að sekta félög
sem höguðu sér illa í fyrstu
umferð Evrópumótanna.
Torino frá Italíu og Panathin-
aikos frá Grikklandi fengu
þyngstu sektirnar en þessi lið
mættust í fyrstu untferð og þóttu
Ieika óprúðmannlega svo ekki
sé meira sagt. Grikkirnir voru
öllu verri, sérstaklega er leikið
var í Aþenu 2. október. Liðið
varð sér úti um 1,5 milljón
króna sekt fyrir ruddaskap bæði
í leik og einnig eftir leik. Georg-
es Vardinoyannis, forseta fé-
lagsins var í þokkabót meinað
að starfa í sambandi við Evrópu-
knattspyrnu fram til ársins 1989.
Hann brúkaði grískan munn-
söfnuð við dómarann eftir leik-
inn í Aþenu.
Þá fengu Eindhoven frá Hol-
landi og Paok Saloniki. jú einnig
frá Grikklandi. sektir vegna
hluta er hent var inná völlinn,
■ Peter Shilton ætti ekki að þurfa að glíma við marga svona bolta
í kvöld.
■ í kvöld fara fram nokkrir
leikir f undankeppni Heims-
meistaramótsins í knattspyrnu
og eru flestir hinir mikilvæg-
ustu.
Englendingar taka á móti
Tyrkjum á Wembley en tvö stig
úr þeim leik tryggja það að
Englendingar verði 12. þjóðin
sem vinnur sér sæti í úrslita-
keppninni í Mexíkó. Peter
Shilton mun leika í 75. sinn með
enska landsliðinu og þar með
slá met félaga síns Gordon
Banks. Shilton ætti að hafa það
frekar rólegt í kvöld þó þjálfari
tyrkneska liðsins Coskun Ozari
haldi annað: „Við erum síður
en svo hræddir. Við munum
leika sóknarleik því lið okkar er
ungt og þjálfað til að sækja,“
sagði Ozari í viðtali við enska
blaðamenn. Englendingar unnu
Tyrki í fyrra með átta mörkum
gegn engu.
Rúmenar og N-Irar leika í
sama riðli og eiga bæði liðin
möguleika á Mexíkóferð. Þessi
lið mætast í Búkarest í kvöld og
þykja Rúmenar, með snilling-
inn Hagi í fararbroddi, öllu
líklegri til sigurs. Það myndi
nánast tryggja þeim farseðilinn
góða til Mexíkó.
Staðan í riðlinum er nú þeiai:
England...........6330 16 29
Finnland.......... 8323 7 12 8
Rúmenía...........6231 9 67
NorSur-ír.l.......6312 7 67
Tyrkland..........6 0 16 1 16 1
Sovétríkin gætu einnig nær
tryggt sér þátttökurétt í loka-
keppninni sigri þeir íra í
Moskvu í kvöld. Þá eiga þeir
eftir að leika við Norðmenn,
einnig á heimavelli, og ættu að
vinna þó við Ítalíubana sé að
etja.
Portúgalar fara til V-Þýskalands
og verða að sigra til að halda
voninni um sæti í lokakeppn-
inni. Það verður erfitt því þó
V-Þjóðverjar séu þegar búnir
að tryggja sér sæti í lokakeppn-
inni verður ekkert gefið eftir í
Stuttgart þar sem leikurinn fer
fram. Þær fréttir bárust reyndar
í gær að þjálfari þýska liðsins
Franz Beckenbauer væri að
reyna að fá Barcelónukappann
Bernd Schuster til að leika með
liðinu í Mexíkó en alls konar
ósætti hefur komið í veg fyrir
að Schuster léki með þýska
liðinu. Er því ástæða til að ætla
að allir þýsku leikmennirnir
reyni að sýna livað í þeim býr.
Tékkar og Svíar leika einnig í
kvöld en þessi lið eru í sama
riðli og tvö hin ofantöldu. Ef
Svíar krækja sér í stig eða tvö á
móti Tékkum, sem lítið hafa
sýnt að undanförnu, aukast
möguleikar þeirra verulega á
því að fylgja V-Þjóðverjum til
Mexíkó.
Þá er ógetið leiks Norðmanna
og Dana en hann fer fram í Osló
í kvöld. Leikurinn er geysilega
mikilvægur eins og staðan í
riðlinum sýnir:
Danmörk ..
SvÍSB .....
Sovótríkin .
írland.....
Noregur ...
Loks skal getið leiks Belgíu og
Hollands. Þessi lið leika í kvöld
í Brússel og er það fyrri viður-
eignin í hreinni úrslitakeppni
liðanna. Barist um Mexíkóferð.
Erjur á millMiða
Ástralíu og Israels
■ Ísíðustuvikufórframleikur
ísraela og Ástralíu í Eyjaálfu-
riðli undankeppni Heimsmeist-
aramótsins í knattspyrnu.
Ástralir sigruðu 2-1 þrátt fyrir
að leikið var í Tel Aviv.
Eftir leikinn var hiti í mönn-
um og kvartanir gengu á báða
bóga. Frank Arok, þjálfari
ástralska liðsins, sakaði heima-
liðið um að missa stjórn á skapi
sínu og brjóta illa af sér hvað
eftir annað.
Joe Mirmovitch, þjálfari ísra-
elska liðsins, var einnig
öskuvondur: „Við leikum ekki
ruddalega. Ef við brutum af
okkur æstist Arok allur upp en
þegar hans lið lék gróft fannst
honum það vera ósköp eðli-
legt,“ sagði Mirmovitch, ’ er
blaðamenn spurðu hann álits á
ummælum Aroks.
Síðari leikur þessara þjóða
fer fram þann 20. október í
Ástralíu. Liðin hafa því nú tæpa
viku til að kæla sig niður.
Annar leikur í þessum riðli
fór fram í síðustu viku en þá
sigraði Nýja-Sjáland lið Taiw-
ans örugglega með fimm mörk-
um gegn engu. Grant Turner
(2), Colin Walker (2) og Allan
Boath skoruðu mörk heima-
manna.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Nýja-Sjáland 3 2 1 0 10 15
ísrael 3 2 0 1 12 2 4
Ástralia 2 110 2 13
Taiwan 4 0 0 4 1 21 0
Sigurvegarinn úr riðlinum mœtir Skot-
um og er barist um íarseðil til Mexíkó að
vori.
Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir 1 x2 Getraunir
■ Síðastliðinn laugardag var
8. leikvikan hjá íslenskum get-
raunum og kom aðeins ein röð
fram ineð tólf réttum leikjum.
Eins og fram hefur komið í NT
var sá heppni Eiður Guðjohn-
sen, faðir knattspyrnukappans
Arnórs Guðjohnsen, og var
hann 768.570 krónum ríkari.
Einnig laumaðist Eiður til að
hafa fjórtán raðir með 11 réttum
og fékk hann aukaskilding fyrir
það. Rcyndar voru raðir með 11
réttum alls 36 og gefur hver um
sig kr. 9.149,-
Fylkismenn voru að venju
öflugastir við söluna en alls
seldust 585.580 raðir.
Jón Hermannsson. þjálfari
Breiðabliks í knattspyrnunni,
sem var spámaður síðustu viku,
stóð sig þokkalega. Hann fékk
5 rétta. Spámenn NT voru ekki
með marga leiki rétta, reyndar
frekar fáa, réttara sagt aðeins 2
rétta leiki. Sannaðist þar hið
fornkveðna að allt getur gerst í
getraunum. En ný leikvika boð-
ar nýja von - seðillinn er erfiður
að venju en þar sem þetta er 9.
leikvikan eru miklar líkur á að
spámenn NT detti í þann fræga
lukkupott.
Arsenal-Ipswich .......... 1
Lundúnaliðið verður einfald-
lega of sterkt fyrir liðið frá
Austur-Angelíu.
Everton-Watford.......... 1
Hcimasigur og Lineker skor-
ar mark sem dæmt verður af
vegna rangstöðu. Gerir ekkert
til, hann skorar annað.
Leicester-Sheff. Wed.....X
„Uglurnar" frá Sheffield töp-
uðu í fyrra en ná jöfnu að þessu
sinni.
Luton-Southampton........ 1
Gervigrasið á hcimavelli
Luton mun eiga stóran þátt í
sigri liðsins. í fyrra var jafntefli
3-3, nú sigrar Luton 3-0.
Man. Utd.-Liverpool .... 2
Úff, erfiður leikur. Flestir spá
sjálfsagt heimaliðinu sigri en
húsmóður úr Skagafirðinum
dreymdi útisigur. Fer eftir
henni.
Newcastle-Nott. Forest ... 1
Brian Clough var eitt sinn
leikmaður Sunderland. Það er
stutt milli Sunderland og New-
castle. Ergó, Nottingham tapar.
Q.P.R.-Man. City......... 1
öruggur sigur Lundúnaliðs-
ins á gervimottunni á Loftus
Road.
W.B.A.-Birmingham .... 1
Loksins kemur að því
W.B.A. sigrar í einvígi liðanna
frá Miðlöndunum.
West Ham-Aston Villa ... 2
Frekar óvæntur útisigur sem
aðeins góðir spámenn sjá út.
Blackburn-Oldham ......... 1
Bæði liðin koma frá Lancas-
hire og standa sig vel. Naumur
heimasigur.
Brighton-Charlton......... 1
Heimavöllurinn ræður úrslit-
um í þessari viðureign.
Hull-Hudersfíeld.........X
Liðið frá Humberside mun
reyna allt til að sigrast á Jórvík-
urliðinu en allt kemur fyrirekki,
jafntefli - ét hatt minn uppá
það.
■ 1 dag býður kerfishanlnn okkur uppá útgangeraðakerfi eem eett er á 40 gula seðla. Þegar nogað er útgangsraðakerfi er
eitt merkl valið og skal það hafa forgang. í þessu kerfi er merkið 1 notað sem forgangsmerki, en auðvitað má velja annað.
Hór byrjar þú að festa 3 leiki og fœra þá ó alla seðlana. Kerfið gefur þór síðan möguleika á 6 þrítryggðum leikjum med
útgangsraðamerki (U-merki) og 3 tvitryggðum sem merktir eru „matematisk". Ef föstu og tvítryggðu leikirnir eru róttir og
helmingur af þritryggðu leikjunum þá er 50% möguleiki a tólf róttum leikjum.
1 2 3 4 6 6 7 8 9 10 11 12 13 14 16 16 17 18 19 20
1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
X2 X2 X2 1 1 X2 X2 X2 1 1 X2 X2 X2 1 1 X2 X2 X2 1 1
X2 X2 1 X2 1 X2 1 1 X2 X2 X2 1 1 X2 X2 X2 X2 1 X2 1
1 1 X2 X2 X2 X2 X2 1 X2 1 X2 X2 1 X2 1 1 1 X2 X2 X2
X2 1 1 X2 X2 1 X2 X2 1 X2 1 X2 X2 1 X2 X2 1 1 X2 X2
i X3 X3 1 X2 1 1 X2 X2 X? 1 1 X? X2 X2 1 X2 X? 1 X9
1 1 1 1 1 1 1 l 1 1 X X X X X X X X X X
1 1 1 1 1 X X X X X 1 1 í í 1 X X X X X
IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX
Tcgund ■•ðla:
16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16
21 22 2? 24 K 2e 27 7? 91 92 99 94 99 99 97 99 99 49
X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2 X2
X2 X2 1 1 1 X2 X2 1 1 1 X2 X2 1 1 1 X2 X2 1 1 1
1 1 X2 X2 1 X2 1 X2 1 1 X2 1 X? 1 1 1 1 X2 X2 1
X2 1 X2 1 1 1 1 1 xí X2 1 1 1 X2 X2 M 1 X2 l 1
1 X2 1 1 X2 1 1 X2 X2 1 1 1 X2 X2 1 1 X2 1 l X2
1 1 1 X2 X2 l X2 1 1 X2 1 X2 1 1 X2 1 1 1 X2 X2
1 1 1 1 1 l 1 1 1 1 X X X X X X X X X X
1 1 1 1 1 x X X X X í 1 1 1 1 X X X X X
IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX IX
16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16 16
þritryggdir
tvitryggðir
þritryggðir
tvitryggðir